Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER 1974
13
Pétur
Þorsteinsson:
w
Abending til
Guðmundar
W
Oskarssonar
1 MORGUNBLAÐINU þann 22.
þ.m. birtist grein eftir einhvern
Guömund Óskarsson, er bar yfir-
skriftina „Herstöövarandstæðing-
ur — en vill Keflavíkursjónvarp“.
Þar fjallar hann um grein eftir
Sigurlaugu Bjarnadóttur alþing-
ismann. Telur hann grein Sigur-
laugar vera „það argasta aftur-
hald og forpokaðasta íhald, sem
lengi hafi birztíMbl. “Hinsvegar
tel ég grein Sigurlaugar vera eitt
hið frjálslyndasta sem birzt hafi í
Mbl. um langan tíma, og hafi hún
mikla þökk fyrir.
En kveikjan, að skrifum mínum
um þetta mál er niðurlag greinar
Guðmundar. Þar segir: „Ég álít
herinn hingað kominn sem full-
trúa heimskunnar, blekkingar-
innar, lygarinnar, hatursins og
ágirndarinnar í heiminum og
vildi því losna við hann helzt
strax. En úr því hann er hér að
vilja meirihluta þjóðarinnar er þá
nokkur ástæða til að vera með
rembing og hroka gagnvart her-
stöðinni. Verðum við ekki að við-
urkenna hana sem illa staðreynd,
en láta fólkið sjálft um að varast
áhrifin frá henni.“ I þessum út-
drætti er spurt óbeinna spurn-
inga, sem ég tel nauðsyn vera á að
Guðm. og fleiri sama sinnis fái
svör við, þótt fátækleg verói.
Til þess að hafa her þarf menn.
I her eru menn, sem búið er að
forheimska eða eru forheimskað-
ir fyrir. En nú gæti eitthvað af
þessum mönnum farið að hugsa.
Og hvað er þá betra en forheimsk-
andi fjölmiðill. Sjónvarpið. Þar
eru hermennirnir mataðir á
ákveðnum upplýsingum, sem eru
heppilegar fyrir „kerfið", þannig
að þeir verða að villuráfandi, for-
heimskuðum verum. En þar sem
sjónvarpið nær út fyrir íverustaði
hermannanna til mikils megin-
hluta þjóðarinnar, er ekki nema
von að áhrif þess verði töluverð.
Smámsaman forheimskar það þá
Islendinga, sem horfa á það og
brátt hneigjast þeir að því, að
vera hersins hér á landi sé óhjá-
kvæmileg. Og brátt verður þannig
komið, að þeir halda að herinn
þurfi að vera hér um aldur og
ævi. Þess vegna er höfuðnauðsyn
á að lokað verði algjörlega fyrir
sjónvarpið, þannig að fólk geti
tekið rökrétta ákvörðun um veru
hersins.
Ég lít svo á, að þeir sem rita
undir „Frjálsa menningu" og rit-
uðu einnig undir „Varið land",
séu þar með að viðurkenna það,
að þeir vilji halda í herinn bara
fyrir sjónvarpið, en ekki til þess
að tryggja þátttöku okkar i vest-
rænu samstarfi. Það er þvi enginn
vafi á því, að sumir þeirra, sem
rituðu undir „Varið land“ gerðu
það vegna sjónvarpsins. Og það er
engan veginn vist, að herinn sé
hér að vilja meirihluta þjóðarinn-
ar og engan veginn megum við
viðurkenna hann sem illa stað-
reynd. Jafnvel þótt allir íslend-
ingar væru með herstöðinni en
Guðm. Óskarsson væri einn and-
stæðingur hennar, mætti hann
ekki gefast upp og segja þetta
vera „illa staðreynd". Þvert á
móti hefði hann fullkominn rétt
til þess að vara alla forheimskaða
Islendinga við henni og ekki
„viðurkenna hana sem illa stað-
reynd" heldur berjast til þrautar,
þannig að það sem hann áliti vera
réttast og sannast myndi sigra.
Reykjavík á veturnóttum,
Pétur Þorsteinsson.
JHotfiunblitbib
nucivsincflR
^-«22480
Af sérstökum ástæðum getum við enn afgreitt
tvo sumarbústaði af þessari gerð á næsta vori.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar, ef samið er strax.
Upplýsingar í síma 51 888 og 52680.
Tvinninn
sem má treysta.
Hentar fyrir allar gerðir efna.
Sterkur — lipur.
Óvenju mikið litaúrval.
DRIMA — fyriröll efni
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson
&Coh.f.
Útgerðarmenn
Grásleppunetaslöngur úr garni nr. 15 til af-
greiðslu strax. Verð á 120 faðma slöngu kr.
1.975.— Eigum einnig netaflot á kr. 10.70
pr. stk.
Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík,
sími 4 1444.
Rom
Londo
ftpn lum-
tíon Pons
Vetrarkapur
- 36-52
T erylenekápur
- 36-52
Buxnadragtir
- 36-48
Kuldaúlpur
- 36-48
Peysur og
síðbuxur
0*
POSTSENDUM
VERÐLISTINN
V/ HLEMMTORG
1950
Minjagripir frá
AlþingishátíÖinni 1930
eru verömætir
ættargripir nú.
Ef aö líkum lætur, eiga minjagripir
Þjóöhátíöarnefndar 1974
einnig eftir aö margfaldast aö verömæti
meö árunum.
Veggskildirnir sem Sigrún Guöjónsdóttir
listamaöur hannaöi og hlaut verölaun fyrir,
kosta í dag kr. 7.494Þeir eru framleiddir
meö sérstakri áferö hjá Bing og Gröndahl.
Tryggiö yöur þessa kjörgripi á meöan
tækifæri er til. Þeir fást í helstu
minjagripaverslunum um land allt.
Þjóöhátíöarnefnd 1974
pP***