Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
Til sölu
SAAB 99
sjálfskiptur
Árg. 1972 — Ekinn 35 þús.
„Elektronisk" innspýting
Snúningshraöamælir
Uppl. í síma 37393 í dag og
á morgun
Til sölu
Citroén D-Special árg. 1971
Ekinn 60 þús. km. Hvítur, með útvarpi.
Nánari uppl. hjá Globus h.f. bifreiðadeild. Sími
81555.
Globus?
Lágmúla 5, sími 81555.
Leikendur
og ieikstjóri
á æfingu.
r
kvöldstund
á frumsýningu í Árnesi
Eystra-Geldi ngaholti,
fimmtudagur
SÍÐASTLIÐINN laugardag frum-
sýndi Ungmennafélag Gnúpverja
gamanleikinn Saklausa svallar-
ann, eftir Arnold og Bach, i
félagsheimilinu Árnesi. Á sýning-
unni var fjöldi fólks og var leikn-
um frábærlega vel tekið af sýn-
ingargestum. Voru leikstjórinn,
Birgir Sigurðsson skólastjóri Ása-
skóla, og leikendur hylltir I leiks-
lok en þeir eru tiu talsins. Með
aðalhlutverkin fara Aðalsteinn
Steinþórsson, Hæli, Gestur Jóns-
son, Skaftholti, og Þorbjörg Ara-
dóttir í Þrándarlundi. Aðrir leik-
endur í gamanleiknum eru:
Hrafnhildur Jóhannesdóttir,
Ásólfsstöðum, Kristjana Gests-
dóttir, Skaftholti, Gunnar Þór
Jónsson, Stóranúpi, Sigurður Páll
Asólfsson, Ásólfsstöðum, Ingunn
Sveinsdóttir, Stóranúpi, Bjarn-
heiður Guðmundsdóttir, Asum, og
Hjalti Gunnarsson, Fossnesi.
Frá sýningu Ungmennafélags Gnúpverja á Saklausa svailaranum
Þetta er bráðskemmtilegur
gamanleikur og þótti sýningar-
gestum leikendum takast vel upp
á f jölunum í Árnesi. Leikur Aðal-
steins Steinþórssonar, sem fer
með sjálfan svallarann vakti
mikla kátínu leikhúsgestanna.
Það þótti líka liggja ljóst fyrir að
leiksýningu lokinni, að Birgir
skólastjóri, sem er þó enn sem
komið er þekktari sem rithöf-
undur en leikstjóri, geti vissulega
lagt gjörva hönd á leikstjórn.
Ráðgert er að sýna gamanleik-
inn á fleiri stöðum á næstunni,
enda vel farið að gefa fólki kost á
að lyfta sér upp kvöldstund nú i
skammdeginu og stirðri tið eins
og verið hefur hjá okkur.
— jón.
Stýrimann
og vélstjóra
vantar á togbát, sem fer síðar á neta-
veiðar.
Uppl. í síma 98-1 682 og 98-1 697, Vest-
mannaeyjum.
Vanir rafsuðumenn
óskast nú þegar
H.F. HAMAfí,
Tryggvagötu.
Sími 22 123.
Stýrimann
matsvein og háseta
vantar á m.b. Krossavik SH frá Rifi til
netaveiða. Upplýsingar í síma 6631,
Hellisandi.
Ráðskona óskast
Stúlka óskast á heimili úti á landi í
fjarveru föður. 3 stálpuð börn.
Upplýsingar í síma 92-2825.
Matsvein og háseta
vantar á góðan netabát frá Grindavík.
Upplýsingar í síma 8008, Grindavík.
19 ára stúlka
með gagnfræða- og húsmæðraskóla-
menntun óskar eftir góðri vinnu. Margt
kemur til greina.
Upplýsingar í síma 99-1 51 8.
Skrifstofustúlka
óskast á lögfræðiskrifstofu, hálfan eða
allan daginn. — Þarf að vera vön vélritun
á íslenzku og ensku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um kunn-
áttu og fyrri störf óskast send afgr.
Morgunblaðsins, merkt: „Lögfræðiskrif-
stofa — 7338".
Skrifstofustúlka
Ungmennafélag íslands óskar eftir að
ráða skrifstofustúlku frá næstu mánaða-
mótum. Þarf að vera vön vélritun og
gjarnan að hafa einhverja þekkingu og
áhuga á starfi ungmennafélaganna.
Nánari upplýsingar á skrifstofu UMFI að
Klapparstíg 16 Reykjavík.
Ungmennafélag Islands
Vélaverkfræðingar
Iðnfyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæðinu
óskar að ráða vélaverkfræðing til starfa.
Starfssvið: Greining bilanaorsaka,
hönnun búnaðar til úrbóta
og ýmiskonar tæknileg
aðstoð við viðgerðarverk-
stæði.
Hæfni: Próf í vélaverkfræði, starfs-
reynsla á ofangreindu
starfssviði, frumkvæði og
samstarfshæfileikar.
Kjör: Fjölbreytt og krefjandi starf
enda góð laun í boði.
Umsóknir: rneð upplýsingum um
náms- og starfsferil sendist
á auglýsingaskrifstofu
Morgunblaðsins eigi síðar
en 27. janúar næstkomandi
merktar „Hæfni — 1975
— 7313".
Með allar umsóknir verður
farið sem algjört trúnaðar-
mál.