Morgunblaðið - 18.01.1975, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
Hártískusýning
á sunnudaginn
SAMBAND hárgreiðslu- og hár-
skerameistara gengst á sunnudag-
inn, 19. janúar, fyrir hártfsku-
sýningu f Sigtúni v/Suðurlands-
braut kl. 15—17 eh. Er hér um að
ræða fyrstu raunverulegu hár-
tfskusýninguna hérlendis og
verður hún mjög fjölbreytt, eins
og sjá má af þvf, að um 50 hár-
greiðslu- og rakarastofur taka
þátt f sýningunni og um 70 mðdel
koma fram og sýna allar mögu-
legar klippingar og hárgreiðslur.
Jafnframt sýna hárgreiðslu-
sveinar og meistarar nýjustu fata-
SKÖMMU eftir áramótin skipaði
Matthías Bjarnason, trygg-
ingaráðherra nefnd, sem gera á
tillögur um löggjöf um skyldu-
tryggingu gegn náttúruhamförum
hvers konar. Inn f þessa trygg-
ingu munu m.a. fara tryggingar
vegna eldgosa, snjóflóða, jarð-
skjálfta o.fl.
I nefndinni voru skipaðir: As-
t TILEFNI af sjötugsafmæli dr.
Björns Sigfússonar fyrrverandi
Selta olli raf-
magnstruflun
RAFMAGN fór f gærkveldi af
Hafnarfirði, Reykjanesi og af
Áburðarverksmiðjunni. Orsök
rafmagnsleysisins var selta, sem
sezt hefur á allar leiðslur í óveðr-
inu á dögunum. Sfðan mun loft-
raki hafa aukizt í gær og slógu þá
raflfnur út. Bilunin var ekki sögð
alvarlegs eðlis.
Vatnsleiðslan
var talin
fullnægjandi
VATNSLEYSIÐ í brunahönum á
flugvallarsvæðinu hefur vakið
margar spurningar vegna brun-
ans á flugskýli númer 5. Mbl.
spurði Gunnar Sigurðsson flug-
vallarstjóra um þetta atriði, og
sagði hann:
„Það var mat sérfræðinga, að 4
tommu grein, sem tekin var úr 24
tommu leiðslu á svæðinu væri
fullnægjandi.“
FÉLAG bifvélavirkja varð 40 ára
þann 17. janúar sl., en stofnfund-
ur félagsins var haldinn 17.
janúar 1935 í KR-húsinu við
Vonarstræti. Stofnendur félags-
ins voru milli 40 og 50 bifreiða-
viðgerðarmenn, sem starfandi
voru f Reykjavfk á þeim tfma, og
var fyrsta verkefni félagsins að fá
Ekið á bíl
FÖSTUDAGINN 17. jan. milli kl.
15.30 og 16.30 var ekið utan í
Volkswagenbifreiðina R-37595,
þar sem hún stóð á bifreiðastæði
við Höfðatún 2. Hægra afturbretti
bifreiðarinnar var allmikið beygl-
að og þar mátti greina bláa máln-
ingu af tjónvaldinum sem hafði
ekið af staðnum án þess að gera
vart við sig. Umrædd
Volkswagenbifreið er hvít að lit.
Þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið um þessa ákeyrslu eru
beðnir að hafa strax samband við
rannsóknarlögregluna.
tfskuna frá Verðlistanum. Jöfn-
um höndum verður sýndur kven-
og karlmannafatnaður.
Með þessari hártískusýningu
hefst starfsemi Sambands hár-
greiðslu- og hárskerameistara á
tfunda starfsári sambandsins.
Sýning þessi þjónar í raun þrí-
þættum tilgangi: Vekja áhuga al-
mennings á hárrækt og hirðu,
minnst afmælisárs sambandsins
og hafinn undirbúningur fyrir
hárgreiðslu- og hárskurðar-
keppni, sem haldinn verður í
Reykjavfk í maí. Sigurvegararnir
í þeirri keppni, 2—5 frá hvoru
félagi, munu síðan taka þátt í
Norðurlandameistaramóti, er fer
fram í haust.
Kynnir verður Ömar Valdi-
marsson.
geir Ölafsson, forstjóri Bruna-
bótafélags Islands, formaður,
Bjarni Þórðarson tryggingafræð-
ingur og Benedikt Sigurjónsson
hæstaréttardómari.
Gert er ráð fyrir því að trygging
þessi geti orðið tengd brunatrygg-
ingu, sem verið hefur skyldu-
trygging um alllangt árabil.
háskólabókavarðar nú hinn 17.
janúar hafa viriir hans ákveðið að
láta á þrykk út ganga afmælisrit
honum til heiðurs. A þann hátt
vilja þeir færa honum þakkir
fyrir gagnmerk fræðistörf og
fágætlega óeigingjörn bóka-
varðarstörf undanfarna áratugi.
1 ritinu munu birtast fræðilegar
ritgerðir og annað efni eftir
sextán höfunda, en þeir eru: Arni
Böðvarsson, Björn Teitsson,
Björn Þorsteinsson, Böðvar
Guðmundsson, Finnbogi
Guðmundsson, Gunnar Karlsson,
Heimir Pálsson, Helgi Skúli
Kjartansson, Hermann Pálsson,
Ingi Sigurðsson, Kristján Eldjárn,
Ölafur Hjartar, Susan Bury, Svav-
ar Sigmundsson, Sverrir Tómas-
son og Þórhallur Vilmundarson.
Ritið verður væntanlega um 250
bls. að lengd, og Sögufélagið
stendur að útgáfunni. Fremst I
ritinu verður skrá yfir þá áskrif-
endur að því, sem jafnframt vilja
færa afmælisbarninu heillaóskir
(tabula grautlatoria). Þeir sem
vilja gerast áskrifendur og hafa
ekki ennþá látið til sín heyra eru
beðnir að snúa sér bréflega til dr.
Björns Þorsteinssonar prófessors,
Arnagarði við Suðurgötu, Reykja-
vík, fyrir janúarlok, og skulu þeir
þá láta áskriftarverðið, kr.
2500.00, fylgja.
(Fréttatilkynning)
bifvélavirkjun samþykkta sem
iðngrein.
Á árinu 1936 var farið að leita
eftir kjarasamningum við at-
vinnurekendur, en það gekk mjög
stirðlega og vorið 1937 hafði það
ekki borið árangur. Fram að þess-
um tíma höfðu bæði launþegar og
atvinnurekendur verið í félaginu
en nú er lögum félagsins breytt
þannig að vinnuveitendur geta
ekki lengur verið f þvf. Skömmu
síðar verður félagið meðlimur
A.S.Í. og nokkru síðar, eftir að
samningaviðræður við vinnuveit-
endur höfðu farið út um þúfur, er
farið í verkfall, sem stóð í 5 vikur.
Á ýmsu hefur gengið í samninga-
gerð á liðnum árum, en lengsta
verkfall, sem félagið hefur lent í,
stóð í 72 daga.
Styrktarsjóður félagsins var
stofnaður 1939 og fór hægt af stað
en er nú orðinn mjög öflugur.
Hann greiðir félagsmönnum dag-
peninga í sjúkra- og slysatilfellum
allt að 200 daga á ári.
Hálfbróðir
Stalíns
látinn
Parfs, 17. janúar — Reuter.
JOSEPH Davrishashvili,
georgfskur útlagi, sem hélt þvf
fram að hann væri hálfbróðir
Jósefs Stalfn, er látinn f Parfs, 93
ára að aldri, að þvf er vinir hans
skýrðu frá f gær. Davrishashvili
hélt þvf fram að hann hefði fæðzt
í Gori f Georgfu árið 1881, en kom
til Frakklands árið 1908. Hann
sagði sig vera son georgísks emb-
ættismanns og móður Jósefs
Stalfn, og var áberandi lfkur
sovézka einræðisherranum f út-
Iiti.
Samið um loðnuveið-
ar við Nýfundnaland
Bergen, 17. janúar — NTB.
FISKVEIÐINEFNDIN fyrir
Norðvestur-Atlantshaf hefur
komið sér saman um kvóta fyrir
loðnuveiðarnar við Nýfundna-
land árið 1975. Af 200,000 tonna
heildarkvóta, fá Sovétríkin 90,000
tonn, Kanada 30,000 og Noregur
60.000 tonn. Loðnuveiðin á þess-
um miðum hefur stóraukizt á sfð-
ustu árum.
Jakob stjórnar
stórhljómsveit
DEMANT h.f., nýja poppfyrir-
tækið, gengst næstkomandi
þriðjudagskvöld fyrir nýstárlegri
skemmtun á Hótel Loftleiðum.
Þar stjórnar Jakob Magnússon
upprennandi stórstirni, allt að
tuttugumanna popphljómsveit
með ýmsum helztu popptónlistar-
mönnum landsins, þ.á m. Björg-
vin Gíslasyni, Rúnari Georgssyni,
Magnúsi Kjartanssyni o.m.fl.
Þetta verður sennilega f síðasta
skipti sem Jakob kemur fram hér
á landi um sinn, þar eð hann er að
halda utan tíl að taka þátt f
þriggja vikna hljómleikaferð
hljómsveitar Kevin Ayres. Þá má
geta þess að Jakob vinnur nú að
gerð tveggja laga plötu fyrir
Demant.
1974 — ár flug-
slysa í USA
Washington, 17. janúar
— Reuter.
FLEIRI létust af völdum flug-
slysa i Bandaríkjunum á síðasta
ári en nokkru sinni síðan 1960.
Samtals létust 467 menn, — 421
farþegi og 46 áhafnarmenn —, en
árið 1973 var talan 227. Árið 1960
létust 499 menn f flugslysum.
Skrifstofa félagsins er nú að
Skólavörðustíg 16, í húsnæði sem
félagið á ásamt fleiri verkalýðs-
félögum. Fyrsta stjórn félagsins
var þannig skipuð: Eiríkur
Gröndal formaður, Öskar
Kristjánsson ritari, og Nicolai
Þorsteinsson gjaldkeri.
Formenn félagsins hafa verið
Eiríkur Gröndal 2 ár, en hann var
einnig i undirbúningsstjórn
félagsins; Valdimar Leonardsson
20 ár, hann er nú heiðursfélagi;
Lárus Guðmundsson 1 ár; Björn
Steindórsson 2 ár og Sigurgestur
Guðjónsson í 14 ár, en hann hefur
átt sæti í stjórn síðan 1935. Aðrir í
stjórninni nú eru Guðmundur
Hilmarsson varaformaður, Einar
Steindórsson ritari, Eyjólfur
Tómasson gjaldkeri, Samson
Jóhannesson varagjaldkeri, Björn
Indriðason gjaldkeri Styrktar-
sjóðs og Sigurður Óskarsson með-
stjórnandi. Starfsmaður félagsins
er Guðmundur Hilmarsson.
Félagsmenn eru nú 350.
Vitni vantar
Aðfararnótt 7. janúar s.l. eða frá
kl. 23 hinn 6. til 8,30 morguninn
eftir, var ekið á bifreiðina R 3497,
sem er gulur Fiat 127, árgerð
1973, þar sem bifreiðin stóð við
húsið Gnoðarvog 84. Vinstri hlið-
in var dælduð og rispuð líklega
eftir stuðara á háum bfl. Þeir,
sem geta eitthvað upplýst í þessu
máli eru beðnir að snúa sér til
rannsóknarlögreglunnar.
— Starfsnefndir
Framhald af bls. 36
9-manna samninganefndar Al-
þýðusambands Islands annars
vegar og fulltrúa Vinnuveitenda-
sambands Islands og Vinnumála-
sambands samvinnufélaganna
hins vegar. Rædd voru ýmis mál,
er gagnkvæma þýðingu hafa fyrir
aðila vinnumarkaðarins. Mestum
tíma var varið til þess að skiptast
á skoðunum um vísitölumálið.
Sérstakar starfsnefndir voru
kjörnar til þess að athuga
ákveðna þætti samningamálanna.
Næsti fundur aðila var
ákveðinn föstudaginn 24. janúar
klukkan 14.“
— Viðræður
Framhald af bls. 15
hefði meirihlutastuðning i þjóð-
þinginu.
Seint í kvöld var þess vænzt að
ríkisstjórnin myndi í þriðja sinn
reyna samkomulagsumleitanir
með jafnaðarmönnum. Stjórnar-
flokkurinn Venstre og Jafnaðar-
mannaflokkurinn hafa saman
meirihluta á þingi, en þeir eru
langt frá hvor öðrum stefnulega
séð. Einnig er persónulegur kuldi
milli leiðtoga flokkanna, Poul
Hartlings og Anker Jörgensens.
Sömuleiðis er persónulegur fs-
kuldi milli Hartlings og Mogens
Glistrups, formanns Framfara-
flokksins. Framfaraflokkurinn er
eins og kunnugt er yzt til hægri
allra danskra stjórnmálaflokka.
— Vinur Chou
Framhald af bls. 15
saman sfðan 1965, en mun bæði
m.a. greiða atkvæði um fjárlög
rfkisins og nýja stjórnarskrá.
Teng virðist nú sigla hraðbyri
til æ meiri valda í Kina, og hefur
verið hægri hönd Chou En-Lais
forsætisráðherra, sem um langt
skeið hefur átt við vanheilsu að
stríða. Ghou virðist þó vera að
hjarna við þvf að hann ræddi hinn
hressasti í gær við Franz-Josef
Strauss, leiðtoga Kristilega demó-
kratasambandsins, eins vestur-
þýzku stjórnarandstöðuflokk-
anna, sem verið hefir f heimsókn í
Kfna og fengið forkunnar góðar
viðtökur, — svo góðar raunar að
fregnir frá Bonn herma að
Helmut Schmidt kanslari sé veru-
lega móðgaður yfir þeim sóma
sem Kínverjar sýna andstæðingi
sínum. M.a. hitti Strauss Maó for-
mann í gær, en eini erlendi
stjórnarandstæðingurinn sem
Maó hefur veitt móttöku á undan-
förnum árum var Edward Heath,
leiðtogi brezka íhaldsflokksins.
— Friðarhorfur
Framhald af bls. 15
að tryggja frjálsar siglingar um
Súez-skurð.
Jafnframt hafa Bandaríkja-
menn fallizt á að útvega Lfban-
onsmönnum eldflaugar til árása
gegn skriðdrekum og samþykkt
sölu á Hawk-loftvarnaeldflaugum
til Jórdaníu samkvæmt heimild-
um í utanríkisráðuneytinu í
Washington.
Sagt er að þessar fyrirhuguðu
vopnasendingar standi ekki f sam-
bandi við árásir ísraelsmanna inn
f Líbanon, heldur séu þær liður í
hernaðarsamvinnu.
Atökin á landamærum ísraels
og Líbanons héldu áfram í dag.
ísraelsmenn gerðu skotárás á
þorpið Metulla annan daginn í röð
og skotið var á ísraelska varð-
flokka.
Jafnframt eru skæruliðar þjálf-
aðir í Sýrlandi komnir til Arkoub-
héraðs í Suður-Lfbanon til þess að
verja virki Palestinumanna þar
gegn árásum Israelsmanna að
sögn blaðsins A1 Yom í Beirút.
Yasir Arafat, yfirmaður Frelsis-
samtaka Palestínu er sjálfur
kominn á vettvang svo að hann
geti sjálfur stjórnað vörnum
Arkoub-héraðs að sögp
palestínsku fréttastofunnar.
— Engin loðna
Framhald af bls. 36
núna, eru ekki neinar líkur á
loðnufrystingu fyrir þennan
markað f vetur.“
Þá sagði hann, að Japanir ættu
mjög miklar birgðir af frystri
loðnu frá sfðasta ári, en neyslan
hefði samt ekki minnkað á s.l. ári,
eins og sumir héldu. Hitt hefði
aðeins átt sér stað, að hún hefði
ekki aukist eins og undanfarin ár,
en er Japanir gerðu sína stóru
samninga í fyrra, reiknuðu þeir
með mikilli aukningu f loðnuáti.
Almennt væri mikil svartsýni
ríkjandi í japönskum efnahags-
málum og ætti það sinn þátt í því,
að neyslan hefði ekki aukist.
Árni Benediktsson sagði, að
enn sem komið væri hefðu
Japanir aðeins tjáð sig geta keypt
um 10 þús. lestir af frystri loðnu,
sem yrði þá að líkindum keypt frá
íslandi, Noregi og Rússlandi og
yrði það magn notað til að brúa
bilið fram að loðnuvertíðinni
1976, því þær 40 þús. lestir, sem
til væru í lándinu myndu vart
duga út þetta ár. Ef af sölu
verður, hafa Japanir krafist betra
gæðamats, en flokkunin breytist
þá um leið, þannig að flokkur,
sem á taldist vera í fyrra 100%
hrygna á nú að teljast 90—100%
hrygna. Þá er einnig krafa um að
hrognamagnið verði 15% að jafn-
aði, en með því geta Japanir
skorið 2—3 vikur framan af ver-
tfðinni, þar sem loðnan hefur þá
ekki náð þessu hrognamagni.
Þetta þýðir að framleiðslugeta
frystihúsanna er stórlega skert.
Ennfremur vilja Japanir einnig
að smáloðnan verði tfnd úr.
Sagði Árni, að Japanir vildu
líka fá betri öskjur utan um
loðnuna, sérstaklega ef geyma
þyrfti hana lengi, en það væri
ekki afgerandi mál. Guðjón B.
Ólafsson og SH-menn munu halda
nokkurs konar úrslitafund með
Japönunum n.k. mánudag í þeirri
von að Japanir hafi breytt um
afstöðu.
Þess má geta að á s.I. ári seldu
Islendingar Japönum loðnu fyrir
1000 millj. kr.
— SAAB
Framhald af bls. 11
tfma eru mörg atriði, sem menn
sættu sig ekki við nú. Þar má telja
afturrúðuna. sem fyrr er frá sagt,
og olli slæmu útsýni um baksýnis-
spegilinn. Þá voru sætin hörð og
óþægileg og yfirleitt allur innri
búnaður. Við kerfisbundna athug-
un á sama hátt og allir nýir bílar
eru athugaðir þegar kynna á þá
lesendum bilablaða, reyndust 39
af 45 atriðum ófullnægjandi. Að-
eins mælaborðið var yfir meðal-
lagi — miðað við nútimakröfur.
Svipaða sögu var að segja með
öryggið, — af 12 atriðum voru
nlu ófullnægjandi. Á bernskuárum
Saab talaði heldur enginn um
öryggi í bilum, — það var ekki
uppgötvað fyrr en fyrir fáeinum
árum. Hinsvegar var ágæt mið-
stöð i bílnum, en rúðuþurrkurnar
voru ekki beysnar. Þær hefðu
frekar átt heima á sólgleraugum
en bilrúðu. Stýrið var geysistórt,
nánast eins og á strætisvagni, og
pedalar i gólfi lágu skakkt fyrir og
bensínpedalinn stóð ennfremur
einhvernveginn beint út i loftið,
og hvergi stuðningur fyrir fótinn.
Rofinn fyrir stefnumerkin (ekki
Ijósin) var á miðju mælaborðinu
eins og á hefðbundnum enskum
leigubil. En þetta gerði ekkert til i
þá daga, — þá var ekkert hugsað
um að stjórntæki lægju vel við
ökumanninum. En enginn vafi
leikur á þvi, að Saab var nýtízku
bill á sinum tima.
Þg
Verður gert að skyldu að tryggja
gegn náttúruhamförum?
Afmælisrit til heiðurs
dr. Birni Sigfússyni
Félag bifvélavirkja 40 ára