Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7, JANUAR 1975
Hitaveitur Suðurnesja og nágrannabyggða Reykjavíkur:
Stærstu átökin í hitaveitu-
framkvæmdum landsins
MÞinGI
FRUMVARP til laga um Hita-
veitu Suðurnesja var samþykkt
frá Alþingi síðla liðins árs. Frum-
varp þetta, sem nú er orðið að
lögum, var stjórnarfrumvarp
í samræmi við stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um nýtingu innlendra orku-
gjafa. Hér er um stórfram-
kvæmd að ræða, sem ná á til 7
Oddur Ólafsson alþingismaður.
sveitarfélaga á Suðurnesjum sem
og Keflavíkurflugvallar. Fram-
kvæmd þessi ásamt og í framhaldi
af hitaveitu fyrir Hafnarfjörð,
Kópavog og Seltjarnarnes, eru
stærstu átök þjóðarinnar í þessu
efni, e.t.v. að hitaveitu Reykja-
vikur undantekinni, ef miðað er
við þeirra tima aðstæður. Máli
þessu voru gerð nokkur skil á
þingsíðu Morgunblaðsins, er það
var á döfinni á Alþingi. En þar
sem það snertir svo marga hags-
munaaðila og er raunar hvati hlið-
stæðra framkvæmda um land allt
þykir rétt að birta nú framsögu
orkuráðherra, Gunnars Thorodd-
sen, fyrir frumvarpinu, sem og
mál nokkurra talsmanna þess á
Alþingi.
Framsaga orku-
ráðherra.
I orkumálum er nýting jarðhita
til hitunar húsa eitt hið mikilvæg-
asta. Hitaveitur hér á landi, fyrst
í Reykjavík og síðar annars stað-
ar, hafa þegar sýnt gildi sitt. Nú
er orðið alllangt síðan fyrst komu
upp hugmyndir um hitaveitu fyr-
ir Suðurnes og hafa þar ýmsar
Ieiðir og möguleikar verið nefnd-
ir. Árið 1971 voru boraðar tvær
holur í Svartsengi nálægt Grinda-
vík eftir ósk Grindavíkurhrepps,
og gáfu þær holur góðar vonir.
Síðan hafa farið fram athuganir
og nú á þessu ári 1974 voru bor-
aðar holur til viðbótar. Er í fáum
orðum hægt að segja, að þessar
rannsóknir og tilraunaboranir
hafa gefið mjög góða raun, þannig
að nú þykir sýnt, að í Svartsengi
Álfheiður Kristveig Lárus-
dóttir: □ KORN. 44 bls. □
Helgafell. 1974. □
KORN heitir lítil ljóðabók sem
kom út fyrir jólin. I kápuauglýs-
ingu er upplýst að skáldið sé
skólastúlka á nítjánda ári en ljóð-
in hafi hún ort fimmtán ára. Upp-
lýsingar um svo dásamlega æsku
skulu gilda sem verndarbréf gegn
harkalegri gagnrýni eða hvað?
Við skulum láta það heita svo og
fara nokkuð eftir því. Getur þá
tæpast verið ósanngjarnt að segja
um ljóðin að þau séu barnaleg því
það eru þau. Skáldkonan hefur
ekki enn öðlast þann málþroska
megi byggja mannvirki, sem geti
orðið hitaveita fyrir öll Suðurnes.
I grg. þessa frv. er gerð allítar-
leg grein fyrir málinu í heild, en
ég skal því vera fáorður hér i
framsögu. Haustið 1973 var stofn-
uð samstarfsnefnd Suðurnesja til
þess að vinna að þessu máli og
hrinda því I framkvæmd. Sú sam-
starfsnefnd hefur unnið að fram-
gangi málsins og haft samráð við
iðnrn. og fjmrn. og er þetta frv.
samið i samvinnu þessara aðila og
er um það fullt samkomulag.
Nú var mér að berast bréf frá
samstarfsnefnd sveitarfélaga á
Suðurnesjum, en að henni standa
7 sveitarfélög og beina fulltrúar
þessara sveitarfélaga því til Alþ.
að veita frv. brautargengi og fara
eindregið fram á það, að það geti
orðið að lögum, áður en til jóla-
leyfis alþm. kemur.
Það er rétt að taka það fram, að
hér er um að ræða 7 sveitarfélög,
sem að þessu máli standa. Það er
Keflavíkurkaupstaður, Njarð-
víkurhreppur, Gerðahreppur,
Miðneshreppur, Hafnahreppur,
Grindavíkurkaupstaður og Vatns-
leysustrandarhreppur. Það kom
til athugunar að sjálfsögðu og um-
ræðu hvort og þá i hve ríkum
mæli ríkið ætti að vera aðili að
slíkri framkvæmd. Hitaveitur
þær, sem áður hafa verið reistar
hér á landi, eru eign sveitar-
félaga. Hins vegar kom það
snemma til, að eðlilegt væri, að
rikið væri þarna meðeigandi, m.a.
og einkum vegna flugvallarins,
sem er á þessu svæði og hefur
niðurstaðan af þeim samningavið-
ræðum orðið sú, eins og greinir í
2. gr. frv., að eignarhluti ríkis-
sjóós skuli vera 40% en sveitar-
félögin skuli samtals eiga 60%.
I 7. gr. er svo ákvæði um stjórn
Hitaveitunnar. Er gert ráð fyrir,
að iðnrh. og fjmrh. skipi hvor
sinn fulltrúa í stjórnina og
sveitarfélögin, sem eru aðilar að
fyrirtækinu, skipi 3 stjórnar-
menn, og eru svo nánari ákvæði
um þetta mál í greinargerð. Það
er rétt til þess að menn átti sig á,
hve hér er um stórt mál að ræða,
að geta þess til samanburðar, —
að þegar þessi væntanlega hita-
veita er borin saman við raf-
stöðvaafl og mælt í megawöttum,
þá er gert ráð fyrir þvi, að varma-
þörf þessara byggða og flugvallar-
ins sé um 110 megawött og er því
gert ráð fyrir, að þessi hitaveita
geti framleitt þann hita eða þann
varma. En 110 megawött eru á
stærð við Búrfellsvirkjunina, eins
og hún var í fyrstu, en hún var
105 megawött. Af þessu geta
menn nokkuð ráðið um stærð
þessa fyrirtækis. Gert er ráð fyrir
því í þeim áætlunum, sem hér
liggja fyrir, að fyrst sé ráðist í
hitaveitu fyrir sveitarfélögin.
Eins og menn sjá af greinagerð og
því korti, sem er á bls. 7 I frum-
varpinu, er gert ráð fyrir, að 6
er þarf til að semja svo kláran og
skýran texta sem ljóð verður að
vera eigi það að standa undir
nafni. Þroska þarf til að orða vel
hugsun sína, meiri þroska til að
yrkja ljóð svo vel sé. Tungutak
Álfheiðar Kristveigar ber merki
æsku, það er lipurt og þýtt og
ungæðislegt en skortir einbeitni
og kraft. Ljóð verður sem sagt að
vera skýrt og skorinort jafnvel
þótt höfundur sæki myndir og lík-
ingar svo langt inn í eigin hugar-
heim að lesandinn skilji tæpast
hvað hann er að fara, einu gildir
— aldrei verður of oft endurtekið
að texti á ekki skilið að heita Ijóð
sé hann ekki skilmerkilega saman
settur. Þeirri kvöð verður skáld
sveitarfélög verði f fyrstu aðnjót-
andi hitaveitunnar. En það eru
Grindavík, Vogar og Vatnsleysu-
strandarhreppur, Njarðvlk,
Keflavík, Gerðar, Sandgerði. I
þessum áætlunum er einn aðilinn,
sem stendur að þessu, þ.e.
Hafnarhreppur, ekki talinn með í
þessum áætlunum, vegna þess, að
það er til athugunar, hvort sú leið
þætti heppilegri, að Hafnarhrepp-
ur fengi hitun með öðru móti, t.d.
með rafmagni, en sú upphitun
mundi þá að sjálfsögðu verða á
vegum þessa fyrirtækis, Hita-
veitu Suðurnesja. Ég get
þessa sérstaklega hér vegna
þess að sveitarfélögin eru
7, en í þessum áætlunum
og greinargerðum er gert ráð
fyrir, að á þessu stigi verði þau 6,
sem njóta hitaveitunnar. Og skýr-
ingin er þessi, og er þetta allt I
góðu samráði við fulltrúa Hafna-
hrepps.
Það er gert ráð fyrir þvi, að
varmaþörf sveitarfélaganna sé
um 40 megawött, en þegar bæði
Hafnir og flugvöllurinn kemur
til, þá mundi heildarvarmaþörfin
verða 110 megawött. Það er gert
ráð fyrir, að á tveimur til þremur
árum megi koma hitaveitu til
þessara sveitarfélaga og tengja
þau hús, sem þar er um að ræða.
Þær rannsóknir, sem fram hafa
farið, og borholur, sem þegar hafa
Gunnar Thoroddsen orkuráð-
herra.
verið gerðar, benda eindregið til
þess, að jarðhitavatnið sé ekki
nothæft beint til upphitunar.
Verður því að nota varmaskipti og
hafa verið gerðar umfangsmiklar
tilraunir til þess að finna þá
heppilegustu aðferð í þvf efni.
Ætíunin er að nota kalt vatn, þ.e.
nita upp kalt vatn með jarðhita-
vatni og gufu f varmaskiptum, og
telja þeir sérfræðingar, sem að
þessu hafa unnið frá Orkusiofnun
og Fjarhitun, að þau mál sé til-
tölulega auðvelt að leysa og fjarri
þvf að vera nokkur frágangssök. I
þessum áætlunum, sem hér liggja
að hlíta hvort sem það er ungt eða
gamalt.
I fyrrnefndri kápuauglýsing
segir að ljóð Álfheiðar Kristveig-
ar beri „vott um sérkennilega
hugkvæmni, sjálfstæða tilfinn-
ingu og ótvíræða skáldskapar-
hæfileika."
Rétt er það vafalaust að tilfinn-
ing skorti síst í þessum ljóðum.
Einnig má segja þau beri vott um
talsverða hugkvæmni. Hins vegar
virðist mér minna reyna á
„ótvíræða skáldskaparhæfileika".
Tökum sem dæmi ljóðið Til-
finning:
fyrir, er varmaskiptistöð eða
stöðvar að sjálfsögðu innifaldar.
Það er gert ráð fyrir þvf í
nýjustu áætlunum, eins og greint
er á bls. 6, að stofnkostnaður veit-
unnar án flugvallarins verði alls
um 1800 millj. kr. og er það kostn-
aðaráætlun, sem gerð var f júnf
s.l. I frv. er veittar heimildir til
lántöku og ríkisábyrgða fyrir
samtals allt að 2000 millj. kr. og er
það í samræmi við þessa kostn-
aðaráætlun, sem ég gat um, Ef
þetta mál er borið saman ekki við
rafstöð eins og Búrfellsvirkjun-
ina, heldur t.d. við Hitaveitu
Reykjavfkur, þá geta menn einnig
gert sér nokkra grein fyrir stærð-
inni. Þegar menn leiða hugann að
því, að þegar Hitaveita Reykja-
vfkur var tekin í notkun f des.
1944, þá var afkastageta hennar
um það bil 55 megawött eða helm-
ingurinn af þvf, sem Hitaveita
Suðurnesja er ætlað, þegar hún er
fullgerð. Hitaveita Reykjavíkur
hefur hins vegar margfaldast síð-
an og er í grg. þessa frv. nefnt, að
afkastageta hennar, áður en hún
var stækkuð til nágrannabyggða,
þ e.a.s. miðað við árið 1973, hafi
verið um 280 megawött og hafa
þvf afköst hennar á þessum árum
frá stofnun og til ársins 1973 um
það bil fimmfaldast.
Varðandi þau hitaréttindi, sem
hér er um að ræða í Svartsengi,
eru þau a.m.k. að verulegu leyti í
einkaeign og er gert ráð fyrir
eignarnámsheimild í 14. gr. þessa
frv. Hins vegar er það skýrt tekið
fram og það vil ég undirstika,
skýrt tekið fram í grg. um 14. gr„
að æskilegt er, að samningar geti
tekist milli aðilja um kaup á jarð-
hitaréttindum og öðrum réttind-
um, sem nefnd eru í gr. og reynt
verður til þrautar á ná samkomu-
lagi, áður en til eignarnáms
kæmi.
Ég vænti þess, að þetta stórmál
fái góðar undirtektir hjá hv. Alþ.
Það er auðvitað ljóst, að hitaveita
einsog þessi, sem hér er um að
ræða, yrði til mikils hagræðis og
fjarhagslegs gagns fyrir íbúana,
sem hennar nytu og hefði auk
þess f för með sér verulegan
sparnað en varla þarf fram að
taka, hversu mikinn gjaldeyris-
sparnað slík framkvæmd mundi
hafa f för með sér fyrir þjóðar-
búið.
Ræða Odds
Ólafssonar
Oddur Ólafsson alþingismaður
sagði umrætt mál aldið að árum.
Hitinn á Reykjanesi hefði verið
augljós um aldaraðir. Margir ára-
tugir væru sfðan farið var að ræða
hitaveitu á Reykjanesi. Það, sem í
vegi hefði staðið til þessa, hefði
verið, að útreikningar verk-
fræðinga til þessa hefðu' allir
reynst neikvæðir, afraksturinn
ekki í samræmi við kostnaðinn.
Tvennt hefði breytt fyrri niður-
Heyra hvin f trjánum
og vera hlýtt,
heyra fugla syngja
og syngja með,
sjá físka f vatninu
og synda með,
finna Iffið fljúga áfram
og halda áfram með.
„Má ég vera með,“ segja börnin
og þeirrar náttúru er orðasam-
bandið að „halda áfram með.“
Dæmi af þessu tagi mætti tilfæra
þartil bókina þryti.
En það má segja Álfheiði Krist-
veigu til hróss að hún reisir sér
ekki hurðarás um öxl, ræðst ekki i
stórbrotin verkefni til að sýnast
meiri en hún er og slá um sig.
Ljóðaefni hennar eru eigin til-
finningar og viðhorf til lifsins,
ferskar tilfinningar ungrar sálar
sem virðir fyrir sér heiminn for-
vitnum barnsaugum og lýsir hóg-
værlega hrifning sinni á því sem
henni þykir fagurt. Þess vegna
bera þessi ljóðakorn með sér tals-
stöðu: verðþróun annarra orku-
gjafa (olfu) og ný aðferð, millihit-
un, þ.e. að hita upp kalt vatn með
þeim jarðvarma, sem þarna væri
að fá. Hann fagnaði framgangi
þessa máls, sagðist sakna þess
Axel Jónsson alþingismaður.
eins að sveitarfélögin ættu ekki
hitaveituna að fullu og öllu, eins
og tíðkaðist annars staðar á land-
inu. Mikils virði væri þó að meiri-
hlutaeign væri í þeirra höndum.
Ræða Axels
Jónssonar
Axel Jónsson alþingismaður tók
mjög f sama streng og Oddur
Ölafsson. Hann taldi Hitaveitu
Suðurnesja tvimælalaust eitt
stærsta hagsmunamál byggðanna
á Suðurnesjum. Hann þakkaði
núv. orkuráðherra skjót viðbrögð
i þessu máli og þær undirtektir
sem frumvarpið hefði fengið á
Alþingi. Vænti hann þess að
frumvarpið fengi skjóta af-
greiðslu f meðförum Alþingis.
Settir í embætti
I framhaldi af frétt í Mbl. í gær
um skipulagsbreytingar hjá Pósti
og sfma skal frá því skýrt, að
Hafsteinn Þorsteinsson hefur ver-
ið settur símstjóri í Reykjavík og
Aðalsteinn Norberg gegnir nú
störfum umdæmisstjóra í um-
dæmi 1. Báðum þessum störfum
verður síðar ráðstafað til fram-
búðar eins og venja er.
Bókmenntir
eftir ERLEND
JÓNSSON
veróa samkvæmni, þrátt fyrir allt,
en slíkt bendir ótvírætt til
nokkurs sjálfstæðis af svo ungri
skáldkonu. Hún fer ekki með
ærslum (kannski saknar maður
þarna dálítið galsafenginna fjör-
spretta af svona ungum höfundi)
heldur gengur hún fram hljóðlát
og raddþýð — þó svo að i ljóðun-
um sýnist felast býsna heit til-
finning sem skáldkonan veitir
hikandi útrás með sínu fábrotna
og óþjálfaða orðalagi.
Erlendur Jónsson
Smá eru kornin