Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANtJAR 1975 Um áramót Minning: Sigríður Sigurðar dóttir Akranesi Þjóðhátiðarárið 1974 er liðið. Það mun í framtíðinni fyrir margra hluta sakir verða talið merkisár. Má í því sambandi helst til nefna hinar fjölmörgu héraðs- hátfðir, er haldnar voru um land allt og höfðu yfir sér hinn ákjós- anlegasta virðuleika blæ, enda veðurguðirnir í prýðisskapi og vinguðust við allt skemmtana- hald. En þótt vel hafi tekist til með allar héraðshátfðirnar þá ber Þjóðhátfðina á Þingvöllum hæst. Þegar þingfundurinn þar var sett- ur mun mörgum hafa verið hugs- að aftur í tfmann, þá er forfeður okkar réðu á þessum stað ráðum sínum og var þá ekki ósjaldan gripið til vopna. En þó gátu menn orðið sammála eins og nú. Og á ég þar við Þingsályktunina um land- vernd á þessu ári og samþykktina um kristnitökuna árið 1000. Ekki leið þetta ár svo, að við værum ekki átakanlega minnst á hve berskjaldaðir við stöndum gagnvart náttúruhamförum eins og þeim, er dundu yfir Neskaup- stað. Gegnt slfku stöndum við uppi þrumulostnir. Þó er víst að kostað verður kapps um, að bæta hið fjárhagslega tjón þessa byggðarlags. Astvinamissirinn verður aftur aldrei bættur. Þann sársauka má aðeins lina með hlý- hug og vinaþeli. Það fer ekki á milli mála, að fslenska þjóðin öll stendur sem einn maður til hjálp- ar Norðfirðingum. Með ríkis- stjórnina f fararbroddi mun þjóð- in af eindrægni að því styðja að farsæld rfki áfram á þessum fagra stað. Ekki var á liðnu ári með öllu tfðindalaust á stjórnmálasyiðinu. Tvennar kosningar fóru fram. Fyrst byggðakostningar og síðan kosningar til Alþingis. Miklar sviptingar urðu á vinstri væng stjórnmálanna og það svo að um tíma leið varla sá dagur fyrir byggðakosningarnar að ekki væri stofnaður nýr flokkur. Að ætlast til þess að fólkið legði svoleiðis loftbólum atkvæði sitt var auðvit- að út f hött. Enda fór svo, að fólkið skipaði sér þétt f röð þess flokka, sem einn og óskiptur háði sfna kosningabaráttu. Því vann Sjálfstæðisflokkurinn mikla sigra f báðum þessum kosningum. Fékk 55% greiddra atkvæða, er varð til þess, að sú ríkisstjórn, er við völd var, sagði af sér. Hún hafði verið kölluð vinstri stjórn og hafði setið rúm 3 ár, sem er há- marks aldur þeirra ríkisstjórna, er vinstri menn standa að, eins og dæmin hafa sýnt. í beinu framhaldi af úrslitum Alþingiskosninganna var Geir Hallgrfmssyni falið að mynda ríkisstjórn, sem þvf miður tókst ekki, þrátt fyrir einlægan sam- starfsvilja við þá flokka, er til greina gátu komið að hafa sam- starf við. Sennilega var það vinstri stjórnardraumurinn, sem þar hefur um ráðið. En sá draum- ur gat aldrei ræst því bæði var það, að þjóðin hafði í kosningun- um fortakslaust frábeðið sér vinstri stjórn og hið næsta sem gerðist var, að Ölafi Jóhannessyni var á ný falið að hafa forustu um stjórnarmyndun og átti nú að mynda vinstri stjórn, en sú til- raun fór með öllu út um þúfur. Mér bíður svo í grun, að mörgum af þessum vinstri stjórnar mönn- um hafi f sannleika ekki langað til að glíma við þau vandamál, sem þeir höfðu sjálfir leitt þjóðina f, og sem talið var að þeirra dómi hættuástand. Svo þegar þessari vinstri stjórnar tilraun var lokið með engum árangri leitaði Olafur Jóhannesson til Geirs Hallgríms- sonar um stjórnarmyndun. Geir, sem sá hver vá var fyrir dyrum á þjóðarskútunni, léði máls á stjórnarmyndun. Og það varð úr að ný rikisstjórn tók við völdum 28. ágúst 1974. Þótt margir hefðu talið það rétt, að vinstri stjórnin hefði verið látin lagfæra það, sem hún var búin að færa úrskeiðis, þá sýndi þingstyrkur Sjálfstæðisflokksins, að kjósendur kröfðust þess, að hann tæki í taumana. Ekki verður sagt að núverandi rfkisstjórn hafi tekið við blómlegu búi. Vart er að vænta árangurs af starfi hennar fyrr en liðið er talsvert á þetta ár. Með þá einlægu ósk, að ríkis- stjórninni og landsmönnum öllum megi vel farnast á árinu 1975, lýk ég þessum orðum. Skrifað á nýjársdag 1975. Ólafur Vigfússon Hávallagötu 17 Reykjavfk. F. 8. ágúst 1903. D. 27. des. 1974. Vinir mfnir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Þessar visuhendingar Bólu- Hjálmars komu mér í hug, þegar ég frétti lát frú Sigríðar Sigurðar- dóttur. Fyrir nokkrum dögum átti ég tal við hana glaða, hressa og fulla af áhuga fyrir lífinu. Mér kom aldrei dauðinn f hug í sambandi við hana, svo mikið líf og fjör flutti hún með sér hvar sem hún fór. Fyrir rúmum 40 árum fluttist ég til Akraness og kynntist þá frú Sigríði, sérstaklega í gegnum störf mfn f Kvenfélagi Akraness. Við höfum verið saman í óteljandi nefndum, og á þá samvinnu hefur aldrei neinn skugga borið. — Hún var söngstjóri Kvenfélagsins í áratugi og til dánardægurs, svo að þar er nú skarð fyrir skildi. — Mér er minnisstætt eitt sinn, er hana vantaði á fund, hvað mér fannst fundurinn dauflegur. Sigríður var glæsileg kona hreinlynd og vel máli farin. Þegar Kvenfélagið ásamt stúkunni Akurblóm og Kirkjukór Akraness héldu upp á 70 ára afmæli henn- ar, 8. ágúst 1973, þá þakkaði hún fyrir sig og svaraði hverju ávarpi, sem henni var flutt, með þeim skörungsskap, sem henni var eiginlegur. — Það er gaman fyrir félögin að eiga minninguna um að hafa getað glatt hana á þessum merkisdegi, svo oft var hún búin að gleðja aðra. Sigríður var mikil trúkona og Framhald á bls. 20 MlUkW.WU Framtíðarstarf Óskum að ráða verkstjóra í trésmiðadeild okkar. Skilyrði að viðkomandi hafi reynslu af verkstæðisvinnu og sé hæfur stjórnandi. Reglusemi áskilin. Upplýs- ingar á skrifstofunni, ekki svarað í sima. VERKHF., Laugavegi 120. Meiraprófs- bílstjóri Reglusamur meiraprófsbílstjóri einnig með vinnuvélaréttindi óskar eftir vel launuðu starfi strax. Upplýsingar i síma 1 6674. 3 háseta vantar á 1 70 tonna bát, sem er að hefja veiðar með þorskanet frá Ólafsvík. Upplýsingar í símum 93-6328 og 93- 6292, Ólafsvík. Atvinna óskast Ungur maður með verzlunarskólapróf óskar eftir atvinnu sem fyrst. Upplýsingar í síma 41 1 54. Framtíðarstarf Óskum að ráða birgðavörð í einingaverk- smiðju okkar. Viðkomandi þarf að hafa réttindi á vörubíla. Reglusemi og ná- kvæmni í starfi áskilin. Upplýsingar á skrifstofunni, ekki svarað í síma. VERKHF., Laugavegi 120. Vélvirkjar — bílstjórar Óskum að ráða nokkra bilstjóra með meírapróf og vélvirkja við steypustöð á Suðurlandi. Getum útvegað húsnæði. Tilboð sendist blaðinu fyrir 15. janúar merkt: „Steypustöð — 7106". Skipstjórar Skipstjóra vantar á m/b Hólmsberg KE 1 1 6 sem verður gert út á netaveiðar. Upplýsingar í símum 92-2450 og 92- 1160. Karlmaður óskast Óskum að ráða röskan karlmann til að annast sendiferðir í banka, toll og verðút- reikninga í forföllum. Þarf að hafa bíl til umráða. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Skriflegar umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist til Morgunblaðsins fyrir 1 3. þessa mánaðar merkt: „71 04". GunnarÁsgeirsson hf., Veltir hf. Sendill Sendill óskast hálfan eða allan daginn. Tilboð merkt: „Sendill — 7105", sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. mánudag. Samvizkusöm 21 árs stúlka með stúdentspróf óskar eftir vel launaðri vinnu. Vinsamlega hringið í síma 36335. Staða eftirlitsmanns fjarskipta hjá Veðurstofu íslands er laust til um- sóknar. Laun samkvæmt 18. launaflokki kjarasamninga ríkisins og B.S.R.B. Um- sækjandi þarf að hafa lokið loftskeyta- prófi, einnig þarf hann að hafa æfingu í að skrifa á fjarrita. Æskilegt að hann hafi kynnt sér undirstöðuatriði í tölvugæzlu. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, skulu sendar til Veðurstofu íslands fyrir 6. febrúar 1 975. 4 Lögregluþjónsstarf Starf lögregluþjóns í Egilsstaðakauptúni er laust til umsóknar frá 1. febrúar n.k. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Þess er óskað að umsóknum um starfið ásamt upplýsingum um fyrri störf og meðmæli, ef fyrir hendi eru, verði skilað til undirritaðs sem fyrst. Eyðublöð undir umsóknir fást á skrifstof- unni. Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu. Afgreiðslustörf Óskum eftir að ráða afgreiðslumann eða stúlku sem fyrst í verzlun okkar Hafnar- stræti 3. Uppl. veitir skrifstofustjóri, Gunnar Gunn- arsson á morgun föstudag kl. 9 — 1 1 (ekki í síma). Heimilistæki s. f., Sætúni 8.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.