Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 Um 300 manns fá vinnu við byggingu jámblendiverksmiðjunnar Æskilegt að Alþingi afgreiði máttð um ncestu mánaðamót segir iðnaðarráðherra „GERT er ráð fyrir að um 300 manns fái atvinnu við byggingu járnblendiverk- smiðjunnar á Grundar- tanga og gert er ráð fyrir að hún geti hafið starfsemi um mitt ár 1977,“ sagði Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra í samtali við Mbl. í gær. Iðnaðarráðherra sagði ennfremur: „Frumvarpið um járnblendiverksmiðj- una verður tekið til fyrstu umræðu á mánudaginn og mun ég þá flytja framsögu um málið. Þvf verður svo vísað til iðnaðarnefndar. Formaður iðnaðarnefndar í efri deild er Steingrímur Hermannsson og formaður iðnaðarnefndar í neðri deild Ingólfur Jónsson, en báðir þessir þingmenn eiga sæti í stóriðjunefnd sem hefur undirbúið málið. Gert er ráð fyrir að nefndir beggja deilda vinni saman að málinu. Þingmenn munu að sjálfsögðu fá eðli- legan tíma til að kynna sér málið og ræða það, en æski- legt er að Alþingi geti af- greitt málið frá sér um næstu mánaðamót. Það er gert ráð fyrir, ef allt gengur skv. áætlun, að hin fyrirhugaða verk- smiðja gæti tekið til starfa á miðju ári 1977. Þá má skýra frá því nú, að fullt samkomulag hefur náðst við eigendur jarðarinnar Klafastaða, þar sem fyrir- hugað er að verksmiðjan rísi, um kaup á 80 hektur- um lands undir athafna- svæðið og höfnina.“ Iðnaðarráðherra kvað ekki hægt að nefna tölur í þessu sambandi að svo komnu máli. Skv. upplýs- ingum I áætlun stóriðju- nefndar er reiknað með að byggingarkostnaðurinn við verksmiðjuna verði um 80 milljónir dollara, eða um 9600 milljónir króna. SKÝRINGAH: VIORÆOUNEFO UM ORKUFREKAN IÐNAO 1 2 3 4 5-7 5 6 7 Spenn is tö£> Skrifstofubygeine Verkstæöishús Ofnhús og steypuskáli Rykhreinsun Kælar Ryksöfnun (pokahús) Kögglun á ryki 10 1 1 12-15 1 2 13 14 15 16 Viöarspænir Geymslusvæöi fyrir trjáboli Hráefnisbingir Kox Kol Kvar s Jarnspænir Mulningsstöb MALMBLENOIVERKSMIOJA 'A GRUNOARTANGA YFIRLITSMYND HÖFN og verksmiojubyggingar tRKFRÆÐIÞJÓNUSTA Loftmynd af fyrirhuguðu verksmiðjustæði á Grundartanga. Teikningin inn á myndina var gerð í febrúar á sl. ári og frá þeim tíma hafa orðið nokkrar breytingar á stæðinu þótt ekki séu þær verulegar. Teikning sýnir járnblendiverksmiðju Union Carbide í Kanada, en sú að vinna við teikninguna og er það í fyrsta skipti, sem Union Carbide sem fyrirhugað er að reisa hér á landi verður talsvert frábrugðin og gerir slíkt. mun meira lagt upp úr útliti hennar. Hafa arkitektar verið fengnir til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.