Morgunblaðið - 07.01.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975
Póstmenn mótmæla skipulagsbreytingum hjá Pósti og síma
— vilja láta fresta fram-
kvæmd nýrrar reglugerðar
1 KJÖLFAR þeirra breytinga,
sem urðu á skipan pðst- og síma-
mála er ný reglugerð gekk I gildi
nú um áramótin, hefur komið
upp óánægja meðal póstmanna.
Þeir telja, að við endurskoðun og
nýskipan póst- og sfmamála hafi
sjónarmið starfsmanna stofn-
unarinnar ekki verið höfð til hlið-
sjónar, þeim hafi ekki gefizt kost-
ur á að fylgjast með undirbúningi
breytinganna, ræða þær eða gera
tillögur f samræmi við sérþekk-
ingu og starfsreynslu.
Eins og fram hefur komið af
fréttum eru þær breytingar veiga-
mestar með gildistöku reglugerð-
arinnar, að ritsíma- og langlínu-
miðstöðin hafa verið sameinaðar
og settar beint undir daglega
stjórn simstjórans í Reykjavík. 1
reglugerðinni segir, að landinu
skuli skipt í póst- og símaum-
dæmi. Umdæmi I nær frá sýslu-
mörkum Snæfells- og Dalasýslu
að vestan og á Skeiðarársandi að
austan, en að öðru leyti er ekki
ákveðið með hvaða hætti eða hve-
nær landinu verði skipt í um-
dæmi. Umdæmisstjóri í umdæmi
I verður skipaður frá 31. marz
n.k.v en embætti ritsimastjóra og
bæjarsímstjóra í Reykjavík hafa
verið lögð niður, en símstjórinn í
Reykjavík og póstmeistarinn í
Reykjavík munu heyra beint
unóir stjórn umdæmisstjóra þeg-
ar skipað hefur verið í embættið.
Stjórn Póstmannafélags Islands
hélt fund meó fréttamönnum í
gær til að setja fram sjónarmið
sín vegna vinnubragða við skipu-
lagsbreytingarnar. Þar kom m.a.
fram, að fundur póstmanna í
Reykjavík, sem haldinn var 30.
des. s.l., mótmælir harðiega setn-
ingu reglugerðarinnar og telur að
með henni sé vegið á þann hátt að
hagsmunum póstsins, að ekki
verði við unað. Þá segir í sam-
þykkt fundarins, aó það sé bein
móðgun við póstmannastéttina og
stofnunina i heild, að ætlast til að
svo hlutdrægar breytingar á
stjórnarformi, sem fram koma í
reglugerðinni, séu gerðar með
fárra daga fyrirvara, en reglu-
gerðin var birt 20. des. s.l.
Fundurinn krafðist þess jafn-
framt, að látið yrði af þeirri „til-
skipunarstjórn", sem nú væri
farin að gera vart við sig í þjóðfé-
laginu, og skoraði á póst- og sima-
málaráóherra að fresta fram-
kvæmd regiugerðarinnar og gefa
þannig tíma til umræðna um hana
og taka upp samstarf við starfs-
menn stofnunarinnar um réttláta
framkvæmd mála í anda atvinnu-
Framhald á bls. 35
Talsmenn póstmanna á fréttamannafundi f gær. 1 ræðustóli er Reynir
Armannsson, formaður Póstmannafélags tslands. Fremst tíl vinstri á
myndinni er Matthfas Guðmundsson, póstmeistari f Reykjavfk, þá
Jakob Tryggvason ogGuðmundur Jóhannsson.
Versti óveðurskafli fyrir
innanlandsflug sl. áratug
Rofaði til í gær og færð á
landi með skásta móti
„ÞAÐ er samdóma álit okkar hjá
Flugfélaginu, að þetta sé versti
óveðurkafli sem komið hefur f
meira en tfu ár og á þessum tfma
hefur aldrei verið erfiðara en nú
að halda uppi flugsamgöngum
hér innanlands," sagði Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða í samtali við Morgunblaðið.
Hann kvað frátök f áætlunarflug-
inu hér innanlands ekki hafa
orðið svona mikil frá þvf að Flug-
félagið fékk Fokkerflugvélarnar
fyrir röskum áratug og hefði þar
allt lagzt á eitt — vindstyrkur f
lofti, fannfergi, hálka á braut-
um auk samgönguerfiðleika til og
frá flugvöllunum úti á lands-
Vasaljós barg 2 mönnum
í sjónum frá drukknun
Straumur HU sökk meðan varðskip
hafði bátinn í togi og án þess að
varðskipsmenn yrðu þess varir
TVEIR menn voru hætt komnir
út af Skaga við Húnaflóa sl. föstu-
dag, er bátur þeirra, sem varðskip
dró, sökk þar skyndilega. Fóru
mennirnir í sjóinn án þess að
varðskipsmenn yrðu þess strax
varir, og var þeim ekki bjargað úr
sjónum fyrr en eftir um stundar-
fjórðung. Var þá annar mann-
anna orðinn töluvert þrekaður.
Báturinn, sem hér um ræðir,
var Straumur HU-5 frá Hvamms-
tanga en hann hafði skömmu
fyrir áramót slitnað upp í óveðri
og rak upp í fjöru. Tókst að ná
bátnum aftur út á gamlársdags-
kvöld og var hann síðan þéttur til
bráðabirgða á Hvammstanga. Á
föstudag var varóskipið Albert
síóan fengið til að draga Straum
áleiðis til Siglufjarðar þar sem
frekari viðgerð átti að fara fram.
Að sögn Björns E. Haralds-
sonar, skipstjóra á Straumi, var
„Það verður ekki
Vegagerðarhjálp
99
VITAVÖRÐURINN í Sauða-
nesvita Trausti Magnússon býr
f svo til algjörri einangrun alla
vetur, þótt hann búi aðeins í
um 4 km fjarlægð fráSiglufirði
Um jólin komu til hans gestir,
dóttir hans og tengdasonur. Er
dóttirin barnshafandi og er það
langt á meðgöngutfmann liðið
að hún getur fætt barn sitt á
hverri stundu. Enn f gær voru
gestir Trausta hjá honum og
hefur Vegagerð ríkisins ekki
fengizt til að ryðja snjó af veg-
inum til hans. Var Trausti því
eðlilega áhyggjufullur, er Mbl.
ræddi við hann f gær.
Trausti sagði, að átt hefði að
ryðja snjó af veginum siðast-
liðinn föstudag, en Vegagerðin
sagði þá, að það yrði ekki gert,
þar eð vegurinn væri fær
stórum bílum. Það dugði þó
dóttur Trausta og tengdasyni
ekki, þar eó þau voru á fólksbíl.
Síðan átti í fyrrakvöld að'moka,
en þá var hefillinn sagður bil-
aður, en nú er búizt við því að
ýta verði látin ryðja veginn i
dag. Þó sagðist Trausti ekki
treysta þvi, þar eð reynsla sin
væri sú, að áætlunum um snjó-
mokstur væri síbreytt og slæmt
væri að vita aldrei, hvenær
unnt væri að komast i samband
við aðra byggð og hvenær ekki.
Nú veróur vegurinn að Sauða-
nesvita ekki opnaður nema með
ýtum, þar eð snjóflóð hefur
fallið yfir hann á tveimur stöð-
um.
„Það er alltáf sama sagan. I
útvarpi heyrir maður að ryðja
eigi snjó af veginum norður i
land, en sömuleiðis er tilkynnt
að ófært sé til Sigluf jarðar. Það
virðist alltaf vera sjálfsagður
hlutur. Frá mér er til dæmis
aðeins 1,5 km í Strákagöng. Þar
stendur ýta, en i dag var mér
sagt, að hún yrði ekki notuð á
mánudegi. Hins vegar veit ég,
að ef dóttir mín verður veik,
berst okkur aðstoð frá Siglfirð-
ingum en það verður ekki
Vegagerðarhjálp. Hér bý ég og
fæ laun í samræmi við að ég sé í
vegasambandi allt árið, en
raunin er samt sú að við erum
lokuð hér inni allan veturinn,"
sagði Trausti Magnússon.
hann ásamt Eyjólfi Eyjólfssyni
um borð í bátnum meðan varð-
skipið var með Straum i togi. Lagt
var af stað frá Hvammstanga um
tvöleytið og gekk ferðin ágætlega
framan af. Að vísu lak báturinn
lítið eitt en dælur hans höfðu vel
undan auk þess sem um borð í
bátnum var til vara diesel-dæla
frá varðskipinu.
Þegar lengra út á Húnaflóa kom
var meiri sjór og lentu þeir Björn
og Eyjólfur þá í nokkru brasi með
dælur bátsins. Settu þeir þá
dieseldæluna frá varðskipinu í
gang og gekk þá allt eins og í sögu
enn um sinn. „En svo var það i
kringum 7.50 að lensing fór að
verða mjög treg og létum við þá
varðskipsmenn vita um talstöðina
að lensing gengi illa eða ekkert og
báðum um að fá dælur fluttar yfir
til okkar frá varðskipinu,“ sagði
Björn ennfremur.
Björn sagði þó, að þegar hér
hafi verið komið hafi myrkur
verið skollið á en þó alls ekki
mikill sjór. Dálítil slagsiða var
komin á bátinn en þó ekkert
alvarleg að þeirra mati og voru
þeir önnum kafnir við að fást við
dæluna, þegar báturinn lagðist
skyndilega á hliðina. „Ég reyndi
að ná í neyðartalstöðina en varð
frá að hverfa vegna þess að stýris-
húsið fyllti svo snögglega," sagði
Björn ennfremur. „Ég gat hins
vegar gripið litla talstöð sem var
úr varðskipinu og kallaði í hana
hvað væri að gerast en hef senni-
lega kallað svo ört að varðskips-
menn gripu það ekki, þvi að bát-
urinn sökk án þess að þeir yrðu
þess varir. Okkur tókst að koma
lífbátnum út yfir síðuna en þegar
ég var búinn að draga línuna
fjóra faðma til að blása bátinn út,
stóð allt fast hann opnaðist ekki,
Ég brá þá línunni utan um rekk-
verkið til að fá betra tak á linunni
en i sama mund var báturinn
byrjaður að sökkva og við urðum
að hugsa um það eitt að koma
okkur frá honum til að sogast
ekki niður með bátnum. Sökk
hann síðan þó nokkuð langt frá
Framhald á bls. 35
byggðinni. Sveinn kvaðst þó vona,
að hið versta væri nú liðið hjá og
að hægt yrði að flytja þá sem biðu
fars úti á landi á áfangastaði i
gær og í dag.
Miklir flutningar voru hjá Flug-
félagi íslands í gær en þá var lögð
megináherzla á áætlunarflugið til
Vestfjarða og Vestmannaeyja,
þar sem fjöldi farþega hefur
beðið eftir flugfari um langan
tíma. Til Isafjarðar átti þannig að
fara fimm ferðir i gær, þar af eina
frá tsafirði til Akureyrar og þrjár
ferðir voru til Patreksfjarðar í
gær. Þá voru farnar fjórar ferðir
til Vestmannaeyja i gær, en
þangað hafði ekki verið hægt að
fljúga frá því fyrir áramót.
1 gærkvöldi átti að fljúga fjórar
ferðir til Akureyrar. Þar var allt
ófært á föstudaginn vegna
óveðurs og á laugardag flugu
þangað tvær vélar en lokuðust
inni þar eð Reykjavíkurflugvöllur
varð ófær um sama leyti. Stóðu
þær á Akureyrarflugvelli fram á
sunnudag en þá voru farnar 9
ferðir frá Akureyri til Reykja-
víkur og sjö frá Reykjavik til
Akureyrar og tókst þannig að
greiða úr ösinni sem þar hafði
myndast. Einnig var farin ein
ferð til Egilsstaða og til stóð að
fljúga á Egilsstaði aftur i gær-
kvöldi um Akureyri. Auk þess
voru á sunnudag farnar þrjár
ferðir til Egilsstaða frá Reykja-
vik.
Til Hafnar í Hornafirði voru
einnig farnar 2 ferðir í gær, 2
ferðir á Sauðárkrók og þangað
átti að fara tvær ferðir seinni-
hluta dagsins, ef farþegar kæm-
ust frá Siglufirði. Raunar höfðu
Vængir farið þrjár ferðir til
Siglufjarðar og þar af flutt far-
þega yfir til Sauðárkróks.
1 Húsavik biða 200 farþegar
eftir flugfari, en þar var ófært
fram eftir degi í gær. Hins vegar
stóð til að fara þangað 4 feróir í
gærkvöldi. Sömu sögu var að
segja um Þórshöfn og Raufar-
höfn, þangað var ófært i gær og
sömuleiðis til Norðfjarðar.
Af landflutningum eru aftur á
móti þær fréttir helztar, að ástand
þjóðvega er nú með skásta móti.
Þannig er ágæt færð um allt
Reykjaneskjördæmi á aðalvegum,
og yfirleitt góð færð um Suður-
landsundirlendi alveg austur til
Hornafjarðar. Þá er ágæt færð
um Hvalfjörð og Borgarfjörð en
fjallvegir Snæfellsness eru lok-
aðir. Þar verður væntanlega
opnað í dag ef veður leyfir. Þá á
einnig að opna vestur í Króks-
fjarðarnes en i gær var þar ófært
i Svinadal úr Gilsfirði.
I gær var verið að ryðja vegi i
nágrenni Patreksfjarðar, bæði
Framhald á bls. 35
Tekur við starfi
verðlagsstjóra
UM SlÐUSTU áramót lét
Kristján Gíslason af störfum verð-
lagsstjóra og þá tók víð Georg
Ólafsson. Georg varð stúdent frá
menntaskólanum i Reykjavik árið
1965 og lauk vióskiptafræðiprófi
frá Háskóla íslands árið 1970.
Hann starfaði að námi loknu um
skeið hjá Seðlabankanum og
einnig um tvö ár i Danmörku.
r
Attræður maður
lézt í bílslysi
1 GÆRMORGUN lézt á Borgar-
spítalanum í Reykjavík áttræður
maður, Jón J. Vfðis, af meiðslum
sem hann hlaut f umferðarslysi á
Hringbraut 21. desember s.l. Jón
J. Víðis var fæddur 31. maf 1894,
og átti heimili að Eirfksgötu 4,
Reykjavfk.
Slysið varð á Hringbraut
skammt frá gatnamótum Hring-
brautar og Laufásvegar rétt fyrir
kl. 18.30 hinn 21. desember s.l.
Jón heitinn var á leið yfir Hring-
braut er hann varð fyrir fólksbif-
reið, sem ók vestur Hringbraut.
Var hann strax fluttur á Borgar-
spítalann og þar lézt hann í gær-
morgun. Hlaut Jón Mikil höfuð-
meiðsl í slysinu.
Það eru tilmæli rannsóknar-
lögreglunnar, að ef einhver vitni
hafa verið að slysinu gefi þau sig
strax fram við rannsóknarlögregl-
una. Er sérstaklega lýst eftir bif-
reiðarstjóra á sendiferðabifreið,
sem talið er að beðið hafi á gatna-
mótum Hringbrautar og Laufás-
vegar i þann mund er slysið varð.
)