Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
33
“ Morö ö kvenréttindarööstefnu
Jðhannal
Krisrjönsdöttir|
þýddi
19
sjúklingurinn deyr á nokkrum
mínútum.
— Þó ekki fljótar en svo að hún
gaf sér fyrst tíma til að reka upp
óp...
— Þér megið nú ekki taka allt
sVona bókstaflega.
Tortryggni Christers hefur
komið lækninum, sem lengst af
hefur haldið ró sinni, algerlega úr
jafnvægi. Hún virðist hafa Iang-
mesta löngun til að rjúka á hann
og gefa honum duglega utanund-
ir. Engu að síður heldur hann sig
við efnið.
— Já. Það er nú og. Og ef þessi
sjúkdómur gerir nú svona skyndi-
lega vart við sig, þá er væntanlega
ekkert eðlilegra en að sjúklingur-
inn bláni I framan?
— Tvímælalaust. Sjúklingur
sem hefur veilt hjarta hefur
venjulega bláan lit á vörunum
þegar í lifanda lífi, enda þótt kon-
ur reyni yfirleitt að dylja það og
eigi kost á því körlum fremur.
— Og kjálkar stirðna eins og í
heiftugu krampakasti...?
— Camilla Martin hefur ákaf-
lega frjótt ímyndunarafl, segir
hún og rödd hennar er full af
beiskju.
Á neðstu hæðinni opnar rauð-
hæró stúlka glugga og hristir af-
þurrkunartusku út, og horfir
samtímis með ódulinni forvitni á
þennan ókunnuga mann, sem hef-
ur þrengt sér inn í kvennaheim-
inn á Blachsta.
— Með öðrum orðum, þér hikið
ekki við að gefa út dánarvottorð
— gerið það án þess að hugsa
yður um?
Þetta er síðasta spurningin, sem
ræður úrslitum, en þó veit hann
fyrirfram hvert svarið er og hann
þylur rólega:
— Betti Borg. Leirkerasmiður.
Fannst látin þann 17. september
klukkan þrjú á Blachsta í Varm-
landi. Banamein: hjartaáfall.
— Vitum organicum cordis,
leiðréttir hún hann með reiði sem
hún á erfitt með að hafa stjórn á.
Upplýsingarnar eru settar fram
á grundvelli af. .. nei ekki krufn-
ingar, heldur með tilliti til lík-
skoðunar.
— Og það er, segir hún heiftúð-
ug. — það sem er venjulegast og
algengast.
— Það er sem sagt alveg fráleitt
að láta sér detta í hug að einhver
utanaðkomandi aðili geti átt
þarna hlut að máli?
— Já, heilaspuni einber.
— Og á ég að trúa því að Ase
Stenius, virðulegur læknir með
óflekkað mannorð, segir Christer
eftir nokkra þögn. — sé fáanleg
til að setja nafn sitt undir slikt
dánarvottorð. Þar með er lögregl-
an hrakin út úr spilinu. Og ég sem
hafði fengið talsverðan áhuga á
málinu.
Svo bætir hann við og Áse veit
ekki hvort hann er að hæðast að
henni eða hvort honum er alvara.
— Viljið þér leyfa mér að lita á
herbergi Betti Borgs og líkið?
Og nú svarar Ase Stenius af
þvílíkum myndugleik að við borð
liggur að Christer fjúki um koll,
svo mikill er þunginn í orðum
hennar:
— NEI!
Christer andvarpar og slær ösk-
una úr pipu sinni. Enda þótt þessi
laglega vinnustúlka hefði ekki
glápt á hann hefði hann svo sann-
arlega gert sér grein fyrir því að
hanu er óviðkomandi maður hér,
sem hefur ruðzt inn á landareign
annarra.
Öviðkomandi maður, sem í
þokkabót hefur aflað sér óvináttu
áhrifamikillar manneskju —
enda þótt hann geti ekki látið að
sér hvarfla skýringu á þessari
fjandsemi.
Að fylgjast með
Jafnskjótt og blátt pils Ase
Stenius sést ekki lengur, kemur
önnur kona I ljós. Og það er
greinilega ekki um tilviljun að
ræða. Og þar eð Christer hefur
löngum likað vel rautt hár gengur
hann í áttina til stúlkunnar, sem
gefur honum feimnislega bend-
ingu. Unga stúlkan er viðræðu-
glöð í betra lagi. Hún segir honum
að hún heiti Vanja og hún sé
vinnukona á bænum og að hún
hafi nú aldeilis sínar fastmótuðu
skoðanir á hinu og þessu, sem hún
viti að gerist umhverfis hana,
hvað svo sem hver segi.
— Jú, vist er voða mikil vinna I
sambandi við að taka á móti svona
mörgum gestum. Ekki þar fyr-
ir... hjónin bjóða ákaflega oft til
sin gestum og oft I stórum hópum,
en yfirleitt gista þeir ekki, nema
þá i gestaálmunni stöku sinnum.
Það hafa aldrei verið fimmtiu
gestir hér án þess að forstjórinn
væri sjálfur heima og það má nú
finna það á frúnni, því að hún er
svo taugaóstyrk að það þýðir varla
að mæla hana máli og er stöðugt
að skæla. Og þegar frúin er I
þessum ham, þá verður Ellen al-
veg ómöguleg I skapinu. — Ellen
er matráðskonan og hún hefur
verið hérna -I marga áratugi og
frúin er hennar augasteinn. Og
mér finnst auðvitað lika að frúin
sé reglulega elskuleg, réttlát og
notaleg og hér um bil alltaf I góðu
skapi, en samt likar mér betur við
húsbóndann.
— Hann heitir Robert Fager-
man. Hvað er hann gamall?
— Hann varð fertugur I vor, svo
að hannertíuárumeldri en hún.
Og amma min segir að það sé
alveg hæfilegur aldursmunur, ef
hjónaband eigi að lukkast og þeg-
ar maður sér þau þá getur maður
ekki neitað þvi að þau virðast
vera ósköp hamingjusöm.
— Hann hefur sem sagt ekki
gifzt henni til að fá húsið, verk-
smiðjuna og peningana hennar?
— Nei, hamingjan góða. Alls
ekki. Hann var ástfanginn alveg
upp fyrir haus. Og þegar hann tók
við verksmiðjunni stóð hún held-
ur höllum fæti, því að gamli mað
urinn hafði misst þetta hálfpart-
inn út úr höndunum á sér síðustu
árin, sem hann lifði. Það er sann-
arlega Fagerman, sem hefur reist
allt við aftur. En hann vinnur líka
eins og húðarklár. Hann er á stöð-
ugum þeytingi til Stokkhólms og
heim aftur. Stundum sjást þau
ekki i heila viku. Og þá er svo
dauft I húsinu að mig langar mest
til að segja upp og fara.
— En frúin ráfar þó varla um
og grætur, bara vegna þess að
maðurinn hennar er ekki heima,
svo að hún verður að sjá um kon-
urnar fimmtíu... þær eru félagar
í hennar eigin klúbbi. Ef hún er
svona niðurdregin liggur beinast
við að halda að eitthvað sérstakt
hafi gerzt...
Vanja lítur flóttalega í kringum
sig til að fullvissa sig um að eng-
inn sé í grenndinni.
— Jájöldungis rétt. Þér hafið
hitt naglann á höfuðið. Því að hún
var svo himinlifandi á föstudag'-
inn, rétt áður en konurnar komu.
Hún var auðvitað orðin dálítið
stressuð vegna undirbúningsins
og var hrædd um að eitthvað
gengi úrskeiðis og þær yrðu ekki
ánægðar og allt það. En hún var
ekki döpur, eins og núna. Og ég
veit vel hver ber sökina á því.
— Leyfið mér að gizka. Er það
Eva Gun Nyren?
— Hvernig gat yður dottið það í
hug? Segið mér þá: eruð þér
kunnugur þessari Evu Gun, sem
að minum dómi er bæði ómerki-
leg, hræsnari og ég veit ekki
hvað?
— Ja, þér eruð ekki að klípa
utan af því, unga dama! Nei. ég
þekki hana ekki. Ég veit ekki
annað um hana en það sem blöðin
segja um hana, að hún hefur nú i
næstum tuttugu ár barizt fyrir
réttindamálum kvenfólksins:
„frelsi konunnar i karlmanna-
samfélaginu," held ég það heiti á
kvenréttindamál.
Vanja hristir rauðan kollinn
óþolinmóð á svipinn.
— Ég skil nú ekki hvers vegna
þær leggja svona mikið upp úr þvi
að konur vinni utan heimilis síns.
Það er ekkert niðurlægjandi við
það að vinna heima hjá sér og
annast indælan eiginmann og góð
og skemmtileg börn. Nei, ef ein-
hverjir eru þrælar þessa samfé-
lags, þá eru það karlmennirnir.
Sjáið nú til dæmis hann pabba
minn, sém aldrei getur unnt sér
hvíldar. Og þá held ég Fagerman
sjálfur sé lýsandi dæmi um þetta.
Maðurinn getur ekki valið. Hann
á engra kosta völ...
— Eva Gun Nyren hugsar sjálf-
sagt öðru vísi, segir Christer þurr-
lega og eins og hann hefur vænzt
Við frestum hvorki þvottadegi né kvöldveizlunni.
VELVAKAIMDI
Velvakandi svarar ! síma 10-100
kl. 1 0.30 — 1 1.30, frá mánudegi
til föstudags.
0 Hugtakabrengl
Ýmislegt, sem hættulegt má
kalla, steðjar nú að íslenzkri
tungu. Hún hefur verið í hættu
stödd áður, en nú finnst sumum,
að nýr voði vofi yfir henni. Hann
er sá, að eðlilegt málskyn íslend-
inga virðist vera farið að bregð-
ast. í nútima-fjölmiðlaþjóðfélagi,
þar sem blöð, hljóðvarp og
myndvarp (með tali) eru að verða
sterkari uppeldisaðili en for-
eldrar og kennarar, hlýtur það að
vera ákaflega áríðandi, að tungu-
tak hjá helztu fjölmiðlum sé rétt
og hreint. Á þessu vill verða mis-
brestur. — Ekki meira um þetta
að sinni. Oddur A. Sigurjónsson,
fyrrum skólastjóri í Neskaupstað
og Kópavogi, hefur verið að skrifa
um „hugtakarugl" í Alþýðublað-
ið. Velvakandi tekur sér það
bessaleyfi að birta hér eina grein-
ina eftir hann. Hún er svona:
„Eitt af megineinkennum
íslenzkrar tungu er markvisi i
túlkun og tjáningu. Okkur er tamt
að skilja það, sem mælt er eða
ritað, eftir orðanna hljóðan.
Markvísin birtist i óteljandi
myndum og hefur gert frá
upphafi. Það þarf ekki Iengra að
leita en til eldfornra nafngifta til
þess að sjá, hvernig hugkvæmni
forfeðra okkar birtist, t.d. í ör-
nefnum og margháttuðum, öðrum
greinum. Þetta er augljós styrk-
leiki, ef að réttu fer.
En þessi styrkur kann líka að
geta átt sinar veiku hliðar, þegar
tekið er til að breyta eða rugla
inntaki orðanna. Einmitt vegna
þess, að við erum uppalin við
ljósa tjáning, erum við máske ber-
ari en hófi gegnir fyrir því að
ruglast óviljandi á fölskum nafn-
giftuni, sem við ósjálfrátt tökum
of hátiðlega.
Þannig er oft alltof auðvelt að
vefja héðin að höfði almenningi,
ef slungnir áróðursmenn og
óhlutvandir notfæra sér ofan-
nefndan veikleika.
Hér eiga ýmsir högg i garði,
sem annað hvort visvitandi eða
meira og minna ómeðvitað vinna
að alls konar hugtakarugli.
0 „Alþýdulýðveldi“
íslenzkir kommúnistar eru
sennilega öðrum áróðursmönn-
um gleggri á þessa hluti og verður
oft furðulega vel ágengt. Þannig
hefur frá þvi i síðustu heims-
styrjöld verið háttur þeirra að
kenna ýmis leppriki kommúnista
austan tjalds við alþýðu; alþýðu-
lýðveldi heita þau á þeirra máli;
og gengur þessi blekking svo
langt, að fjölmiðlar hafa gengið
hér á mála, sennilega allteins
ómeðvitað. Þetta er einkar lúmsk-
ur áróður. Hér er verið að grunn-
festa þá hugmynd i hugskoti al-
mennings, að þessi ríki séu um
stjórn og starfshætti öðrum
frernri i því að alþýða manna hafi
þar tögl og hagldir.
Nú ætti það svo að vera, að
almenningur léti ekki eins auð-
veldlega blekkjast og raun er á, ef
menn stöldruðu litillega við.
Tökum sem dærni „Alþýðulýð-
veldið Þýzkaland“ Hverjum
skyldi nú annars detta í hug, að
ýmsar aðfarir, sem þar hafa verið
iðkaðar, séu runnar undan rifjum
alþýðu manna? Skyldi það hafa
verið vegna harðrar baráttu al-
mennings, að Ulbricht lét tilleið-
ast að setja upp Beiiinarmúrinn á
sínum tima? Já, ætli það ekki!
0 Fölsun hugtaka
Þegar betur er að gáð, kernur
lika i ljós, að nafngiftin er eink-
um bundin við þau ríki, sem flöt-
ust eru undir járnhæl Rússa, og
hafa minnsta tilburði sýnt til að
rífa sig frá ofurveldi þeirra. Hér
er þó Kína undanskilið, enda
stafar nafngiftin frá þeim tima,
þegar ennþá var von til þess, að
það mannmarga ríki hnýtti sér i
halann á Rússunum. Síðan annað
kom í ljós, er auðvitað örðugra að
snúa við.
Gamalt orötak segir, að i ástum
og ófriði sé allt íeyfilegt, þótt
aldrei hafi það þótt sérlega burð-
ug siðfræði. Hér er aðeins bent á
lítið horn af þeirri styrjöld, sem
kommúnistar heyja hér á Islandi
við að rugla og villa um fyrir
almenningi með fölsku inntaki
orðsins alþýðuveldi, sem gefur
allt annað í skyn en raunsatt er.
Eflaust er lika óhætt að trúa því,
að hér sé samvirk ást þeirra
á kenningakerfi Marx-
Leninistanna austur þar. Ogþá er
hringur gamla orðtaksins
lokaður."
Jón H. Þorbergsson:
Fáein orð
um fjármál
Ein af þeim landplágum, sem
verða til í landinu fyrir innlendar
aðgerðir, er hinn mikli straumur
fólks til skemmtiferða erlendis.
Til þessa fer stórmikill gjaldeyrir,
sem þetta fólk notar líka til kaupa
á ýmsum vörum, sem þó verða
tollfrjálsar, og dregur það úr inn-
lendri verzlun. Miðar það til
óhagnaðar fyrir landið, það á að
skattleggja þennan erlenda gjald-
eyri, sem skemmtiferðafólkið
fær. Annað, sem rétt væri að
skattleggja — eitthvað — þá, sem
keyra steyptu vegina þar, sem
ekki reynir á bílana og bensinið
sparast. Slíkt væri sanngirnismál
gagnvart öllum þeim, sem verða
að keyra á vondum vegum. Það fé
sem fengist með þessum tveim
leiðum á að nota til vegagerðar.
Mætti þá létta vegaskattinum af
bensíninu — 4 kr. á litra. Væri
það mjög nauðsynlegt.
— Kvennaár
Framhald af bls. 14
jafnar skyldur sem ein-
staklingar, foreldrar og
þjóðfélagsþegnar.
— Leitast verði við að tryggja
jafna aðild beggja kynja í
ákvörðunum og stefnumót-
un innan fjölskyldunnar og
á vettvangi héraðsmála,
landsmála og alþjóðlegra
samskipta.
— I atvinnulifinu fari fram
endurmat á fyrirvinnuhug-
takinu og afnumin verði
mismunun starfsskiptingar
eftir kynjum og sá launa-
mismunur kynja, sem nú
rikir.
— Félagsleg aðstaða og rétt-
indi séu ætíð miðuð við
báða foreldra. Gildi þetta
um heimilisaðstoð vegna
veikinda barna, leyfi á full-
um launum fyrir foreldra
vegna barnsburðar konu og
heimilisstarfa í þvi sam-
bandi, vistun á dagheimil-
um, leikskólum og skóla-
dagheimilum o.fl.
— Foreldrar í föstu starfi skuli
eiga þess kost að vinna
hluta úr starfi tímabundið
eða fá leyfi frá störfum i
allt að tvö ár vegna ungra
barna sinna.
— Veigamikið atriði, sem
ásamt öðrum stuðlar að
jafnari þjóðfélagsaðstöðu í
framkvæmd, er að skapaðir
séu á aðgengilegan hátt
möguleikar til endurhæf-
ingar í störfum, viðbótar-
menntunar og starfsþjálf-
unar á sem flestum sviðum
atvinnulífsins.
— Veðurfar
Framhald af bls. 23
an 1961, að tveim undanskild-
um (1964 og 1968) hafa verið
kaldir, og kaldastur allra var
nóvember í fyrra. Miklar stillur
voru nú einnig í nóvember, sem
er nokkuð óvenjulegt fyrir
haustmánuð.
Desember var svo bæði kald-
ur og stórviðrasamur, en var þó
talsvert fjarri því að vera jafn-
kaldur og metmánuðurinn
desember 1973.
Og eins og fram kom í upp-
hafi, gefum við árinu 1974 góða
einkunn, enda er það fremur í
ætt við hlýju árin milli 1920 og
1964 en þau köldu og óhag-
stæðu á árabilinu 1966 til 1971
(1965 til 1971 á Norðurlandi).
Meðfylgjandi mynd sýnir
hitafarið í Reykjavik,
Meðfylgjandi mynd sýnir
hitafarið i Reykjavik. Á Akur-
eyri eru vik hitans yfirleitt á
sama veg, en stundum svolitið
• stærri.