Morgunblaðið - 09.01.1975, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1975
21
Vilhjðlmur Heiðdal
verfafélög
stæðismanna í
M agnús Þórðarson Ö1 af ur Jensson
sjálf-
Reykjavík
1 frétt frá Fulitrúaráði sjáifstæðisfélaganna í Reykjavík kemur
fram, að í byrjun slðasta árs voru stofnuð 11 hverfafélög sjálfstæðis-
manna f Reykjavfk. Um leið var sú breyting gerð, að Landsmálafélagið
Vörður varð samband sjálfstæðisfélaganna f Reykjavík. Stofnendur
hverfafélaganna voru um 3200, en á árinu gengu í félögin um 900
manns.
1 frétt Fulltrúaráðsins segir ennfremur:
Hverfafélögin hafa haldið uppi
mjög virkri starfsemi á s.l. ári, en
starfsemin miðaðist að miklu leyti
við undirbúning sveitarstjórnar-
kosninganna og alþingiskosning-
anna.
Nú hafa öll hverfafélögin hald-
ið aðalfundi sína og hafa fundirn-
ir verið ágætlega sóttir. Á
fundunum hefur ríkt mikil eining
og áhugi um að efla félögin og
starfsemina eftir mætti og hafa
nú flest félögin hafið vetrarstarf-
ið af fullum krafti.
Á flesta aðalfundina hafa mætt
ýmist alþingismenn eða borgar-
fulltrúar og rætt fjölmörg mál á
vettvangi landsmála og borgar-
mála.
Aðalfundirnir hafa verið haldn-
ir sem hér segir og eftirtaldir
kjörnir í stjórn:
1 Nes- og Melahverfi 14. októ-
ber að Hótel Sögu. Vilhjálmur
Heiðdal var kjörinn formaður en
aðrir í stjórn, Kristin Magnúsdótt-
ir, Skúli Sigurðsson, Sigrún Guð-
björnsdóttir, Luðvig Hjálmtýsson,
Kristjón Kristjónsson, Björn
Björgvinsson.
1 Vestur- og Miðbæjarhverfi 20.
nóvember í Tjarnarbúð. Magnús
Þórðarson var kjörinn formaður
en aðrir í stjórn, Hulda
Guðmundsson, Árni Kristjánsson,
Magnús Eymundsson, Ölafur
Jónsson, Áslaug Cassata, Bene-
dikt Blöndal. Ellert B. Schram
ræddi um störf Alþingis.
1 Austurbæ- og Norðurmýri 23.
október í Templarahöllinni. Ólaf-
ur Jensson var kjörinn formaður
en aðrir i stjórn, Hermann
Hermannsson, Hermann Bridde,
Jakob Hafstein, Ragnar Fjalar
Lárusson, Gústaf Einarsson og
Sigriður Ásgeirsdóttir. Geir
Hallgrimsson, forsætisráðherra,
ræddi um stjórnmálaviðhorfið og
efnahagsmálin.
t Hlfða- og Holtahverfi 21. októ-
ber að Hótel Esju. Ásgrímur P.
Lúðvíksson var kjörinn formaður,
en aðrir f stjórn, Axel Tulinius,
Bogi Ingimarsson, Valdimar
Ólafsson, Bogi Bjarnason, Jónina
Þorfinnsdóttir, Hannes Péturs-
son. Ræðumenn voru Birgir ísl.
Gunnarsson, borgarstjóri, og
Ragnhildur Helgadóttir, alþingis-
maður.
1 Laugarneshverfi 29. október i
Kassagerð Reykjavikur. Gunnar
Hauksson var kjörinn formaður,
en aðrir í stjórn, Margrét Jóns-
dóttir, Halldór Sigurðsson,
Svavar Júliusson, Páll Björnsson,
Sigurður Árnason, Ragnar
Pétursson. Ræðumaður var
Matthias Á. Mathiesen, fjármála-
ráðherra.
1 Langholti 24. október í Glæsi-
bæ. Halldór Jónsson var kjörinn
formaður en aðrir í stjórn, Árni
B. Eiríksson, Elín Pálmadóttir,
Ingimar Einarsson, Matthias
Haraldsson, Svavar Sigurðsson,
Þóroddur Th. Sigurðsson. Matt-
hías Bjarnason, sjávarútvegsráð-
herra, ræddi um stjórnmálahorf-
ur.
1 Háaleitishverfi 15. október í
Miðbæ v/ Háaleitisbraut. Guðni
Jónsson var kjörinn formaður, en
aðrir í stjórn, Ásgeir Hallsson,
Benedikt Bogason, Helena
Halldórsdóttir, Hilmar Guðlaugs-
son, Jón B. Stefánsson, Reynir
Þórðarson. Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra, ræddi um
stjórnmálaviðhorfið.
1 Smáfbúða-, Bústaða- og Foss-
vogshverfi 11. nóvember í Miðbæ
v/Háaleitisbraut. Gísli Jóhanns-
son var kjörinn formaður, en aðr-
ir i stjórn, Bjarni Helgason,
Gunnar Jónasson, Hróbjartur
Lúthersson, Jóna Sigurðardóttir,
Leifur ísleifsson, Óttar Októsson.
Birgir Isl. Gunnarsson, borgar-
stjóri, fjallaði um borgarmálefni.
I Bakka- og Stekkjahverfi 13.
nóvember í Miðbæ v/ Háaleitis-
braut. Jón Grétar Guðmundsson
var kjörinn formaður, en aðrir í
stjórn, Grétar Hannesson, Vil-
hjálmur Ingólfsson, Óskar
Friðriksson, Inga Magnúsdóttir,
Steindór Ulfarsson, Stefán Aðal-
steinsson. Guðmundur H.
Garðarsson, alþingismaður, fjall-
aði um stjórnmálaviðhorfið.
I Fella- og Hólahverfi 14. októ-
ber í Glæsibæ. Magnús Jensson
var kjörinn formaður en aðrir í
stjórn, Berta Biering, Ragnar
Magnússon, Björn Bjarnason, Jón
Guðbjörnsson, Jón Guðmundsson,
Edgar Guðmundsson.
1 Arbæjarhverfi 29. október í
Miðbæ v/ Háaleitisbraut. Ingi
Torfason var kjörinn formaður en
aðrir í stjórn, Bjarni Guðbrands-
son, Margrét Einarsdóttir, Gutt-
ormur P. Einarsson, Bergur
Ólafsson, Björgvin Schram, Jón
Ólafsson.
Ásgrfmur P. Lúðvíksson
Magnús Jensson
Gunnar Hauksson
Halldór Jónsson
Guðni Jónsson
Gfsli Jóhannsson Jón Grétar Guðmundsson
Sverrir Runólfsson:
Opið bréf til alþingismanna
JÆJA: nú er þetta merka ár að
enda, en ekkert bólar á hinni nýju
eða endurskoðuðu stjórnarskrá,
þó að Sjálfstæðisflokkurinn sé í
rfkisstjórn. Hvar er viljinn og
áhuginn sem okkur í Valfrelsi var
lofað fyrir kosningar. Þar sem hér
fer á eftír, var skrifað f júlí 1974.
í þrjátíu ár hefur þjóðinni verið
heitið endurbættri stjórnarskrá,
með þeim breytingum sem þyrfti
til að skapa fuilkomnara lýðræði.
Fullkomnara lýðræði skapast
ekki, að minu áliti, nema með
auknu aðhaldi frá hinum al-
menna skattborgara á meðhöndl-
un fjármagns þjóðarinnar. Auð-
veldasta leiðin til þess aðhalds er
að hinn almenni kjósandi taki
þátt I atkvæðagreiðslum um mál-
efnin. Það ætti t.d. ekki að vera
leyfilegt að færa fé á milli sjóða,
án þess að spyrja skattborgara
fyrst. Ég skal nefna dæmi. Segj-
um sem svo, að framkvæmda-
stjóri Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands, fari fram á 100 milljónir til
að reka fyrirtækið, en yfirvöld
segjast aðeins hafa eina milljón,
þá ætti að leggja það fyrir dóm
kjósenda hvort þeir vilji hækka
framlagið, kjósendur verða að fá
upplýsingar hvað það myndi
hækka skatta hvers manns, að
veita Sinfóníunni hverja milljón.
Sinfóníudæmið er aðeins nefnt
vegna þess að það verksvið þekki
ég, en mörg önnur mál mætti
nefna, t.d. önnur menntamál og
vegamál. Ég læt hér fylgja tillögu
um frumvarp til laga, sem hefur
verið samþykkt og stutt grund-
vallarlega af um einum hundraðs-
hluta kjósenda landsins á almenn-
um borgarafundum Valfrelsis.
Eins og margir vita, hefur Val
frelsi barist fyrir málefni frum-
varpsins síðan 1. des. 1969. Ráða-
menn lands vors hafa talað fögru
máli, mörg alþing og margar kosn-
ingar hafa liðið hjá, en ekkert
gerzt með löggjöfina.
Ég leyfi mér hér með að vísa til
„Þingsályktun um undirbúning
löggjafar um þjóðaratkvæði", sem
var samþykkt á Alþingi 28. janúar
1970, en legið hefur í nefnd síðan.
Nú skora ég á alla alþingismenn
að segja álit sitt á frumvarpinu,
eða málefnakosningum almennt,
sem sagt hvort þeir álíta að hinn
almenni ISLENZKI kjósandi geti
haft vit á þjóðmálum. Að mínu
áliti væri það fögur gjöf þeirra á
þessu merkis ári, að löggjöf um
almennar þjóðaratkvæðagreiðsl-
ur yrði sett á árinu. Það er fram-
kvæmanlegt ef samvinna er fyrir
hendi. Lýðræðið skapast með val-
frelsi um menn og málefni. Þann-
ig tekur hinn almenni kjósandi
beinan þátt í stjórnun lands sfns.
FRUMVARP TIL LAGA um
breytingu á 25. grein stjórnar-
skrár lýðveldisins Islands
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að
láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um frumvarp til laga,
þess efnis, að 25. gr. stjórnar-
Framhald á bls. 23