Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1975 Samgönguleiðir frá Húsavík að opnast Húsavfk, 17. janúar ÞEGAR stórviðrinu slotaði 1 fyrradag voru öll tæki sett f gang til að opna samgönguleiðir um bæinn og frá Húsavfk. 1 fyrrinött var kfsilgúrvegurinn til Mývatns- sveitar opnaðar, en á honum voru á köflum stórir skaflar en svo aiautt á milli, sem og á flestum vegum f héraðinu. 1 gær var opnuð leiðin I Reykja- dal, Köldukinn og Bárðardal, svo að unnt hefir verið að flytja mjólk úr öllum nærliggjandi sveitum, nema Kelduhverfi, en þangað er ófært ennþá, en lagt kapp á að opna leiðina, þvi að úr Keldu- hverfi er fært til Kópaskers. Verið er að opna leiðina til Rauf- arhafnar, svo að hægt sé m.a. að koma neyzlumjólk til þeirra, en þar má víst telja alveg mjólkur- laust. 1 nótt var Ljósavatnsskarð rutt, svo að mjólkurbílar úr Fnjóska- dal, sem venjulega fara til Akur- eyrar kæmu frá sér mjólk. Mikið verk er talið óunnið til þess að leiðin úr Fnjóskadal um Dalmynni til Akureyrar opnist, en áætlað er að þvf verki Ijúki svo að fært verði milli Húsavíkur og Akureyrar á mánudag. Loks er svo frá því að segja að um hádegi í dag var lokið við að hreinsa flugvöllinn og kom þá strax flugvél frá Flugfélagi Is- lands, en hér hafa farþegar beðið frá þvf á laugardag. Varúð verður að hafa við akstur um þær götur Húsavfkur, sem búið er að opna, því að víða eru löng göng og þröng, svo að aðeins er fært fyrir einn bfl og ekki hægt að mætast. Um sömu göngin fer gangandi fólk, svo að nú gildir hér ekki annað en fullt tillit við akstur og alla umferð. 1 dag er stillt og kalt og lífið farið að ganga sinn eðlilega gang. — Fréttaritari. Færri atvinnulausir um áramót en í fyrra FJÖLDI atvinnulausra um ára- mótln var á öllu landinu 611, en var um mánaðamótin nóvember — desember 319. Hefur hér orðið talsverð aukning á einum mánuði, en þess ber að gæta, að einnig varð aukning á þessum tölum f fyrra, en þá var atvinnu- leysi talsvert meira. I desember 1973 var tala atvinnulausra 790 og hafði fjölgað á einum mánuði úr 485. I kaupstöðum var fjöldi at- vinnulausra nú 286, í nóvember- mánuði 152, en sambærilegar tölur frá árinu 1973 voru 473 og 307. I kauptúnum með 1.000 íbúa voru atvinnulausir nú í desember 8 en 6 mánuðinn áður. Sambæri- legar tölur frá því fyrir ári voru 47 og 46. 1 öðrum kauptúnum voru atvinnulausir 317 í desem- ber, en mánuðinn áður 161. Sam- bærilegar tölur frá í fyrra voru 270 og 132. 1 Reykjavík voru atvinnulausir í desember 66/en í nóvember 52. Voru það allnokkuð lægri tölur en í fyrra, þegar atvinnulausir í desember voru 86 en f nóvember 65. Ef til vill er mestur munur á atvinnuleysi milli þessara tveggja tímabila i ár og f fyrra á Siglu- firði. Nú voru atvinnulausir þar í desember 38. en f nóvember 31. 1 fyrra voru atvinnulausir f desem- ber á Siglufirði 156, en í nóvem- ber 59. Atvinnuleysi kvenna á Siglufirði í fyrra var rúmlega fjórfalt á við það sem það er nú. Snjóflóðasöfnunin 23 millj. HEILDARSÖFNUNARFÉ snjó- flóðasöfnunarinnar nemur nú 23 milljónum króna. Stærstu gefend- ur frá þvf er síðast var skýrt frá gjöfum eru: frá Grímseyingum 130 þúsund. Elliheimilinu Grund 100, þúsund, söfnunarfé frá Höfn 1 Hornafirði 378 þúsund, Þor- steinn RE 303 100 þúsund og til viðbótar við 634.500 frá Húsvfk- ingum er komnar 167.108 krónur, sem þýðir að þeir hafa þegar safn- að 801.608 krónum. Eru það um 380 krónur á hvert mannsbarn á Húsavík. Hafnarskemmdir á Vopnafírði Vopnafirði, 17. janúar. VERSTA veður var hér á Vopna- firði um sfðustu helgi og stóð það fram á miðvikudagsmorgunn. Var veðurhæðin þá oft 8 til 10 vindstig af norðaustri og blind- bylur. öll kennsla lagðist niður f barna- og unglingaskólanum á mánudag og þriðjudag af þeim sökum. Geysilegt hafrót varð við höfn- ina og gekk hvftfyssandi brimsjór - AÐVÖRUN Til SJÓFARENDA:GRÍHSEVJARVITI L06AR EKKI, Í55PÖN6 ÚT AF H0RN6)AR6I, SPÍRABREI9A 5KAMMT UNDAN KEFLAVÍK hátt f loft upp, bæði yfir hafnar- garðinn, en hann er um 400 metra langur og tvo hólma, sem eru í höfninni. Muna menn hér vart eftir öðru eins brimi. Það kom líka í ljós að tvö stór skörð höfðu myndazt f garðinn og víða hafði sjórinn rutt stórum björgum úr honum. Þá skemmdist bárujárns- skemma Kaupfélagsins af völdum sjógangs. I skemmunni var m.a. geymdur fóðurbætir, en honUm tókst að bjarga án verulegra skemmda. A Vopnafirði eru fjórar dísil- rafstöðvar, sem sjá Vopnfirðing- um fyrir nægu rafmagni. Var því ekki um rafmagnsleysi að ræða f veðrinu, nema hvað raflína slitn- aði í Vesturárdal, en við hana tókst að gera mjög fljótlega. Ekkert sjónvarp hefur sést hér síðan á laugardag og eru menn orðnir alvarlega gramir vegna sjónvarpsleysisins af og til f allan vetur. Þá hafa einnig miklar truflanir frá erlendum stöðvum. Sfldarbræðslan hér er tilbúin til loðnumóttöku. — Gunnlaugur. Blaðamenn Blaðamenn eru minntir á fund- inn með fjölmiðlunarnefnd, sem haldinn verður f dag að hótel Esju. Fundurinn hefst klukkan 14. Guðlaug Þorsteinsdóttir mátar hér einn af andstæðingum sfnum, en Ólöf Þráinsdóttir, sem er efst með 4 vinninga, fylgist með. Skákþing kvenna: ÓlöfÞráinsdóttir komin í efsta sœti SKÁKÞINGI kvenna var fram haldið f fyrrakvöld og þá tefldar tvær umferðir, 3. og 4. umferð. Að loknum fjórum umferðum er Ólöf Þráinsdóttir f efsta sæti með 4 vinninga, hefur unnið allar sínar skákir. 1 2—3. sæti eru þær Birna Nordal og Guðlaug Þor- steinsdóttir með 3‘A vinning. I 4—6. sæti eru Sóley Theódórs- GUÐMUNDUR Sigurjóns- son samdi um jafntefli við Bukic frá Júgóslavíu eftir aðeins 11 leiki í 4. umferð skákmótsins í Hollandi í gærkvöldi. Guðmundur hafði svart. 1 þriðju umferð gerði Guðmundur jafntefli við Martz frá Bandaríkjunum. Skák þeirra var mjög stutt og engin barátta í henni að sögn fréttaritara Mbl. á mótinu. Guðmundur er nú í 3. til 7. sæti í sínum flokki með 2'A vinning ásamt Portisch (bróður ung- verska stórmeistarans alkunna, sem teflir f stórmeistaraflokknum á mótinu), Ciocaltea frá Rúmen- íu, Ligterink frá Hollandi og Sznapik frá Póllandi. Rússinn Dvorecki og Pólverjinn Schmidt eru efstir f þessum dóttir, Aslaug Kristinsdóttir og Ásta Gunnsteinsdóttir með 3 vinninga. Næstu tvær umferðir verða tefldar á fimmtudaginn. I unglingaflokki er teflt á laugardögum. Þar hefur Jóhann Hermannsson tekið forystu f A- flokki með 6 vinninga og í B- flokki er Jóhann Jónsson efstur með 5 vinninga. flokki með 3'A vinning hvor. Weinstein frá Bandarfkjunum og Vadasz frá Ungverjalandi eru í 8. til 9. sæti með 2 vinninga. I stórmeistaraflokki eru Browne, Sosonko, Portisch og Kavalek efstir með 3 vinninga hver en Donner, Timman og Hort fylgja fast á eftir með 2lA vinning hver. Mörgum skákum í 4. umferð lauk með jafntefli og margar fóru í bið. 1 stórmeistaraflokki sigraði Kavalek Langeweg og í meistara- flokki sigraði Timman Ligterink, Sznapik Enklaar og Weinstein Ek. 1 stórmeistaraflokki sigraði Browne Popov f biðskák úr 3. umferð. 1 meistaraflokki sigraði Ciocaltea Timman og Ligterink Schmidt í biðskákum úr 3. um- ferð. Biðskákir verða tefldar á morgun, laugardag, en 5. umferð verður tefld á sunnudag. Sjálfstæðisfélögin: Formanna- fundur í dag FUNDUR formanna sjálfstæðis- félaganna f Reykjavfk verður haldinn á vegum Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í dag, laug- ardag kl. 13.30 f Miðbæ við Háaleitisbraut. Meginviðfangs- efni fundarins verður að ræða um þau félagslegu og pólitfsku verk- efni, sem framundan eru f starfi sjálfstæðisfélaganna f Reykjavfk á næstu mánuðum og að sama skapi að stuðla að þvf að sam- ræma starfsemi félaganna, eftir þvf sem tök eru á. Gunnar Helgason, formaður Fulltrúaráðsins, mun f upphafi fundarins flytja inngangsorð og sfðan munu formenn félaganna gera grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi þeirra. Fundu loðnu út af Dalatanga Þorsteinn fékk 80 lestir „LOÐNAN stóð djúpt í nótt er leið, en margir bátanna köstuðu nokkrum sinnum, en fengu Iftið, vegna þess hve djúpt hún stóð, sagði Jakob Jakobsson, leið- angursstjóri á Arna Friðrikssyni, þegar Mbl. hafði samband við hann f gær. Hann sagði að á milli 20 og 25 skip væru nú komin á miðin og hefðu bátarnir verið á veiðum um 60 mílur austur af Glettinganesi annars vegar og hins vegar 30—40 mflur norður af því svæði. Bezti aflinn, sem vitað var um eftir nóttina, voru 80 lestir, sem Þorsteinn RE hafði fengið. Jakob Jakobsson sagði, að þeir á Arna hefðu f gær haldið suður með Austfjörðum og á móts við Dalatanga hefðu þeir fundið margar góðar torfur. Þær stóðu þá djúpt, en Jakob átti von á, að þær lyftu sér með kvöldinu og gerði sér vonir um afla, enda veður ágætt. Dræmar söl- ur í Grimsby Skuttogarinn Karlsefni frá Reykjavík seldi 169 lestir af fiski í Grímsby í gær fyrir 42.600 pund eða 11.9 millj. kr. ísl. Meðalverðið var kr. 70.14. Þá seldi skuttogar- inn Dagný frá Siglufirði þar f fyrradag 187 lestir, bæði heil- frystan og ísaðan fisk fyrir 54.900 pund eða 15.3 millj. kr. Eftir þessum tveimur sölum að dæma, er markaðurinn í Bret- landi nú fallandi, öfugt við það sem menn áttu von á, því sagt er að fiskskortur sé nú mikill á markaðnum. Jafntefli enn hjá Guðmundi Utanaðkomandirafvirkjar sitja fyrir vinnu í Neskaupstað Málið litið alvarlegum augum, segir Árni Brynjólfsson hjá Félagi ísL rafverktaka Þegar endurreisnarstarfið 1 Neskaupstað hófst, fljótlega eftir snjóflóðið, með þvf að koma frystihúsinu þar og niðurlagningarverksmiðjunni f gang á ný, áttu flestir von á þvf að rafverktökum f Neskaupstað yrði falið þetta verk, en það varð ekki raunin, og hafa þeir ekki haft þarna vinnu nema að litlu leyti. TII starfsins voru ráðnir m.a. 4 rafvirkjar frá Rafafl f Kópavogi. Félag lög- giltra rafverktaka hefur nú fengið þetta mál til athugunar og sagði Arni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri félagsins, f gær að þetta væri litið mjög alvarlegum augum. Arni sagði, að það hefði verið stefna félagsins frá upphafi, að rafverktakar á hverjum stað sætu að þeim verkefnum, sem til féllu f þeirra heimabyggð, og ef þeir hefðu ekki nægan mannafla, ættu þeir sjálfir að ráða til sfn menn, helzt frá sama sambandssvæði, sem f þessu tilfelli er Austurland, en ef það væri ekki hægt þá t.d. frá Reykjavfk eða annarsstaðar að af landinu. Sagði hann að þetta væri gert með þvf hugar- fari, að þegar um svona stór- framkvæmdir væri að ræða, þá fengju heimamenn veltuna f sfnar hendur og gætu byggt þá jafnvel byggt upp sfn fyrirtæki, en ekki að láta einhverja utan- aðkomandi menn fleyta rjómann af kökunni og hlaupa sfðan burt. „Þetta ættu Aust- firðingar að muna, frá því á sfldarárunum, en þá komu að- komumenn á fót alls konar rekstri og hlupu sfðan f brott, þegar hallaði undan fæti.“ — Okkur hjá Félagi lög- giltra rafverktaka finnst að með þessu sé stjórn Sfldar- vinnslunnar að ganga gróflega fram hjá heimamönnum, enda hefðu þeir fyllilega getað út- vegað rafvirkja til starfa sjálfir og þá frá öðrum stöðum á Austurlandi. Þvf miður virðist hér hafa verið um að ræða hreina pólitfska ráðstöfun.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.