Morgunblaðið - 09.01.1975, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1975
Norðfirðingar berjast
við olíuna
FUNDUR var haldinn um ollu-
mengun I Neskaupstað I fyrradag
að frumkvæði Almannavarna-
nefndar Neskaupstaðar, en eins
og kunnugt er varð mikil mengun
af olfu við snjóflóðið, sem hljóp
fram rétt fyrir hátfðarnar. Á
fundinum var einnig rætt um
stöðu varnaraðgerða vegna
olíunnar.
Fundinn sátu af hálfu Siglinga-
málastofnunar ríkisins Hjálmar
R. Bárðarson og Stefán Bjarna-
son, fráOlíufélagi Islands Svan
Friðgeirsson og af hálfu heima-
manna Björn Björnsson, Böðvar
Bragason, Hjörleifur Guttorms-
son, Logi Kristjánsson, Ölafur
Gunnarsson og Ragnar Sigurðs-
son.
A fundinum gáfu Svan Frið-
geirsson og Stefán Bjarnason yf-
irlit um aðgerðir til þessa til að
draga úr mengunaráhrifum og
Svan útskýrði vinnuáætlun starfs-
manna Olíuvezlunarinnar. Athug-
anir benda til að mun meira magn
af olíu sé eftir á landi en talið var
í fyrstu ogerolían enn dreifð um
allstórt svæði og blönduð snjó og
is I misjafnlega miklum mæli.
Hætta er á því að strax og hláni
dreifist olian enn frekar og renni
í sjó fram og þarf að leggja sem
Loðnuverð til
yfirnefndar
EKKERT nýtt er af fiskverðs-
ákvörðun að frétta, en yfirnefnd-
in vinnur enn að henni. I gær var
visað til yfirnefndarinnar ákvörð-
un um loðnuverð, sem fer nú að
verða aðkallandi, þar eð lóðað
hefur verið á talsverðar loðnu-
torfur austnorðaustur af Langa-
nesi eins og skýrt er frá I Mbl. á
öðrum stað í dag.
Formaður yfirnefndar er Jón
Sigurðsson, forstöðumaður Þjóð-
hagsstofnunar.
— Danmörk
Framhald af bls. 1
Gallupskoðanakönnum sýnir,
að meirihluti danskra kjósenda
óskar eftir samsteypustjórn
jafnaðarmanna, Venstre og
Radikale Venstre. Baunsgaard
sagði er hann lagði fram þessa
tillögu sfna, að „danska efnahags-
ástandið þyldi ekki að þriðja
minnihlutastjórnin keyrði sig
fasta“. Fátt bendir hins vegar til
að þeir Hartling og Jörgensen
geti komið sér saman um sam-
starfsgrundvöll, og báðir sækjast
þeir eftir forsætisráðherra-
embættinu.
Hins vegar er betri möguleiki á
myndun ríkisstjórnar jafnaðar-
manna og Radikale Venstre, sem
áður hafa starfað saman í stjórn. I
sjónvarpsumræðum stjórnmála-
leiðtoga í gærkvöldi tók Hilmar
Baunsgaard að vísu fram, að
Radikale Venstre gæti ekki fallizt
á hugmyndir jafnaðarmanna um
efnahagslýðræði í upprunalegu
og óbreyttu formi, en Anker
Jörgensen gaf í skyn á kosninga-
fundi í Árósum í dag, að mögu-
leikar á samstarfi þessara flokka
færu vaxandi. Hann virtist vilj-
ugri til að ræða um þessar tillögur
flokksins með málamiðlun f huga.
Poul Hartling, forsætisráð-
herra, hefur þó ekki vísað alger-
lega á bug ofannefndri tillögu
Hilmars Baunsgaards.
Mogens Glistrup, formaður
Framfaraflokksins, sagði í sjón-
varpsumræðunum, að hann teldi
kosningarnar snúast um það, að
hve miklu leyti danskt þjóðfélag
ætti að vera sósfalfskt með meiri
neyzlu hins opinbera og
skriffinnsku eða hvort það ætti að
fara eftir stefnu Framfaraflokks-
ins, sem hann kvað vera algjöra
andstæðu hins fyrrnefnda.
mesta áherzlu á að ná sem mestu
magni af henni í heldar geymslur
áður en til slíkra veðrabrigða
kemur. Tiltækt geymslurými eru
tveir heilir hráefnisgeymar
Síldarvinnslunnar, en með við-
gerð og auknum tækjakostnaði
má ef til vill fá tvo geyma og þrær
bræðslunnar í gagnið til viðbótar
og verður að því unnið. Reynt
verður með hitun að skilja sundur
vatn og olíu í öðrum heila geymin-
um og dæla olfunni síðan yfir á
hinn geyminn, svo og því sem
næst úr leyfum svartolíugeymis-
ins. Þetta takmarkaða geymslu-
rými verður að nýta undir þann
snjó, sem mest er olíumengaður,
en moka öðru í sjóinn innan flot-
girðingarinnar og sjá til hverju
unnt reynist að ná þaðan af olíu
til baka. Óráðlegt er að flytja olíu-
mengaðan snjó af svæðinu í gryfj-
ur eða á sorphauga vegna víðtæk-
ari mengunarhættu.
Fundarmönnum var ljóst að
ekki verður komizt hjá einhverri
mengun sjávar með oliu, en til-
tækum ráðum verður beitt til
þess að hún verði sem minnst.
Full samstaða var á fundinum um
þau vinnubrögð, sem beita þarf i
þessu skyni og verður því verki
stjórnað af starfsmönnum olíu-
FH
vann
Fram
TVEIR leikir voru f gærkvöldi
háðir f Islandsmótinu í hand-
knattleik og fóru báðir fram f
Iþróttahúsinu f Hafnarfirði.
Jafntefli varð f fyrri leiknum
milli Vfkings og Gróttu 20:20,
en sfðari leikinn vann FH með
26 mörkum gegn 20 mörkum
Fram.
— Ekkert
Framhald af bls. 1
fljótt og unnt er á þessu ári. I
sameiginlegu áliti segja nefndar-
menn, að bannsvæðin yrðu aðeins
fyrsta skrefið til að framfylgja
fiskveiðistefnu sem miðaðist við
að vernda fiskstofnana og einnig
hagsmuni sjómanna.
Á blaðamannafundinum að
loknum viðræðunum i dag, sagði
David Ennals, að Bretar viður-
kenndu setningu togveiðibanns á
ákveðnum svæðum, en gætu hins
vegar ekki viðurkennt tillögur
Norðmanna um lögsögu Noregs
utan 12 mílna markanna. „Báðir
aðilar lögðu áherzlu á mikilvægi
þess, að samkomulag næðist og
viðurkenndu ókosti einhliða að-
gerða,“ sagði hann.
Hann kvaðst ekki geta sagt
fyrir um hvað gerðist ef ekkert
samkomulag næðist, en sagði, að
afleiðingarnar yrðu a.m.k. fjór-
þættar. I fyrsta lagi hefði það
áhrif á samstarfsvilja brezkra at-
vinnuvega við norska atvinnu-
vegi, t.d. er varðaði bætur fyrir
skemmdir á veiðarfærum undan
Noregsströndum. I öðru lagi á af-
stöðu brezkra stjórnvalda til við-
ræðna um takmarkanir á afla-
magni, í þriðja lagi á samningi
Noregs við Efnahagsbandalag
Evrópu, t.d. um tollaívilnanir, og í
fjórða lagi á almenn samskipti
Norðmanna og Breta.
Ennals kvað Norðmenn ekki
geta komið til móts við hinar nýju
tilslakanir Breta með tilboðum
um sjálfviljugar takmarkattir á
veiðum norskra skipa undan Bret-
landsströnd.
verzlunar Islands, en Siglinga-
málastofnunin mun áfram fylgj-
ast með framvindu mála og safna
gögnum um þá dýrkeyptu reynslu
sem af þessu slysi fæst.
Fundurinn minnti á þá meng-
un, sem menn og farartæki verða
fyrir á svæðinu og hættuna á að
hún berist þannig út um kaup-
staðinn og grennd. Er þeirri
áskorun beint tii bæjarbúa, að
hafa þetta vel í huga framvegis og
gæta ítrasta hreinlætis, svo og að
varast óþarfa umferð um hið
mengaða svæði.
I framhaldi af þessum fundi
kom fram sú hugmynd, að flytja
olíumengaðan snjó í smábátakvf,
sem gerð var síðastliðið vor inn af
nýju höfninni og er það nú afráð-
ið. Verður lokað fyrir þessa dokk
með margfaldri flotgirðingu og
sett niður stauragirðing utan við
hana til frekara öryggis. Má koma
þarna fyrir miklu magni af snjó
og þykir einsýnt, að þannig verði
hægt að halda sjávarmengun í
lágmarki. Drög hafa verið lögð að
því að fá sérstakar skúffur frá
Vestmannaeyjum til að setja á
vörubila og flytja í þeim mengaða
snjóinn þannig að hann dreifist
ekki um götur á leiðinni. Einnig
verður olíuprammi Siglingamála-
stofnunar sendur með m.s. Heklu,
sem er að leggja af stað austur frá
Reykjavík. Loforð hefur fengizt
fyrir Lorankrana frá Vita- og
hafnarmálaskrifstofunni og verð-
ur hann fluttur frá Húsavík
næstu daga. Þannig er margt i
gangi til að auðvelda baráttuna
við olfuna og koma I veg fyrir
mengun sjávar í Norðfirði eftir
því sem unnt reynist. Mikið er þó
undir veðurfari komið á næstunni
hvernig til tekst.
— Jafntefli
Framhald af bls. 1
og eru þær við Bretana Michael
Stean og Anthony Miles, Banda-
ríkjamanninn Mark Diesen,
Albin Planinc frá Júgóslavfu og
Kúbumanninn Guillermo Garcia.
I biðskákinni úr 9. umferðinni
við Rússann Rafael Vaganian sá
Guðmundur enga útleið, og þeir
samþykktu jafntefli eftir 42 leiki,
án þess að hefja skákina að nýju.
Síðan hélt hann áfram maraþon-
skák sinni úr 7. umferðinni við
William Harston frá Bretlandi.
Þetta var fimmta atrenna þeirra
við þá skák og er henni lauk voru
kóngur, hrókur og peð Harstons
betur staðsett en kóngur Guð-
mundar og gaf sá síðarnefndi
skákina eftir 105 leiki og 13
klukkustunda skák. 1 kvöld tókst
svo Rússanum Alexander Bely-
avsky að ná jafntefli við Guð-
mund eftir 23 leiki.
Staðan eftir 10 umferðir: Hort 7
vinningar, Andersson 6 (og ein
biðskák), Belyavsky 6, Guð-
mundur 6, Miles 6, Vaganian 6,
Garcia 5V4, Harston 5H, Planinc 5,
(og ein biðskák), Botterill 4Ví,
Stean 4'A, Benco 4, Basman 3i4,
Csom 3 (og ein biðskák), Mestel
2i4 (og ein biðskák), Diesen 2'/í.
— Notaðir bílar
Framhald af bls. 36
inu sagði, að ef til vill væri ekki
fjarri lagi að þeir greiddu ívið
hærra verð, þvi að oft væru þessir
bílar betur með farnir og valdir
úr meira úrvali en hér er — en
hann kvað mismuninn ekki mega
verða stórfelldan. 1 vor eða um 30.
apríl má búast við að vorverð not-
aðra bíla hækki hér innanlands
og er þá gert ráð fyrir, að afslátt-
urinn falli niður og verðið jafnist
út.
r
— Isal
Framhald af bls. 36
heimsmarkaðsverði, en um 10%
eru seld til óháðra framleiðenda
og er það verðið, sem nefnt er í
sambandi við þær einstöku sölur,
sem áður er getið.
Eins og áður sagði fer helm-
ingur framleiðslunnar f birgða-
geymslur I Straumsvík um þessar
mundir. Um áramótin voru í
Straumsvik um 1400 tonn I birgð-
um og við bætast um 3 þúsund
tonn á mánuði. Ragnar sagðist
ekkert vilja spá um þróun mark-
aðarins á næstunni, en hann
kvaðst alla vega ekki geta búizt
við batnandi horfum fyrr en i vor
i fyrsta lagi.
— Sjómenn
Framhald af bls. 36
mannasambandsins, sagði í gær,
að viðtökur samninganefndarinn-
ar hjá fulltrúum FlB hefðu verið
þær, að ákvörðun um að skjóta
deilunni til sáttasemjara hefði
verið tekin. Taldi saminga-
nefndin ekki vænlegt til árangurs
að ræða við FlB nema undir for-
sjá sáttasemjara.
Aðspurður sagði Jón, að ekki
væri víst að deilunni við LlU yrði
skotið til sáttasemjara: „Það fer
eftir viðtökunum á morgun,"
sagði hann.
— Minning
Margréí og
Hallgrímur
Framhald af bls. 27
voru vel látin i starfi sínu, vegna
alúðar og skyldurækni. Skólapilt-
ar voru þeim vinveittir, og var oft
glatt á hjalla í stóra eldhúsinu,
þegar skólapiltar komu með sin
áhugamál og alls konar umræðu-
efni og snerust kringum hjónin
eins og börn.
Eftir beiðni skólapilta hélt Mar-
grét veislur fyrir þá i skólanum,
sem þóttu í alla staði takast vel.
Við burtför hjónanna úr skólan-
um 1921 gáfu skólapiltar Mar-
gréti vandað gullúr áletrað, sem
mun verða ættargripur. öll störf,
sem Margrét tók sér fyrir hendur,
voru henni til sóma. Hún starfaði
lengi að þvi að stífa lín fyrir
bæjarbúa, og þótti það handbragð
hennar með ágætum.
Heimili Hallgrims og konu hans
var alla tfð aðlaðandi. Framan af
búskap þeirra var oft margt af
ungu fólki saman komið á heimili
þeirra f sambandi við kennslu.
Mátti þá heyra létta hlátra.
Börn Hallgrfms og konu hans
eru þrjú, tvær dætur og einn son-
ur. Jóhanna elst, Guðbjörg og
Haraldur, þau tvo síðarnefndu
ógift. Jóhanna giftist Einari Guð-
mundssyni heildsala. Þau eignuð-
ust 4 börn, sem urðu gleðigjafar
hinum öldnu foreldrum og svo
langömmubörnin, sem Margrét
gladdist yfir i sinni háu elli.
Ekki get ég skilist svo við þess-
ar línur, án þess að minnast Guð-
bjargar Sigurðardóttur ljósmóð-
ur, sem dvaldi alla tíð á heimili
dóttur sinnar, Margrétar. Hún var
höfðingleg, gömul kona og vel
gefin. Hún naut trausts og virð-
ingar í ljósmóðurstarfi sínu í
Skagafirði, siðast á Sauðárkróki.
Guðmundur Hannesson læknir
hafði mikið álit á henni, þau
kynntust vel í sambandi við starf
hennar og hjúkrun sjúkra. Hún
dó hjá dóttur sinni í Menntaskól-
anum 1919.
Síðustu æviár lifðu Hallgrímur
og kona hans á Sólvallagötu 6.
Hallgrimur andaðist 9/11 — 1952.
Eftir lát hans hélt Margrét heim-
ili með börnum sínum, Guðbjörgu
og Haraldi til siðustu stundar.
Innilegt kærleikssamband var
milli hennar og barnanna. Á
heimili Margrétar ríkti ró og
friður. Margrét var glöð í vina-
hópi, og hlátur hennar innilega
glaður og hlýr. Hún lifði langa
ævi og naut óvanalega góðrar
heilsu lengst af elliárum. Þó lá
hún langa legu á spítala vegna
beinbrots, þá á tíræðisaldri, en
komst aftur til heilsu og hafði
fótavist. Yfir lífi og ævikvöidi
Margrétar var hin sanna heið-
ríkja hugans, og friður sálar-
innar. „Sá sem gengur grandvar-
leikans vegu, skal þjóna mér segir
drottinn". Margrét valdi ung að
ganga þennan veg, í ljósi guðs
fyrirheita.
Blessuð veri minning þessara
góðu hjóna.
Þóra S. Þórðardóttir.
—Ofsaveður
Framhald af bls. 2
úr augum fyrir sandbyl.
Annar skólabíll var að fara í
gær frá Skarðshlfð og ætlaði að
Skógum. Lenti sá bíll i miklum
erfiðleikum og var eina klukku-
stund þessa vegalengd, sem ekki
er steinsnar. Simasambandslaust
var í gær við Seljaland og Varma-
land, en fjölsímaleið var þó opin
og var þvi unnt að tala austur í
Skarðshlíð í gær. Við Merkurbæ-
ina sá ekkert i gær fyrir byl.
Markús Jónsson sagði sem
dæmi um veðurofsann hjá honum
á Borgareyrum, að allstórar stein-
völur þytu út um allt tún hjá sér.
Engin slys höfðu orðið á mönnum
vegna þessa mikla veðurs.
— Minning
Sigríður
Framhald af bls. 22
varð maður mest var við það I
gegnum hin áralöngu veikindi
manns hennar. Aldrei heyrði ég
hana kvarta eða efast um forsjón
Guðs. Hún þakkaði Guði fyrir
hvern dag, sem hún gat eitthvað
fyrir hann gert, enda var sambúð
þeirra mjög góð.
Ætt og uppruna frú Sigríðar
ætla ég ekki að rekja hér. Það
gera mér fróðari menn.
Þegar ég lít yfir farinn veg, þé
er svo ótal margt, sem kemur I
hugann. — Ég vil fyrir mína hönd
og okkar allra f Kvenfélagi
Akraness þakka henni samfylgd-
ina, störfin og allar gleðistundirn-
ar, sem hún hefur veitt okkur. —
Okkar beztu óskir og þakkir
fylgja henni yfir á land lifenda.
— Guð blessi minningu hennar.
Jónfna Bjarnadóttir.
— Jakob
Hafstein
Framhald af bls. 2
áður en hann sótti um að salurinn
væri laus á þessu timabili.
Samkvæmt reglum um Kjar-
valsstaði má áfrýja ákvörðunum
sýningarnefndar myndlistarhúss-
ins varðandi sýningaumsóknir til
borgarráðs, sem skipar þá tvo
menn í nefndina til viðbótar og er
siðan umsóknin tekin fyrir að
nýju. Deiiumál af þessu tagi kom
upp fyrir fáeinum mánuðum er
Jóni E. Guðmundssyni var synjað
um sýningaaðstöðu á Kjarvals-
stöðum. Hann áfrýjaði til borgar-
ráðs með þeim árangri að fallizt
var á að leigja honum sal undir
sýningu hans.
— Stórtjón
Framhald af bls. 2
sandi.
Jón Trausti gat þess að i frétt-
um ríkisútvarpsins í gær hefði
verið haft eftir landlækni, að
læknar væru nú í öllum læknis-
héruðum. Hann kvað það ekki
vera rétt að því er varðaði Flat-
eyrarlæknishérað. Er það læknis-
hérað óskipað, en læknir kemur
vikulega frá Þingeyri til þjónustu
við íbúa Flateyrar. Þó sagði Jón
að læknum ætti ekki að vera I kot
visað á Flateyri, þvi að þar er
heilsugæzlustöð með góðum
tækjabúnaði, íbúð til handa lækni
og sitthvað fleira. Þá eru í
héraðinu 2 hjúkrunarkonur.
— Búrfellslínan
Framhald af bls. 1
austur að Kolviðarhóli, en ekkert
hafði komið fyrir línuna á þessu
svæði. Hlýtur þvf bilunin að vera
á Hellisheiði eða fyrir austan
Fjall. Var hætt við að leita að
biluninni vegna veðurs, hrfðar og
myrkurs i gærkveidi, en beðið
dagrenningar.
Ef aðeins hefði verið ein lina
frá Búrfelli, hefði rafmagn fyrir
Stór-Reykjavik og Suðurnes að-
eins fengizt frá Sogsvirkjunum og
hefði orðið að skammta rafmagn í
stórum stíl.