Morgunblaðið - 08.02.1975, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975
OaCBÓK
I dag er laugardagurinn 8. febrúar, 39. dagur ársins 1975. Ardegisflóð i
Reykjavík er kl. 05.01, síðdegisflóð kl. 17.23.
Skiljið þér ekki, að allt, sem að utan fer inn í manninn getur ekki saurgað
hann; því að ekki fer það inn i hjarta hans, heldur f magann og fer út í
saurþróna. Með þessum orðum lýsti hann hreina sérhverja fæðu. En hann
sagði: Það, sem út fer af manninum, það saurgar manninn. Því að innan að, frá
hjarta mannanna, koma hinar illu hugsanir, frillulífi, þjónaöur, morð, ágirnd,
illmennska, svik, munaðarlífi, öfund, lastmæli, hroki, fávizka; allt þetta illa
kemur innan að og saurgar manninn. (Markús 7.18—23.).
ÁRNAÐ
HEILIA
21. september gaf séra Tómas
Guðmundsson saman í hjónaband
í Kotstrandarkirkju Sigurveigu
Helgadóttur og Gfsla Rúnar
Sveinsson. Heimili þeirra er að
Núpum í Ölfusi. (Ljósmyndast.
Suðurl.)
Hafnarfjarðarkirkju Astríði
Gunnarsdóttur og Trausta Gunn-
arsson. Heimili þeirra verður að
Dvergabakka 18, Reykjavík.
(Ljósm. Gunnars Ingimarss.).
7. desember gaf séra Halldór
Gröndal saman í hjónaband í
Háteigskirkju Margréti Óðins-
dóttur og Jón Hjört Skúlason.
Heimili þerra verður að Kjarrhól-
um 10, Reykjavík. (Ljósm. Gunn-
ars Ingimarss.)
28. desember gaf séra Sigurður
H. Guðjónsson saman í hjónaband
í Langholtskirkju Sólveigu Sig-
urðardóttur og Jóhannes Krist-
jánsson. Heimili þeirra verður að
Nökkvavogi 35, Reykjavík.
(Ljósm. Gunnars Ingimarss.).
Um þessar mundir eru liðin 10 ár frá því að Brauðbær á Þórsgötu 1 var opnaður. I
tilefni af afmælinu hafa sumar innréttingar nú verið endurnýjaðar, og var þessi
mynd tekin í matstofunni fyrir skömmu. Talið frá vinstri er starfsfólk Brauðbæj-
ar: Jódís Runólfsdóttir, Gísli Thoroddsen, Margrét Pálsdóttir, Soffía Pétursdótt-
ir, Bjarni I. Árnason, eigandi Brauðbæjar, og María Kristjánsdóttir.
IKRDSSGÁTA
Lárétt: 1. fæðutegund 6. skamm-
stöfun 7. ártal 9. snemma 10.
batnar 12. belju 13. ferðir 14.
drekk 15. jurtar.
Lóðrétt: 1. hlýja 2. vöntun 3
tónn 4. ruggar 5. skemmir 8.
ósamstæðir 9. forfeður 11. bratts
fjalls 14. ósamstæðir.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 2. ást 5. ál 7. SP 8. sæla 10.
tá 11. skarpur 13. au 14. pila 15.
ÐR 15. DÐ 17. skrá
Lóðrétt: 1. passaði 3. snarpur 4.
sparaði 6. lækur 7. stuld 9. lá 12.
pf
MIIMMIIMGARSPUÖLD |
Minningarkort Menningar- og
minningarsjóðs kvenna fást í
bókabúð Braga Brynjólfssonar í
Hafnarstræti 22, sími 15597,
Lyfjabúð Breiðholts, Arnarbakka
4—6, sími 73390, i skrifstofu
sjóðsins að Hallveigarstöðum,
simi 18156, og hjá Guðnýju Helga-
dóttur, Samtúni 16, sími 15056.
Til menntamálaráðherra
Valdaferill verði þinn
vorri þjóð til nytja, s
en veislur þínar, Villi minn,
vil ég ekki sitja.
Andrés í Síðumúla
(Vísan birtist í Suðurlandi nýlega).
Það verða kjúkiingar í allan mat, góði, ef rafmagnið fer ekki að koma.
ást er
i -3o
. . . að hafa sanna
ánœgju af að búa
til snjókarl
með krökkunum
TM R?g. U.S. Pot. Off—All fights reserved
' 1.975 by los Angeles Times
| BRIDGE
Hér fer á eftir spil frá leik milli
Sviss og Hollands í kvennaflokki í
Evrópumóti fyrir nokkrum árum.
Norður
S. D-G-10-8-6-5-4-3-2
H. 10-3-2
T. 10
L. —
Vestur Austur
S. K. S. 9-8
H. A-K-G-6 H. D-7-4
T. A-D-9-8-5-4 T. K-7-2
L. 10-2 L. Á-K-G-9-3
Suður
S. A
H. 9-8-5
T. G-6-3
L. D-8-7-6-5-4
Hollenzku spilararnir sátu
N.—S. Við annað borðið og þar
gengu sagnir þannig:
Austur. Suður Vestur Norður
1L P. 1T 4 S
P P- D A. pass
Þrátt fyrir mikil og góð spil létu
svissnesku dömurnar sem sátu A.-
V., sér nægja að dobla 4 spaða og
reyndu alls ekki sjálfar við út-
tektarsögn að maður tali ekki um
slemmu. Sagnhafi fekk 9 slagi,
tapaði einum og svissnesku spilar-
arnir fengu 200 fyrir.
Við hitt borðið sátu hollenzku
dömurnar A.—V. og voru mun
ákveðnari í sögnum, sem voru
þessar:
Austur Suður Vestur Norður
1 L P 2 T 3 S
4 T P 4 G 5 S
5 G P 6 T A. pass.
Þetta er ágæt slemma, en því
miður er spilaskiptingin þannig
að hægt er að setja spilið niður.
Norður lét út spaða 2, suður drap
með ási og var ekki lengi að koma
auga á, að útspilið þýddi að hún
ætti næst að láta út lauf.
Það gerði hún, norður trompaði
og spilið varð einn niður og þann-
ig tapaði holenzka sveitin samtals
7 stigum á spilinu.
FRÉTTIR
Kvenfélag Grensássóknar held-
ur fund mánudaginn 10. febrúar
kl. 20.30 i safnaðarheimilinu.
Merkið kettina
Vegna þess hve alltaf er
mikið um að kettir tapist frá
heimilum sfnum, viljum við
enn einu sinni hvetja kattaeig-
endur til að merkja ketti slna.
Aríðandi er, að einungis séu
notaðar sérstakar kattahálsól-
ar, sem eru þannig útbúnar, að
þær eiga ekki að geta verið
köttunum hættulegar. Við ól-
ina á svo að festa litla plötu
með ágröfnu heimilisfangi og
símanúmeri eigandans. Einnig
fást samanskrúfaðir plasthólk-
ar, sem i er miði með nauðsyn-
legum upplýsingum.
(Frá Sambandi dýraverndun-
arfélaga tslands).