Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 35

Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÖBER 1974 35 „I’m the King — I am greatest” (Ég er konungurinn, ég er bezt- ur) hrópaði Muhammad Ali til 70 þúsund öskrandi áhorfenda, er hann stóð uppi sem sigurvegari í „hnefaleikakeppni aldarinnar“ sem fram fór í Afríkuríkinu Zaire í fyrrinótt. Þannig þakkaði hann áhorfendum mikinn stuðningsem þeir höfðu veitt honum allt fra því að merki um upphaf keppn- innar var gefið, og vist er að Ali hefur sjaldan haft eins mikið til síns máls og að þessu sinni. Fáir höfðu búizt við sigri hans yfir heimsmeistaranum George Fore- man, og þá sízt þeir sem mest hafa fylgzt með köppunum tveimur gegnum árin. Veðmálin stóðu 8—1 Foreman í hag er keppnin byrjaði. Það voru aðeins Zaire- búarnir, sem Ali kallar landa sína, sem voru sigurvissir fyrir hans hönd, og byrjuðu að hvetja hann strax og hann sást í hringn- um, 20 minútum áður en slagur- inn skyldi hefjast. — Þú er bezt- ur, dreptu Foreman kölluðu áhorfendurnir í kór. Sennilega hefur aldrei farið fram eins umtöluð íþróttakeppni og viðureign þeirra Ali og Fore- mans. Allt frá þvf að staður og stund einvígisins var ákveðið, hefur flætt yfir óstöðvandi flaum- ur upplýsinga um þá kappa, og varð straumurinn aldrei stríðari en þegar einvíginu var frestað vegna meiðsla Foremans og svo núna siðustu daga. Mörg stór orð hafa verið látin falla, sérstaklega af hálfu Ali, en slíkt hefur jafnan verið háttur hans og hefur raunar fært honum ótaldar milljónir. Og aldrei fyrr hefur önnur eins fjár- hæð verið i boði fyrir eina iþrótta- keppni. Kapparnir fengu i sinn hlut 585 milljónir króna hvor og það skattfrjálst, þar sem Zairerík- ið hefur boðizt til þess að greiða þá skatta sem á kappana kunna að verða lagðir í Bandaríkjunum. ALI MÆTTI TÍMANLEGA Löngu áður en einvígið skyldi hef jast, en það var kl. 3.00 í fyrri- nótt, byrjuðu áhorfendur að streyma til leikvangsins í Zaire, en hann rúmaði um 70 þúsund áhorfendur. Meðal þeirra sem þarna voru mættir voru um 1000 blaðamenn víðs vegar að úr heiminum, og höfðu margir þeirra dvalið í Zaire i rösklega mánaðar tima til þess að fylgjast með undirbúningi kappanna. Keppt var á útileikvangi, en slíkt er harla óvenjulegt í hnefaleik- um. Muhammad Ali birtist í hringn- um um 20 mínútum áður en leikurinn skyldi hefjast, klæddur hvítum fötum og hóf hann þegar að dansa öskrandi um hringinn. Var það eins og við manninn mælt. Allt ætlaði vitlaust að verða á áhorfendapöllunum og söngur- inn: „Ali, Ali Oma-Ye, Ali dreptu hann,“ hljómaði margraddað úr börkum viðstaddra. öðru hverju tókst Ali þó að yfirgnæfa hávað- ann: „Ég ætla að berja þennan súkkulaðisdreng í kássu," hrópaði hann, „ég ætla að drepa þennan sykurmola". Foreman birtist síðan i hringn- um 10 mínútum eftir að Ali kom. Var honum sæmilega fagnað af áhorfendum, en þegar Ali stökk að honum og þóttist ætla að berja hann, ætlaði aftur allt um koll að keyra. Var bersýnilegt að Ali kunni bærilega að spila á hrifn- ingu fjöldans. 8 Ara aldursmunur Það sem margir töldu að þyngst yrði á metunum I slag þessum var aldursmunur keppendanna. Mu- hammed Ali er orðinn 32 ára, eóa kominn á þann aldur sem flestir hnefaleikarar brenna út á, en Foreman er hins vegar 24 ára — á bezta aldri sem hnefaleikari. Báð- ir eru þeir kappar nákvæmlega jafnháir, en Foreman hins vegar nokkru þyngri. Armmál þeirra er mjög svipað og öll líkamsbygging. Ferill þeirra Ali og Foremans er hins vegar nokkuð ólíkur. Þeir Ali var ómyrkur f máli að vanda, er hann ræddi við blaðamenn eftir keppnina f fyrrinótt. — Ég er beztur, sagði hann, — ég var búinn að éta hann eftir fjórar lotur. inni. Högg Foremans voru hins vegar hættulítil, þar sem þau lentu flest á skrokk og handleggj- um Ali. Var það ekki fyrr en i lok lotunnar sem Foreman náði að slá Ali nokkrum sinnum i höfuðið. Ali var dæmdur sigur i lotunni. AIi dansaði í kringum Foreman sem beið færis. Brátt fór þó að verða meiri alvara i spilinu. Ali átti fyrsta alvarlega höggið í keppninni. Hitti hann nefið á Foreman, án þess þó að hann hefði skaða af. Síðan tók Foreman að sækja og átti mörg góð högg i skrokkinn á Ali, en það virtist samt sem áður ekki hafa mikil áhrif. Þau högg sem Foreman miðaði á höfuð Ali, báru ekki árangur, þar sem Ali var fljótur að vikja sér undan eða beygja sig niður undan þeim. Foreman hafði betur í lotunni. ÖNNURLOTA gtrax i byrjun lotunnar króaði Foreman Ali af í einu horni hringsins og virtist ætla að þjarma þar að honum. — Sjáðu færið sem hann fær, kallaði Floyd ALI FIMMTA LOTA Margir álitu að úrslit leiksins mundu ráðast i þessari lotu, enda hafði það ekki skeð síðan 1971 að keppandi stæðist Foreman snún- ing lengur en í fimm lotur. Til að byrja með var mikið þóf og átök milli kappanna, en þegar lotan var um það bil hálfnuð náði Foreman mjög góðu höggi á höf- uð AIis, sem riðaði við og hrökkl- aðist út í kaðlana. Hann var þó fljótur að átta sig, og gat vikið sér undan er Foreman ætlaði að gera út um leikinn. Seinna í lotunni náði svo Ali tökum á leiknum og kom mörgum höggum á keppinaut sinn, sem hélt áfram að berja á handleggi hans og skrokk, án sýnilegra áhrifa. Þegar Ali hafði jafnað sig eftir höfuðhöggið rak hann tunguna út úr sér framan í áhorfendur, svona rétt til þess að hressa upp á stemmninguna, sem var farin að nálgast hámarkið. Ali var dæmdur sigur í lotunni. SJÖTTA LOTA I þessari lotu hafði Ali greini- lega betur. Hann var á mun meiri ROTAÐI FOREMAN í ÁTTUNDU LOTU Endurheimti heimsmeistaratitilinn í sögulegustu viðureign hnefaleikanna eiga það þó sameiginlegt að hafa unnið gullverðlaun á Olympiu- leikum. Þetta var 41. keppni Foremans i atvinnumennsku og aldrei hafði hann verið sigraður. 37 leiki af þessum 40 hafði hann unnið á rothöggi, venjulega snemma i keppninni. Heims- meistari varð George Foreman 22. janúar 1973, er hann sigraði Joe Frazier í keppni í Kingston á Jamaica og tvívegis hefur hann varið titilinn næsta auðveldlega. Þetta var hins vegar 47. leikur Ali. Hann hafði unnið 44 leiki en tapað tveimur. Af sigurleikjum sinum hafði hann unnið 31 á rot- höggi. Heimsmeistari varð Ali 1964 með þvi að sigra Sonny List- on i keppni sem síóar varð mjög umtöluð. Titil sinn missti svo Ali, er hann neitaði að gegna herþjónustu og var settur i fang- elsi. Síðan gerði hann tilraunir til að endurheimta hann, en tapaði þá fyrir Joe Frazier eftir mjög harða keppni. Báðir kapparnir höfðu búið sig mjög vel undir slaginn í Kinshasa, en Ali þó betur, og hið óvænta óhapp er Foreman varð fyrir, er hann skarst á augabrún á æfingu, dróg nokkuð úr æfingum hans um tima. FYRSTA LOTA Gífurlegar varúðarráóstafanir voru viðhafðar á leikvanginum, þar sem keppnin fór fram. Þar var mjög fjölmennt herlið, grátt fyrir járnum, tilbúið að gripa inn í ef áhorfendur hefðu hug á að beita hnefunum eins og kapparn- ir i hringnum. Áður en dómarinn Zack Clayton frá Fíladelfíu, gaf merki um að leikurinn skyldi hefjast, kallaði Ali ýmis ókvæðisorð til Fore- mans, sem sat hinn rólegasti á stól sfnum. Þegar keppnin svo hófst hélt Ali áfram að skattyrðast til að byrja með, en Foreman var hinn rólegasti. Fyrstu sekúndurn- ar þreifuðu kapparnir fyrir sér. Patterson, sem lýsti keppninni i útvarpi. En Foreman lét sér það nægja að lemja Ali nokkrum sinn- um i hausinn og sleppti honum siðan úr prisundinni. Slagurinn jafnaðist síðan. Báðir áttu góð högg. Foreman hitti nú höfuð Ali betur en áður, en fékk í staðin væn högg á búkinn. Dómararnir dæmdu Foreman sigur í lotunni. ÞRIÐJA LOTA Sama sagan og í annarri lotu endurtók sig. Foreman króaði Ali af, en missti af honum og fékk þung högg á höfuðið. Alla lotuna sótti Foreman, en Ali varðist mjög vel, og svaraði með leiftur- árásum, sem færðu honum fleiri stig en Foreman. Dæmdu dómar- arnir AIi sigur í lotunni. FJÓRÐA LOTA Gifurleg barátta var í þessari lotu. Ali náði góðum höggum á höfuð Foremans, sem sótti meira en áður, en gætti sín illa í vörn- Iþróttavöllurinn f Zaire, þar sem slagurinn mikli fór fram. Heldur er sjaldgjæft að slfk keppni sem þessi fari fram undir berum himni. hreyfingu en Foreman, sem mátti teljast góður, ef eitt af hverjum tíu höggum hans hittu Ali. Hins vegar náði Ali nokkrum góðum höggum á keppinaut sinn, sér- staklega á síóustu sekúndum lot- unnar, er hann hitti vel höfuð Foremans. Ali sigraði í lotunni. SJÖUNDALOTA Hvorugur kappanna settist niður í hléinu fyrir þessa lotu, og Foreman var kominn út á gólfið áður en dómarinn gaf merki um að lotan hæfist. Var hann rekinn til baka i hornið. Þetta varð til þess að Ali sendi honum allskonar glósur og í fyrsta skiptið virtust þær fara í taugarnar á Foreman, sem greinilega var tekinn að þreytast. Hann sótti þó meira, en vörn hans var fremur léleg og jafnvægið einnig, þannig að Ali náði að koma mjög góðum högg- um á höfuð hans í lotunni. Þegar bjallan hringdi var greinilegt að Foreman var ringlaður „groggi", þegar hann gekk til þjálfara sins og fékk sér sæti. ROTHÖGGí ATTUNDU LÓTU Ali hafði betur í þessari lotu frá byrjun. Foreman var greinilega miður sín, þegar hann kom inn í hringinn eftir hvildina og gerði litið til þess að sækja. Vörn hans var, eins og áður f þessari keppni, fremur slök og þegar í byrjun lotunnar kom Ali höggum á höfuð hans. Þegar á lotuna leið gerói Ali nokkuð skyndilega harða hríð að Foreman, hrakti hann út úr miðj- um hringnum að köðlunum og veitti hvert höggið af öðru. Fór svo brátt að Foreman hneig i gólf- ið og þar með var öllum viðstödd- um ljóst að keppni þessi var búin. Foreman reyndi að standa upp, áður en talningunni lauk, en auð- séð var að hann var ófær um að halda áfram. Sigurinn var AIis — Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.