Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 Hér er Mitsubishi Colt Lancer billinn, sem vann Austur-Afríku Safari keppnina í fyrra, en það er ein erfiðasta rally keppni heims. Bifreiðaskýrsla Menn binda sem sagt vonir sín- ar við að hægt verði að koma á íslensku ralli strax næsta rumar þó vissulega væri meira spennandi að hafa keppnina við erfiðar aðstæð- u. í hálku og snjó. Síðar verður hér hugsanlega alþjóða rally keppni, sem kalla mætti rally eld- fjallalandsins eða e-ð slikt. Enn á þó eftir að ganga frá undirstöðuat- riðum i sambandi við umferðarlög- in, þar eð sérstaka undanþágu þarf til að mega aka á yfir 70—80 km/klst. hraða hérlendis! Rally keppnir hafa viða átt mikl- um vinsældum að fagna. Þar sem ekið er á þjóðvegum eiga margir kost á að sjá keppendur, að visu oft ekki nema einu sinni. Bilarnir sem keppt er á eru stundum nefndir „venjulegir" fólksbilar, þ.e. eins og menn kaupa þá fjölda- framleidda. Keppni á slikum bilum er vissulega hugsanleg, þó hætt sé við að ekki kæmust allir langt þá, en í alþjóðakeppnunum eru bilarnir gjörbreyttir og gífurlega mikið styrktir þó ytra útlit sé að mestu óbreytt. ÞAÐ er ekki beint skemmtilegasti timi ársins, fyrir bileigendur um þessar mundir. Nema þá e.t.v. fyr- ir vissan hóp jeppaeigenda, sem bregða undir sig betri fætinum, skella keðjunum á og keyra siðan upp í Innstadal. Samkvæmt bifreiðaskýrslu Hag- stofu íslands fyrir s.l. ár er heildar- bifreiðaeign landsmanna 1. jan. '74 63.532 og þar af eru rúml. 56 þúsund fólksbilar með sæti fyrir allt að 8 farþega. I Reykjavík eru fólksbilarnir 23.400, en gömlu númerin sem nú er verið að hætta með hins vegar yfir 40.000.— Nokkur eru því greinilega ónotuð. Athyglisvert gæti verið að kanna hversu margir bilar eru hálfónýtir, númerslausir og i al- gjörri niðurniðslu t.d. víðsvegar um höfuðborgina. Við sumar götur virðist eins og hræ standi utan við annað hvert hús næstum þvi. Eng- ar tölur er þó að finna um slíkt i áðurnefndri skýrslu. í bifreiðaskýrslunni er m.a. tafla þar sem getur að lita undarlegustu nöfn farartækja, sem hörðustu áhugamenn hafa varla heyrt nefnd. Hvar eru t.d. Amphicar, Autocar, Chaika, Czepel, Dia- mond, Essex, Grahm Paige, Zwicky? Það væri gaman að sjá eitthvað af þessum bilum. Alls munu skráðar 172 mismunandi gerðir fólksbila hér. Fólksvagninn (VW) er enn sú tegund, sem mest er til af í land- inu, 7903 bilar. Ford er næstur Það verður spennandi að fylgj- ast með islensku ralli ef ú verður, sem ég leyfi mér að vona. br. h. Kappakstur á brautum er alvarlegra mál en rally \ Ekki kannski besti árstíminn fyrir „fínu" bílana. enda margar gerðir til af honum, 7427. Moskvichinn er þriðji al- gengasti billinn á íslandi og af honum eiga að vera til 3350. — Göturnar hafa farið illa und- anfarið eins og berlega kom í Ijós er hálkublettirnir bráðnuðu í rign- ingunni nýverið. Stórvarasamar holur hafa sums staðar myndast i malbikið og staðið opnar og ómerktar nokkuð lengi. Maður hefur ekki undan að pússa Ijósin og bilrúðurnar og notkun rúðusprautanna er i al- gleymingi. Það þarf sifellt að bæta á þær vatni og ísvara, og ekki má gleyma að hreinsa þurrkublöðin. Oft er launhált og klakabúnkar i beygjum og öðrum varasömum stöðum. Oft er nauðsynlegt að stoppa á klaka og siðan spólar maður af stað og nær skyndilega spyrnu svo snýst upp á drifskaftið undan hinu mikla álagi. — Áhugamenn um rally, þ.e. nokkurs konar víðavangskapp- akstur (rall) hafa nú upp á siðkast- ið látið nokkuð frá sér heyra og frægur aðstoðar rallyökumaður, Henri Liddon, kom hingað nýverið til að kanna aðstæður til slikrar keppni. Liddon hefur oft staðið sig mjög vel og tvisvar verið við hlið sigurvegarans i Rallye Monte Carlo, fyrir nokkrum árum. Nýver- Íð sigraði hann i Bandana rally i Afriku. eftir ÁSGEIR JAK0BSS0N Beitarþolið til sjós og lands Mikiö er nú rætt um sóknina i íslenzku fiskstofnana og þá einkum þorskstofnsins. Svo er sagt og vafalaust með miklum sanni, að við náum ekki fullri magnnýtingu úr íslenzka þorsk- stofninum vegna þess, að ung- fiskur eða undirmálsfiskur sé of mikill hluti aflans. Að vísu vinnum við eitthvað upp með fjölda veiddra fiska, þar sem náttúran fækkar fiskinum tals- vert árlega(10—20% fyrstu ár in). I þessu máli öllu eru mik- ilsverðir þættir lítt þekktir. Við þekkjum ekki beitarþol ís- lenzkufiskislóðarinnarog held- ur ekki hvað við þurfum stóran stofn til að tryggja hrygningu, vegna þess, hvað klakið lánast misjafnlega. Þar sem við þekkj- um ekki beitarþol íslenzku fiskislóðarinnar getum við ekki vitað, hvaða áhrif breytt aldurs- skipting í þorskaflanum kynni að hafa á vöxt og viðgang þorsk stofnsins sjálfs og heldur ekki, hvaða áhrif heildar viðkoma þorskstofnsins hefði á viðkomu annarra skyldra stofna. (Eykst ufsaafli ef þorskgengd minnk ar, loðnuafli ef sildarafli minnkar ogsvoframv.)— Við getum ekki svarað þessum spurningum nema þekkja lífs- skilyrðin í sjónum, eða beit- arþolið sem vel má kalla svo. Ef við beitum of miklu af full- orðnu fé í hagana, hver verður þá hlutur lambanna? Verða þau afétin með þeim afleiðingum að vöxtur þeirrahægistog frálags þungi þeirra minnkar? Og hver yrði svo hlutur annars kvikfén- aðar, sem þyrfti aó sækja í þessa sömu haga? Þola miðin að allur þorskfiskur nái fullum vexti? Þyldu hagarnir íslenzku að allur búfénaður bænda næði fullum vexti? Til dæmis engri kind slátrað fyrr en hún væri orðin tvævetur eða eldri? A sama hátt verðum við að spyrja okkur, hvað ætismögu- leikar á íslenzku fiskislóðinni þoli mikið af fullorðnum fiski án þess að vaxtarskilyrði ung- fisks minnki og þorskstofninn í heild jafnvel bíði tjón af. Afla- leysi fyrri alda, áður en of mikil sókn gat verið orsökin, hefur vitaskuld stafað af ýmsum nátt úrlegum orsökum, en getur það ekki hafa verið ein þeirra, að fullorðni hlut stofnsins hafi orðið of ríkjandi og stofninn þannig að einhverju leyti eytt sjálfum sér. I meginatriðum verðum við að reikna beitarþolsdæmið eins til lands og sjávar, en þó er sá grundvallarmunur á, að við get- um haldið fjölda kvikfénaðar hæfilegum og í samræmi við þol haganna bæði með grisjun og aukinni ræktun, en við getum ekki stillt saman beitar- þoli fiskimiðanna og fiskstofn- anna. Við getum ekki aukið beitarþolið, heldur aðeins grisj- að fiskstofnana, en vitum þá ekki hvað mikið við þurfum að grisja þá né í hvaða hlutföllum. Borgar sig að miða sóknina við fullvaxinn fisk? Örugg mörk Bændur hafa þann hátt á að slátra búfénaði sínum strax og hann hefur tekið út örasta vöxt- inn og slátrað því lömbunum á haustin en ala þau ekki yfir veturinn til frálags að vorinu, þó að þau þyngist all-verulega. Þeim finnst sú þyngdaraukning ekki borga sig. Þeir vilja lika af þessum sökum heldur nýta beitarlönd sín fyrir lömbin á sumrum en veturgamalt fé, þó að það bæti einhverju við sig i þunga til slátrunar að hausti. Lömbin vaxa lang-hraðast og skila þeim hagkvæmustu sláturþunga. Það sama gæti átt við i sjónum. Þess vegna geta allir likast til orðið sammála um að rétt sé að skirrast sem mest við að veiða fisk yngri en 5 ára, en hitt yrði þá áfram Það má ýmsa lærdóma draga af þessu yfirlitskorti yfir uppeldis- stöðvar þorsks (krossaða svæðið) og göngur hrygningarfisksins (hvíta línan eftir allri uppeldisslóðinni) — af og á hrygningar- stöðvarnar fyrir Suðurlandi. Það er máski ekki eins auðvelt og margir halda að skilja smáfiskinn frá stór-þorskinum á slíkri fiskislóð. En kortið sýnir fleira. Þó að það sé ekki nákvæmt sýnir það i stórum dráttum, að uppeldisslóðin er ekki grynnsta slóðin upp við landið, heldur grunnin utar. Þetta er svo sem ekki ný speki, en það hafa ótrúlega fáir tileinkað sér hana. Kannski er oftar að finna fullvaxinn fisk í göngu næst landinu en smáfisk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.