Morgunblaðið - 09.01.1975, Side 10

Morgunblaðið - 09.01.1975, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975 10 Jón Sigurðsson hagrannsóknastjóri Þessari stuttu grein er ekki ætlað að gefa skipulegt yfirlit yfir starfsemi Alþjððagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans — ekki einu sinni yfir viðskipti tslands við þessar stofnanir. Hér er aðeins ætlunin að drepa á nokkur atriði, sem kynnu að varpa Ijósi á upphaf, hlutverk og sfðustu viðhorf í starfsemi þessara alþjóðastofnana á sviði efna- hagsmála. Athygli manna víða um heim beinist um þessar mundir meir en nokkru sinni fyrr að alþjóðasamvinnu á þessu sviði. Sjóðurinn og bankinn eru þar miðsvæðis og hafa fyrir nokkru haldið sameigin- legan ársfund sinn. Sfðustu misseri hafa verið mesta umbrotaskeið f heimsbúskapnum frá lokum heimsstyrjaldarinnar seinni. Vmsar blikur eru nú á lofti, sem leiða hugann að kreppunni miklu á árunum milli stríða, þótt margt sé nú með öðrum hætti. (Að þessu verður vikið dálítið nánar hér á eftir). Því er nú enn brýnni þörf en endranær að efla alþjóðlegt samstarf og samráð um efnahagsmál til þess að ráða megi efnahags- málum heimsins á fjölþjóðavettvangi með fyllsta tilliti til þess, að hagsæld allra þjóða heims er bundin órofa tengslum. t þessum efnum er enginn eyland. Upphaf I ár eru liðin þsjátíu ár frá fjármála- og gjaldeyrisráðstefnu Sameinuðu þjóðanna — eða Sam- einuðu þjóðanna og þeirra, sem með þeim vinna — United and Associated Nations, eins og þcssi undanfari Sameinuðu þjóðanna var nefndur á sinum tíma. Ráð- stefna þessi, sem gerði ákveðnar tillögur um stofnun alþjóðagjald- eyrissjóðs og alþjóðabanka, var haldin að frumkvæði Bandaríkja- manna í Bretton Woods í New Hampshire í Bandaríkjunum i júlí 1944. Hana sátu sendinefndir 44 þjóða. íslendingar áttu þarna fulltrúa, þá Magnús Sigurðsson bankastjóra, Ásgeir Ásgeirsson, slðar forseta íslands, og Svan- björn Frímannsson, sem nýlega hefur látið að störfum sem seðla- bankastjóri. Að ráðum þeirra þre- menninganna, var ríkisstjórn Is- lands heimilað — með lögum nr. 105, 21. desember 1945 — að gerast aðili að stofnun alþjóða- gjaldeyrissjóðs og endurreisnar- og framfarabanka í samræmi við tillögur þær, sem Bretton Woods- ráðstefnan hafði samþykkt 22. júlí 1944. Hinar upphaflegu stofn- skrár sjóðs og banka voru siðan undirritaðar fyrir Íslands hönd 27. desember 1945. ísland var þannig i hópi þeirra 29 ríkja, sem voru frumstofnendur þessara al- þjóðastofnana. Hiklaust má telja stofnsetningu þeirra meðal mikil- vægustu atburða á sviði alþjóða- samvinnu á þessari öld. Það lýsti mikilli framsýni og forsjálni af hálfu ráðamanna hins unga, ís- lenzka lýðveldis að taka þegar í upphafi þátt i þessari samvinnu, þótt hún færði okkur fremur byrði en bústoð í fyrstu, enda vorum við i stríðslok í hópi þeirra fáu þjóða, sem voru aflögufærar. Þeir sem þessu réðu, hafa séð skýrt, að þegar til lengdar léti mættum við þjóða sizt hætta á einangrun og myndum, þegar stundir liðu fram, hafa hag af þátttöku í þessu félagi þjóðanna. Þetta reyndist og vel ráðið, þótt býsna langur tími liði reyndar þar til þessi framsýni fengi skýra fjárhagslega staðfestingu. Hlutverk Frá upphafi hefur það verið hlutverk Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins að veita aðstöðu til samráðs og samvinnu í efnahagsmálum ríkja i milli, greiða fyrir eflingu al- þjóðaviðskipta og fríverzlunar með þaðfyriraugumaðstuðla að hagvexti I heiminum. 1 þessu skyni fylgist sjóðurinn með þróun efnahagsmála í aðildarríkjunum og styður tilraunir ríkja, sem lent hafa i greiðsiuerfiðieikum, til þess að rétta stöðu sína án þess að grípa tii beinna hafta, er hamli alþjóðaviðskiptum. Sjóðurinn veitir í þessu skyni þátttökuríkj- unum timabundinn aðgang að fjármagni sjóðsins — lán — á meðan árangur ieiðréttingarað- gerða er að koma fram. Hér er ekki um styrki að ræða eða lán til frambúðar — og alls ekki til framkvæmda — heldur lán, sem veitt eru í þeim tilgangi og með þeim skilyrðum, að þjóðin, sem í hlut á, geri viðeigandi ráðstafanir til lausnar á vandamálum sínum. Fjármagn sitt fær sjóðurinn af þátttökuframlögum aðildarríkja. Þessi framlög — kvótar — mynda jafnframt ramma fyrir aðgang ríkja að sjóðnum. Þátttökuríkin eru nú 127 og kvótarnir í heild um 35 milljarðar dollara. Hinn 30. júní 1974 var nettóaðgangur þátt- tökuríkja að fjármagni sjóðsins (yfirdráttur) 4,2 milljarðar doll- ara. Kvóti íslands er nú um 27,6 milljónir dollara eða 3,2 milljarð- ar króna. Kvótar eru endurskoð- aðir á fimm ára fresti. Næsta endurskoðun er á næsta ári — 1975. Alþjóðabankanum var hins vegar upphaflega ætlað að veita ábyrgðir og lán gegn ríkisábyrgð- um til langs tima til endurreisnar og framfara atvinnulifs að styrjöldinni lokinni og til þess að aðstoða þær þjóðir sérstaklega, sem skemmst voru á veg komnar efnalega. Endanlegi tilgangurinn var sá sami og hjá sjóðnum, eða að leggja grunn að traustu at- vinnu- og viðskiptalífi á friðar- tímum og reyna þannig að forðast öngþveiti og ógöngur áranna milli striða. Bankanum var ætlað að aðstoða bæði friðar — og ófriðar- þjóðir, eins og það var orðað. Bankinn var settur á fót sem eins konar hlutafélag aðildarríkjanna, en skyldi síðan afla lánsfjár til endurlána á hóflegum en þó raun- sæjum kjörum á opnum lána- markaði. Það gefur auga leið, að eftir því sem lengra hefur iiðið frá lokum styrjaldarinnar, hefur hið upphaflega viðfangsefni, að koma atvinnuvegunum í stríðs- hrjáðum heimi á réttan kjöl, orðið léttara á metunum (þ.e. séð inn- an sjónhrings Evrópuog Ameriku manna), en hins vegar hefur annað verkefni bankans, að efla framfarir í þróunarlöndum, orðið meginviðfangsefni bankans, á síð- ari árum, eins og vel er kunnugt. Frá stofnun bankans hefur verið komið á fót tveimur „dótturfyrir- tækjum“ hans: Alþjóðalánastofn- uninni (International Finance Corporation — IFC) 1956 og Al- þjóðaframfarastofnuninni (Inter- national Development Associ- ation — IDA) 1960. Hinni fyrri (IFC) er einkum ætlað að miðla fjármagni til einkafyrirtækja, ýmist i formi lána eða hlutafjár- þátttöku, til eflingar atvinnulifi I þróunarlöndum, ekki sízt með stofnun nýrra fyrirtækja. Af þess- ari stofnun hafa íslendingar lítið haft að segja. Þeirri síðari (IDA) var beinlínis komið á fót i þvi skyni að styðja allra fátækustu löndin til framfara, bæði með vildarlánum og styrkjum, vegna þess að reynslan sýndi, að venju- leg lánskjör og kröfur bankans voru þeim í mörgum greinum um megn. Mjög lauslega má bera lánskjör Alþjóðabankans og Framfarastofnunarinnar saman þannig, að lán bankans séu yfir- leitt til 20 ára með lágum en þó viðskiptalegum vöxtum, á síðustu árum 7—8% p.a., en hærri nú, enda megin fjárins fengið að láni á hinum alþjóðlega lánamarkaði. Hins vegar er algengt, að lán Framfarastofnunarinnar séu tii 50 ára og vaxtalaus, eða svo gott sem (einungis er tekin lág þjón- ustuþóknun). Að auki hefjast endurgreiðslur jafnaðarlega ekki fyrr en að liðnum tíu ára „náðar- tíma“ frá lánveitingu. Fjár til Framfarastofnunarinnar er enda nær eingöngu aflað með beinum óafturkræfum framlögum þátt- tökuríkjanna. Að sjálfsögðu eru lán frá stofnuninni einungis veitt til allra fátækustu landa heims. Þátttökuríkin í bankanum eru nú 123, en í Framfarastofnuninni 112. Aðild að Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum er skilyrði fyrir aðild að bankanum. Fjárhagsárið 1973/74 (til miðs árs) námu ný lán bankans 3,2 milljörðum dollara en Framfara- stofnunarinnar 1,1 milljarði doll- ara. 1 þessum tölum eru sameigin- leg lán beggja talin með lánum bankans. Þróun sjóðsins og alþjóðapeningakerfis- ins Bretton Woods-samkomulagið var sprottið upp úr reynslu áranna milli heimstyrjaldanna tveggja. Á því mikla umbrota- timabili hafði einatt rikt glund- roði í alþjóðaviðskiptum og á lánamarkaði vegna óvissu og skyndibreytinga á gjaldeyris- markaði, m.a. vegna víxlbreytinga á gengi gjaldmiðla, þegar ýmsar þjóðir reyndu að beita gengisfell- ingum í samkeppniskyni á út- flutningsmarkaði á sama tíma og þær bjuggust brynju innflutn- ingshafta og gjaldeyristakmark- ana til að torvelda innflutning. Þessi þróun magnaði kreppu fjórða áratugsins. Bitur reynsla kreppuáranna og sú staðreynd, að í striðinu gat þrátt fyrir allt tekizt samstarf þjóða, sem skilaði árangri, var tvíþætt hvatning til þessara samtaka á friðartímum. Stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins kom á reglu, þar sem öng- þveiti ríkti áður, og suðlaði þannig að vexti alþjóðaviðskipta, og þar með að almennum efnahagslegum framförum í heiminum. Skipulag gengis- og gjaldeyrismála í veröld- inni hefur alveg fram á síðustu ár byggzt á þeim meginreglum, sem settar voru með Bretton Woods-samkomulaginu. Megin- stefna stofnskrár Alþjóðagjald- eyrissjóðsins er að tryggja, að gengi gjaldmiðla sé sem stöð- ugast. Aðildarríkin féllust á að skrá fast stofngengi gjaldmiðla sinna — stofngengi, sem aðeins skyldi breyta innan mjög þröngra marka vegna skammærra markaðsbreytinga, eða 1% yfir eða undir upphaflegt stofngengi. Gengisbreytingar skyldu aðeins heimilaðar, ef um grundvallar- misvægi væri að ræða á greiðslu- jöfnuði. Gert var ráð fyrir, að timabundnum halla á greiðslu- jöfnuði væri mætt af eigin gjald- eyrisvarasjóðum og aðgangi að fjármagni Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, ef þörf krefði, meðan ráð væru fundin til þess að leiðrétta greiðslujöfnuðinn með vel völd- um efnahagsráðstöfunum heima fyrir. í því alþjóðagjaldeyriskerfi, sem heimurinn býr við, gegna því alþjóðlega gjaldgengar og skiptanlegar gjaldeyrisvarasjóðs- eignir lykilhiutverki. Samkvæmt stofnskránni er gull viðurkennt sem hin helzta gjaldeyrisvara- sjóðseign, enda hafa aiþjóðleg peningaviðskipti lengi verið reist á dýrum málmum. Auk gulls eru nokkrir mikilvægir, skiptaniegir gjaldmiðlar, viðurkenndir sem varasjóðsgjaldmiðlar. í þessum hópi hefur Bandaríkjadollar skipt lang mestu máli. Á síðustu árum hefur þetta kerfi sætt vaxandi gagnrýni, og þvi verið haldið fram, að gul! og Bandaríkjadollar væru ónóg uppistaða gjaldeyris- varasjóðseigna fyrir vaxandi heimsviðskipti, sem byggjast ættu á fastgengiskerfi. Þessum sjónar- miðum hefur vaxið fylgi. Á árinu Nokkur orð um Alþjóða- gjaldeyris- •/V sjodmn og Alþjóða- bankannog s 1968 var stigið stórt skref í þá átt að mynda innan vébanda Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins nýjan alþjóð- legan greiðslumiðil. En í júlí það ár voru samþykktar tillögur um breytingar á og viðauka við stofn- skrána til þess að stofna til hinna sérstöku dráttarréttinda (SDR), sem hafa það hlutverk að tryggja hæfilega aukningu opínberra gjaldeyrisvarasjóða, þannig að ónógt framboð hæfra varasjóðs- eigna hefti ekki vöxt heimsvið- skipta. Auk þess tók sjóðurinn upp á sjöunda áratugnum sérstaka fyrirgreiðslu til þess að jafna útflutningstekjusveiflur og til þess að fjármagna birgðasöfn- un í þvf skyni að jafna verðsviflur á hráefnum. Með þessum breyt- ingum virtist kominn vísir að alþjóðaseðlabanka, sem hefði möguleika til að hafa veruleg áhrif á magn varasjóðseigna i um- ferð. Vonir manna um það, að til- koma SDR og aðrar framfarir I Alþjóðagjaldeyrissjóðs-kerfinu kæmu á betra jafnvægi á gjald- eyrismarkaði heimsins virtust vera að rætast á árinu 1970 og fyrri hiuta 1971. Skyndilegar fjár- magnshreyfingar milli landa af þvi tagi, sem gætti mjög árin 1967 og 1969, voru ekki áberandi. Heimsbúskapurinn virtist sigla frekar sléttan sjó. En þetta reynd- ist svikalogn. Með ákvörðun Bandaríkjaforseta 15. ágúst 1971 að hætta innlausn dollara gegn gulli og með gengisfellingu dollarans í reynd í desember sama ár, og formlega i mai 1972, var fótunum kippt undan þvi skipulagi fastgengiskerfis, sem starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðs hafði byggzt á í aldarfjórðung. Þegar var hafizt handa um endur- skoðun stofnskrárinnar, en þessi endurskoðun var varla klædd i barnaskóna og SDR höfðu enga fótfestu fengið eða „verðlags- grundvöll", þegar þær vonir um árangur, sem bundnar voru við endurskoðunina, til að koma á stöðugleika í gjaldeyrismálum, urðu að engu í janúar og febrúar 1973. En þá riðu nýjar holskeflur vantrausts og spákaupmennsku yfir gjaldeyrismarkaði heimsins. Leiddu þær til 10% gengislækk- unar dollars um miðjan febrúar 1973. Þetta dugði þó ekki til að kyrra sjóinn, og gjaldeyris- markaðir heims lokuðust í 2—3 vikur í marz 1973. Niðurstaðan varð svo sú, að upp var tekið fljótandi gengi, eins og kallað er, á milli helztu viðskiptamynta heims, þegar gjaldeyrisviðskipti hófust á ný. Þar með voru megin- reglur stofnskrár Alþjóðagjald- eyrissjóðsins um gengismál dauður bókstafur. Upp frá þessu hafa starfsreglur sjóðsins í raun fremur fylgt þróuninni en mótað hana. Á árinu 1972 var komið á fót sérstakri 20 manna nefnd ráð- herra og seðlabankastjóra (í reynd var 20-manna nefndin svo- kallaða miklu fjölmennari þvi öll þáttökuriki sjóðsins áttu auka- fulltrúa i henni), sem starfa skyldi á milli ársfunda sjóðsins — en ársfundirnir fara með æðsta vald í málefnum sjóðsins — og skyldi nefndin gera tillögur um breytingar á stofnskránni. Ávöxt- ur þessa starfs hefur einkum komið fram í ár. En 20-manna nefndin skilaði áliti i júni 1974. Framkvæmdastjórn sjóðsins tók — I samræmi við tillögur 20- manna nefndarinnar — m.a. ákvarðanir um þrjú mikilvæg mál á árinu 1974: I fyrsta lagi, að þar til annað yrði ákveðið, skyldi verðleggja — ákveða gengi — SDR (hinna sér- stöku dráttarréttinda) á grund- velii vegins meðalgengis 16 helztu viðskiptamynta heims i stað gulls. Með þessu er stigið stórt skref i átt til „pappírsgulls", alþjóðlegr- ar peningaútgáfu, til þess að tryggja hæfilega aukningu gjald- eyrisvarasjóðseigna. Hins vegar eru enn óútkljáð mikilvæg mál, sem varða SDR, bæði hvernig ákveða skuli heildarfjárhæðir út- hlutunar eða afturköllunar SDR hverju sinni — þ.e. „peninga- magn heimsins" — og eins hvað koma skuli i hlut hvers þátttak- anda í SDR-kerfinu. I þessu sam- bandi hafa þróunarlöndin haldið því fram, að þeirra hlutur ætti m.a. að ráðast af þörfinni fyrir þróunaraðstoð, en hins vegar hafa iðnaðarríkin yfirleitt ekki viljað fallast á slika tengingu. 1 öðru lagi, voru settar til bráða- birgða viðmiðunarreglur fyrir meðferð fljótandi gengisskrán- ingar. Reglur þessar miða að því, að skilgreina við hvaða aðstæður aðildarríkjum beri að leita sam- ráðs — og e.t.v. samþykkis sjóðs- ins — við gengisbreytingar, en jafnframt að lögleiða miklu sveigjanlegri gengisskráningu en áður. Hér er, í samræmi við tillög- ur 20-manna nefndarinnar, um að ræða málamiðlun milli fastgengis- kerfis og alveg frjálsrar, fljótandi gengisskráningar. Reglur þessar eru í reynd enn að mótast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.