Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1975 3 Jóhannes Snorrason, formaður rannsóknarnefndar flugslysa; Snarpir sviptivindar á þeim slóðum sem þyrluslysið varð Framhald af bls. 1 flugslysinu. Mbl. hitti Hjalta aö máli í Hjarðarnesi. Hann skýrði svo frá: „Við vorum að koma frá Reykjavík með olíu á bæina á Kjalarnesi. Þegar við erum ný- komnir yfir Tíðaskarð varð okkur litið til vinstri niður að sjónum. Við sáum þá þyrluna í loftinu, líklega í um 200 metra hæð, og virtist okkur hún vera yfir sjón- um, rétt utan við flæðarmál. Við veittum því strax athygli að ekki var allt með felldu og vélin jafn- vel stjórnlaus og þvl hægðum við á bílnum og stöðvuðum hann loks og fylgdumst með því sem gerðist. Okkur virtist sem vélin svifi aft- urábak inn yfir landið, með stélið á undan. Hún lækkaði ört flugið en virtist ekki ókyrr I loftinu fyrr en skömmu áður en hún skall á jörðina, en þá fór stélið að ganga upp og niður. Það var töluverð ferð á vélinni þegar hún skall á jörðina og hún varð alelda um leið, og eldstólpi steig upp til him- ins. Við beygðum strax niður að Hjarðarnesi til að komast í síma og síðan fórum við út að vélinni, en það var ekkert hægt að gera. Ég gizka á, að heil mínúta hafi liðið frá því við sáum vélina og þar til hún skall á jörðina. Við heyrðum ekki I þyrlunni vegna þess að bíllinn hjá okkur gekk I hægagangi, en okkur sýndist spaðar þyrlunnar snúast af full- um krafti eins og ekki væri dautt á mótornum." Enga björg hægt að veita Hjónin Jósef Kristjánsson og Sigriður BoðvarsdOttir. Ingunn Bjönsdóttir eru nýlega flutt til Hjarðarness. Þau stunda þar ekki búskap, heldur sækja þau bæði vinnu til Álafoss. Þau unnu bæði frameftir kvöldið áður og voru þvl sofandi þegar atburð- urinn gerðist. Jósef skýrði þajtnig frá I samtali við blm. Mbl.: „Við vorum sofandi inni I bæþegar við vöknuðum við sprenginguna. Ég veit ekki hvort það er ímyndun eða ekki, en mér fannst sem húsið titraði. Við hlupum út að gluggan- um og sáum þá eldstólpann. Við vissum að sjálfsögðu ekki hvað hafði gerst, en ég dembdi mér strax I fötin og hljóp að slysstaðn- um, sem er I um hálfs kílómetra fjarlægð frá bænum. Þyrlan var þá alelda og ekkert hægt að gera og ég gat ekkert lífsmark séð. Ég hljóp því strax heim aftur og hringdi á Brúarland og lét vita um atburðinn." Slökkvilið Reykjavíkur fékk fyrst vitneskju um atburðinn, og lét hún lögregluna þegar vita. Frá slökkviliðinu fóru sjúkra og slökkvibílar strax af stað upp á Kjalarnes og einnig fóru bílar frá lögreglunni I Reykjavík og Hafn- arfirði. Var búið að slökkva eld- inn upp úr kl. 11,30. Þá komu einnig á staðinn menn frá Loft- ferðaeftirlitinu og rannsóknar- nefnd flugslysa. Tóku þeir mynd- ir af vettvangi og gerðu uppdrætti og einnig tóku þeir lýsingu sjón- arvotta upp á segulband. Þá tóku þeir hluti úr vélinni með til Reykjavíkur. Þá gerði rannsókn- arlögreglan I Hafnarfirði einnig athuganir á vettvangi. Menn frá Flugbjörgunarsveitinni komu á staðinn, og fluttu þeir lík þeirra sem fórust til Reykjavíkur. Jóhannes Snorrason, formaður rannsóknarnefndar flugslysa, sagði I samtali við Mbl. I gær- kvöldi, að rannsókn nefndarinnar væri á frumstigi, og á þessu stigi væri ekkert ákveðið hægt að segja um hugsanlega orsök slyssins. Bersýnilegt hafi verið, að flug- skilyrði á þessumslóðumhafi ver- ið léleg, mikil ókyrrð I loftinu og snarpir sviptivindar. Svo virðist, sem þyrlan hafi verið orðin stjórnlaus rétt áður en hún hrap- aði, hvort sem það stafaði af þess- um slæmu flugskilyrðum eða ein- hverju öðru. Förin í tvennum tilgangi. Að sögn Sigurðar Lárussonar, starfsmannastjóra Rafmangs- veitna ríkisins, var þyrlan á leið til Vegamóta á Snæfellsnesi er slysið varð. Förin var farin 1 tvennum tilgangi — annars vegar voru forráðamenn Þyrluflugs að kynna yfirmönnum Rarik hina nýju þyrlu sína og hins vegar hugðust yfirmenn Rarik líta á framkvæmdir á vegum Rarik á Vegamótum. Þar er verið að leggja línu milli Vegamóta og Stykkishólms og að sögn Sigurðar var Sigurbjörg Guðmundsdóttir með I þessari ferð, þar eð hún ætlaði að taka við ráðskonustörf- um á Vegamótum fyrir flokk linu- manna og þeirra starfsmanna Rarik sem vinna nú að þvl að reisa nýja spennistöð á Vegamót- um. Þannig var umhorfs á slysstað. Þetta er þyrlan sem fórst. Myndin er tekin í Bandarfkjunum. Hún var blá og hvft að lit. Hjalti Jóhannsson. 1 baksýn má sjá Gými Guðlaugsson. Leifar þyrlumótorsins. Allt brann til kaldra kola. Þyrluslysið: 2 menn hœttu við að fara á síðustu stundu A SÍÐUSTU stundu hættu tveir starfsmenn Rafmagnsveitna rfkisins við að fara með Sikorsky-þyrlunni, sem fórst á Kjalarnesi f gærmorgun. Upphaflega var áformað að Valgarð Thoroddsen, forstjóri Rafmagnsveitna ríkisins færi með þyrlunni. „Það var búið að binda þetta fastmælum og ég var meira að segja búinn að pakka niður skjólfötum I gær- kvöldi," sagði Valgarð I samtali við Morgunblaðið I gær. „En það var einhver beygur I konu minni og lagði hún fast að mér að fara ekki, svo að þegar ég varð var við þennan óhug I henni tilkynnti ég I morgun að ég væri hættur við að fara með.“ Baldri Helgasyni hjá Rarik var þá boðið að fara með þyrl- unni I stað Valgarðs, en hann afþakkaði boðið rétt áður en fara átti, þar sem hann taldi sig ekki geta komið þvf við vegna anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.