Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1975 35 aftur í heimsókn Skilja Akureyrar- liðinað skiptum bandinu skýrslu um keppni þessa og hegðun lslendinganna, og er því bætt við að íslenzka körfu- knattleikssambandið hafi ekki greitt árgjöld sfn til FIBA f f jögur ár. Um leik Islands og Danmerkur segja blöðin m.a. að íslendingarn- ir hafi leikið mjög ruddalega og mikið verið um árekstra milli leikmannanna. Það, að Danirnir voru miklu betri aðili í leiknum, hafi farið mjög í taugarnar á Is- lendingunum, sérstaklega þeim sem sátu á bekknum, og dóna- skapur þeirra náð hámarki er Kolbeini Pálssyni var vikið af leikvelli, eftir að hafa fengið dæmda á sig fimmtu villuna. Þá hafi stjórnendur islenzka liðsins hrækt að dómurunum sem voru frá V-Þýzkalandi og Luxemburg og að auki sent þeim ýmsar miður fallegar glósur. Eini islenzki leik- maðurinn sem sýnt hafi rósemi í leik þessum hafi verið Þorsteinn Svíi sigraði SVlINN Bengt Naadje sigraði í hinu árlega viðavangshlaupi i Funchal á Madeira, sem fram fór nýlega. Hlaupin var um 6.400 metra vegalengd á götum borg- arinnar. Timi Naadje var 18,00 min. Rune Holmen frá Finnlandi varð í öðru sæti á 18,04 mín. og Daninn Tom B. Hansen varð þriðji á 18,36 min. KOMA Akureyrarliðin Þór og KA fram sem tvö félög f knattspyrn- unni næsta sumar, eða koma þau áfram til keppni f elzta flokki undir merki lþróttabandalags Akureyrar?Þessi spurning brenn- ur á vörum margra knattspyrnu- áhugamanna fyrir norðan og eru skoðanir mjög skiptar um þetta mál. Margt bendir til þess, að af skilnaði milli félaganna verði og eru það einkum Þórsarar, sem fyigjandi eru þeirri skipan máia. Forráðamenn knattspyrnumála á Akureyri fóru þess á leit við Mótanefnd KSI að þeim yrði gef- inn frestur til að tilkynna þátt- töku I Islandsmótinu þar til þessi mál væru útkljáð. Sömuleiðis hef- ur ekkert verið afhafzt I þjálfara- málum fyrir elztu knattspyrnu- mennina og verður það ekki gert fyrr en fyrir liggur hvort af skiptunum verður. Þeir, sem eru fylgjandi þvi, að KA og Þór leiki hvort í sinu lagi I meistaraflokki í knattspyrnu eins og í handknattleik, segja að meðan félögin leiki saman geti hinn rétti félagsandi ekki náðst að skapast. Stuðningsmenn félag- anna bítist um það hve margir frá þeirra félagi komist i IBA-Iiðið og það nái ekki að verða sterk heild út á við. Þeir sem eru á öndverð- um meiði segja að ÍBA-liðið hljóti að verða sterkara i knatt- spyrnunni heldur en KA og Þór sitt í hvoru lagi. Einkum munu Þórsarar vera hlynntir félagaskiptum og þá frekar forráðamenn félagsins en leikmenn. Hafa Þórsarar nýlega Akureyringar stofna íþróttafélag fatlaðra NOKKRU fyrir s.l. áramót var stofnað Iþróttafélag fatlaðra á Akureyri. Það var I.S.I. sem beitti sér fyrir félagsstofnuninni i sam- starfi við Sjálfsbjörgu á Akur- eyri, en fyrr á árihu var stofnað sams konar félag í Reykjavík. Fundarstjóri stofnfundarins á Akureyri var hinn dugmikli forystumaður Sjálfsbjargar, frú Heiðrún Steingrímsdöttir, en auk hennar vann Magnús H. Ólafsson íþróttakennari ötullega að fram- gangi málsins. A fundinum mætti Sigurður Magnússon fulltrúi I.S.I. og fiutti kveðjur og árnaðaróskir Iþrótta- sambandsins, sem hefði ákveðið að gefa hinu nýja félagi 100 þús- und krónur. Jafnframt sýndi hann kvikmyndir frá iþrótta- iðkunum fatlaðra I öðrum löndum og greindi frá alþjóðlegu sam- starfi á þessum vettvangi. Isak Guðmann, form. Iþrótta- bandalags Akureyrar, ávarpaði einnig stofnfundinn, bauð hið nýja félág velkomið til samstarfs innan I.B.A. og færði því að gjöf kr. 10.000.00 frá bandalaginu. Meðal annarra sem sátu stofn- fundinn voru Hermann Sigtryggs- son, íþróttafulltr. Akureyrar, og Hermann Stefánsson, fyrrv. form. I.B.A. og forystumaður í íþrótta- hreyfingunni um áratugi. Samkvæmt upplýsingum frá Akureyri fjölgar nýjum félögum nú þegar og ríkir bjartsýni meðal þeirra um starfsemina. I fyrstu stjórn félagsins voru kjörin: Stefán Arnason form., Jakob Tryggvason varaform., Kristjana Einarsdóttir ritari, As- geir P. Ásgeirsson gjaldkeri og Tryggvi Sveinbjörnsson. (Fréttatilkynning frá ISl) fengið ágætan æfingavöll til af- nota og hafa að þvi leyti nokkuð betri aðstöðu en KA, sem notast verður við Sana-völlinn og svo grasvöllinn, sem Akureyrarliðin hafa leikið á undanfarin ár. Eins og áður sagði bendir margt til þess að af skiptunum verði og ættu þau mál að skýrast á næst- unni. Fari svo að KA og Þór skilji að skiptum vaknar sú spurning í hvaða deildum liðin leika. IBA á að leika í 2. deild og sennilega fengi þá annað Akureyrarliðið það sæti, en hvort? Hitt liðið yrði svo væntanlega að leika i 3ju deild og yrði það löng leið fyrir leikmennina að fara í einu stökki úr 1. deild niður I „kjallarann". Eða gæti farið svo að bæði Akur- eyrarliðin yrðu að byrja I þriðju deild og liðið, sem var í úrslitum 3. deildar síðastliðið sumar færi upp i 2. deild. Það var Magni frá Grenivik og yrði það heldur betur saga til næsta bæjar, ef bæði Akureyrarliðin lékju i 3. deild, en litla liðið frá Grenivík í deild númer 2. Vilja ekki íslendinga Stjórn Iþróttafélags fatlaðra á Akureyri; frá vinstri: Jakob Tryggva- son, Kristjana Einarsdóttir, Stefán Árnason form., og Tryggvi Svein- björnsson. A myndina vantar Ásgeir P. Ásgeirsson. — VIÐ munum hugsa okkur vel um áður en við bjóðum körfu- knattleiksmönnum frá tsiandi aftur tii okkar, hefur danska dag- blaðið „Politiken" eftir Henrik Klæbel, formanni danska körfu- knattleikssambandsins, en greini- legt er á frásögnum blaðanna, að framkoma lslendinganna hefur ekki þótt sem bezt. Segja forystu- menn danskra handknattleiks- máia, að þeir muni senda FIBA — aiþjóða körfuknattleikssam- — áij (Jr landsleik Danmerkur og tslands. Henrik Otbo sækir að fslenzku körfunni, en Kári Marisson, Torfi Magnússon og Ágnar Friðriksson eru til varnar. Hallgrímsson, segja blöðin, —- en hann reyndi að fá félaga sína til þess að stilla sig, þó með litlum árangri. Flugukast- menn í vetrarham ÞAÐ ER mikil kúnst að kasta með flugu og kaststöngum og þeir, sem hug hafa á að fá leiðsögn í þeirri íþrótt, ættu að nota sér námskeið, sem nýlega er hafið. Að þessu námskeiði standa Stangaveiðifélag Reykjavikur, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar og Kastklúbbur Reykjavíkur. Námskeiðið hófst sl. sunnudag í Iþróttahöllinni og heldur áfram næstu sunnudaga klukkan 10.10 á sama stað. Leiðbeiningarnar ann- ast ýmsir af snjöllustu veiðimönn- um landsins og kenna þeir einnig fluguhnýtingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.