Morgunblaðið - 09.01.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975
Vonzkuveður fær-
ist yfir landið
SAMKVÆMT upplýsingum Vega-
gerðar ríkisins var vonzkuveður í
fyrrinðtt og gærmorgun f Vík í
Mýrdal, snjðkoma og hvassviðri.
Voru vegir í gærmorgun orðnir
ðfærir í Mýrdal og á Mýrdals-
sandi. Snjðkoman og veður-
hamurinn færðust sfðan inn yfir
landið og í gær var þetta veður
farið að hafa áhrif á Vesturlandi
og mjög þung færð var komin á
Holtavörðuheiði. Spáð var snjó-
komu á Norðurlandi, þar sem í
gær var góð færð og var jafnvel
búizt við því að þá myndi færð
þar fara að þyngjast.
Fjallvegir voru í gærdag að
lokast austan Hafnar í Hornafirði
og færð mikið tekin að þyngjast á
Breiðamerkursandi. ÍBorgarfirði
var siðdegis komið vont veður og
á Snæfellsnesi. Mikið hvassviðri
var í gær á Hellisheiði og sjókóf.
Stöðvuðust þar bílar vegna þess
að vélar þeirra bleyttu sig og áttu
menn víða í erfiðleikum af þeim
sökum. Þá var og mikið kóf á
Keflavíkurveginum. Þar og á
Hellisheiði sáu menn varla handa
sinna skil í dimmustu hryðjunum.
Hér sjást fslenzku riddara- og stórrlddarakrossarnir, sem Otto Christensen keypti í verzlun f
Kaupmannahöfn, svo og nótur, sem eru staðfesting á kaupunum.
„Alveg orðulaus í bili”
— segir Magni í Frímerkjamiðstöðinni um orðumarkaðinn
„ÉG ER alveg orðulaus í bili“,
sagði Magni f Frfmerkjamið-
stöðinni þegar Mbl. leitaði til
hans í gær og spurðist fyrir um
ástandið á fslenzka orðu-
markaðnum. Sagði Magni, að
verzlunin hefði engar fálkaorð-
ur fengið síðan f haust. Eftir-
spurn væri ætfð mikil en fram-
boð hins vegar lftið. t sama
streng tók Guðmundur kaup-
maður f Klausturhólum, sem
einnig hefur verið með fslenzk-
ar fálkaorður til sölu.
. Á laugardaginn opnar danski
safnarinn Ottó Christensen sýn-
ingu á íslenzkum orðum, merkj-
um og peningum, en hann
hefur sérhæft sig í söfnun þess-
ara hluta frá íslandi og á stór-
gott safn. Á sýningu hans verða
m.a. 2 íslenzkir riddarakrossar
hinnar islenzku fálkaorðu og
einn stórriddarakross með
borða. Stórriddarakrossinn og
annar riddarakrossinn eru frá
konungstímabilinu, og voru
þeir keyptir í verzlun í
Kaupmannahöfn sumarið 1973.
Stórriddarakrossinn keypti
Ottó á 1350 danskar krónur eða
á núgildandi verðlagi 28.350
fslenzkar krónur og riddara-
krossinn á 500 danskar krónur,
eða 10.500 islenzkar. Fékk hann
nótur fyrir krossunum, og sjást
þær á meðfylgjandi mynd
ásamt krossunum. Þá keypti
Ottó riddarakross í sömu verzl-
un fyrir 14 árum síðan.
Riddarakrossinn er frá því eftir
lýðveldisstofnun, og greiddi
hann fyrir hann 450 danskar
krónur. Með öðrum riddara-
krossinum fylgdi heiðursskjal
undirritað af nokkrum helztu
mönnum þjóðarinnar á þeim
tíma og á þetta skjal var ritað
nafn þess, sem krossinn hlaut,
en það var H. L. O. Rasmusen
yfirlæknir i Danmörku. Slík
skjöl fá allir þeir, sem orður
hljóta, og skjalið fékk Otto
Christensen með f kaupbæti.
Jakob Hafstein fékk ekki
inni á Kjarvalsstöðum
Afrýjar til borgarráðs
Þórleifur Ólafsson, formaður Norðfirðingafélagsins f Rcykjavík, tekur
við söfnunarfé því, er þeir Berti Mölier og Guðmundur H. Jónsson
afhentu frá lögregluþjónum umferðardeildar f Reykjavfk. Ljósm.
Mbl.: Sv.Þ.
Hækkunarbeiðnir
til athugunar
RAFMAGNSVEITA Reykjavfkur
og Hitaveita Reykjavíkur hafa
sent iðnaðarráðuneytinu beiðni
um hækkun á töxtum sínum. Raf-
magnsveitan hefur óskað eftir
22,2% hækkun, en Hitaveitan um
9,4%.
Samkvæmt upplýsingum Jó-
hannesar Guðfinnssonar í iðn-
aðarráðuneytinu er tveggja
manna nefnd að vinna úr þessum
hækkunarbeiðnum, en í henni
eiga sæti alþingismennirnir Ólaf-
ur G. Einarsson og Halldór Ás-
grímsson. Er búizt við niðurstöð-
um nefndarinnar fljótlega.
I FYRRAKVÖLD var lagt fyrir í
borgarráði bréf Jakobs Hafsteins
þar sem hann krefst endurskoð-
unar og ógildingar á úrskurði
sýninganefndar Kjarvalsstaða
um að synja honum um aðstöðu
Ofsaveður
undir
Eyjafjöllum
OFSAVEÐUR var undir Eyja-
fjöllum í gærdag, þótt ekki væri
farið að snjóa þar sfðdegis. Sam-
kvæmt upplýsingum fréttaritara
Mbl. þar eystra, Markúsar Jóns-
sonar, fór skólabfll með eitt barn
þaðan áleiðis til Seljalandsskóla,
en bfllinn komst ekki nema rétt
austur fyrir Markarfljótsbrú, er
tvær rúður f honum brotnuðu
vegna grjótflugs. Sá þar ekki út
Framhald á bls. 20
17 milljónir
í snjóflóða-
söfnunina
UM hádegisbilið f gær sýndi
Iauslegt yfirlit, að um 17
milljónir kr. voru komnar í
snjóflóðasöfnunina og þá var
ennfremur vitað um talsverðar
fjárhæðir, sem voru á leið til
söfnunaraðila, sem eru Norð-
firðingafélagið í Reykjavfk og
nágrenni, Rauði kross Islands
og Hjálparstofnun kirkjunnar.
Meðal stærri gefenda sfð-
ustu daga eru Umferðardeild
lögreglunnar f Reykjavfk,
ónefndur maður frá Málmey í
Skagafirði og fyrirtækið Frið-
rik A. Jónsson h.f. Vitað er, að
söfnun er f gangi f mörgum
hinna stærri fyrirtækja og ein-
staklingar eru sffellt að leggja
eitthvað af mörkum.
til myndlistarsýningar f húsinu.
Var umsókn Jakobs til nefnd-
arinnar vfsað frá með 4 atkvæð-
um gegn 2 innan nefndarinnar.
I samtali við Morgunblaðið í
gær kvaðst Jakob hafa kært frá-
vfsun Kjarvalsstaðanefndar til
borgarráðs og krafizt endurskoð-
unar og ógildingar á úrskurð-
inum, þar eð hann teldi, að Kjar-
valsstaðir væri myndlistarhús
Reykvíkinga og því aðeins rétt-
lætismál að þeir gætu fengið það
á leigu hvort heldur þeir væru nú
áhugamálarar eða atvinnumenn.
Kvaðst Jakob hafa kynnt sér það
Framhald á bls. 20
2. umferð
í skákinni
ÖNNUR umferð á Skákþingi
Reykjavíkur var tefld í fyrra-
kvöld. Friðrik Ölafsson vann
Ómar Jónsson, Jón Kristinsson
vann Leif Jósteinsson, Margeir
Pétursson vann Gylfa Magnússon,
Björn Þorsteinsson vann Jóhann
örn Sigurjónsson. Aðrar skákir
fóru í bið. 3. umferð verður tefld
á föstudagskvöld.
Stórtjón á hafnarmannvirkj-
um á Flateyri vegna sigs
að flytja mikið sandmagn í höfn-
ina, eftir að um mörg ár hefur
verið unnið að því að dæla sandi
úr henni.
Erfið tíð hefur verið um jólin á
Flateyri, en allir þeir sem fóru í
jólaleyfið frá Flateyri eru nú
komnir þangað aftur. Sagði Jón
Trausti að það væri að þakka góð-
um flugsamgöngum á vegum flug-
félagsins Vængja, sem unnið
hefði mjög gott og þarft verk.
Nefndi hann sem dæmi, að Væng-
ir hjálpuðu íbúum á Ingjalds-
sandi í Önundarfirði með að-
drætti um og fyrir jól, en sú sveit
er mjög afskekkt á vetrum og
ófærð á veginum þangað. Bjarg-
aði flugfélagið gjörsamlega öllum
aðdráttum fólks þar nú um þessi
jól, en flugvöllur er á Ingjalds-
Framhald á bls. 20
— Flateyrarlæknishérað læknislaust
HAFNARGARÐURINN á Flat-
eyri hefur sigið allverulega á um
30 metra kafla. Er sigið um það
bil einn metri og er froskmaður
frá varðskipinu Albert kannaði
botn stálþilsins, kom í Ijós, að
stálþilið hefur gengið út neðst við
botninn um það bil um 2 metra.
Hafnarkantur þessi var gerður
fyrir þremur til fjórum árum.
Samkvæmt upplýsingum
umboðsmanns Mbl. á Flateyri,
Jóns Trausta, hafa fulltrúar Vita-
og hafnarmálaskrifstofunnar
ekki enn komið á staðinn til þess
að kanna skemmdirnar á hafnar-
garðinum, en Jón sagði að óhætt
væri að fullyrða að tjónið næmi
mörgum milljónum króna. Flat-
eyringum hafa verið gefin þau
ráð að aka sandi í höfnina við
þilið til þess að stöðva frekara sig.
Sagði Jón að ýmsum þætti hart,
Samtalið við Croiset
- og dylgjur Tímans
I FORSlÐUFRÉTT í Tímanum
f gær er dregið f efa, að frásögn
Morgunblaðsins af samtali við
hollenzka sjáandann Croiset
hafi við rök að styðjast. Tfminn
segir: „Hvort samtalið við
Croiset er uppspuni einn skal
ósagt látið...“ Og ennfremur
hefur Tfminn eftir fulltrúa
bæjarfógetans í Keflavík, að
Croiset hafi „aðspurður sagt, að
hann minnist þess ekki að hafa
rætt mál þetta við blaðamenn."
t tilefni af þeim óskamm-
feilnu dylgjum, sem fram
koma í þessari frásögn Tímans
skal aðeins tekið fram, að frétt
Morgunblaðsins byggðist að
sjálfsögðu á sfmtali við Croiset
sjálfann. Ummæli hans eru til
á segulbandi.
Hafi Croiset ekki gert sér
grein fyrir þvf, við hvern hann
var að tala er það hans mál en
ekki Morgunblaðsins. Rækilega
var tekið fram, að þetta væri
hjá DAGBLAÐINU Morgun-
blaðinu, þegar f hann var
hringt. I samtalinu við Morgun-
blaðið kvaðst Croiset mundu
senda íslenzku lögreglunni
frekari upplýsingar og munu
þær vera á leiðinni.