Morgunblaðið - 27.10.1974, Side 38

Morgunblaðið - 27.10.1974, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 AÐALFUNDUR Félags sjálfstæðismanna i LAUGARNESHVERFI verður haldinn þriðjudaginn 29. október kl. 30:30 i Kassagerð Reykjavikur Dagskrá fundar: Venjuleg aðalfundarstörf. Ræðumaður: Matthias Á. Matthiesen, fjármála- ráð herra. Mætið stundvislega og takið með nýja félaga. Stjórnin. AÐALFUNDUR Landsmálafélagsins Varðar verður haldinn í Átthagasal, Hótel Sögu miðvikudaginn 30. októ- ber n.k. kl. 20:30. FUNDAREFNI: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ræða: Matthias Bjarnason sjávarútvegsráðherra. Stjórnin. Málfundafélagið Óðinn heldur aðalfund fimmtudaginn 31. október n.k. kl. 20 i Miðbæ, Háaleitisbraut 58—60. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Ræða: Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra. 3. Önnur mál. Félagar fjölmennið! Stjórnin. Sjálfstæðiskvennafélag Árnessýslu Sjálfstæðiskvennafélag Árnessýslu heldur AÐ- ALFUND í sjálfstæðishúsinu Tryggvagötu 8, Selfossi miðvikudaginn 30. október kl. 9 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Ræddar lagabreytingar. Sigurlaug Bjarnadóttir, alþingismaður ræðir um stjórnmálaviðhorfið. Stjórnin.. Félagskonur fjölmennið. Seltjarnarnes: Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Seltirninga verður haldinn mánudaginn 28. október í Félagsheimilinu og hefst kl. 21.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Matthias Á Mathiesen fjármálaráðherra ræðir um stjónmálin. 3. Önnur mál. Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi mæta á fundinn, eftir því sem við verður komið. Stjórnin. Aðalfundur Samtaka ungra sjálfstæðismanna í Norðurlandskjördæmi verður haldinn í Félagsheimili Húsavíkur sunnu- daginn 1 0. nóv. kl. 1 3.30. Dagskrá: 1. Þingsetning. 2. Kjör þingforseta. þingritara og kjörnefndar. 3. Ávarp. Friðrik Sópusson form. SUS. 4. Skýrsla stjórnar. 5. Lagabreytingar. 6. Kjördæmaskipanin. 7. Húsnæðismál ungs fólks. Þorvaldur Mawby. 8. Önnur mál. 10. Þingslit. Allir ungir sjálfstæðismenn i Norðurlandskjör- dæmi eystra eiga rétt á þingsetu. Stjórnin. eystra, Skautbúningagerð og skjólgóðar flíkur Þjóðhátíðarsumar Islendinga 1974 er gengið um garð, en hlý sólbros frá heiðum himni hafa leikið um virðulegar þjóðhátið- ir viðsvegar um land. Hafa þær sýnt að íslenzk þjóðarsál á innan sinna vébanda sterkan samtakamátt, er metur meira sæmd en vanvirðu. Ber okkur sem stóðum utan við starfsviðið að færa þakkir þeim, sem létu strengi Islands- hörpunnar hljóma fagurlega. Á hátíðasumrinu okkar fyr- nefnda hafa án efa margir ein- staklingar og stofnanir átt stór afmæli. Langar mig að minnast hér lítið eitt á 30 ára afmæli húsmæðraskólans á Löngu- mýri, þótt það marki ekki þátta- skil í þjóðarsögu. I þvi hófi hefði ég gjarnan viljað vera og hitta þar f jölmennan hóp kærra fornvina minna, en hugurinn gat aðeins dvalið þar, því ég lá veik i sjúkrahúsi. En alltaf er það nú notalegt að dvelja í faðmi skagfirzku fjallanna i vöku og svefni. I afmæli þessu bárust skól- anum margar vinarkveðjur og m.a. höfðinglegar peninga- gjafir frá sýslusjóði Skagafjarð- ar og kvenfélagi Akureyrar- kirkju. En veglegasta gjöfin var frá 30 árgöngum sem dvalið hafa í skólanum, ásamt núver- andi kennurum hans. Var það vandað og dýrt pianó, sem um þær mundir sat fast í tolli í Reykjavík. Nú er þetta dýr- mæta hljóðfæri komið þangað, sem þvi var ætlað að fara, og var leikið á það í fyrsta skipti í haust við skólasetningu. Vil ég leyfa mér sem stofn- andi skólans og velunnari hans að þakka allar þessar höfðing- legu gjafir, en þó meira vinar- hug, sem á bak við stendur. Óvenju fátt nemenda var þar nú við skólasetningu, en vonir standa til að þeim fjölgi bráð- lega með námskeiðastúlkum. Þar eru góðir kennslukraftar, tvær fastráðnar kennslukonur auk forstöðukonu. Nýlega var saumakennarinn frá Löngumýri á ferð hér i Reykjavík að leita eftir fegurstu efnum í skautbúninga handa nemendum, er óskuðu að sauma þá. Finnst mér vel við- eigandi að islenzkum þjóð- búningum, og þó einkum skaut- búningum, fjölgi eftir föngum á þessu þjóðhátiðarári. Skaut- búningur er líklega fegursti þjóðbúningur, sem finnst í veröldinni. Ég skora á ykkur námskeiðs- stúlkur í Löngumýrarskóa, að sauma ykkur skautbúninga hjá hinum duglega og haga sauma- kennara, sem þar er, og gaman væri ef fyrrverandi nemendur búsettir i grennd við skólann, hefðu tækifæri til að koma sér upp slíkum skartklæðum. Að gefnu tilefni vil ég taka fram, að skólinn á Löngumýri hefur aldrei verið nein guð- fræðideild, þótt hann sé nú eign þjóðkirkjunnar, en vil þó bæta við, að undirstöðu sjálfs- uppeldis nemandans vill skól- inn byggja á grundvelli hins glaða kristindóms, sem telur æðsta hlutverkið að leggja ótrauður á brattann f leit að stöðugt bjartara ljósi, svo hægt sé að lýsa samferðafólkinu og rétta þeim hjálparhönd, sem á þurfa að halda. Ég óska að mitt kæra ættar- land megi ætfð eiga göfuga og sterka þjóð, sem metur meira innri en ytri menningu — þjóð er kýs öðru fremur auðæfi sem hvorki mölur né ryð fær grand- að. Þá munu andleg f jöll okkar tslendinga rísa hátt með virðu- legri reisn, klæðast fögrum þjóðbúningum og líta með vel- þóknun og þakklæti á landið, sem Guð hefur gefið þeim er búa hér við hið yzta haf. Megi andlegur þroski þeirra hjálpa þeim til að skynja ætíð fegurð himins, þótt þeir standi báðum fótum á jörðu. Beztu þakkir, kveðjur og heillaóskir til vina minna víðs- vegar um land. Guð gefi þeim jafnan þær gjafir sem þeir þurfa helzt á að halda. Ingibjörg Jóhannsdóttir Frá Löngumýri. Almennur stúdentafundur verður haldinn í félagsstofnun stúdenta við Hringbraut mánudaginn 28. október kl. 3. Fundarefni: Horfur og aðgerðir í lánamálum. Tillaga stjórnar stúdentaráðs um að leggja niður Stúdentafélag Háskóla íslands. St/órn S.H.Í BARNAÚLPUR í FJÖLBREYTTU ÚRVALI. MJÖG VANDAÐAR OG FALLEGAR. Póstsendum *-0lfun tískuverzlun æskunnar, Þingholtsstræti 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.