Morgunblaðið - 09.01.1975, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1975
Skipta 4 af sterkustu
Völsurunum um félag?
ALLT bendir til þess að það Vals-
lið sem kemur til með að leika í 1.
deildinni í knattspyrnu næsta
sumar verði að talsverðu leyti
skipað öðrum leikmönnum en slð-
astliðið sumar. Þannig er mjög
ólíklegt að Jón Gíslason og Hörð-
ur Hilmarsson verði meðal leik-
manna liðsins og Jóhannes
Eðvaldsson, fyrirliði Vals og
landsliðsins, stefnir að því að
komast í atvinnumennsku fyrr en
seinna. Þá hefur Þórir Jónsson
skipt um félag og gengið í raðir
FH-inga.
Hörður Hilmarsson hefur und-
anfarna vetur verið búsettur á
Þórir Jónsson — leikur með FH
næsta sumar
Akureyri yfir vetrartímann og
stundað þar kennslustörf. Á
sumrin hefur Hörður hins vegar
komið suður og leikið með Vals-
liðinu með góðum árangri. Allt
bendir til þess að næsta sumar
verði Hörður áfram á Akureyri,
en alls er óvíst hvort hann leikur
með liði ÍBA í 2. deild.
Jón Gíslason leggur stund á há-
skólanám í Osló og næsta sumar
hyggst hann ekki koma heim
heldur vinna ytra og leika með
einhverju Oslóarliðanna. Hvaða
lið verður fyrir valinu hefur Jón
ekki enn gert upp við sig, en
liklegt er að það verði annað
hvort Skeid eða Válerengen i 1.
deild eða þá hið kunna félag Lyn
sem leikur í 2. deild.
Þórir Jónsson hætti æfingum
um mitt síðastliðið sumar og lék
ekki með Valsliðinu nema í fyrstu
leikjum Islandsmótsins. Astæðan
fyrir því að Þórir hætti æfingum
var m.a. ósamkomulag við sovézka
þjálfarann Ilytchev. Nú hefur
Þórir skipt um félag og gengið i
raðir FH-inga. Er við ræddum við
Þóri I gær sagði hann ástæðuna
fyrir félagsskiptum á engan hátt
vera leiðindi við sitt fyrra félag.
Hann væri Hafnfirðingur og það
væri á allan hátt auðveldara fyrir
hann að leika með Hafnarfjarðar-
liðinu og æfa, heldur en að keppa
með Reykjavíkurfélagi.
Ekki er að efa að taki Þórir
æfingarnar með FH alvarlega þá
á hann eftir að verða liðinu mikill
styrkur. Loftur Eyjólfsson, sem
varð markakóngur Hauka og
reyndar 2. deildar siðastliðið sum-
ar hefur einnig skipt um félag og
mun klæðast FH-treyjunni næsta
sumar. Pat Quinn, hinn skozki
þjálfari FH-inga, er væntanlegur
til landsins í lok þessa mánaðar
eða í byrjun þess næsta.
Þá er það Jóhannes Eðvaldsson.
Hann bíður enn eftir að komast á
samning hjá einhverju atvinnu-
knattspyrnuliði. Heldur gengur
það seint fyrir sig og seinna en
Jóhannes átti von á. Er við rædd-
um við Jóhannes í gær sagðist
hann ekki hafa heyrt neitt nýtt
frá Jack Johnson, sem annast
þessi mál fyrir hann. Johnson
ynni að því að kanna möguleika á
Prófessorinn hljóp
keppinautana af sér
214 KEPPENDUR voru í hinu
árlega nýjárshlaupi sem fram fór
um áramótin í Sao Paulo
í Brasilíu. Var þetta í fimmtug-
asta sinn sem hlaup þetta fór
fram, en það hefst rétt fyrir
miðnætti á gamlárskvöld
og hlaupa keppendurnir „inn
í nýja árið*', eins og það er
orðað. Af keppendunum 214 voru
150 frá Brasilíu, en 64 frá 34
þjóðum, þeirra á meðal nokkrir
beztu langhlauparar heims, enda
hafa Brasilíumenn jafnan lagt á
það mikla áherzlu að fá góða
hlaupara til þess að taka þátt í
þessu hlaupi.
Hlaupin er um 8.900 metra
vegalengd og að þessu sinni tók
27 ára háskólakennari frá Costa
Rica, Rafael Perez að nafni,
forystuna þegar hiaupnir höfðu
verið um 2000 metrar og hélt
henni alla leið i mark. Varð hann
um 3 sekúndum á undan Rafael
Palomares frá Mexikó, sem hljóp
síðustu 2 km hlaupsins mjög vel
og dró þá á Costa-Rica-búann.
Palomares þessi vann hlaupið
árið 1971.
Vestur-Þjóðverjinn Delef Uhle-
mann varð í þriðja sæti, átta sek-
úndum á eftir Perez.
Elzti þátttakandinn i hlaupinu
var hinn 38 ára gamli Belgíu-
maður Caston Roelents, en hann
sigraði í hlaupi þessu árin 1964,
1965, 1967 og 1968. Nú varð hann
að sætta sig við áttunda sætið,
fjórði i röðinni af Evrópubúun-
um.
Þótt Perez hefði umtalsverða
yfirburði í hlaupinu var hann þó
34 sekúndum frá metinu sem
Victor Mora frá Kolombia setti
árið 1972.
Tími Rafaels var 23:58,0. Rafael
Palomares hljóp á 24:01,0 mín.,
Delef Uhlemann á 24:06,4 min.,
fjórði varð Jairo Correa frá
Kolombia á 24:12,06 mín., fimmti
Leon Schots Belgíu á 24:16,2 mín.,
sjötti varð José de Andrade da
Sosva frá Brasilíu á 24:22,0 mín.,
Tapio Kantanen, Finnlandi varð
sjöundi á 24:27,0 mín., Gaston
Róelants, Belgíu áttundi á 24:28,0
mín., Luis Hernandez, Mexíkó
níundi á 24:31,0 mín. og Knut
Börö frá Noregi varð tíundi á
24:34,0 mín.
atvinnumennsku í Bandaríkjun-
um og víðar. Frá v-þýzka liðinu
sagðist Jóhannes ekkert hafa
heyrt enn.
Af þjálfaramálum Vals er það
að frétta að miklar líkur eru á þvf
að þeir geri samning við enskan
þjálfara að nafni Roy Lawrenson.
Sjá þjálfar hjá Tranmere Rovers í
3. deild og hefur lýst yfir áhuga á
að koma til Vals. Samningavið-
ræður við hann eru þó enn á
byrjunartigi og eru Valsmenn
einnig að reyna fyrir sér í Skot-
landi, þar sem 3 skozkir þjálfar-
ar hafa sýnt áhuga á starfanum.
— áij
Danir
unnu
DANMÖRK sigraði England 4:3 f
landskeppni I badminton sem
fram fór I Kaupmannahöfn í
fyrrakvöld. Einliðaleikirnir
vöktu mesta athygli, en I karla-
flokki sigraði Svend Pri Ray
Stevens 15:13, 14:15 og 15:4 og
Flemming Delfs sigraði Mike
Tredgett 15:2 og 15:9. t einliða-
leik kvenna sigraði Lene Koppen
Gillian Gilks 11:8 og 12:9. Enska
badmintonfólkið sigraði svo I tvf-
liðaleikjunum, en það danska f
tvenndarkeppninni.
Colin Stein — einn af leikmönnunum sem nú eru falir vegna fjárhags-
vandræða Coventry
Ensku félögin í kröggum
og hyggjast selja leikmenn
I BREZKA blaðinu „Daily
Express" birtist nýlega grein um
fjárhagsvandræði margra knatt-
spyrnufélaganna í Englandi. Seg-
ir í greininni að 80 af þeim 92
félögum sem nú leika í deildun-
um, séu í meiri eða minni krögg-
um, og jafnvel félögin sem hafa
hvað bezta aðsókn að leikjum sín-
um séu þar ekki undanskilin. Með
tilliti til þessa sé ekki ólíklegt að
mikið verði um kaup og sölur á
leikmönnum á næstunni, og að
verð á leikmönnum muni lækka
verulega, þegar á heildina er litið.
Um einstök félög segir blaðið
m.a.:
LEEDS UNITED: Það kann að
hljóma undarlega, að félag sem
hefur um 30.000 áhorfendur að
leikjum sfnum að jafnaði sé í fjár-
hagskröggum, en eigi að síður er
það staðreynd. Þeir 44 dagar sem
Brian Clough var framkvæmda-
stjóri félagsins reyndust því dýr-
ir. Hann eyddi um 120 milljónum
króna í kaup á Duncan McKenzie
og f Derby-leikmennina John
O’Hara og John McGovern, en
þeir fjármunir hafa ekki ávaxtast
vel hjá félaginu. Því er líklegt að
það muni reyna sölur á næstunni.
ARSENAL: Eftir að félagið
keypti Alex Cropley fyrir 56
milljónir króna frá Hibernian i
Skotlandi setti það Jeff Blockley
og Charlie George á sölulista, og
voru þeir verðlagðir á 168 milljón-
ir króna. Sala þeirra myndi þó
ekki bjarga Arsenal úr krögg-
unum, og er líklegt að það freisti
þess að koma fyrirliða sínum,
Alan Ball, í verð, áður en langt
um líður.
NEWCASTLE: Félagið eyddi
rúmlega 70 milljónum króna í
kaup á Tommy Craig frá Sheffi-
eld Wednesday og Geoff Nulty
frá Burnley, og þarf að ná þeim
peningum aftur með sölu á leik-
mönnum. Líklegt er að þeir sem
félagið reynir að selja verði Jim
Smith, Tommy Gibb, Stewart
Barrowclough og Alex Bruce.
STOKE: Tony Waddington,
framkvæmdastjóri Stoke, hefur
nú eytt um 210 milljónum króna í
kaup á Alan Hudson, Geoff Sal-
mons og Peter Shilton. Nauðsyn-
legt er fyrir félagið að ná a.m.k.
þriðjungi þeirrar upphæðar með
sölu á öðrum leikmönnum og hafa
þeir John Farmer, fyrrum aðal-
markvörður liðsins og sóknarleik-
maðurinn Terry Conroy verið
boðnir falir.
COVENTRY: Fá 1. deildar lið-
anna eru eins illa sett fjárhags-
lega og Coventry, og hefur jafnvel
heyrst að svo kunni að fara að það
Knapp vildi meira en KR gat borgað
SAMNINGAVIÐRÆÐUR KR-
inga við enska þjálfarann Tony
Knapp fóru út um þúfur f fyrra-
kvöld. Vildi Knapp fá meiri pen-
inga fyrir störf sfn hjá félaginu
en KR-ingar voru fúsir til að
greiða. Hélt Knapp að nýju til
Englands f gærmorgun og sagðist
vera leiður yfir þvf að samningar
náðust ekki, hann hefði haft mik-
inn áhuga á að starfa áfram með
KR-ingum og sömuleiðis með
landsliðinu, en um landsliðsþjálf-
un ræddi hann við Ellert Schram,
formann KSt, á sinni stuttu og
árangursrýru Islandsferð að
þessu sinni.
Hyggjast KR-ingar ieita fyrir
sér áfram f Englandi og segjast
þess fullvissir að þar geti þeir
fundið þjálfara, sem sé fús til að
taka að sér lið þeirra fyrir minni
pening en Knapp fór fram á.
lendi undir hamrinum. Félagið
hefur þegar boðið þá Colin Stein,
Mick McGuire og Les Cartwright
til kaups, og fáist sæmilegt verð
fyrir þá kann svo að fara að
Coventry geti bjargað sér úr
vandræðunum — í bili.
EVERTON: Þótt Everton sé
ekki illa sett fjárhagslega, hyggja
forráðamenn félagsins á sölur
leikmanna til þess að styrkja fjár-
hagsstöðuna. Joe Royle var seldur
fyrir um 70 milljónir króna tU
Manchester City um jólin, en það
er aðeins helmingur þeirrar upp-
hæðar sem félagið eyddi til kaupa
á Martin Dobson og Bob Latsc-
ford.
LUTON: Þótt Luton megi alls
ekki við, verður það að selja sinn
bezta leikmann, Peter Anderson,
og hefur upphæðin 50 millj. kr.
verið nefnd í sambandi við sölu á
honum.
SOUTH AMPTON: Félagið
stendur vel fjárhagslega, en vill
samt selja Peter Osgood sem það
keypti frá Chelsea fyrir um 66
millj. króna í fyrra. Osgood hefur
ekki gert mikla lukku hjá Dýrð-
lingunum og segist sjálfur vera
mjög þreyttur á þvi að leika í 2.
deild. — Knattspyrnan þar er
ekkert svipuð og í 1. deild, jafnvel
hjá beztu liðunum segir Osgood,
og kvartar einnig yfir því að
áhorfendur að 2. deildar leikjum
séu miklu leiðinlegri en að 1.
deildar leikjunum — stundum
hreinn skríll. Osgood segist vera
einn af þeim beztu í brezkri knatt-
spyrnu, og þvf vilji hann vera í
toppliði. Ég var í landsliðinu fyrir
14 mánuðum, en hvar er ég nú,
spyr hann. 1974 er versta árið á
ferli minum sem knatt-
spyrnumanns.