Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 23

Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1974 23 H.F ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON REYKJAVÍK Kiartan Norðdahl: þegar siðmenntaóur og góðvilj- aður maður tekur upp á því að drepa dýr gjörsamlega að nauð- synjalausu? Á því er reginmunur, hvort menn drepa vegna nauðsynjar eða hvort menn drepa sér til skemmtunar. Mannkynið hefir enn ekki náð þeim þroska að finnast allt dýra- dráp og dýraát sér ósamboðið. Þar er enn langt í land. En að minnsta kosti sumar þjóðir hafa náð þeim siðferðisþroska að finnast allt ónauðsynlegt dýradráp órétt- lætanlegt. Siðmenntaðir menn drepa dýr og neyta dýrakjöts, vegna þess, að þeir telja það knýjandi nauðsyn til fæðuöflunar og eins hafa sum- ir lífsviðurværi sitt af því að selja ýmsar dýraafurðir, kjöt, skinn, bein, mjöl o.s.frv. Reynt er að hafa þetta tvennt, 1) fæðu 2) söluvöru, i beinu hlutfalli við þörfina. Ofveiði er nú á dögum fordæmd (víðast hvar) og allir ærlegir menn fyrirlíta þá, sem slíkt stunda. En hvað er sportveiðimennska? Hvernig getur nokkur maður stundað það sér til skemmtunar að veiða dýr? Hvers vegna eru menn á Islandiað hlaupaupp um fjöll til að skjóta fugla og hvers vegna eru menn hímandi á ár- bakka í von um að fiskur bíti á? Það er alltaf hægt að spyrja en erfiðara er að svara og við þessum spurningum mínum fæ ég aðeins eittsvar: Það er drápsfýsnin í manninum sem þarna fær útrás, þessi frum- stæða hvöt, sem blundar i okkur öllum en sem flestir siðmenntaðir menn hafa óbeit á að láta ná tök- um á sér. Ef menn skoða málið alveg ofan í kjöl, þá hljóta þeir að sjá að þetta er rétt. Athugum þetta nánar. Hvaða þörf er á því að veiða rjúpu t.d.? Þjást iandsmenn af kjötskorti, hafa landsmenn drjúgar tekjur af rjúpnaafurðum? Ef þetta er rétt, hvers vegna eru þá ekki sett upp rjúpnabú alveg eins og hænsnabú? Hvaða þörf er á að skjóta gæs (til fæðu- öflunar), er ekki auðvelt að rækta alifugla (ef mönnum ber saman um, að tilfinnanlegur skortur sé á fuglakjöti)? Getur maður, sem veiðir rjúpur, grætt á því? Hvað er gróðinn mikill, þegar kostnaðarliðir hafa verið dregnir frá? Hvað kostar það mikið að gera út bíl á rjúpnaveiðar, riffill eða haglabyssa, kíkir, veiðifatn- aður (hafið þið ekki heyrt í útvarpinu: „Rjúpnaskyttur! Við eigum réttu stígvélin“)? Hvað kostar það rikið og einstaklinginn að leita að týndum rjúpnaskyttum Hvers vegna eru menn hímandi á árbökkum með eina veiðistöng? Ef nauðsyn ber til að afla silunga og laxakjöts, af hverju er þá verið að nota svona afkastalitla aðferð, af hverju ekki að nota net og eldisstöðvar, þá væri unnt að afla eins og þörf krefði. Myndi nokkur veiðimaður vilja láta veiða sig á öngul? Enginn veit hvort fiskar finna til sárs- auka. Lætur nokkur maður sér til hugar koma, að laxveiðimenn myndu hætta að veiða á öngul og færi, þótt þeir vissu fyrir víst, að fiskurinn fyndi til? Nei, það erdrápsfýsnin.sem hér ræður ferðinni, hvort sem menn Framhald á bls. 26. /mitf \ ’.APPELSlN • ©531 %9$ APPELSÍN Drápsfýsn Sá, sem drepur að nauðsynja- lausu, á skilið fyrirlitningu með- bræðra sinna. Hvaða af 1 er það, sem fær knúið friðsaman mann til að fara á fjöll að skjóta rjúpu? Er það sjálfsbjargarhvöt (lífs- nauðsyn), er það gróðafíkn eða er það löngun til útivistar og náttúrudýrkunar? Hvaða sál- fræðilega skýringu á að finna, og hvað kostar ein rjúpnaskytta aðstandendur? Er ekki gróðinn af rjúpnaveiðum heldur rýr? Myndi nokkur rjúpnaskytta fara á fjöll, ef hún vissi fyrirfram, að engin rjúpa myndi veiðast? Nú, hvers vegna ekki, er þetta ekki bara „trimm“ og náttúru- sport, eins og sumir segja, hvers vegna þarf endilega að drepa rjúpuna?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.