Morgunblaðið - 01.12.1974, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1974
Risaveldi kvik-
myndaiðnaðarins
Við sem burðumst með kvik-
myndabakteríuna innra með
okkur, könnumst við þá spennu
sem er því samfara er ljósin í
sýningarsalnum slökkna. Það
dregur úr skrjáfinu í sælgætis-
bréfunum og lækkar í gest-
unum, þótt einstaka kjaft-
askar og fimmaurabrandara-
karlar eigi bágt með sig.
Mér er það minnisstætt frá
uppvaxtarárunum, að þá lögðu
hin stóru dreifi- og framleiðslu-
fyrirtæki Hollywood mikið upp
úr því að eftir vörumerkjum
þeirra væri tekið, en þau birt-
ast einmitt. fyrst af öllu í
myndarbyrjun. Ljónið hjá
Metro-Goldwyn-Mayor öskraði
hátt og tígulega, hljóðmerkin
sem heyrðust með R.K.O. merk-
inu voru framandi og torráðin,
lúðrastef 20th Century-Fox
kvikmyndafélagsins get ég enn
raulað í huga mér, o.s.frv.
En nú er öldin önnur. Kvik-
myndaverin þar vestra hafa
„moderniserast" í auglýsinga-
tækni, líkt og önnur fyrirtæki.
Merki þeirra hafa verið einföld-
uð (sumra oft), og eru þau nú
öll miklu risminni, og lúðra-
blásturinn er hljóðnaður.
Af menntagyðjunni hjá Col-
umbia er nú ekkert eftir nema
blysið, Metro-ljónið er löngu
þagnað, R.K.O. er farið á haus-
inn. Það var siðast 20th
Century-Fox sem )ét undan
tískunni og breytti það merki
sínu í fyrra. Eftir er ósköp lítil-
látur svipur þess garhla, en
enginn blástur, engir ljóskast-
arar, ekkert „show“. Para-
mount heldur reyndar enn
tryggð við sitt gamla tákn,
fjallstoppinn, en hann hefur
breyst. Nú má lesa í undirhlíð-
um hans A GULF + WESTERN
COMPANY. Þau hafa nefnilega
orðið örlög Hollywoodkvik-
myndaveranna að verða keypt
af risafyrirtækjum, í dag er það
20th-Fox eitt, sem rekið er af
samnefndu hlutafélagi.
En tilgangur þessarar
greinar er ekki sá að gráta þess-
ar breytingar. Heldur er ætl-
unin að kynna þau kvikmynda-
fyrirtæki sem hér um ræðir.
Því þrátt fyrir þá staðreynd að
bandarískar kvikmyndir séu
uppistaðan í því kvikmyndavali
sem hér er boðið til sýninga
árlega, tel ég ólíklegt að al-
menningur þekki nokkuð til
þessara framleiðslurisa.
COLUMBIA
PICTURE INDUSTRIES
Columbia hefur lengi mátt
þola það að vera kallað „annað
hinna tveggja litlu“, hitt er
Universal. Það er stofnað árið
1924 af einum harðsvíraðasta
framleiðanda allra tima, Harry
Cohn. Hann þótti ekki vaða í
vitinu, lagði oft í tvísýn ævin-
týr, var ruddamenni hið mesta
og var uppnefndur fyrir allt
þetta' „King Cohn“.
Framundir miðja öldina flaut
Columbia á ósköp lágkúrulegri
framleiðslu, ef undan eru skild-
ar myndir Frank Capra, Kram-
ers og örfáar aðrar. Um og eftir
’50 byrjar sVo nokkur velgengni
fyrirtækisins, og stóð hún fram
á síðasta ár. A þessu tímabili
hafa komið fram allmargar
ágætismyndir, þ. á m. ALL
THE KINGS MEN, BORN
YESTERDAY, FROM HERE
TO ETERNETY, ON THE
WATERFRONT, THE BRIDGE
ON THE RIVER KWAI, LAW-
RENCE OF ARABIA, MAN
FOR ALL SEASONS, FUNNY
GI^L, o.fl. Árið 1968 tók svo
Columbia að sér að dreifa
myndinni Easy Rider, en á
henni hagnaðist fyrirtækið
gífurlega.
En á þessu ári er staða Col-
umbia orðin mjög alvarleg.
Hlutabréf þess hafa kolfallið í
verði, það er í rauninni ein
mynd sem hefur bjargað kvik-
myndaverinu frá gjaldþroti. Er
það THE WAY WE WERE,
leikstýrð af Sidney Pollack og
með þeim Barbra Streisand og '
Robert Redford í aðalhlut-
verkum. En þetta er engin ný
bóla i henni Hollywood; það
hefur margoft áður gerst að
aðeins ein kvikmynd hafi
næstum riðið kvikmyndaveri að
fullu, en önnur vel heppnuð
reist það við. Kvikmyndafram-
leiðsla er eitt stórt fjárhættu-
spil. Það er því engin ástæða til
að ætla að Columbia Pictures
komist ekki útúr yfirstandandi
efnahagsvanda. Hér á landi er
það Stjörnubíó sem umboð
hefur fyrir Columbia og sýnir
myndirþess.
METRO
COLDWYN MAYER
Hér i eina tíð var MGM vold-
ugasta kvikmyndaver heims,
með skínandi stórstjörnur eins
og Gretu Garbo, Clark Gable,
Lionel Barrymore, Joan Craw-
1---------------------------
I Austurbæjarbíó
| BLUME IN LOVE
I ★ ★ ★ Handrit Mazurskys
er ekkert gerviþvaður, og
I þar af leiðandi er þessi af-
bragðsmynd um ástir og
svik ekkert yfirborðskjaft-
æði sem enga hliðstæðu á i
raunveruleikanum, eins og
| svo oft vill brenna við i kvik-
' myndum. Heldur er hún
1 hótfyndin, sannferðug, og
umfram alit mannleg lýs-
2 ing á einmanalegu ástandi
* hinna nýskildu, (en ennþá
ástföngnu). Mazursky. (BOB
| & CAROL & TED & ALICE,
HARRY AND TONTO), er
I tvimælalaust einn eftir-
I tektarverðasti kvikmynda-
höfundur Bandaríkjamanna
■ I dag. Það má bæta því við,
| að búið er að stilla upp i
Gamla bió, mynd hans,
* ALEX IN WONDERLAND.
| S.V.
I Gamla bíó
LIBIDO
0 Þrjár stuttar ástralskar
I myndir um kynhvöt og af-
brýði. Upphaflega munu
* þær hafa verið fjórar, en ein
hefur helzt úr lestinni, ein-
I hvers staðar á þessari löngu
I leið. Ekki svo að skilja að
hennar verði saknað óskap-
lega og vonandi er þetta
I ekki sýnishorn af ástralskri
kvikmyndagerð í dag.
SSP.
I___________________________
ford, Jean Harlow, Spencer
Tracy, Laurel og Hardy og
Marxbræður, fastráðnar. Þá
var æðsti draumur hvers leik-
kvik-i »
myncJt ■ ■
/íöcin j 1
SIGUROUR SVERRIR PÁLSSON
SÆBJÖRN VALDIMARSSOt
Þessi mynd er sönnun
þess að ástralir eru á svip-
uðu frumstigi i kvikmynda-
gerð og vér fslendingar. Hér
eru sagðar þrjár smásögur
úr hversdagsiifinu, og reynt
er að gægjast örlftið undir
yfirborðið, en því miður
með fálmkenndum hætti
byrjandans. s.V.
Laugarásbíó
Laugarásbfó: Geimveiran
(The Andromeda Strain)
★ ★ ★ Það má segja, að
Geimveiran sýni manninn f
sinni ómannlegustu mynd. I
bók Crichtons, sem myndin
er byggð á, er framtfðarspá
hans sú, að maðurinn verði
algjörlega á valdi þeirrar
tækni, sem hann hefur
komið sér upp, og ráði tæp-
ast við hana. Með tækni-
brölti sfnu úti í geimnum
eigi maðurinn á hættu að
bera banvæna sýkla til
jarðar, sem okkar vfsindi
kunna engin deiii á. Adeila
Crichtons rfs einna hæst,
þegar vísindamennirnir eru
sótthreinsaðir margoft, áður
en þeir taka til starfa, en
eins og einn þeirra segir:
„Það er hlægilegt, að ein-
ara að komast á samning hjá
MGM. Velgengnisárin stóðu
fram til 1950. Þá fór að draga
úr aðsókn að kvikmyndahúsum,
aðallega vegna tilkomu sjón-
varpsins, og MGM var blindað
af fornri frægð.
Og nú er öldin önnur. I fyrra
gafst kvikmyndaverið upp á því
að dreifa sinni eigin fram-
leiðslu, og fór m.a. útí umsvifa-
mikinn hótelrekstur. United
Artists dreifir nú myndum
MGM með mjög góðum árangri,
og í dag er þó nokkur gróska í
kvikmyndaframleiðslu hjá
þessu gamla risaveldi.
Það væri langt mál að teija
upp allarþær myndir frá MGM,
sem vinsælda hafa notið. Það
sérhæfði sig í gerð afþreyingar-
mynda þegar í upphafi, og hér
verður aðeins getið örfárra
þeirra: THE FOUR HORSE-
MEN OF APOCALYPSE,
mitt maðurinn skuli vera
einhver skítugasti hiuturinn
á jörðinni". Adeilan á hið
ómennska umhverfi sem vís-
indamennirnir hafa skapað
sér, er undirstrikuð ræki-
lega i lokin, þegar einn
þeirra verður að fara úr sótt-
hreinsuðum og lokuðum
búningi sínum og gripa til
venjulegri aðgerða, þá
kviknar á sjálfvirku kerfi,
sem tilkynnir, að „dýr hafi
sloppið inn f miðkjarna vfs-
indastofnunarinnar". Leik-
stjóri er Robert Wise, en
þekktustu myndir hans eru
vafalaust West Side Story,
Sound of Music og Star. SSP.
if if Tæknibrögð kvik-
myndarinnar slá hátt uppf
töfra „2001“ og tekst Wise
furðu oft að magna upp
spennu með því að láta
áhorfandann snarblína á
einhverjar galdramaskfnur
framtfðarinnar og furðutól,
sem hann kann lítil sem
engin deiii á. Það er vei
gert, og þá sérstaklega þegar
haft er f huga að sfðasta
mynd Wise á undan þessari
var engin önnur en SOUND
OFMUSIC!
En þó maður æski þess
ó (joklinu
GONE WITH THE WIND,
WUTHERING HEIGHTS, THE
BEST YEARS OF OUR LIVES,
MRS. MINIVER, GIGI, HIGH
SOCIETY, CAT ON A HOT
TIN ROOF, (sem löngum hefur
verið ein af uppáhaldsmyndum
undirritaðs); BEN HUR, THE
WIZARD OF OZ, NORTH BY
NORTHWEST, DOCTOR
ZHIVAGO, ZABRISKIE
POINT, BLOW UP, 2001: A
SPACE ODYSSEY, WEST-
WORLD. Listinn er orðinn
langur nú þegar.
Velþekkt atriði úr frægum
MGM myndum voru sett saman
í tveggja tíma langa kvikmynd,
sem frumsýnd var í sumar.
Nefnist hún THAT’S ENTER-
TAINMENT, og hefur hlotið
bullandi aðsókn. Sú mynd sem
MGM bindur hvað mestar vonir
við á næstunni er OCCU-
PATION, REPORTER, nýjasta
verk Antonionis. Fer Jack
Nicholson með aðalhlutverkið
ásamt Mariu Schneider, (LAST
TANGO IN PARIS). Gamla Bíó
hefur umboð fyrir MGM á Is-
landi.
REPUBLIC OG R.K.O.
RADIO PICTURES
Bæði þessi kvikmyndaver
hafa nú runnið skeið sitt á
enda, og ég hefði gjarnan
sleppt því fyrrnefnda ef ekki
hefði verið fyrir Roy Rogers
myndirnar gömlu og góðu. Þó
það hafi svo sem ekki alltaf
verið hátt á þeim risið, þá eru
þær óneitanlega ljúfar endur-
minningar minnar kynslóðar,
fyrsta kvikmyndareynsla
margra okkar og settu drjúgan
svip á bernskubrekin og leik-
ina.
R.K.O. var um alllangt skeið
eitt af stærstu kvikmynda-
verunum vestra. Það var stofn-
að 1921, og hafði á sínum vel-
gengnisárum samningsbundnar
stórstjörnur á borð við Cary
Grant, Katharine Hepburn,
Spencer Tracy og John Wayne.
Meðal þekktra mynda frá
R.K.O. má nefna CIMARRON,
KING KONG, THE INFORM-
ER, SUSPICION, og FORT
APACHE. Þá dreifði það einnig
myndum fyrir Walt Disney,
Selznik og Goidwyn. Howard
Hughes náði tangarhaldi á
kvikmyndaverinu árið 1948 og
fimm árum síðar var það selt
sjónvarpsefnisframleiðendum
(DESILU Playhouse). S.V.
kannski ekki að von Trapp
fjölskyldan tralli fyrir
mann nokkur aukanúmer,
þá gerir öll þessi tölvuvæð-
ing og tækniglys myndina
hálf einstrengingsiega
ómannlega og oft fráhrind-
andi. Wise hreinlega mis-
takast fangbrögðin við
mannfólkið, þá sjaldan
hann ætlar að gefa þvi tæki-
færi. S.V.
Stjörnubíó
Stjörnubfó: CISCO PIKE.
if Cisco er söngvari og laga-
smiður, nýsloppinn úr fang-
elsi eftir að hafa verið
dæmdur fyrir að dreifa
eiturlyfjum. Hann ætlar að
hætta í eiturlyfjunum, en
lögreglumaður nokkur
(Gene Hackman) þröngvar
honum til að dreifa fyrir sig
100 kilóum af grasi.
Óheiðarleiki lögreglu-
mannsins, sem byggist á
óréttiátum launasamningi
við rfkið, bitnar á góðviljuð-
um en ístöðulausum þegni
hins sama ríkis. Afleiðingar
eiturlyfjaneyslunnar, dauði
og vesaldómur, láta heldur
ekki á sér standa. 1 mynd-
inni er mikil músik og
nokkur ágætis lög, en f
heildina er hún fremur
sundurlaus. Þetta er fyrsta
mynd leikstjórans Bill Nort-
ons, sem einnig samdi kvik-
myndahandritið. SSP.