Morgunblaðið - 07.01.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 07.01.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRlÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975 3 Skipin sigla ekki vegna aflaleysis Rán með stórgóða sölu TOGARINN Rán fékk mjög góða sölu f Grimsby hinn 3ja janúar si. Seldi Rán þar samtals 108,2 tonn fyrir 41.836 sterlingspund eða sem svarar 11,6 milljónum króna. Er meðalverð á hvert kfló því um 107 krónur. Afli Ránar var mest ýsa og f mjög góðum gæðaf lokki. Þessari góðu sölu hefur hins vegar ekki verið unnt að fylgja í Grimsby fyrir helgi eftir. Bæði Ögri og Kaldbakur hafa hætt við siglingu í þessari viku, þar eð eindæma ótíð hefur algjörlega hamlað veiðum. Skut- togari Ölafsfirðinga, Sólberg, mun þó væntanlega sigla í næstu viku og Siglufjarðartogarinn Dagný ætlar að sigla 15.—16. janúar. Þá er Helga Guðmunds- dóttir að byrja veiðar fyrir sigl- ingu til Belgíu. Nýta bræðslurnar loðnuaflann illa? LOÐNUSKIPSTJÓRAR og stýri- menn á loðnuflotanum héldu fund um helgina, þar sem þeir ræddu ástand og horfur nú er loðnuvertíð fer að hefjast. Óánægja var á fundinum með að engin ákvörðun hefði verið tekin um verðlagsmálin. Hins vegar gerðu fundarmenn sér Ijóst að ekki er grundvöllur fyrir sama verði og verið hefur. Samkvæmt upplýsingum Páls Guðmundssonar voru engar stríðsyfirlýsingar samþykktar á fundinum og ekki kom fram á fundinum, hve hátt verð skip- stjórarnir teldu sig þurfa að fá fyrir hvert kg til þess að unnt yrði að gera út á loðnu. Hins vegar hvöttu menn til þess að verðlagt yrði til stutts tíma í einu, þannig að ef einhver breyting yrði á markaðsmálum loðnumjöls, þá kæmi hún þegar inn í verðlagn- inguna. Þá sagði Páll að loðnuskipstjór- ar og stýrimenn teldu að það afla- magn af loðnu, sem hér bærist á land, hlyti ekki sömu nýtingu og loðnuafli meðal annarra þjóða. A þetta sérstaklega við um verk- smiðjurnar. Sagði Páll að þetta væri orðið mjög alvarlegt mál. Ljóst væri að áður hefði t.d. lýsi gefið andvirði alls mannakaups- ins á togaraflotanum, en nú væri lifur ekki hirt lengur. Ef það er þannig hjá verksmiðjunum, að nýtingartalan er langt fyrir neðan það sem eðlilegt er, yrði að verð- leggja eftir innihaldi lýsis og þurrefnis i hráefninu, en ekki eftir einhverri nýtingarprósentu, sem verksmiðjurnar gefa upp. Páll sagði að aflinn lægi ef til vill of lengi í landi áður en hann væri unninn, en einnig gæti verið að verksmiðjurnar væru ekki eins útbúnar og nauðsynlegt væri — vegna þess að ekkert rekur á eftir þeim að ná sem mestri nýtingu út úr hráefninu á meðan verðlagn- ingin fer aðeins eftir því hvernig nýtingin hefur verið. Kemur þetta allt fram í verðinu og sagði Páll að raunverulega væri hér um þjóðfélagsvandamál að ræða og kemur okkur ekki einum við — sagði hann. (Ljósm. Ólafur Guðmundsson). Alfadans og brenna í Kópavogi 1 FYRRADAG héldu Kópavogs- búar jólunum kveðjuhóf á gras- vellinum sunnan við Fffu- hvammslækinn. Safnazt var saman kl. 5 sfðdegis á íþrótta- vellinum við Vallargerði og sfðan haldið fylktu liði með álfakóng og álfadrottningu ásamt hirð þeirra f broddi fylk- ingar inn Fífuhvammsveginn. Aður en skrúðgangan kom á vettvang hafði verið kveikt í miklum bálkesti á hátíðarsvæð- inu og logaði glatt þegar að var komið. Þar fóru fram skemmtiatriði — Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýndi listir sfnar, Halli og Laddi komu fram með gaman- mál og álfar stigu dans. Einnig var almennur söngur, en hátfðinni lauk með flugelda- sýningu. Samkoman fór hið bezta fram og voru börn og unglingar í miklum meirihluta svo sem vænta mátti. Tómstundaráð Kópavogs gekkst fyrir samkom- Sigwikir O. Bjömsson iátínn (Ljósm. Björn Lárusson). fjölskyldu sinni mikið skóglendi i Sellandi í Fnjóskadal. Hann var söngmaður ágætur og áhugamað- ur um margs konar menningar- mál, og ötull liðsmaður þeirra. Sigurður O. Björnsson var tví- kvæntur. Fyrri kona hans, María Kristjánsdóttir, lézt 1932 en seinni kona hans, Kristin Bjarna- dóttir, lifir mann sinn. — Sv. P. ákvæði ýmissa samninga, m.a. ákvæðis hins almenna samkomu- lags um tolla og viðskipti (GATT), samninginn um efna- hagssamvinnu- og framfarastofn- unina (OECD) og ákvæði við- skiptasamninga Islands og Vest- ur-Þýzkalands og kemst að áður- nefndri niðurstöðu. 1 lokaorðum kemst dr. Gunnar Ræða við Tékka SAMNINGANEFND Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna og Sjávarafurðadeildar Sambands is- lenzkra samvinnufélaga, þ.e. þeir Árni Finnbjörnsson og Andrés Þorvarðarson eru nú staddir í Tékkóslóvakiu, þar sem þeir ræða við Tékka um kaup á frystum fiski frá islandi á árinu 1975. Þeir Árni og Andrés munu strax og ákveðinn verður fundar- tími með Rússum fara til Moskvu og ræða sömu mál við þá aðila. Ekki er ljöst hvort þeir koma heim til íslands áður en viðræð- urnar við Rússa fara fram. Ef fundártíminn verður fljótlega munu þeir fara rakleiðis frá Prag til Moskvu. Schram m.a. svo að orði: „Jafnvel þótt vestur-þýzk stjórnvöld hafi neitað að viðurkenna 50 mílna lögsöguna og telji töku togarans algjörlega ólöglega veitir það þeim engan rétt til þess að brjóta skýlaus ákvæði bæði alþjóðlegra og gagnkvæmra viðskiptasamn- inga, sem þeir eru aðilar að. 1 samningunum sjálfum er tæm- andi um það fjallað af hvaða orsökum samningsaðilar geti gripið til ákveðinna verndar eða refsiaðgjörða gagnvart öðrum samningsaðilum. Deilur um mörk Bjarni Jónsson skipstjóri látinn LÁTINN er í Reykjavík Bjarni Jónsson, fyrrum skipstjóri. Bjarni Jónsson var fæddur i Reykjavík 3. júní 1889. Hann réðst fyrst sem stýrimaður á skip Eimskipafélags íslands og var síðan skipstjóri um langt árabil, lengst af á Tröllafossi. Árið 1914 kvæntist Bjarni eftirlifandi eigin- konu sinni, Halldóru Sveinsdótt- ur. Hann lést 31. desember sl. Akureyri — 6. jan. SIGURÐUR O. Björnsson, prent- smiðjustjóri og bókaútgefandi, lézt i Fjórðungssjúkdrahúsinu á Þinga um loðnuverð 1 dag FUNDUR var í gær í Verðlagsráði sjávarútvegsins, bæði í yfirnefnd þeirri, sem ákvarða skai fiskverð- ið á komandi vetrarvertíð, ogyfir- nefndinni, er ákvarðar verð á fiskúrgangi, en ekki var komizt að niðurstöðu. í dag verður fundur i verðlagsráði um loðnuverðið, en þvi hefur enn ekki verið vísað til yfirnefndar, þó að allt stefni I þá átt. fiskveiðilögsögunnar eru hvergi meðal þeirra atriða, og þvi alveg fráleitt að slík deila geti lög- helgað samningsbrot á vettvangi alþjóðlegra viðskiptasamninga. Deilur um landhelgismál verður að sækja á öðrum vettvangi." Akureyri á föstudaginn eftir langa vanheilsu. Hann fæddist 27 janúar 1901 i Kaupmannhöfn, sonur hjónanna Odds Björnssonar, prentmeistara, og Ingibjargar Benjamínsdóttur. Sigurður lauk prentnámi hjá föð- ur sínum árið 1921 og starfaði síðan lengst af við Prentverk Odds Björnssonar hf. og Bókafor- lag Odds Björnssonar meðan dag- ur entist. Hann var stórvirkur skógrækt- armaður og ræktaði upp ásamt LÖNDUNARBANN á islenzkan fisk í Vestur-Þýzkalandi er ólög- legt. Þetta er niðurstaða dr. Gunnars Schram, prófessors, í grein, er hann ritar f Mbl. í dag og birt er á bls. 23. Gunnar rekur þar Staðarskáli ÞAU mistök urðu í frétt Mbl. s.l. sunnudag, þar sem skýrt var frá hrakningum ferðafólks á Holta- vörðuheiði, að gisti- og veitinga- skáli sá, sem Magnús Gislason rekur með miklum myndarbrag að Stað í Hrútafirði, var nefndur Staðarbakki, en eins og allir vita heitir hann Staðarskáli. Er Magnús beðinn afsökunar á mis- tökunum. Löndunarbanníð í Þýzkalandi ólöglegt?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.