Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.01.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975 3 Metaðsókn að Þjóðleikhús- inu fram að áramótum FRA upphafi þessa leikárs Þjóð- leikhússins hefur verið metað- sókn að sýningum þess. Gestir fram að áramótum urðu 43.621 en höfðu áður flestir orðið 31.600 á sama tíma. Skýringuna mun að nokkru leyti að finna í þvi, að leikhúsið hefur aukið starfsemi sína veru- lega að undanförnu, — meira hef- ur verið um farandsýningar og auk þess hefur verið leikið á tveimur sviðum í leikhúsinu sam- timis, en nú hefur verið leikið í eitt ár í kjallara leikhússins. Þessi verk hafa verið leikin á aðalsviði leikhússins i haust: Klukkustrengir, Þrymskviða, Hvað varstu að gera í nótt?, Ég vil auðga mitt land og Kardimommu- bærinn, en þrjú síðasttöldu verk- in eru enn sýnd, svo og Kaupmað- urinn í Feneyjum, sem var jóla- leikrit Þjóðleikhússins að þessu sinni. I leikhúskjallaranum var nýtt leikrit Jökuls Jakobssonar, Her- bergi 213, frumsýnt um áramótin. Þá hefjast þar sýningar á Eski- móaþættinum Inuk aftur á næst- unni, en að undanförnu hefur verið fanð með þá sýningu I skóla og félagsheimili hér i Reykjavík og út á land. Nú eru þrjú ný verk í uppsigl- ingu í Þjóðleikhúsinu. Hvernig er heilsan? verður frumsýnt i lok janúar, æfingar eru hafnar á nýju leikriti Guðmunds Steinssonar, Lúkasi og í febrúarlok verður ballettinn Coppelia frumsýndur. I haust urðu sýningar leikhúss- ins alls 131 og hafa þær ekki orðið jafnmargar á sama tima áður. Myndin hér að ofan er af Val Gislasyni og Sigríði Þorvaldsdótt- ur i hlutverkum sinum i Hvað varstu að gera í nótt?, en leikritið hefur verið sýnt 30 sinnum við ágæta aðsókn. Ekki leit- að í gær EKKERT var leitað að Geirfinni Einarssyni í gær. I fyrradag var leitað á öllum þeim stöðum, sem til greina komu í fyrstu umferð, samkvæmt ábendingum sjáand- ans Croiset. Veður var mjög slæmt í Keflavík í gær og ófært til leitar. Sinfóníutónleikar í kvöld: Geir Hallgrimsson anna með glæsilegum verðlaun- um, happdrætti og skemmtiatrið- um. Dansað verður til kl. eitt. Fóik er hvatt til þess að sækja miða sina í dag. Meðal skemmtiatriða má nefna dans nemenda í Dansskóla Brasilískur einleikari og Ashkenazy stjórnar NÆST siðustu tónleikar Sinfónfuhljómsveitar tslands á fyrra misseri verða haidnir í Há- skólabfói i kvöld og hefjast að vanda ki. 20.30. Stjórnandi verður Vladimír Ashkenazy en einieik- ari brasilfski pfanóleikarinn Cristina Ortiz. Ortiz var-fenginn til þessara tónleika í stað André Previn, sem upphaflega átti að leika á þeim en hann forfallaðist. Ortiz hefur á skömmum tima unnió sér orðstir sem mjög upprennandi pianóleik- ari og til gamans má geta þess, að hún er tengd tslandi á rómantísk- an hátt,. þar eð hún gifti sig hér í Reykjavik á Listahátið í júni síðastliðnum. A verkefnaskránni á tónleikun- um i kvöld eru forleikur að óperunni Khovanshchina eftir Mussorgski, Paganinitilbrigði op. 43 eftir Rachmaninoff og sinfónia nr. 8 eftir Sjostakovitsj. Hljómplatan með lögum Gylfa uppseld HLJÖMPLATA Fálkans með lög- um Gylfa Þ. Gislasonar i flutningi Róberts Arnfinnssonar er nú upp- seld, og þrátt fyrir það að engin sending af fyrsta upplaginu hafi farið út á land. í samtali við Morgunblaðið sagði Haraldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Fálkans, að hljómplatan hefði fengið betri undirtektir en hann hefði þorað að vona og væri það óneitanlega meðmæli með lögum Gylfa og flutningi Róberts á þeim. Að sögn Haralds var fyrsta upp- lag hljómplötunnar um 1000 ein- tök, og kvað hann nú afráðið að láta pressa 1000 eintök til viðbót- ar. Taldi Haraldur fullvíst að eng inn vandkvæði yrðu á þvi að koma síðara upplaginu út. A ramótaspilakvöld sjálfstœðisfélaganna ÁRAMÖTASPILAKVÖLD sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík verð- ur haldið í kvöld, fimmtudag, að Hótel Sögu, Súinasal, og hefst kl. 20.30. Geir Hallgrimsson forsætis- ráðherra flytur ávarp. Sérstak- lega verður vandað til þessa ára- mótaspilakvölds sjálfstæðisfélag- Hermanns Ragnars og eftirherm- ur Karls Einarssonar. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar mun siðan leika fyrir dansi. Sala aðgöngu- miða fer fram á skrifstofu Sjálf- stæðisflokksins í Galtafelli að Laufásvegi 46 á venjulegum skrif- stofutíma. Flugræninginn var gabbaður — hélt hann vœri að lenda í Frakkhmdi, en fíugstjór- inn hafði farið til smáfíug- vafíar á S-Englandi London 8. jan Reuter. FLUGRÆNINGI, vopnaður leikfangabyssu, var handsam- aður I nótt, eftir að hann hafði í nfu klukkustundir haft í hótun- um við áhöfn vélar þeirrar, sem hann rændi. Hótaði hann að drepa áhöfnina og sjálfan sig með, ef ekki væri farið að ósk- um hans, m.a. um að afhenda honum peninga að upphæð 100 þúsund steriingspund. Upphaf málsins var rakið í Mbl. í gær og var þar komið sögu að vélin var lögð af stað til Stanstedflugvallar. Áður hafði flugræninginn hótað því á Heathrowvelli, að hann myndi drepa fólkið ef ekki væri flogið með hann til Frakklands og hann fengi fallhlíf og fé til um- ráða. Ræninginn otaði byssu og handsprengjum að áhöfninni, en siðar kom í ljós að þetta var leikfangadót. Þegar lagt var upp frá Heathrow var ræningjanum sagt, að ætlunin væri að fljúga með hann til Frakklands. Flug- stjórinn flaug síðan út yfir Ermarsund, en sveigði síðan aftur yfir land og lenti á áður- nefndum flugvelli. Ljósaskilti, sem á stóð Stanstedflugvöllur, var fjarlægt, svo að ræningjann grunaði ekki, hvar lent væri. Skömmu eftir að vélin fór frá Heathrow fór önnur vél með lögreglulið innanborðs og var sleginn hringur um flugvöllinn. Um það bil sem vélin lenti upp- götvaði ræninginn að hann hafði verið blekktur. Flugstjór- anum og áhöfn hans til mestu furðu brást ræninginn vel við því. Bað hann um að fá að laum- ast út um aðrar dyr og sagðist Þegar flugræninginn ætlaði að laumast út úr vélinni á Stanstedflugvelli tók hann með sér sem skjöld og hlff Alan Bond, bryta f vélinni. Bond sést hér til hægri segja glaðhlakkalegum flugfreyjum og öðrum úr áhöfn vélarinnar frá reynslu sinni. ætla að fara til strandar og fá sér bát til að komast yfir til Frakklands. Þegar vélin lenti laumaðist hann síðan út og hafði bryta úr áhöfninni með sér. Hann náðist fljótlega og veitti enga mótspyrnu. Á blaðamannafundi, sem haldinn var eftir að málið var til lykta leitt, kom f ljós, að Scotland Yard og brezk flug- vallayfirvöld höfðu unnið skipulega að málinu frá upp- hafi með þessum ágæta árangri. Ekki var þá vitað hverrar þjóðar flugræninginn var, þar sem hann hafði neitað að segja nokkuð. Fyrri fregnir hermdu að hann væri Arabi, en engin staðfesting hefur fengizt á þvi enn. Forsvarsmenn samtaka brezkra flugstjóra gagnrýndu gerðir lögreglu i dag og sögðu að slíkur hasarleikur hefði stofnað áhöfninni á vélinni í bráðan voða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.