Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ; LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1975
19
2. Vaxtagjöld
Hér skal færa í kr. dálk mismunar-
tölu vaxtagjalda f C-iið, bls. 3, í
samræmi við leiðbeiningar um útfyll-
ingu hans.
3. a. og b. Greitt iðgjald
af lífeyristryggingu
Færa skal i a-lið framlög framtelj-
anda sjílfs en i b-lið framlög eigin-
konu hans til viðurkenndra lifeyris-
sjóða eða greidd iðgjöld af lifeyris-
tryggingu til viðurkenndra vátrygg-
ingarfélaga eða stofnana. Nafn lif-
eyrissjóðsins, vátryggingarfélagsins
eða stofnunarinnar færist i lesmáls-
dálk.
Reglur hinna ýmsu tryggingaraðila
um iðgjöld eru mismunandi og frá-
dráttarhæfni iðgjaldanna þvi einnig
mismunandi hjá framteljendum. Er
þvi rétt að framteljandi leiti upplýs-
inga hjá viðkomandi tryggingaraðila
eða skattstjóra ef honum er ekki
fullkomlega Ijóst hvaða upphæð
skuli færa hér til frádráttar.
4. Iðgjald af lífsábyrgð
Hér skal færa greitt iðgjald af lif-
tryggingu. Hámarksfrádráttur er
34.730 kr. (Rétt er þó að rita í
lesmálsdálk raunverulega greidda
fjárhæð ef hún er hærri en hámarks-
frádráttur).
/ |
5. Stéttarfélagsgjald
Hér skal færa iðgjöld sem launþegi
greiðir sjálfur beint til stéttarfélags
síns, sjúkrasjóðs eða styrktarsjóðs,
þó ekki umfram 5% af launatekjum.
5. Greitt fæði á
sjó......dagar.
Hér skal rita sama dagafjölda og
Aflatryggingarsjóður greiddi hlut-
deild í fæðiskostnaði framteljanda.
Síðan skal margfalda þann daga-
fjölda með tölunni 64 og færa út-
komu í kr. dálk.
Greiðslur Aflatryggingarsjóðs til
útvegsmanna upp i fæðiskostnað
skipverja á bátaflotanum skal fram-
teljandi hvorki telja til tekna né frá-
dráttar.
Hafi Aflatryggingarsjóður ekki
greitt framlag til fæðiskostnaðar
framteljanda á þilfarsbát undir 12
rúmlestum, opnum bát eða bát á
hrefnu- eða hrognkelsaveiðum skal
margfalda fjölda róðrardaga með töl-
unni 250 og færa útkomu I kr. dálk.
7. Sjómannafrádr. miðaður
við sJysatryggingu hjá
útgerðinni . . . vikur.
Sjómaður, lögskráður á íslenskt
skip, skal rita hér þann vikufjölda
sem hann var háður greiðslu slysa-
tryggingariðgjalda hjá útgerðinni,
enda ráðinn sem sjómaður. Ef vik-
urnar voru 26 eða fleiri skal marg-
falda vikufjöldann með tölunni 3834
og færa útkomu I kr. dálk. Hafi
vikurnar verið færri en 26 skal marg-
falda vikufjöldann með tölunni 523
og færa útkomu í kr. dálk.
Hlutaráðnir menn skulu og njóta
sama frádráttar þótt þeir séu eigi
lögskráðir, enda geri útgerðarmaður
fulla grein fyrir hvernig hlutaskiptum
er farið og yfir hvaða timabil laun-
þegi hefur tekið kaup eftir hluta-
skiptum.
8. 8% af beinum tekjum sjó-
manns eða hlutaráðins land-
manns af fiskveiðum.
Hér skal færa 8% af beinum
tekjum sjómanns af fiskveiðum á
fslenskum fiskiskipum, þ.m.t. hval-
veiðiskipum. Sama gildir um beinar
tekjur hlutaráðins landmanns af fisk-
veiðum. Sjómaður, sem jafnframt er
útgerðarmaður fiskiskipsins, skal
njóta þessa 8% frádráttar af hrein-
um tekjum fiskiskipsins af fiskveið-
um eða hlut, hvort sem lægra er.
Þessi frádráttur reiknast ekki af
öðrum tekjum sem sjómaður eða
hlutaráðinn landmaður kann að hafa
frá útgerðinni.
9. 50% af launum eiginkonu.
Hér færast 50% þeirra launa eigin-
konu, sem talin eru I tölulið 12, III,
enda hafi hún aflað þeirra sem laun-
þegi hjá vinnuveitanda sem á engan
hátt er tengdur henni, eiginmanni
hennar eða ófjárráða börnum
rekstrarlega eða eignarlega. Sama
gildir um laun, sem eiginkonan
hefur aflað sem launþegi hjá hluta-
félagi, þótt hún, eiginmaður hennar
eða ófjárráða börn eigi eignar- eða
stjórnaraðild að hlutafélaginu. enda
megi ætla að starf hennar hjá hluta-
félaginu sé ekki vegna þessara að-
ilda.
10. Frádráttur vegna starfa
eiginkonu við atv.r. hjóna
o.fl.
Hér færast 50% eftirtalinna tekna
eiginkonu, þó að hámarki 134.025
kr.
1. Tekna af atvinnurekstri, sem
hún vinnur við og er i eigu hennar,
eða af sjálfstæðri starfsemi sem hún
rekur.
2. Tekna vegna starfs við atvinnu-
rekstur eða sjálfstæða starfsemi
eiginmanns hennar.
3. Launa vegna starfs við atvinnu-
rekstur eða sjálfstæða starfsemi
ófjárráða barns (barna) hjónanna.
4. Hluta hennar af tekjum af sam-
eiginlegum atvinnurekstri eða sjálf-
stæðri starfsemi hjóna. metins
miðað við beint vinnuframlag hennar
við öflun teknanna.
5. Launa fra sameignarfélagi sem
hjónin eða ófjárráða börn þeirra eru
aðilar að eða hlutafélagi, enda megi
ætla að starf hennar hjá hlutafélag-
inu sé vegna eignar- eða stjórnar-
aðildar hennar. eiginmanns hennar
eða ófjárráða barna.
11. Sjúkra- eða slysadagpen
ingar
Hér skal færa sjúkra- eða slysa-
dagpeninga frá almannatryggingum,
sjúkrasamlögum og sjúkrasjóðum
stéttarfélaga sem jafnframt ber að
telja til tekna f tölulið 9, III.
12. Annar frádráttur
Hér skal færa þá frádráttarliði sem
áður eru ótaldir og heimilt er að
draga frá tekjum. Þar til má nefna:
(1) 50% af hreinum tekjum barns
hafi þær numið 37750 kr. eða lægri
fjárhæð, sjá nánar f leiðbeiningum
um útfyllingu E- og F-liða, bls. 4.
(2) Afföll af seldum verðbréfum
(sbr. A-lið 12. gr. laga).
(3) Ferðakostnað vegna langferða
(sbr. c-lið 12. gr. laga).
(4) Gjafir til menningarmála, vls-
indalegra rannsóknarstofnana,
viðurkenndrar líknarstarfsemi og
kirkjufélaga (sbr. D-lið 12. gr. laga).
Skilyrði fyrir frádrætti er að framtali
fylgi kvittun frá stofnun. sjóði eða
félagi sem rfkisskattstjóri hefur veitt
viðurkenningu skv. 36. gr. reglu-
gerðar nr. 245/ 1963.
(5) Kostnað við öflun bóka, tlma-
rita og áhalda til vlsindalegra og
sérfræðilegra starfa, enda sé þessi
kostnaðarliður studdur fullnægjandi
gögnum (sbr. E-lið 12. gr. laga).
(6) Frádrátt frá tekjum hjóna, sem
gengið hafa I lögmætt hjónaband á
árinu, 127.897 kr.
(7) Frádrátt v/björgunarlauna (sbr.
B-lið 13. gr. laga).
(8) Frádrátt einstæðs foreldris, er
heldur heimiii fyrir börn sin,
144.960 kr., að viðbættum 16.610
kr. fyrir hvert barn.
(9) Námsfrádrátt meðan á námi
stendur skv. mati rfkisskattstjóra.
Tilgreina skal nafn skóla og bekk.
Nemandi, sem náð hefur 20 ára
aldri, skal útfylla þar til gert eyðu-
blað um námskostnað óski hann
eftir að njóta réttar til frádráttar
námskostnaðar að námi loknu, sbr.
næsta tölulið.
(10) Námskostnað sem stofnað
var til eftir 20 ára aldur og veitist til
frádráttar að námi loknu, enda hafi
framteljandi gert fullnægjandi grein
fyrir kostnaðinum á þar til gerðum
eyðublöðum (sbr. E-lið 13 gr. laga).
(11) Afskrift heimæðargjalds
v/hitaveitu, heimtaugargjalds v/raf-
magns og stofngjalds v/vatnsveitu I
eldri byggingar 10% á ári næstu 10
árin eftir að hitaveita, raflögn eða
vatnslögn var innlögð (tengd).
Ofangreind stofngjöld vegna inn-
lagna (tenginga) i NÝBYGGINGAR
teljast með byggingakostnaði og má
ekki afskrifa sérstaklega.
Um útfyllingu
stafliða A—G.
A-liður, bls. 3.
a. Eignfærsla.
í þessum staflið framtals ber
þeim sem ekki eru bókhatdsskyldir
að sundurliða eins og þar segir til um
allar framtalsskyldar og skattskyldar
innstæður I bönkum, sparisjóðum og
löglegum innlánsdeildum félaga, sbr.
ákvæði 21. gr. skattalaganna, svo
og verðbréf sem hlíta framtalsskyldu
og skattskyldu á sama hátt skv.
sérstökum lögum. Þessar tegundir
eigna eru framtalsskyldar og skatt-
skyldar til jafns við skuldir framtelj-
anda Og ber að tilgreina upphæð
hverrar eignar I dálkunum „Upphæð
kr. með vöxtum". Til skulda I þessu
sambandi teljast þó ekki eftirstöðvar
fasteignaveðlána að hámarki
1.060.000 kr. ef þau voru tekin til
10 ára eða lengri tima og sannan-
lega notuð til að afla fasteigna eða
endurbæta þær. Hafi framteljandi
einungis talið framtalsskylda og
skattskylda eign I þessum staflið ber
að færa samtölu slikra eigna i linuna
„Skattskyldar innstæður, verðbréf
og vextir. . . alls kr." og færa upp-
hæðina siðan í kr. dálk töluliðar 7, I,
(Inneignir) i framtali. Hafi framtelj-
andi hins vegar talið fram allar um-
ræddar eignir sinar i þessum staflið
ber að færa samtölu þeirra i þar
greindan reit en draga þar frá upp-
hæð skattfrjálsra eigna (þ.e. þær
eignir sem eru umfram aðrar skuldir
skv. C-lið en áður umrædd fasteigna-
veðlán) og færa mismun (þ.e. upp-
hæð jafna öðrum skuldum en áður
umræddum fasteignaveðlánum) i þar
til gerðan reit fyrir skattskyldar eign-
ir og færa upphæðina einnig í kr.
dálk, tölulið 7, I, (Inneignir) i fram-
tali.
b. Vaxtafærsla.
Þeim sem ekki eru bókhaldsskyld-
ir ber að sundurliða reiknaðar,
greiddar og gjaldfallnar vaxtatekjur
af framtalsskyldum og skattskyldum
eignum skv. a-lið og tilgreina vaxta-
tekjurnar i dálknum „Vaxtatekjur
kr.". (Um áfallnar vaxtatekjur, sjá
sameiginlegar leiðbeiningar um út-
fyllingu A-, B- og C-liða.) Enn fremur
skal tilgreina skattskylda vexti af
útteknum innstæðum og innleystum
verðbréfum á árinu. Hafi framtelj-
andi einungis talið skattskylda eign
og skattskyldar vaxtatekjur þar af i
þessum staflið ber að færa samtölu
vaxta i kr. dálk linunnar „Skatt-
skyldar innstæður. verðbréf og vext-
ir. . . alls kr ". Um innfærslu vaxta í
tölulið 4, III, visast til leiðbeininga
um útfyllingu B-liðar framtals. Hafi
framteljandi hins vegar talið fram
allar framangreindar eignir sinar ber
einnig að færa i dálkinn „Vaxtatekj-
ur kr." alla reiknaða, greidda og
gjaldfallna vexti af þessum eignum
en draga siðan frá skattfrjálsa vexti
miðað við hlutfall skattfrjálsra eigna
og færa niðurstöðu i kr. dálk skatt-
skyldra vaxta. Um innfærslu vaxta í
tölulið 4, III, visast til leiðbeininga
um útfyllingu B-liðar.
c. Bókhaldsskyldir aSilar.
Bókhaldsskyldum aðilum ber að
færa allar áður umræddar eignir og
vexti af þeim i bækur sinar og árs-
reikninga, sbr. 3. mgr. 21. gr.
skattalaganna, en um framtals-
skyldu og skattskyldu þessara eigna
og vaxtatekna af þeim vísast til síð-
ustu málsgreinar 1. töluliðar I. kafla
og 4. og 5. málsgreinar 1. töluliðar
III. kafta leiðbeininganna.
B-liður, bls. 3.
f þessum staflið framtals ber að
sundurliða eins og þar segir til um
allar verðbréfaeignir sem ekki bar að
telja fram skv. A-lið (vixlar teljast
verðbréfaeign) þótt geymdar séu i
bönkum eða séu þar til innheimtu.
Enn fremur allar útistandandi skuld-
ir, stofnsjóðsinnstæður, inneignir i
verslunarreikningum o.fl. að með-
töldum ógreiddum vöxtum og færa i
dálkinn „Upphæð kr.". Samtölu
þessara eigna skal siðan færa i tölu-
lið 9, I, (Verðbréf o.s.frv.) i framtali.
I dálknum „Vaxtatekjur kr." ber
að tilgreina allar reiknaðar, greiddar
og gjaldfallnar vaxtatekjur af þess-
um eignum og sams konar eignum
sem innleystar hafa verið á árinu.
(Um áfallnar vaxtatekjur, sjá sam-
eiginlegar leiðbeiningar um útfyll-
ingu A-, B- og C-liða.) Samtölu þess-
ara vaxtatekna. ásamt samtölu
skattskyldra vaxtatekna skv. A-lið en
að frádregnum vaxtatekjum af stofn-
sjóðsinnstæðum, ber að færa i þar til
gerðan reit i B-lið og færa siðan
upphæðina í tölulið 4, III, (Vaxtatekj-
ur) i framtali.
C-liðir, bls. 3.
í þessum staflið framtals ber að
sundurliða eins og þar segir til um
allar skuldir i árslok og færa upphæð
þeirra i dálkinn „Upphæð kr." og
merkja með X, ef við á. Enn fremur
ber að færa hér skuldir umfram eign-
ir skv. efnahagsreikningi, sbr. síð-
ustu mgr. 1. töluliðar I. kafla leið-
beininganna. Samtölu skulda skal
GJALD-
IEIMTAN
siðan færa i tölulið II i framtali.
i dálknum „Vaxtagjöld kr." ber að
tilgreina öll greidd og gjaldfallin
vaxtagjöld af tilgreindum skuldum
svo og af skuldum sem greiddar hafa
verið upp á árinu og færa niðurstöðu
dálksins í línuna „Skuldir alls og
vaxtagjöld alls kr." en frá þessari
niðurstöðu ber að draga heildarupp-
hæð þeirra vaxtagjalda sem hér hafa
verið tilgreind en eru jafnframt færð
á rekstraryfirlit skv. tekjuliðum 1 og
2, III, I framtali. Mismun þessara
upphæða ber að færa i linuna
„Vaxtagjöld, mismunur kr." og
sömu upphæð skal síðan færa i tölu-
lið 2, V, (Vaxtagjöfd) í framtali. (Um
áfallin vaxtagjöld, sjá sameiginlegar
leiðbeiningar um útfyllingu A-, B- og
C-liða.)
A-, B- og C-liSir, bls. 3. —
Sameiginlegar leiSbeiningar.
Um áfatlna vexti.
i stað þess að telja vexti til tekna
og frádráttar eins og þeir eru reikn-
aðir, greiddir og gjaldfallnir á árinu,
sbr. leiðbeiningar um einstaka staf-
liði A, B og C, er heimiit að reikna til
tekna og frádráttar áfallna vexti á
árinu þótt eigi séu gjaldfallnir. Sé
það gert ber að fylgja sömu reglu um
ákvörðun allra vaxtatekna og vaxta-
gjalda, þ.m.t. forvextir af vixlum og
öðrum skuldum. Það er því eigi
heimilt að fylgja þessari reglu við
ákvörðun vaxtagjalda en ekki vaxta-
tekna eða við ákvörðun vaxtagjalda
af sumum skuldum en ekki öllum.
Einnig ber að telja til eignar i viðeig-
andi stafliðum áfallnar en ekki gjald-
fallnar vaxtatekjur i árslok en til
skulda í staflið C, áfallin en ekki
gjaldfallin vaxtagjöld. Frá víxil-
skuldum og öðrum skuldum ber að
draga þann hluta forvaxta sem ekki
telst áfallinn í árslok en til vaxta-
gjalda einungis þann hluta þeirra
sem fallinn er á i árslok 1 974.
Hafi framteljandi i framtali sinu
árið 1974 fylgt reglunni um reikn-
aða, greidda og gjaldfallna vexti get-
ur hann nú í framtafi ársins 1975
skipt yfir til reglunnar um áfallna
vexti. Ber honum þá i fyrsta lagi að
tilgreina til tekna og frádráttar alla
reiknaða, greidda og gjaldfallna
vexti á árinu 1974 og i öðru lagi að
tilgreina til tekna og frádráttar,
eigna og skulda áfallna en ekki
gjaldfallna vexti til ársloka 1974. Á
sama hátt ber þeim framteljendum
sem færðu áfallna en ekki gjaldfallna
vexti af hluta eigna eða skulda í
framtali sinu 1974 að leiðrétta fram-
talningu vaxta í framtali ársins 1975
á þann hátt að fulls samræmis gæti i
meðferð vaxta bæði til tekna og
frádráttar.
D-liður, bls. 4.
f þessum staflið framtals ber að
gera grein fyrir byggingu, viðbygg-
ingu, breytingum og endurbótum
fasteigna með tilvisun til húsbygg-
ingarskýrslu sem fylgja skal framtali.
(Eyðublöð fást hjá skattyfirvöldum.)
Enn fremur skal gera þar grein fyrir
kaupum og sölum fasteigna bifreiða
skipa, véla, verðbréfa og hvers konar
annarra verðmætra réttinda. Einnig
ber að tilgreina þar greidd sölulaun,
stimpilgjöld og þinglesningarkostnað
svo og afföll af seldum verðbréfum.
Enn fremur ber að tilgreina sölu-
hagnað af eignum og skattskyldan
hluta hagnaðar af sölu eigna sem ber
að færa sem tekjur i tölulið 13, III, i
framtali, nema framteljandi hafi
heimild til og vilji nota heimildir 4.
og II. mgr. E-liðar 1. mgr. 7. gr. laga
nr. 68/1971, sbr. 4. tl. 3. gr. laga
nr. 7/1972, um frestun á skattlagn-
ingu skattskylds hluta söluhagnaðar
eigna. Kjósi hann það skal hann geta
þess i þessum staflið framtals en
ekki færa upphæðina i tölulið 13, III,
i framtali (4. mgr., sbr. 4. tl. 3. gr.
laga nr. 7/1972, varðar eingöngu
frestun ákvörðunar um skattskyldu
söluhagnaðar af íbúðarhúsnæði)
E-liður, bls. 4.
Í þessum staflið framtals ber að
gera grein fyrir eignum og tekjum
barns (barna), yngri en 16 ára, eins
og þar segir til um. Nafngreina ber
eignir barnsins (barnanna hvers um
sig) í viðeigandi tínu og reit og til-
greina upphæð eignar með vöxtum i
dálknum „Eignir kr." og vaxtatekjur
eða aðrar tekjur (t.d. arð eða leigu-
tekjur) af eigninni i dálknum „Tekjur
kr ". Nafngreina ber vinnuveitanda
barnsins (barnanna hvers um sig) i
viðeigandi linu og reit og tilgreina
upphæð greiddra launa i peningum
og hlunnindum (sbr. 6. og 7. tölulið
III. kafta leiðbeininganna) í dálknum
„Tekjur kr.". Siðan ber að færa nið-
ur samtölu allra eigna og tekna
barnsins (barnanna), draga þar frá i
þar til gerðri linu og reitum skatt-
frjálsar innstæður og verðbréf og
vexti af þeim, en þar er um að ræða
sams konar eignir og vexti og rætt
var um í A-lið leiðbeininganna, og
færa síðan skattskyldar eignir og
tekjur barnsins (barnanna) i viðeig-
andi linu og reiti. Heildarupphæð
skattskyldra eigna ber síðan að færa
i tölulið 10, I, (Eignir barna) i fram-
tali. Óski framteljandi þess að eignir
barna, eins eða fleiri, séu ekki taldar
með sínum eignum skal sleppt að
færa þann hluta eignanna i greindan
tölulið en geta þess sérstaklega í
G-lið framtals, bls. 4, að það sé ósk
framteljanda að barnið verði sjálf-
stæður eignarskattsgreiðandi. Heild-
arupphæð skattskyldra tekna ber að
færa i tölulið 11, III, (Tekjur barna) i
framtali.
r l»8ur, bls. 4.
Stundi barn, sem hefur skattskyld-
ar tekjur skv. E-lið framtals, nám
sem veitir rétt til námsfrádráttar
skv. mati rikisskattstjóra, ber að til-
greina nafn barnsins, skóla og bekk
eða deild i F-lið. Í dálkinn „Námsfrá-
dráttur eða hámarksfrádráttur kr."
ber að færa upphæð námsfrádráttar
skv. mati rikisskattstjóra eða upp-
hæð skattskyldra tekna barnsins,
hvora sem lægri er. Sé upphæð
skattskyldra tekna barnsins (hvers
barns um sig) hærri en upphæð
námsfrádráttar og mismunurinn
HÆRRI EN 37.750 KR. getur fram-
teljandi óskað sérsköttunar á tekjum
barnsins. Skal hann þá færa i dálk-
inn „Viðbótarfrádráttur vegna óskar
um sérsköttun barns kr." þá upphæð
mismunarins sem er umfram 37.750
kr. Siðan ber að færa niður frádrátt
samtals skv. báðum dálkum F-liðar,
leggja upphæðir beggja dálkanna
saman og færa heildarupphæð i tölu-
lið 2, IV, I framtali.
Nemi upphæð skattskyldra tekna
barnsins (hvers barns um sig) að
frádregnum námsfrádrætti 37.750
kr. eða lægri upphæð á framteljandi
rétt á frádrætti er nemur 50% af
mismunarupphæðinni. Þá upphæð
skal hann færa i tölulið 12, V, i
framtali.
G-li3ur, bls. 4.
Þessi stafliður framtalsins er sér-
staklega ætlaður fyrir athugasemdir
framteljanda. Þar skal m.a. geta
þess ef með framtali fylgir umsókn
um lækkun tekjuskatts (ívilnun) á
þar til gerðum eyðublöðum eða
framsett skriflega á annan fullnægj-
andi hátt. ívilnun getur komið til
greina vegna ellihrörleika, veikinda,
slysa, mannsláts eða skuldatapa sem
hafa skert gjaldþol framteljanda
verulega, vegna verulegs eignatjóns,
vegna framfærslu barna sem haldin
eru langvinnum sjúkdómum eða eru
fötluð eða vangefin, vegna fram-
færslu foreldra eða annarra vanda-
manna eða vegna þess að skattþegn
hefur látið af störfum vegna aldurs
og gjaldþol hans skerst verulega af
þeim sökum. Enn fremur getur
komið til greina ivilnun vegna veru-
legra útgjalda af menntun barns
(barna) framteljanda sem eldra er
(eru) en 16 ára. Eyðublöð með nán-
ari skýringum til notkunar i þessu
sambandi fást hjá skattyfirvöldum.
Þar er annars vegar um að ræða
umsóknareyðublað vegna mennt-
unarkostnaðar barna og hins vegar
vegna annarra framangreindra
ástæðna.
Enn fremur skat tilgreina fengin og
greidd meðlög með börnum á
sautjánda ári i þessum staflið, sbr. 2.
og 3. tölulið i upphafi leiðbeining-
anna.
Að lokum skal framteijandi dag-
setja framtalið og undirrita. Ef um
sameiginlegt framtal hjóna er að
ræða skulu þau bæði undirrita það.
ATHYGLI skal vakin á þvi að sér-
hverjum framtalsskyldum aðila ber
að gæta þess að fyrir hendi séu
upplýsingar og gögn er leggja megi
til grundvallar framtali hans og sann-
prófunar þess ef skattyfirvöld
krefjast. Öll slik gögn, sem framtalið
varða, skal geyma a.m.k. í 6 ár
miðað við framlagningu skattskrár.
Lagatilvitnanir i leiðbeiningum
þessum eru i lög nr. 68/1971 um
tekjuskatt og eignarskatt með
áorðnum breytingum skv. lögum nr.
7/1972 og lögum nr. 60/1973 svo
og lögum nr. 10/1974 um skattkerf-
isbreytingu.
Varðandi skattframtal ársins
1976 skal athygli vakin á þvi að
skv. ákvæðum reglugerðar nr.
257/1974 ganga ákvæði 25. gr.
reglugerðar nr. 245/1963 að þvi er
varðar viðhaldskostnað ibúðarhús-
næðis að nýju i gildi frá og með 1.
jan. 1975. Ber því i skattframtali
ársins 1976 að telja fram raunveru-
legan viðhaldskostnað ibúðarhús-
næðis á árinu 1975 og geta fært
sönnur á hann með reikningum ef
krafist verður.
Reykjavík, 1 5. janúar 1 975.
Ríkisskattstjóri.