Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 27

Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1975 27 Fátt var þaðan tíðinda Gömlu annálaritararnir áttu það til að lýsa uppá margar síður ókennilegu ky- kvendi, sem þeir höfðu haft spurnir af, en létu niður falla að skrá eða voru fáorðir um ýmsa þá atburði, sem við nú hefðum viljað vita meiri deili á. Fréttir í blöðum og útvarpi minna mann stundum á þetta fréttamat gömlu ann- álaritaranna. Ýmislegt er rak- ið útí æsar í fréttum sem manni sjálfum finnst lítils- vert, en þögn ríkir um annað margt sem maður sjálfur vildi gjarnan hafa spurnir af. Hér er í hverju efni um persónu- legt mat að ræða og fullyrði því ekkert um, hvað rétt sé í þessu efni. Skoðanir eru sjálfsagt jafnmargar og les- endurnireða hlustendurnir. Þegar óveðrið geisaði yfir landið á aðfaranótt mánu- dagsins 13. jan., síðan mánudaginn allan og þriðju- daginn, þá var veðrið lang- harðast á norðanverðum Vestfjörðum eða við Djúp vestra. Á mánudagsmorguninn voru 12 vindstig í Æðey, 7 stiga frost og blindbylur. Annars staðar á landinu var veður heldur hægara (9 vind- stig) og frostið minna. Vitað var að langflestir íslenzku togaranna voru á Vestfjarða- miðum, þegar veðrið skall á. Þessu veðri fylgdi haugasjór og það sem verra var mikil ísing. Skipin vestra hlutu því að vera í hættu stödd. Að- stæður voru svipaðar og þegar Heiðrún og Ross Cleveland fórust inni á ísa- fjarðardjúpi 4. febr. 1968. Strax á mánudagsmorgun var byrjað í hljóðvarpi að þylja fréttir af vandræðum manna úr ýmsum stöðum úti á landi, nema frá Vestfjörð- um. Þennan dag kom þó stuttorð frétt frá landhelgis- gáezlunni um, ,,að flotinn lægi í vari undir Grænuhlíð," en ekki orð meira um ástand- ið vestra, hvorki til sjós né lands. Veðrið hlaut þó að mæða mikið — og hvergi meira en á ísafirði og Bol- ungavík. í kvöldfréttum útvarpsins kl. 7 (19) voru enn rakin vandræði fólks nyrðra og eystra, en þögn um fiskiflot- ann vestra og staði við Djúp, en hins vegar smáfrétt frá Þingeyri einum staða um að' vegir væru ófærir norðan fjarðarins. Enn voru þó 10 vindstig í Æðey, frost hafði heldur hert og því fylgdi enn svartabylur. Mér blöskraði það, að hljóðvarpið skyldi ekki færa landsmönnum neinar fréttir af fiskiflotanum. Þarna var talið að væru um 60—70 togarar, þegar mest var, með 900—1000 menn um borð, og allur þessi skipa- fjöldi gat ekki haft nema tak- markað skjól af Grænuhlið- inni í slíku veðri; mörg þeirra yrðu að vera það djúpt eða utarlega. Það hlaut því að vera forvitnilegt ekki sízt fyrir aðstandendur, að fá fréttir af því hvernig flotinn hefði hafzt við á mánudagsnóttina og mánudaginn allan með þeirri ísingu, sem fylgdi veðr- inu. Að loknum kvöldfréttum hljóðvarpsins, hringdi ég í bræði minni á Landssímann og spurði, hvort ekki væri símasamband við ísafjörð. Jú, það var það. Kl. var um 7’/2 (19’/2), þegar ég hafði lokið þessu og þá hringdi ég á fréttastofu sjónvarpsins til að benda þeim á, að likast til myndi margur vilja fregna eitthvað að vestan. Það taldi ég auðgert að afla einhverra frétta, þvi að flotinn hlaut að vera í talstöðvarsambandi við ísafjörð og simasamband var milli Reykjavíkur og ísafjarð- ar, og þó að komið væri fast að fréttatíma, þá voru mörg dæmi þess, að frétta væri aflað meðan þær voru lesnar í sjónvarpinu en það tekur um hálfa klukkustund (sbr. fréttir frá Seyðisfirði 1 5. jan.) Mér vannst nú ekki tími til að flytja alla þessa tölu, en náði þó að koma nægu útúr mér til að glöggt var hvað ég vildi. Fréttamaður sjónvarps- ins, sem fyrir svörum varð gerði mér umsvifalaust Ijóst að annir væru miklar á frétta- stofunni, það væri komið fast að fréttum og kviknað í á Reykjavíkurflugvelli og væri enginn tími til að sinna erindi mínu. Hann skutlaði þó að mér fréttinni úr hljóðvarpinu um „að flotinn væri í vari undir Grænuhlið." Líkast til hefur það verið sameiginlegt álit sjónvarps- og hljóðvarps- manna, að þarna væri flotinn í öruggri höfn, sem bendir til að þeir hafi aldrei legið undir Grænuhlíð í noðraustan fár- viðri og fjöldi skipa svo mik- ill, að ekki var rúm nema fyrir hluta af flotanum í bezta var- inu. Aðrir verða þá undir slík- um kringumstæðum að hrekjast dýpra, þar sem veður og sjór nær meir til þeirra. Einnig má ekki mikið útaf bera, til að skipum slái saman, þegar þau hrúgast á lítinn blett I slíku fárviðri og svartabyl. Ég var því ekki jafnfullkomlega ánægður með þessa stuttorðu frétt frá landhelgisgæzlunni og frétta- mennirnir virtust. Á þriðjudagsmorguninn hlustaði ég á fréttir kl. 7.30. Ekki orð frá Djúpi. Fiskiflot- inn ekki nefndur og ekkert að frétta að vestan. Það voru þá aftur orðin 12 vindstig í Æðey og 9 stiga frost og svartabylurinn áfram. Þá var flotinn búinn að berjast I samfelldu ísingarveðri í hálf- an annan sólarhring, og hefði mörgum þótt ekki ófróðlegt að vita, hvernig hann hefðist við, þó aldrei eftir ASGEIR JAKOBSSON nema hann hefði var af Grænuhlíð. I fréttum þriðjudagsins var svo haldið þeirri reglu, sem virtist orðin ófrávíkjanleg að byrja á Hvammstanga og halda austur um suður með Austfjörðum og enda í Vík í Mýrdal. Vandræði fólks voru mikil sem skiljanlegt var í rafmagnsleysi og hvassviðri sem mikil snjókoma fylgdi, en hvernig bárust þeir af, sem voru í harðasta veðrinu? Gátu ekki fréttamenn hugsað sér, að einhverjir vildu hafa fregnir af þvi fólki á landi eða sjó? Ein frétt kom frá Vestfjörðum þennan dag- inn og hún var frá Flateyri og á þá leið, að þar væri orðið fært milli húsa, en ekki fært með mjólk frá ísafirði. Ein- hvern tíma þriðjudagsins minnir mig að kæmi önnur álíka frétt frá Hólmavík. Engar fréttir voru af fiski- flotanum þennan dag. Nú má segja við mig sem aðra sem var mikið í mun að fá fréttir að vestan, þar sem veðurharkan var mest og islenzki togaraflotinn hélt sig, að við gætum sjálfir bjargað okkur með fréttir fyrst síma- samband var við ísafjörð. Ég bjargaði mér svosumm og vissi, að þegar hér var komið sögu voru ekki eftir nema um 40 skip undir Grænuhlíð, sem var þó ærið, hin höfðu náð höfnum. En það átti margir hér hlut að máli, 1000 sjómenn eiga marga aðstandendur og víða um land. Það var skylda fjölmiðl- anna að afla frétta af þessum skipaflota að mínu áliti, þar sem það var auðgert. Frem- ur, að því er mér fannst, en að kaupfélagsmenn hefðu ekki komizt til vinnu í einum staðnum og kvenfélag orðið að fella niður fundarhald í öðrum. En svona er fréttamat manna misjafnt. Þessi grein er ekki skrifuð sem nein almenn ádeila á fréttamenn hljóðvarps og sjónvarps. Ég gæti vel trúað, að þeir ynnu verk sin almennt vel, eftir því sem mannafli og aðstæður leyfa þeim, en í þessu tilviki sem að framan greinir, fannst mér þeir undarlega sinnulausir. Það má benda á það, að yfirleitt er auðvelt að ná sam- bandi við fiskiflotann í gegn- um einhverja strandstöð og ég held, að þegar svona ber til að mikill floti fiskiskipa á við erfiðleika að stríða, þá ættu fréttamenn fjölmiðla að reyna að hafa samband við einhvern skipstjórnarmann og spyrja tíðinda. Enn eru mörgum íslendingi hugstæð- ar fréttir af fiskiskipum ef veður eru váleg. Af hverju aldrei Jökulfirðirnir? ÞAÐ hefur oft valdið mér undrun, þegar norð- austan veður hafa geisað vestra, að togarar, hvorki íslenzkir né erlendir, leita nokkurn tim- ann inná Jökulfirðina og þá fyrst og fremst Hesteyrarfjörð og Veiðileysufjörð. Þarna eru lif- hafnir i öllum veðrum. Ég hef spurt fjölda togaramanna af hverju þetta væri svo, að aldrei væri leitað inná þessar lifhafnir, heldur hnöppuðust skipin saman undir Grænuhlið eða streðuðu við að taka isafjörð, og í því sambandi langar mig til að spyrja: Af hverju halda menn aldrei áfram inn fyrir Arnarnesið og síðan inn fyrir Langeyri, þegar hættuspil er að leita hafnar á ísafirði? Þetta er hrein leið og ágætt legupláss fyrir innan Langeyrina. Logn i norðaustan veðrurh. Það væri e.t.v. ráð að gefa út sérkort af Jökul- fjörðunum og færa þar inná legupláss. Það er örstutt frá Sléttunni inná Hesteyrarfjörðinn og leiðin alveg hrein og auðvelt að rekja sig inn álinn, sem liggur inná fjörðinn, enda tóku Kveldúfstogararnir þennan fjörð i dimmviðrum, meðan síldarbræðsla var á Hesteyri og voru þó fátækari að siglingatækjum en nú gerist. Legu- botn held ég að sé ágætur á Hesteyrarfirði, leir- botn, og þar rúm íyrir nokkur skip. Sama er að segja um Veiðileysufjörðinn, en þar var eitt sinn hvalstöð og skipalægi og siglingaleiðin lika hrein. Syðri firðina þekki ég ekki, Hrafnsfjörð, Lóna- fjörð og Leirufjörð. Ég hef aldrei fengið nein svör við þvi, af hverju aldrei væri leitað inná Jökul- firðina undan norðaustan veðrum, önnur en þau, að þetta væri venja, að leita inná Isafjörð eða undir Grænuhlið, hvort sem þar væri pláss eða ekki. Mér finnst ekkert álitamál fyrir togara, sem koma seint uppundir Grænuhlið og ná ekki góðu leguplássi, að velta sér inn fyrir Sléttuna og inná ofangreinda firði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.