Morgunblaðið - 18.01.1975, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
KEUTERS
Albert
Schweitzer
Nú í vikunni var ein
öld liðin frá fæðingu Al-
berts Schweitzers, mann-
vinarins umdeilda, sem
afsalaði sér glæsilegum
vísindaframa og verald-
legum gæðum til að berj-
ast gegn sjúkdómum og
vesæld i Afríku.
Þessara tímamóta var
minnzt í Lambarene í
Gabon, á bökkum Ogowe-
árinnar, þar sem Schw-
eitzer hóf starf sitt fyrir
rúmum 60 árum, með því
að hafin var smíði nýs
sjúkrahúss með 150 rúm-
um.
Albert Schweitzer-
sjúkrahúsið í Lambarene
hafði verið gagnrýnt fyr-
ir að uppfylla ekki kröfur
heilbrigðiseftirlitsins og
fyrir að vera á eftir tím-
anum. Að lokinni ítar-
legri endurskoðun á
rekstrinum hefur því,
sem aflaga var komið,
verið kippt í lag, og við
sjúkrahúsið eru nú sér-
stakar barna-, sálfræði-,
tannlækna- og geislunar-
deildir.
Munnmælasögur höfðu
spunnizt um Schweitzer
löngu áður en hann lézt.
Aðdáendur hans litu á
hann sem nútíma dýr-
ling. Afrískir nágrannar
hans voru fullir lotning-
ar í hans garð. En á gam-
als aldri varð hann að
standa andspænis til-
raunum gagnrýnenda til
að niðurlægja allt hans
ævistarf. Hann varði
hálfrar aldar starfi til
líknar bágstöddum í Gab-
on, lézt fyrir tíu árum, og
er jarðsettur við sjúkra-
húsið í Lambarene.
Þótt Schweitzer yrði
tákn allra þeirra er helg-
uöu sig mannúðarmálum
og æðri hugsjónum,
skorti hann ekki gagn-
rýnendur. Sumir þeirra,
sem komu til Lambarene
síðustu æviár Schweitz-
ers, sögðu eftir á að
sjúkrahúsið væri óþrifa-
legt, að Schweitzer væri
andvígur allri tækniþró-
un, kæmi illa fram við
fjölskyldu sína og starfs-
lið, og liti niður á afríska
blökkumenn.
Gagnrýnendurnir
sögðu að loftleysi og raki
væru inni í sjúkrahúsinu,
sjúklingar svæfu þar á
rúmfjölum einum, og að
skepnur ráfuðu þar um
meðal sjúklinganna.
Brezki blaðamaðurinn
James Cameron sagði í
grein um heimsóknina
Dr. Albert Schweitzer á
nfræðisafmæli sfnu.
þangað: „Þar var ekkert
rennandi vatn annað en
regnvatn, ekkert gas,
engin skólpræsi, og ekk-
ert rafmagn, nema fyrir
skurðstofuna og plötu-
spilarann."
Sjálfur gerði Schweitz-
er ekkert til að bera
gagnrýnina til baka, en
haft var eftir honum að
gagnrýnendurnir hefðu
misskilið tilganginn, því
hann teldi að sjúkrahúsið
ætti að líkjast aðstöðu
sjúklinganna heima fyrir
í þorpum sínum, jafnvel
svo mikið að þar fengju
húsdýrin að ráfa milli
rúmanna.
Enn í dag er þeirri ráð-
stöfun Schweitzer fylgt
að nánustu ættingjar
sjúklinganna fylgi þeim
til sjúkrahússins, búi þar
með þeim, annist þá og
matreiði fyrir þá. Við
þetta er bæði unnt að
komast af með minna
starfslið, og einnig dreg-
ur það úr hræðslu sjúkl-
inganna við innilokun
hjá hvítum mönnum og
inntöku óþekktra lyf ja.
I dag er það viðurkennt
almennt að Schweitzer
hafi verið drottnunar-
gjarn í framkomu sinni
Lyfjagjöf í Lambarene.
gagnvart blökkumönn-
um. Sem dæmi má benda
á að enginn blökkumaður
varð læknir við sjúkra-
húsið. En benda ber á að
hann var aðeins barn síns
tíma á þessu sviði, og vel-
viljuð stjórnsemi hans
var aðeins dæmigerð
framkoma hvítra manna
í Afríku fyrir 50 árum.
Öllu þýðingarmeiri er þó
sú staðreynd að hann
helgaði sig af alhug bar-
áttunni fyrir því að bæta
lífskjör íbúanna á þess-
um slóðum.
Schweitzer fæddist í
Kaysersberg, skammt
fyrir sunnan Strasburg,
14. janúar 1875. Þrítugur
að aldri varð hann próf-
essor í guðfræði við há-
skólann í Strasbourg. Þá
var það að trúboðar
sögðu honum frá eymd-
inni í Afríku. Varpaði
hann þá öllu frá sér —
glæsilegri framtíð við há-
skólann og á tónlistar-
brautinni, og hóf átta ára
nám í læknisfræði.
Hann kom til Gabon,
sem þá var frönsk ný-
lenda, í fyrsta skipti árið
1913, þá 38 ára, og hóf
þar þetta nýja ævistarf. 1
fyrri heimsstyrjöldinni
handtóku Frakkar hann
þar sem hann var þýzku-
mælandi íbúi Elsass-
héraðs, en hann sneri á
ný til Lambarene árið
1924. Þar sem hann átti
jafnan við fjárskort að
stríða, ferðaðist hann
víða um heim og hélt fyr-
irlestra og tónleika. í síð-
ari heimsstyrjöldinni lok-
aðist algjörlega fyrir
fjárframlög frá Evrópu,
og mjög gekk á birgðirn-
ar í Lambarene. Hlupu
þá hjálparnefndir í
Bandaríkjunum undir
bagga og héldu stöð
Schweitzer gangandi. Ár-
ið 1949 fór hann mikla
sigurför til Bandaríkj-
anna, og árið 1952 hlaut
hann friðarverðlaun
Nobels.
1 dag annast Schweitz-
er-sjúkrahúsið um 250
sjúklinga á dag, og um
350—450 ættingja þeirra.
Þar starfa 25 þýzkir og
svissneskir læknar og
hjúkrunarkonur auk
fjölgandi starfsliðs Gab-
onbúa.
Ríkisstjórnin í Gabon
leggur fram fé til rekst-
ursins. Sjúkrahúsið, sem
hafizt var handa um að
reisa í vikunni, er byggt
fyrir fé frá Gabonstjórn
og hjálparstofnunum í
Bandaríkjunum.
Reksturskostnaður við
sjúkrahúsið nemur um 8
milljónum CFA-franka
(um 4 millj. króna) á
mánuði. Kemur það fé að
mestu frá söfnuðum mót-
mælenda í Sviss, Banda-
ríkjunum og Vestur-
Þýzkalandi.
Sumarbústaðaland til sölu 1 ha. i nágrenni Reykjavík- ur. Liggur að laek og aðgangur að vatni. Uppl. i sima 92-2798. Keflavik — Suðurnes Höfum á biðlista kaupendur að flestum stærðum og gerðum ibúða og einbýlishúsa. Skipti oft mögu- leg. Eigna- og verðbréfasalan, Hring- braut 90, Keflavík, simi 92-3222.
Til sölu Rafsuðuvél með Díselvél, Scout jeppi árg. 1964, flutningavagn fjögurra hjóla, ódýrt vegna utan- farar. Sími 21530, laug. og sunnud. frá kl. 12.00 báða dagana. Sandgerði Til sölu glæsileg 4ra herb. ibúð við Suðurgötu, losnar með vorinu. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns, simar 1263 og 2890 og heima 2376.
Ung stúlka óskar eftir lijilli ibúð strax, helzt i vesturbænum, eða nálægt mið- bænum. Simi 92-1331. Er kaupandi að gömlum og nýjum vörulagerum af fatnaði barna, unglinga, dömu og herra. Tilboð sendist Mbl. merkt „Fatnaður — 8560”.
Veitingar Húsnæði til veitingareksturs óskast strax. Upplýsingar í síma 81690. Til sölu Mercedes Benz 37 sæta fólks- flutningsbifreið. Vél 352. Góður bill i vinnuflokkakeyrzlu. Uppl. hjá Mosfellsleið H.F. simi 66435 og 33791.
Skattframtöl veiti aðstoð við framtöl og reikningsskil. Sími 53590 milli kl. 1 7.30. og 19. Ingvar Björnsson, héraðsdómslögmaður, Sléttahrauni 28, Hafnarfirði. Bændur — Hestamenn Tek hesta i tamningu. Pantið sem fyrst. Gjald kr. 13000 á mánuði. Uppl. i sima 99-6169. Skúli Steinsson, Miðdal, Laugar- dal.
Keflavik — Suðurnes Til sölu fullgert glæsilegt einbýlis- hús. í smíðum einbýlishús, raðhús og hæðir. Eigna- og verðbréfasalan, Hring- braut 90, Keflavik, simi 92-3222. Skattframtöl Veiti aðstoð við skattframtöl. Pantið tima sem fyrst. Haukur Bjarnason hdl. Bankastræti 6. Simar 1 5528 og 26675.
SNOW-TRAC
SNJÓBÍLAR
Útvegum með litlum fyrirvara hina vinsælu sænsku
snjóbila Snow-Trac og Trac-Master. Leitið nánari
upplýsinga.
Globusn
Lágmúla 5. Sími 81555
•Vtsinarkj'ötd
"MÍSmULl - Filitl Eipilll"
NÆSTKOMANDI SUNNUDAGSKVÖLD
19 JANÚAR í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU.
* KL. 19.00 HÚSIÐ OPNAÐ.
* KL. 19.30 VEIZLAN HEFST. —
VERÐ AÐEINS KR. 895 —
ic ALISVÍN, KJÚKLINGAR, SVALADRYKKUR
„SANGRIA" OG FLEIRA GÓÐGÆTI.
★ SÖNGUR — GLENS OG GAMAN.
★ MYNDASÝNING
★ SKEMMTIATRIÐI
ÍC FERÐABINGO — VINNINGAR 3 SPENNANDI
ÚTSÝNAR FERÐIR.
* DANS — HIN VINSÆLA HLJÓMSVEIT
HÚSSINS.
ATH. AÐ VEIZLAN HEFST STUNDVÍSLEGA OG
BORÐUM VERÐUR EKKI HALDIÐ EFTIR KL.
19.30.
NJÓTIÐ HINNAR FRÁBÆRU STEMMNINGAR
SEM RÍKIR Á. ÚTSÝNAR-KVÖLDUM.
TRYGGIÐ YKKUR BORÐ HJÁ YFIRÞJÓNI Á
FÖSTUDAG FRÁ KL. 1 5.00 í stma 20221.
VERIÐ VELKOMIN — GÓÐA SKEMMTUN
* »
FERÐASKRIFSTOFAN UTSYN