Morgunblaðið - 18.01.1975, Side 12

Morgunblaðið - 18.01.1975, Side 12
HeiisuræKt & morgunielkfimi 12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975 eftir VALDIMAR ÖRNÓLFSSON Er ekki rétt að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan í hann? f einu dagblaðanna um daginn var sú spurning lögð fyrir vegfar- endur. hvort þeir færu á skíði eða iðkuðu einhverjar íþróttir. Einn svaraði eitthvað á þá leið, að hann eyddi fristundum sinum ekki i svo- leiðis vitleysu. Skyldi það vera svo vitlaust sem þessi ágæti maður lætur i skina að æfa íþróttir? Hvernig stendur á þessum fjölda manna, jafn vel allt niður í þritugt. sem þjáist af hjarta og æðasjúkdómum. Hinir öru framfarir í tækni, sem gera okkur lifið léttara á margan hátt, eiga þvi miður sinn þátt í þeirri óheillavænlegu þróun, sem hefur verið i heilbrigðismálum a.m.k. þeirra þjóða, þar sem tækn- in hefur náð lengst. Frá náttúr- unnar hendi er mannslikaminn þannig gerður, að hann þarfnast áreynslu til þess að ná æskilegum þroska og til þess að hann starfi rétt. Rannsókn. sem gerð var á 500 stálheilbrigðum stúdentum, sem fengnir voru til þess að liggja i rúminu i tilraunaskyni I nokkrar vikur, sýnir vel, hvernig hreyfing- arleysið fer með mann. Við mæl- ingar, sem á þeim voru gerðar kom í Ijós, að vöðvarnir höfðu rýrnað ótrúlega mikið, hjartslátt- urinn var mun hraðari (sem gefur til kynna lakari starfsemi hjarta- vöðvans) og afkastagetan hafði minnkað á allan hátt. Það er einmitt þetta, sem því miður fylgir tækniþróuninni og öll- um þessum dásamlegu tækjum, sem eru að taka af okkur allt ómak og áreynslu. Og svo bætum við sjálf gráu ofan á svart með þvi að skikka börnin á skólabekk frá 7—17 ára án þess að tryggja það nema að litlu leyti, að þau fái nægilega hreyfingu og líkamsþjálfun svo að kyrrsetur við námið (bæði i skól- anum og heima) valdi þeim ekki skaða (t.d. hryggskekkju) og hindri beinlinis eðlilegan vöxt þeirra og þroskun innri M'ffæra (t.d. hjarta og æðakerfis). Tækniþróunin verður að sjálf- sögðu ekki stöðvuð og skólagang- an ekki heldur — enda ekkert vit i því. en það verður að gripa til allra góðra ráða til þess að koma i veg fyrir að þessir hlutir, tæknin og skólagangan. sem hvor tveggja á að vera manninum til góðs, valdi óbætanlegum skaða á heilsu við- komandi. Við verðum a.m.k. að gera það. sem i okkar valdi stend- ur til þess að ba gja hættunni frá. Það þaii ekki að leita langt yfir skammt til þess að ráða bót á hreyfingarleysinu. Að flestra dómi eiga kyrrsetur stóran þátt í sifellt vaxandi tiðni hjarta- og æðasjúk- dóma. jþróttir eru tilvalinn vett- vangur. Jafnvel einfaldar Itkams- æfingar og gönguferðir geta forð- að mörgum frá heilsutjóni, ef þær eru iðkaðar daglega Mikilvægast er, að menn hefji æfingar áður en þeir kenna sér nokkurs meins. En hvernig er ástandið í skól- unum? Fjölmargir skólar hafa enga íþróttasali og mjög erfiða aðstöðu á allan hátt til íþrótta- kennslu og líkamsræktar fyrir nemendur. Og i þeim skólum, þar sem aðstaða er góð, fá nemendur ekki nema 1 — 3 tima á viku til iþrótta. iþróttakennslan er látin sitja á hakanum, þó að það sé eina kennslugreinin, sem sinnir líkam- legri velferð barnanna. Það er þó skylda skólanna að hugsa um al hliða þroska æskunnar, likamlega sem andlega. Likamlega góð heilsa er undirstaða góðs náms- árangurs og starfsárangurs, enda verður efnið ekki skilið svo auð- veldlega frá andanum. Gleymum þvi heldur ekki, að helstu atvinnuvegir okkar þarfn- ast hraustra og vel þjálfaðra manna. Skólunum ber því að leggja mikla rækt við likamlegt uppeldi landsmanna, enda hvergi betri tök á þvi en þar til að ná til fjöldans. þar sem allir eru skyld ugir til þess að stunda skólanám á aldrinum 7—17 ára, einmitt á þeim aldri, sem líkamsþjálfun kemur að sem mestu gagni og bestum árangri verður náð i þrosk- un hjarta og æða. En það eru einmitt þau liffæri, sem eru í mestri hættu vegna þeirra breyttu lifnaðarhátta. sem tækniþróunin hefur haft í för með sér eins og áður er getið. Það verður þvi að gera gjörbylt- ingu i líkamsræktarmálum skól- anna, til þess að þeir geti innt af höndum þá skyldu, sem á þeim hvílir gagnvart likamsuppeldi æsk- unnar. Lágmarkskrafan er, að við aila skóla verði komið upp góðri aðstöðu til iþróttaiðkana, þar sem hana skortir enn, og að allir nemendur fái eina kennslustund á dag í likamsrækt. Það er dýrt að byggja Iþróttahús og sundlaugar, en það er enn þá dýrara að byggja sjúkrahús. Er ekki rétt að byrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan ! hann? Leikfimisæfingar Enn þá ein góð æfing fyrir mitti og mjaðmir: Fótlyftur með mjaðma- vindu: Baklega, hendur út frá öxlum, (Mynd 1). Hægri fæti lyft beint upp (Mynd 2) og látinn siga niður til vinstri I gólf (Mynd 3). Þá er fætinum lyft aftur beint upp og látinn siga fram og niður í upp- hafsstöðu (Mynd 1). Endurtakið sömu æfingu með vinstri fæti. Gerið æfinguna 5—8 sinnum með hvorum fæti fyrir sig i fyrstu og svo oftar með æfing- unni. Bakæfingar: 1) Bakfettur m. armteygju aftur: Legið á grúfu, spenntar greipar f. aftan bak (Mynd 4). Bol og höfði lyft eins hátt frá gólfi og unnt er, herðablöð dregin saman, armar teygðir aftur (Mynd 5). Ovalið í stöðunni nokkur andartök og svo sigið niður að gólfi og slakað á augnablik. Æfingin endurtekin 5— 10 sinnum eða oftar. 2) Bakfettur m. armt. út: Legið á grúfu, hendur undir höku (Mynd 6). Há fetta meðarm- teygju út og upp (Mynd 7). Æfingin endurtekin 5—10 sinn- um með smá hvildum á milli. 3) Bakfettur m. armteygjum f. og fótlyftum: Legið á grúfu, hendur undir höku (eins og á 6. mynd). Höndum og fótum lyft eins hátt frá gólfi og unnt er (Mynd 8). Dvalið í þeirri stöðu meðan talið er upp í 5 (eða lengur). Æfingin endurtekin 5 sinnum fyrst og svo oftar eftir getu hvers og eins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.