Morgunblaðið - 09.01.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975
Brezhnev
og sveita-
mennirnir
eftir VICTOR
ZORZA
WASHINGTON — Þar sem
Moskvumenn hafa opinber-
lega birt leynibréf til dr. Kiss-
ingers um ferðafrelsi Gyð-
inga, fer ekki hjá því að bolla-
lagt er hvort Leonid
Brezhnev flokksritari saeti
árásum fyrir þær tilslakanir
sem hann hefur gert gagn-
vart Bandaríkjamönnum. í
bréfinu er því neitað að Kiss-
inger hafi fengið nokkrar
„fullvissanir" frá Kreml um
ferðafrelsi Gyðinga.
Bréfið birtist á sama tíma
og sá fátíði atburður gerist að
fundurer haldinn í miðstjórn-
inni, þar sem saman koma
sveitamenn þeir og fulltrúar
nesjamennsku, sem ráða lög-
um og lofum í dreifbýlinu og
eru upp til hópa harð-
línumenn. Þegar þeir eru í
Moskvu reyna þeir gjarnan
að fá útrás fyrir innibyrgða
gremju út af nýjabrumsleg-
um hugmyndum, sem berast
í stríðum straumum til dreif-
býlisins frá „miðstöðinni" og
gert er ráð fyrir að flokksritar-
arnir á landsbyggðinni hrindi
í framkvæmd án tillits til
þeirra vandamála, sem þeir
eiga sjálfir við að striða.
Um þetta halda þeir ekki
endilega ræður í miðstjórn-
inni, en þeir hafa önnur ráð
til að koma sjónarmiðum sin-
um á framfæri, með því að
nöldra á göngum og í fundar-
hléum eða kvarta við vinsam-
lega embættismenn. Þeir
fengu vissulega gilda ástæðu
til að kvarta i október þegar
þá var birt samkomulag Kiss-
ingers og Jacksons, sem virt-
ist bera með sér að Kreml-
herrarnir hefðu lofað að
hætta að áreita sovézka Gyð-
inga og leyfa þeim að flytjast
úr landi. Embættismenn
flokksins á landsbyggðinni
bera þá byrði ásamt lögregl-
unni að hafa taumhald á
landsmönnum, og fyrir þá
hafði samningurinn i för með
sér mjög áþreifanleg vanda-
mál.
Þeim hefur verið borið það
á brýn af Gyðingum að neyta
allra tiltækra ráða, hafa í
frammi alls konar áreitni og
beita alls konar ofsóknum,
þar á meðal uppsögnum og
handtökum á grundvelli upp-
loginna ásakana, til þess að
stemma stigu við því að fólk
flytjist úr landi. Þeir hafa
neitað öllum slíkum ásökun-
um. Nú hafa nokkrar þessara
aðferða verið taldar upp i
bréfaskiptum Kissingers og
Jacksons, og þar sem vitnað
var í sovézkar fullvissanir um
að þeim verði ekki beitt í
framtíðinni, virðist hafa verið
játað að þeim hafi verið beitt
á liðnum árum. Þó hafa emb-
ættismennirnir á lands-
byggðinni aðeins verið að
framfylgja skipunum að of-
an.
Nú gæti hver sá sem
hyggst flytjast úr landi geng-
ið inn I skrifstofu flokks-
brodda á landsbyggðinni —
og það hafa ýmsir gert — og
krafizt þess að réttindi hans
séu virt í öllu. Sá gamli ótti
þeirra að aragrúi annarra en
Gyðinga muni einnig krefjast
réttar til þess að flytjast úr
landi mun nú stórum aukast
og gagntaka starfsmenn
flokksins. Hefur verið rofið
skarð í múr hugmyndarinnar
um lokuð landamæri, sem
varðveitir valdaeinokun
flokksins? Þeir hafa oft spáð
því að allt það flókna kerfi
félagslegs og stjórnmálalegs
eftirlits, sem hlúð hefur verið
að, geti hrunið til grunna ef
þeir sem með völdin fara í
Kreml slaka á klónni. Nú
geta þeir haldið þvi fram að
Podgorny: átti hann við
Brezhnev?
vel geti verið að það sem þeir
hafi óttazt mest sé að verða
að veruleika.
Einkasamkomulag milli
Brezhnevs og Kissingers,
framkvæmt í áföngum og án
of mikils fjaðrafoks — ein-
mitt það sem vakti fyrir
Kremlherrunum í fyrstu —
hefði ekki hrært upp í sveita-
mönnunum og bandamönn-
um þeirra á háum stöðum í
Moskva. En Kissinger gat
ekki fengið Jackson öldunga-
deildarmann ofan af þvi að
fella viðskiptafrumvarpið í
öldungadeildinni nema með
því eina móti að veita honum
opinberar, skjalfestar „full-
vissanir" um ferðafrelsi.
Orðaval Kissingers var þraut-
hugsað og í það var lagður
ólíkur skilningur eftir þvi hver
átti í hlut, en tvíræðni og
orðaleikur á borð við þetta
eru sérgrein Kissingers og
þessu getur hann þakkað
nokkra glæsilegustu sigra
sína í utanríkismálum.
Jackson þóttist geta lesið
það út úr orðum Kissingers
að þau hefðu að geyma „full-
vissanir" frá Moskvu um
ferðafrelsi. En i Moskvu var
það hægt að lesa út úr þeim
að þau hefðu ekkert annað
að geyma en „fullvissun" um
að Sovétríkin mundu virða í
einu og öllu lög sín um ferða-
frelsi, og þvi hefur alltaf verið
haldið fram að það hafi verið
gert. Þegar Brezhnev sá
hvernig fullvissanirnar voru
túlkaðar í Washington, gat
hann fundið á sér að erfið-
leikar voru í vændum.
Bandariska þjóðþingið gat
staðið fast á því að hann yrði
að standa við „fullvissanir"
sinar, og sovézkir andstæð-
ingar hans gátu tekið hann til
bænda fyrir að veita nokkrar
slíkar fullvissanir yfirleitt. Til
öryggis skipaði hann
Gromyko utanríkisráðherra
að senda Kissinger bréf, svo
að ekkert færi á milli mála,
þar sem hann neitaði þvi að
nokkrar fullvissanir hefðu
verið gefnar — en þetta bréf
var ekki birt að sinni.
Meðan allt lék i lyndi fyrir
Brezhnev í stjórnmálaráðinu
hafði hann í fullu tré við
sveitamennina. Blöðunum
var ekki skipað að hamast
gegn „afksiptum af sovézk-
um innanríkismálum", sem
bréfaskipti Kissingers og
Jacksons um ferðafrelsi
bæru vott um, þótt áður hafi
varla mátt minnast á þetta
efni án þess að hrinda af stað
heilli skriðu kvartana.
Brezhnev hafði augljóslega
góða stjórn á ástandinu.
Sovézk blöð gerðu mikið úr
fundinum í Vladivostok og
kölluðu hann mikinn sigur.
En ekki leið á löngu þar til
hjáróma heyrðist. Nikolay
Podgorny forseti, sem er
miklu tregari að bæta sam-
búðina en Brezhnev, gaf í
skyn að hrossakaup Rússa
og Bandaríkjamanna, sem
leiddu til formúlu Kissingers
og Jacksons, gætu komið
niður á fullveldi Sovétríkj-
anna. „Um málefni sem
varða fullveldi og innan-
landsmál okkar," sagði hann,
„hafa aldrei farið og munu
aldrei fara fram pólitísk
hrossakaup" — og með
þessu átti hann við að um
slík mál hefði ekki átt að gera
hrossakaup. Það væri „óþol-
andi skammsýni" að sögn
hans að taka ekki fullt tillit"
til erlendra tilrauna til að
beita Sovétríkin þrýstingi, til-
rauna til afskipta af málum
sem snertu „innanríkisstefn-
una". Átti hann við að Brezh-
nev hefði vanrækt að taka
„fullt" tillit til alvöru málsins
og að það hefði verið „óþol-
andi skammsýni"?
Sú ráðstöfun Brezhnevs að
birta nú bréfið til Kissingers,
eftir tæplega tveggja mán-
aða hlé, jafngildir svari hans
til allra þeirra sem kunna að
saka hann um að hafa haldið
illa á ferðafrelsismálinu —
hvort sem þær ásakanir
koma frá Podgorny eða
sveitamönnunum í miðstjórn-
inni eða báðum. Tíminn, sem
var valinn til birtingarinnar,
getur gefið til kynna að ætl-
unin hafi verið sú að tekið
væri eftir bréfinu í bandríska
þjóðþinginu þegar það
greiddi atkvæði um við-
skiptafrumvarpið, og þar var
vissulega tekið eftir því, en
áhrif þess á sovézk innan-
landsstjórnmál geta verið allt
að því eins mikilvæg.
Keflavík — Suðurnes Til sölu rúmlega fokhelt raðhús, múrhúðað utan, tvöfalt gler. Allar útihurðar. Btla- og fasteignaþj. Suðurn., Hafnargötu 50, sími 92-2925. Kona vön öllum algengum skrifstofu- störfum óskar eftir vinnu hálfan daginn. Tilboð merkt: Framtíð — 7309 sendist augl.d. Mbl. sem fyrst.
Grindavik — Suðurnes Til sölu í Grindavík, fokhelt raðhús 1 1 3 fm og bílskúr. Bíla- og fasteingaþjónusta Suðurnesja, Hafnargötu 50, sími 92-2925. Prjónakonur takið eftir Peysumóttakan hefst þriðjudaginn 14. janúar. Móttaka þriðjud. og fimmtud. kl. 1 —3. Vantar sérstaklega hnepptar peys- ur. Seljum þriþættan lopa. UNEX, Aðalstræti 9.
Keflavík — Suðurnes Hef kaupanda að fokheldu ein- býlishúsi í Keflavik. Bíla- og fasteigna- þjónusta Suðurnesja, Hafnargötu 50, simi 2925. Skattframtöl Önnumst hvers kyns framtöl og reikningsskil. Magnús Sigurðsson lögfræðingur Þórir Ólafsson hagfræðingur Skrifst. Öldugötu 25 s. 23017 og 13440.
Keflavík Til sölu góð 4ra herb. hæð. Sérhiti Sérinngangur. Bílskúr. Eigna- og verðbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavik, simi 92-3222. Hjón með eitt barn óska eftir góðri 2ja—3ja herb. íbúð á leigu. Skilvísri greiðslu og góðri umgengni heitið. Uppl. í síma 34967.
Fjársterkur maður. Vill einhver fjársterkur maður lána ungum og áreiðanlegum manni 250.000.00 kr til eins árs gegn góðum vöxtum og 100% trygg- ingu. Tilb. sé skilað á afgr. Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt: 7—7308". Kanaríeyjar Óskum eftir nokkrum ferðafélög- um í ferð til Kanaríeyja 1. febr. i 3 vikur. Ódýr ferð og góðir greíðslu- skilmálar. Uppl. fyrir hönd Ökukennarafé- lagsins Geir P. Þormar ökukenn- ari, s. 1 9896.
Góður bíll óskast keyptur Volvo, Datsun eða Toyota ekki eldri en '68, má vera station, aðrir bilar koma til greina. Staðgreiðsla i boði. Uppl. i sima 37203. í§£ii MR ER EITTHURÐ FVRIR RLLR 2W0röiiiit»JöMÍ>
ENSKUSKOLI
FYRIR BÖRN
Ný námskeið hefjast 16. janúar. Innritun til
þriðjudags 14. janúar. Enskir kennarar —
Enskt talmál.
sími 1004 og 11109
(k' 1 7 e.h.) |\/|^|3S|^^|inn |\/|ínnir
— Brautarholti 4
SERVERSLUN
MEÐ
SVÍNAKJÖT
Heildsala — Smásala
I?
0
SILD & FISKUR
Bergstaáastræti 37 sími 24447