Morgunblaðið - 31.10.1974, Page 32

Morgunblaðið - 31.10.1974, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1974 'ty/Ofar> Svona urðu beltisdýrin til W'Rfg Smásaga eftir Rudyard Kipling. Þýðandi Ingibjörg Jónsdóttir „Þú sagðir mér að stökkva í hið straumharða Amazon-fljót og drukkna,“ sagði skjaldbakan. „Þú ert bæði ókurteis og gleyminn í dag.“ „Ertu búinn að gleyma því, sem mamma þín sagði þér?“ spurði broddgölturinn. Skortir brodda en synda kann seinfara er hann. Skarpa brodda, synda ei kann sker og meiðir mann. HÖGGNI HREKKVÍSI Jæja — það er Högni, sem aftur er kominn. Svo veltu þeir sér I kuðung og ultu umhverfis hlébarðann, sem hljóp að sækja móður sína. „Það eru tvö ný dýr í skóginum í dag,“ sagði hann. „Dýrið, sem þú sagðir að kynni ekki að synda, syndir. Dýrið, sem þú sagðir að gæti ekki skotið upp kryppu og oltíð, veltur. Þeir eru báðir með brodda, eða svo held ég, því að þeir hafa skeljar eða hreistur um skrokkinn, en áður hafði annar brodda en hinn var sléttur. Svo velta þeir hring eftir hring og mér er óglatt.“ „Sonur, sonur,“ sagði hlébarðamamma og veifaði skottinu tígulega. „Broddgöltur er broddgöltur og verður aldrei annað en broddgöltur. Skjaldbaka er skjaldbaka og verður aldrei annað.“ „Þetta er hvorki broddgöltur né skjaldbaka. Þetta er blanda af þeim báðum og ég veit ekki hvað er hvað.“ „Vitleysa!" sagði hlébarðamamma. „Allt heitir sínu nafni og ég ætla að kalla þetta dýr beltisdýr þangað til að ég finn betra nafn á það. Ég myndi sjá það í friði.“ Hlébarðinn hlýddi og þá sérstaklega því að láta beltisdýrið vera, en það undarlega er, að allt frá þessari stundu hefur enginn á bökkum hins straum- harða Amazon-fljóts kailað broddgöltinn og skjald- bökuna annað en beltisdýr. í öðrum löndum eru til broddgeltir og skjaldbökur, en þessi gömlu og vitru dýr, sem hafa skeljar eða hreistur á misvízl eins og grenikönglar og bjuggu á bökkum hins straumharða Amazon-fljóts áður fyrr, eru alltaf kölluð beltisdýr, því að þau eru svo snjöll. Og þetta var nú sagan sú, börnin ung og smá. Skiljið þið nú, hvernig beltis- dýrin urðu til? ANNA FRÁ STÓRUBORG - saoa frá sextándu old eftir Jón Trausta Páll lögmaður var einn þeirra fnanna, sem þótti dómur- inn óþarflega harður, og leizt svo á hann, að hann mundi fremur verða til ills en góðs. En hann fann, að hann mundi ekki fá hnekkt honum; hann yrði að skrifa undir það, sem lögréttan dæmdi, eða fyrirgera lögmannsembættinu þá þeg- ar á þinginu. Auðvitað var hann maðurinn, sem rísa átti gegri dóminum og taka að sér forystu þeirra, sem það sama vildu gera. En hann var hræddur um, að það yrði árangurslaust. Biskuparnir fylgdu höfuðsmanninum í þessu, vegna „kristi- legrar" vandlætingasemi, og prestarnir fylgdu biskupunum i fáfræði og einfeldni, og allur þessi skari studdi lögréttuna, sem skipuð var leikmönnum. Hann mundi megna það eitt að steypa sjálfum sér í glötun, en dómurinn gengi fram eftir sem áður. Þess vegna fór hann hægt í sakirnar og leiddi málið hjá sér svo lengi sem hann gat. Páll lögmaður var orðinn allmjög hneigður til drykkju og farinn að verða veiklaður af drykkju og ýmsum mótgangi. Hann hafði aldrei mikill þrekmaður verið, og nú var þó kjarkur hans minni en verið hafði. Margt, sem hann hafði vel gert um ævina, hafði honum verið vanþakkað og launað með illu einu. Hann var orðinn vantrúaður á vinafylgið, og gremja og hatur og hefnigimi orðið ríkara i huga hans en verið hafði. — Eitt kvöld snemma á þinginu var hoð í tjaldi lög- manns, sem eins og vant var endaði með samdrykkju langt fram á nótt. Þar voru ýmsir kunningjar hans, bæði úr flokki æðri og lægri þingmanna, og þar stóð undir það síðasta áköf þræta um dóminn, sem dæma átti í lögréttunni dag- inn eftir. Það var kominn hiti í umræðurnar, því að fylgis- merm dómsins voru hinir áköfustu — eins og þeir væru að verja dóminn gegn hrópandi samvizkum sjálfra sín. Lögmaður sat hjá og lagði ekkert til málanna. „Hvað segir þú um þetta mál, lögmaður?“ mælti einn af andstæðingum dómsins og vænti sér styrks og fulltingis af svari lögmanns. Allur kliður þagnaði. Allir vildu heyra ummæli lögmanns- ins. En þau lágu ekki laus fyrir. Páll lögmaður þagði. Hann sat kyrr með samanbitnar varir, nokkuð rauður í andliti af drykknum, og var sem hann svæfi með opin augun. Hann svaraði engu. „Hvað ætli hann segi um þetta!“ gall við einhver af fylgismönnum dómsins. „Hann, sem heldur hendi sinni yfir hneykslanlegasta frillulifnaði heima í sinni eigin sýslu.“ „Hváð skyldi Hjalti Magnússon segja -um dóminn!“ gall annar við og hló sjálfur að fyndninni úr sér. Lögmann setti dreyrrauðan, en hann svaraði engu. Hann var farinn að venjast því að taka slíkum dylgjum með still- ingu. En þetta höfðu þær þó verið honum nærgöngulastar. En nú var hinum nóg boðið. Enginn tók upp þrætuna að nýju. Menn tíndust burt úr tjaldinu, hver á eftir öðrum; menn skömmuðust sín fyrir að vera þar inni, eftir slíka móðgun við húsbóndann, einkum þeir, sem ekkert voru í móðguninni sekir. Klárarðu þetta hjálparlaust? Það er smámál að kasta sér niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.