Morgunblaðið - 09.01.1975, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975
25
Dr. Richard Beck:
„Þeim var ekki skapað, nema að skilja”
Þetta harmræna viðlag sárs-
aukaþrungins og fagurs
„Tristrams kvæðis“ hefir orðið
mér ríkt f hug við lestur hinnar
ensku þýðingar dr. Pauls Sehach
af Tristrams sögu og Isöndar, er
nefnist á enskunni The Saga of
Tristram and tsönd og kom út i
nóvemberbyrjun í fyrra. Var mér
þá send þýðingin til umsagnar, en
af ýmsum ástæðum, sem hér
verða eigi raktar, hefir dregizt
fyrir mér, lengur en skyldi, að
skrifa um hana. Skal nú að
nokkuru úr því bætt, því að þýð-
ingin á það að öllu leyti meir en
skilið, að athygli íslepzkra les-
enda sé dregin að henni.
Auk þess skipar Tristrams saga
og tsöndar mikinn merkissess i
þróunarsögu Tristrams-
sagnarinnar og jafnframt i bók-
menntasögu Norðurlanda, og tal-
ar til fræðimanna i þeim og skyld-
um fræðum, eins og dr. Schach
bendir á í formálsorðum sínum.
Hann hefir einnig manna mest
lagt rækt við rannsóknir
Tristrams-sagnarinnar í íslenzk-
um og öðrum Norðurlandabók-
menntum, og ritað um það efni
fjölda innihaldsríkra og athyglis-
verðra ritgerða í amerísk timarit
og önnur fræðirit austan hafs og
vestan. Sæmir vel að geta þess í
þvi sambandi, að hann var i þakk-
ar- og virðingarskyni fyrir þær
rannsóknir og ritstörf árið 1966
kjörinn félagi i „Ordre de
Tristan" i Liege i Belgíu.
1 formálsorðum sinum lætur dr.
Schach þess getið, að meir en
fimmtán ár séu þá liðin síðan
hann byrjaði á þessari þýðingu
sinni, og að hann hafi lokið við
hana, er hann nýlega dvaldi á
Islandi við fræðistörf. Síðan er
hann einnig mörgum þar að góðu
kunnur.
Skal þá horfið að þýðingunni
sjálfri. Dr. Schach fylgir henni úr
hlaði með gagnorðri og glöggri
inngangsritgerð, er ber því vitni,
hve vel hann hefir haft víðtækt
efnið í hendi sér, svo að hinn
almenni lesandi hefir ritgerðar-
innar full not, eigi siður en lærðir
menn á þvi sviði.
Eins og dr. Schach tekur fram í
inngangsritgerð sinni, hefir
Tristrams saga verið gefin út
þrisvar sinnum, af Gísla Bryn-
júlfssyni í Kaupmannahöfn 1878,
af Þjóðverjanum Eugen Kölbing í
Heilbronn sama ár, og af dr.
Bjarna Vilhjálmssyni, þjóðskjala-
verði, i Riddarasögum (Fyrsta
bindi, Reykjavík 1949). Dr.
Schach lagði, eftir þvi, sem unnt
var, allar þessar útgáfur til
grundvailar þýðingu sinni, en
hafði jafnframt ávalit til hliðsjón-
ar Ijósprentanir af ölium þeim
handritum, sem til eru, meðal
annars hinu svonefnda Reeves-
handritsbroti. En um það hefir
dr. Schach, auk annars, skrifað
mjög athyglisverða ritgerð i
Einarsbók, afmæliskveðju til
Einars Ól. Sveinssonar 12. des.
1969. (Reykjavík 1969).
I inngangsritgerð sinni að þýð-
ingunni tekur dr. Schach það
fram, að hann hafi leitazt við að
fylgja frumtextanum sem trúleg-
ast, án þess að brjóta í bág við
Framhald á bls. 23
Nú er unnið af kappi við að undirbúa loðnuflot-
ann fyrir loðnuvertíðina. Á þessari mynd, sem
Sv. Þ. tók, sjást skipverjar af Pétri Jónssyni
koma fyrir stíufjölum á dekkinu.
ísfirðingafélagið
í Reykjavík heldur aðalfund sinn í herbergi
513, Hótel Sögu n.k. sunnudag kl. 1 5.00.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
'Hlégarður 1
Félög — Starfshópar
Leigjum út sali fyrir
árshátíðir, þorrablót
o.fl. — Allar veitingar á staðnum. Vinsamlega
pantið tímanlega.
Allar nánari upplýsingar í síma 661 95.
Frúarleikfimi
Innritun stendur yfir.
Ný námskeið hófust mánudaginn 6. janúar.
Morgun- dag- og kvöldtímar.
Ljós, gufuböð og nudd.
Uppl. í síma 83295 alla daga nema sunnudaga
frá kl. 13.
Júdödeild Ármanns,
Ármúla 32.
VERKALYÐSMALARAÐSTEFNA
Að tilhlutan Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins og Málfunda-
félagsins Óðins verður haldin.
VERKALÝÐSMÁLARÁÐSTEFNA
sunnudaginn 12. janúar, Hótel Loftleiðum Kristalssal og hefst
kl. 10 f.h.
Tilgangur ráðstefnunnar er m.a.: að fræða og upplýsa hina
mörgu þætti, efnahags- verkalýðs- og kjaramála. Þá verður
sérstaklega rætt um stöðu og vanda hinna einstöku atvinnu-
greina þjóðfélagsins.
Á ráðstefnunni verða fyrir svörum og flytja erindi og ávörp:
DAGSKRÁRATRIÐI:
Ágúst E.
Davið Sch.
Geir H.
Ágúst G.
Guðm. M.
PéturH.
Gunnar Bj.
Gunnar H.
Pétur S.
Runólfur
Kl. 10:00 Ráðstefnan sett.
Gunnar Helgason formaður Verkalýðsráðs
Kl. 10:15 — 12.00
EFNAHAGSMÁL
Framsögumaður: Guðmundur Magnússon, prófessor, auk
hans mun sitja fyrir svörum: Árni Vilhjálmsson, prófessor,
Fundarstjóri. Pétur Hannesson, form. Óðins.
Hilmar G.
Kl. 13:30 — 15:00
VERKALÝÐS- KJARA- OG ATVINNUMÁL.
Framsögumenn: Ágúst Geirsson, form. Fél. ísl. símamanna.
Guðmundur H. Garðarsson, form. Verzlunarmannafél Reykja-
víkur, Pétur Sigurðsson ritari Sjómannafél. Reykjavíkur.
Fundarstjóri: Hilmar Guðlaugsson, form. Múrarasambands ísl,
KAFFIVEITINAGAR.
Ávarp: Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 16:00 — 18.00
STAÐA ATVINNUVEGANNA.
Framsögumenn: Ágúst Einarsson vipskiptafr., frá L.Í.Ú. Davíð
Sch. Thorsteinsson, form. Félags ísl. iðnrekenda. Gunnar
Björnsson, form. Meistarasb. byggingarm., Þvorvarður Elías-
son, framkvstj., Vezlunarráðs ísl.
Fundarstjóri: Runólfur Pétursson form. Iðju.
ALLT SJÁLFSTÆÐISFÓLK VELKOMIÐ Á MEÐAN HÚSRÚM LEYFIR