Morgunblaðið - 31.10.1974, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 31.10.1974, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÖBER 1974 20 Landsleikur í blaki: r Skotar unnu Islendinga 3:0 Frá Pétri Eirfkssyni, frétta- manni Mbl. á iandsleik Skotlands og íslands f Edenborg. Skotar sigruðu Islendinga, 3—0, f landsleik f blaki, sem fram fðr fyrir troðfullu húsi áhorfenda f íþróttahöll Edenborgar f gær- kvöldi. Var mikil stemmning meðal áhorfenda á meðan á leiknum stóð og heimaliðið óspart hvatt, enda hafði þvf verið spáð fyrirfram, að leikur þessi yrði sennilega jafn og tvfsýnn, ekki ÍRSKA lýðveldið sigraði Sovét- ríkin f landsleik í knattspyrnu, sem fram fór í Dublin í gær- kvöldi, 3—0. Staðan í hálfleik var 2—0. Sami maðurinn, Don Givens, skoraði öll mörkin Ileikn- um. Þetta var fyrri leikur Irlands og Sovétríkjanna í sjötta riðli Evrópubikarkeppni landsliða f knattspyrnu, en með þeim í riðlinum eru Tyrkland og Sviss. Júgóslavía — Noregur Júgóslavía sigraði Noreg, 3—1, í fyrri leik liðanna í 3. riðli Evrópubikarkeppni Iandsliða, en leikið var í Belgrad í gærkvöldi. Staðan í hálfleik var 1—1. Mörk Júgóslavíu skoraði Vukotic á 43. mín., og Katalinski á 58. og 72. mín. Mark Norðmanna skoraði Flemming Lund á 36. mínútu. Svíþjóð — N-trland Leikurinn var liður í keppni 3. riðils Evrópubikarkeppni lands- liða og fór fram í Stokkhólmi. Norður-Irar sigruðu í leiknum — íþróttir Framhald af bls. 35 hann hafði unnið aftur til heims- meistaratitilsins og sannað hversu gífurlega góður hnefaleik- ari hann er. ALI HRESS — AÐVONUM Fyrir keppnina hafði Muhamméd Ali lýst því yfir að þetta yrði sín síðasta keppni, hver svo sem úrslitin yrðu, en eftir keppnina sagði hann hins vegar, að hann mundi hugsa sig um ef honum yrðu boðnar 10 milljónir dollara fyrir að berjast enn einu sinni — fyrir minna færi hann ekki í hringinn. — En núna ætla ég til konunnar minnar og barn- anna f jögurra, sagði hann, — hjá þeim ætla ég að vera og njóta titilsins. — En gleymið því ekki, sagði hann við blaðamennina, — að það var Allah sem átti rothögg- ið. Það er hann sem veitir mér hina yfirnáttúrlegu orku. Ali sagði, að leikurinn hefði farið nákvæmlega eins og hann átti von á og nákvæmlega eins og hann skipulagði hann. — Ég gaf honum náðarhöggið með vinstri hendi. Ég lét hann sækja. Ég sagði ykkur alltaf að þessi maður ætti ekki möguleika. Ég var bú- inn að éta hann eftir fjórar lotur. Ég sagði honum alltaf að koma og sýna eitthvað, en hann gat það ekki ræfillinn. Frazier er hættu- legri en Foreman, Frazier er betri baráttumaður. FOREMAN HÓGVÆR Andlit Foremans var illa leikið eftir keppnina, en þó jafnaði hann sig brátt. Hann var hinn rólegasti er hann ræddi við blaða- menn, og sagði ekki eitt einasta niðrandi orð um Ali. — Það tapaði enginn, sagði Foreman. — Þetta var heiðarleg barátta, og þegar menn berjast raunverulega og gera það sem þeir geta, þá tapar enginn keppni. Og sízt af öllu baktalar maður þann sem hefur unnið. Ali er heiðursmaður. Hann er Banda- ríkjamaður. Hann er baráttu- maður. Honum er auðvitað frjálst að segja það um mig og aðra sem honum sýnist. Mitt mottó er hins vegar þetta: Getir þú ekki sagt sfzt fyrir þá sök, að með skozka liðinu léku nú fjórir ieikmenn, sem ekki höfðu leikið með blak- landsliðinu áður, og tveir aðrir höfðu aðeins einn leik að baki. Þrátt fyrir svo marga reynslu- lausa menn í skozka liðinu var áberandi, að Islendingarnir voru enn reynsluminni, og auk þess var bersýnilegt, einkum til að byrja með, að taugaóstyrkur herj- aði á leikmennina. Voru þeir nán- ast eins og áhorfendur í fyrstu 2—0. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Þau gerðu: Chris Nicholl á 6. mínútu og Martin O’Neill á 22. min. Wales — Ungverjaland Leikur í 2. riðli Evrópukeppn- innar fór fram f Cardiff i Wales. Sigruðu Walesbúar í leiknum 2—0, eftir að staðan hafði verið 0—0 í hálfleik. Mörkin skoruðu Arfon Griffiths og John Toshack. England — Tékkóslóvakía Leikur I 1. riðli Evrópubikar- keppni landliða. Leikinn á Wembley í London f gærkvöldi. Englendingar sigruðu 3—0. Stað- an í hálfleik var 0—0. Mörkin skoruðu: Mike Channon og Colin Bell (2). Skotland — A-Þýzkaland Skotar og A-Þjóðverjar léku vináttulandsleik i knattspyrnu i Skotlandi i gærkvöldi. Sigruðu Skotar í leiknum með þremur mörkum gegn engu. eitthvað gott um menn, þá skaltu halda þér saman. FÖGNUÐUR Það var sem þjóðhátíð ríkti víða í Afríku eftir sigur Alis í keppn- inni við Foreman, enda Ali með ólíkindum vinsæll meðal Afríku- búa, sem hann kallar jafnan sitt fólk. Víða kom til óeirða, er fólk hópaðist saman í fögnuði sínum, og i Louisville í Kentucky í Bandarikjunum gripu menn til skotvopna til þess að komast að, þar sem sjónvarpsmyndir voru sýndar beint frá einvíginu, en sjónvarp frá keppninni var á lok- uðum rásum. Var einn maður myrtur og tveir særðir hættulega i þeirri viðureign. — 10 stúlkur Framhald af bls. 36 að hér væru hús hituð upp yfir vetrartímann og því hefðu þær kosið að koma hingað í stað þess, að þurfa jafnvel að búa i köldu húsi f Bretlandi eða einhversstað- ar f Evrópu. „Stúlkurnar eru allar mjög föngulegar," sagði Páll, „ein er t.d. lærður aðstoðartannlæknir, önnur er hjúkrunarkona og þar fram eftir götunum." Á Þingeyri hefur Hraðfrysti- húsið látið innrétta sérstakt hús fyrir stúlkurnar, en þar munu þær búa. Þær munu sjálfar elda matinn og skiptast á um það. Kemur það til af þvf, að þær eru vanar allt öðru mataræði en við. Páll viðurkenndi, að karlmenn á Þingeyri hefðu verið annars hugar við störf sín i gær, þegar þeir sáu stúlkurnar f yrst. Um þessar mundir er verið að ljúka við 2. áfanga frystihússins, en stækkun þess hefur staðið yfir í nokkurn tfma. — Kíttisverk- smiðja Framhald af bls. 36 því leyti, að fyrir væru 3 kíttis- verksmiðjur í landinu, og enginn kvartaði yfir þeim. En hinsvegar hefðu menn fundið allt til foráttu þessari verksmiðju þegar bygging hennar átti að hefjast, sem verður sú langfullkomnasta í landinu. lotunni, sem Skotar unnu 15—4. Skotar tefldu sínum beztu mönnum fram i byrjun leiksins, en hjá íslendingum byrjuðu inná þeir Halldór Jónsson, Valdimar Jónasson, Guðmundur E. Pálsson, Gestur Bárðarson, Anton Bjarna- son og Torfi R. Kristjánsson. Komust Skotarnir í 11—0 á ör- skammri stundu, en þá loksins greiddist svolítið úr hjá Is- lendingum og þeim tókst að vinna sér inn 4 stig áður en hrinunni lauk. I annarri hrinu tefldu Skotar svo fram þeim leikmönnum, sem álitið var, að væru ekki eins góðir. Þessi lota var afar jöfn og var staðan orðin 13—13 og Islending- ar með knöttinn, er þeir gerðu sig seka um dýr mistök og töpuðu hrinunni 13—15. Skotar tefldu svo aftur fram sínu bezta liði í þriðju hrinunni, en hún var langbezt leikin af hálfu Islendinganna, sem náðu hvað eftir annað góðum leik, og höfðu frumkvæðið allt til þess að Skotum tókst að jafna á 9—9. En aftur varð klaufaskapur islenzka liðinu að fallí. Leikmenn misnot- uðu upplögð færi til þess að „smassa" og Skotar sigldu framm- úr og unnu 15—11. Beztur Islendinganna f leiknum var Anton Bjarnason, en Halldór Jónsson átti einnig góða kafla, en gerði slæm mistök á milli. Gildir það raunar um alla leikmenn fs- lenzka liðsins. Þeir gerðu ýmsa hluti f leiknum mjög vel, en brugðust svo stundum illa og mis- notuðu góð færi. — Kissinger Framhald af bls. 1 Var upplýst f dag, að Bandarfkin muni senda 100 þúsund tonn af korni til viðbótar því, sem heitið hafði verið, til landsins. Á fundi Kissingers og Rahmans var einnig rætt um samskipti Bangladesh og Pakistan og mun Kissinger hafa heitið því að kynna sjónarmið Bangladesha þegar hann fer til Pakistan á fimmtudaginn. Henry Kissinger mun heimsækja flest Miðausturlanda í þessari ferð sinni. Ekki er ákveðinn fund- ur milli hans og Arafats, leiðtoga PLO, en sem kunnugt er voru PLO, skæruliðasamtökin, viður- kennd sem eini réttmæti talsmað- ur Palestínumanna á fundinum f Rabat. Að því er áreiðanlegar heimildir herma mun Kissinger vera þeirrar skoðunar, að sú viðurkenning muni gera erfiðara að ná friðsamlegu samkomulagi i Miðausturlöndum en ella. Þó er lögð áherzla á, að hann vilji hitta arabísku leiðtogana að máli og heyra sjónarmið þeirra áður en hann taki endanlega afstöðu til niðurstöðu Rabatfundarins. ♦ ♦ ♦— — Nixon Framhald af bls. 1 sagði dr. Lundgren, að Nixon yrði ekki settur á blóðþynningarlyf að nýju fyrr en læknar þættust öruggir um, að það hefði engar alvarlegar aukaverkanir í för með sér. Hann sagði, að margir hefðu snúið sér til sjúkrahússins og boð- izt til að gefa blóð, en þessa stund- ina benti ekkert til að hef ja þyrfti blóðgjafir til Nixons að nýju. Sérfræðingar og læknar og sér- þjálfaðar hjúkrunarkonur eru við beð Nixons og sagði Lundgren, að allt yrði gert, sem í mannlegu valdi stæði til að bjarga lífi hans. Aðgerðin á Nixon var gerð til að koma í veg fyrir, að blóðtappinn gæti borizt til lungna eða hjartans. Vitað hefur verið lengi, að Nixon þjáðist af blóðtappa í fæti og gerði hann vart við sig skömmu áður en Nixon fór í ferðaiag sitt til Miðausturlanda. Sögðu þá læknar hans, að hann setti sig í bráða lffshættu að takast þá ferð á hendir í stað þess að leita sér tafarlaust lækninga. Knattspyrnuúrslit SKUTTOGARINN Vestmannaey hóf að landa afla sfnum 1 heima- höfn f Eyjum f haust, en fram til þess tíma hafði hann landað f Hafnarfirði vegna eldgossins, sem var f fullum gangi þegar þetta glæsilega skip kom til landsins frá Japan. Á meginlandinu landaði Vestmannaey til Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og Is- félags Vestmannaeyja á Kirkjusandi. Nú dreifist aflinn hins vegar til tsfélags Vestmannaeyja f Eyjum, Fiskiðjunnar þar og Vinnslustöðvarinnar. Mikill akkur er að þvf fyrir stöðvarnar f Eyjum að fá Vest- mannaey heim, en á þessu ári hefur skipið Iandað talsvert á 3. þús. tonnum. Fyrsta löndun f Eyjum var 100 tonn af ýsu og þorski. Aður en skipið hóf veiðar úr heimahöfn var það um 10 klst. að sigla á miðin, en nú tekur það örstutta stund, þvf miðin eru við bæjardyrnar. Vestmannaey hefur reynzt mjög vel og verið mikið aflaskip. Skipstjóri er Erling Pétursson, en einnig hefur Sverrir Gunnlaugsson verið með skipið. A neðri myndinni eru báðir skipstjórarnir. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir f Eyjum. — Fangar Framhald af bls. 1 tvö þúsund til tíu þúsund. Auk þess væri svo mikill fjöldi, sem sæti inni vegna trúarskoðana sinna. Sovézk stjórnvöld hafa harðneitað því, að f fangelsum þar í landi sitji nokkrir pólitískir fangar. Sakharov sagði, að mjög erfitt væri að afla upplýsinga um þessi mál, en honum hefði þó tekizt að gera all ítarlega skrá um pynding- ar, sem uppvíst hefði orðið um í fangelsum og vinnubúðum. Sýndi Sakharov fréttamönnum þykkan bunka af bréfum og bænarskjöl- um, sem honum hafa borizt sfðustu tvo mánuðina. — Viðræður Framhald af bls. 36 selt til Sovétríkjanna. Frekari kaup á fslenskum vörum eru til athugunar í sambandi við áætl- anir fyrir árið 1975. Gert er ráð fyrir verulegri hækkun á yfirdráttarheimild frá næstu áramótum. Ennfremur urðu aðilar ásáttir um samnings- bundinn greiðslufrest á hluta skuldarinnar, sem formlega verður gengið frá milli Seðla- banka tslands og utanríkisvið- skiptabanka Sovétríkjanna. Viðræður ráðherranna voru mjög vinsamlegar og kom fram einlægur vilji beggja aðila að efla viðskipti landanna. Var ákveðið, að viðræður um nýjan viðskipta- samning fyrir árin 1976—1980 fari fram í Reykjavík næsta sumar, en gildistfmi núverandi viðskiptasamkomulags rennur út í árslok 1975. I viðræðunum f Moskvu tóku þátt auk viðskiptaráðherra Þór- hallur Ásgeirsson, ráðuneytis- stjóri, Hannes Jónsson, sendi- herra, Davíð Ölafsson, banka- stjóri, Björn Tryggvason, að- stoðarbankastjóri, Valgeir Ar- sælsson, deildarstjóri, og Helgi Gíslason, sendiráðsritari. Fyrirlestrar á degi S.Þ. 1 TILEFNI dags Sameinuðu þjóð- anna 24. október gekkst Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi að venju fyrir fyrirlestrum um sam- tökin í skólum i Reykjavík, Kópa- vogi og Mosfellssveit. Alls fóru 8 ræðumenn á vegum félagsins í Kennaraskólann, Verzlunarskól- ann, menntaskólana og nokkra gagnfræðaskóla á framangreindu svæði. Fyrirlesarar félagsins að þessu sinni voru Björn Þorsteinsson, Dan Wíum, Elín Pálmadóttir, Guðmundur S. Alfreðsson, Helgi Skúli Kjartansson, Hjálmar Hannesson, Hjördís Hákonardótt- ir og Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson. — Ekkert svar Framhald af bls. 1 Ifðan sinni og verið hress í skrif- um sínum. í kvöld sagði talsmaður hol- lenzku stjórnarinnar, að ekki væri ljóst hvort Tanima, sem tók þátt i flugvélaráni með einum mannræningjanna, og krafizt hef- ur verið að leystur yrði úr haldi, ætlaði sér að ganga í lið með mannræningjunum, ef honum verður gefinn kostur á því. Áður hafði hann sagt, að hann vildi ekkert við mannræningjana tala og ætlaði sér að afplána sinn dóm. Virtist sem hann hefði eitthvað breytt þeirri skoðun sinni, ef marka má óljósar fréttir í kvöld. Næringarskortur Framhald af bls. 19 hefur sýnt, að barn, sem þannig er I stakk búið, á yfir höfði sér andleg jafnt sem líkamleg örkuml. „í heiminum fæðast hundruð þús- unda barna, sem munu síðar eiga við andlegan vanþroska að stríða," segir Dr. Myron Winick, sem hefur unnið brautryðjandastarf á sviði rannsókna, sem miðast að því að ganga úr skugga um, hver áhrif næringarskortur hefur á þroska hug- ar og heila."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.