Morgunblaðið - 08.02.1975, Page 33

Morgunblaðið - 08.02.1975, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ; LAUG ARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 33 Lang- Moíö ö kvenréttindarööstefnu Jóhanna Kristjönsdóttir 'býddj 37 sér þann munaó aö vera þag- mælskur, nema í ákveðnum hlut- um, situr skömmu síðar einn með Ase Stenius lækni inni í dagstof- unni. Hún er klædd í hvíta blússu og blátt pils og hún er bæði falleg og hressileg eins og venjulega. Þýzkri vinnukonu er skipað fyrir verkum og ekki líður á löngu unz Christer hefur rjúkandi kaffi fyr- ir framan sig. Og eins og hennar er von og vísa kemur hún beint að efninu: — Já. Það voruð sem sagt þér sem höfðuð rétt fyrir yður, lög- regluforingi. Eins og venjulega. — Þökk fyrir. Þér hafið lesið krufningsskýrsluna. — Já. Þar fer ekkert á milli mála. — Nei varla. Og sérstaklega þar sem þess er gætt að í botnfallinu var einnig stryknin. En það er eit urtegund, sem ég áleit að væri erfitt að komast höndum yfir... Hún fær sér marmelaði á ristað brauð, bitur i og segir því næst: — Læknir getur að sjálfsögðu orðið sér úti um stryknin hvenær sem er. En ég hef reynt að sann- færa aðstoðarmenn yðar um að ég hafi ekkihaftstryknini ferðatösk unni minni, þegar ég hélt til ráð- stefnunnar. — Einmitt. En þér hafið líka reynt að sannfæra okkur um að þér hafið ekki hreyft við neinu í herberginu, þar sem morðið var framið, þér hafið ekki flutt hina látnu, né hreyft við nokkru. STENIUS LÆKNIR, ER ÞAÐ NU VÍSTOG RÉTT? — Já. Ef ég segi satt í nokkrum sköpuðum hlut þá er það í því. En það kemur mér ekki á óvart, þó að þér trúið mér ekki eftir að sem á undan gekk. Hún roðnar við og ræðst i það erfiða verkefni að útskýra... og verja sig. — Ég vildi ekki að lögreglan hæfi rannsókn, þrátt fyrir að ég VELVAKAEMOI ,,Ég vil eindregið lýsa yfir stuðningi mínum við ósk, er fram kemur i upphafi greinar Þorvalds Friðrikssonar um málmblendi- verksmiðjuna fyrirhuguðu. Hún felst í því að ræða megi þetta mál á efnislegum grundvelli, án þess að þar þurfi að koma til flokks- pólitískra átaka. Þetta er mál, sem ætta að verða ihugunarefni fyrir hvern einstakling í landinu og nauðsynlegt, að gerðar verði óhlutdrægar rannsóknir á afleið- ingu slíkrar stóriðju, t.d. á hinum Norðurlöndunum. Þorvaldur minnist einnig á, hvernig þvi er óspart haldið fram, að stóriðja af þessu tagi sé nauð- synleg til að veita atvinnu í land- inu. Væri í því sambandi fróðiegt að heyra álit fleiri manna um hvort ekki væri hægt að gera stór- átak í þeim málum með byggingu fleiri gróðurhúsa og þar með nýt- ingu á jarðhita og rafmagni. Þar myndu skapast ólíkt skemmti- legri atvinnumöguleikar án mengunar, jafnframt framleiðslu á lífsnauðsynlegum matvælum, sem raunverulegur skortur er á i heiminum. Vil ég að lokum eindregið skora á ráðamenn þjóðarinnar að taka mál þetta til vandlegrar end- urskoðunar. María L. Einarsdóttir, N.J. Fjords Allé 9 Kaupmannahöfn." % Blandað í svartan dauðann Anna Eiríksdóttir i Hafnarfirði hringdi og bað okkur að koma því á ffamfæri, að þrátt fyrir lofsam- leg ummæli um sögu Steinars Sig- urjónssonar, sem Karl Guðmunds- Velvakandi svarar í slma 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi til föstudags. % Leiðakerfi Kópavogs- vagnanna Leiðakerfi Kópavogsvagnanna er enn til umræðu og sýnist sitt hverjum. ,,Hef ég verið dæmd í Síberíuvist?" skrifar Guðný A. Jónsdóttir og sendir eftirfarandi bréf: „Ég hef verið búsett í Kópavogi í rúm tvö ár og fram að þessu kunnað vel við mig. Ég er roskin kona, ein á báti núorðið, vinn í Reykjavík frá kl. 10—4 á daginn. Ég man að kunningjar mínir og frændfólk sögðu við mig þegar ég var flutt: Æ, mér finnst þú vera komin til Siberíu, elskan min. Þetta kom satt að segja illa við mig. En ég sagði, að þetta væri þó ekki lengra en upp i Breiðholt. En reyndin hefur orðið sú, að ég hef fengið miklu færri gesti en áður og allir kennt samgöngúnum um. En þær fara nú bráðum að batna, sagði ég Iengi vel. En aldrei á ævi minni hef ég orðið fyrir eins miklum vonbrigðum sem af reynslu minni af hinu nýja vagnakerfi okkar Kópavogsbúa. Það er ein endalaus hringavit- leysa.svo að nú tekur það okkur hálftíma lengur hvora leið en áð- ur var, auk þess endalaus þeyting- ur á milli vagna, óvissa, spenning- ur, kuldahim og slysahætta.“ # „Kella í Síberíu“ „Nýlega átti ég merkisafmæli og komu þá fleiri i heimsókn til mín en nokkru sinni fyrr, en aðal- umræðuefnið var því miður mín ömurlega Síberíuvist. En ég hef nú ekki fengið orð fyrir að styðja þá að málum sem stjórna ríkjum kommúnista. Einn frændi minn orti: Margan sopa fyrr ég fékk hjá frænku minni Nýju, komin er nú á kommabekk kella I Síberíu. Áður bjó ég lengi i einu út- hverfa Reykjavíkur og kvartaði enginn yfir því hve erfitt það væri að heimsækja mig. Þangað voru ágætis ferðir, enda hugsar borgarstjórn Reykjavíkur vel um það, að þeir sem ekki eiga einka- bíla geti komist allra sinna ferða, forstjóri strætisvagnanna þar hinn liprasti ágætismaður. Hér í Kópavogi vill víst enginn gangast við því að hann beri ábyrgð á þessum málum, helst skilst manni að það séu vagnstjórarnir, sem hafi ráðið því hvernig málum er háttað. Ég vil hér með skora á bæjaryf- irvöld í Kópavogi að efna til fund- ar um þessi mál. Ef ekki verður breyting á þessu, verða þeir, sem ekki eiga einkabila að flytjast burt á betri stað.þar sem betur er að mönnum búið. Guðný A. Jónsdóttir" # Málmblendi- verksmidjan María L. Einarsdóttir skrifar frá Kaupmannahöfn, en tilefnið segir hún vera greinina „Járnflis í auga Hvalfjarðar", sem birtist í blaðinu 3. jan. s.l.: hefði vissulega grun um að morð hefði verið framið og ég reyndi að leiða yður á villigötur með tilliti til dánarorsakarinnar, þegar vió töluðum saman fyrst. Og það gerði ég af einni — tveimur, reyndar þremur ástæðum. — Og ástæóa númer eitt? — Hræðslan við það, sem óhjá- kvæmilega fylgdi í kjölfar morðs. Mér fannst sú tilhugsun viðbjóðs- legri en ég get lýst með orðum að rifið yrði upp i öllu og allir félag- ar í klúbbnum drægjust inn í slíka rannsókn. Ef það sem sagt væri... það sem fram kæmi, yrði leyndarmál milli þeirra sem áttu hlut að máli og lögreglunnar, hefði ég ekki mælt gegn því. En nú á dögum fella ákveðin blöð dóma löngu áður en málið er kom- ið fyrir dómstóla og maður er nánast aflífaður opinberlega, hvort sem maður er sekur eða saklaus. Það er viðbjóðslegt, og ég ætla ekki að reyna aó segja yður, hvað þessar umliðnu vikur hafa verið hryllilegar. Vitið þér að ég ligg undir sterkum grun! Mér er líkt við enskan lækni, doktor Ad- ams, sem kannski — hann var sem sé sýknaður — myrti sjúkl- inga sína á færibandi? Katarina þorirekkiað sýna sig i verzluninni sinni. Fólk kemur langar leiðir til að glápa á hana. Eva Gun fékk taugaáfall og hefur fengið leyfi frá þingstörfum. Eruð þér hissa á því þótt maður hiki ögn áður en maður gengur að því af fúsum og frjálsum vilja að steypa sér og vinum sinum í slika glötun? Hún dregur andann ótt og titt og er skjálfrödduð af hugaræs- ingi. En Christer svarar dapur- lega: — Eru rök yðar ekki dálítið mót uð af eigingirni, Áse Stenius? Skiptir það yður engu máii aö réttlætinu verði framfylgt og morðingi fái makleg málagjöld? — Jú, viðurkennir hún hispurs- laust. — En það fer dálítið eftir þv hvert er fórnarlámb morðingj- ans. Ef það hefði verið Uno. Eða Ruth Zettergren — eða ýmsir aðr- ir. En BETTI! Það var reyndar ástæða númer tvö til þess að ég vann gegn yður. Fyrst hún var dáin, þá það! Það hefði verió Hvort ég vilji máta buxur — því spyrjið þér að því? betra fyrir alla aðila, sennilega líka fyrir yður, ef ég hefði fengið að halda áfram að trúa því að hún hefði fengið hjartaáfall og ég hefði með góðri samvizku getað gefið út dánarvottorðið. Christer andvarpar og fær sér sopa af sterku kaffinu. — Mig minnir að ástæðurnar hafi verið þrjár? — Og sú þriðja voruð þér sjálf- ur, lögregluforingi. — Afsakið. Nú skil ég ekki. — Jú, þriðja ástæóan var ein- faldlega, hávaxinn og afar hroka- fullur lögregluforingi, sem fór svo í taugarnar á mér að það er nánast hlægilegt og sá maður virðist enn hafa sérstakt lag á að koma mér úr jafnvægi og fá mig til að setja fram einkennilegar skoðanir og yfirlýsingar sem ég meina alls ekki... Og nú megið þér komast að! Augu hennar glampa, í þeim speglast tilskiptisgremjaog kald hæðni. Og allt í einu brosa bæði og hann gefur þessa sigildu yfir- lýsingu, sem nota má við hvert tækifæri þegar mönnum er orða vant. — Ja, þetta kvenfólk! Og svo spyr hann forvitnislega: — Hvað hefðuð þér gert ef ég hefði ekki skotið upp kollinum? — Þér þurfið ekkert að óttast. Ég hefði að lokum kallað á lög- regluna. En ég vildi fá tíma til að hugsa þetta betur. Svo að það var þess vegna sem þér vilduð ekki láta senda eftir manninum sem Louise Fagerman vildi láta kveðja á vettvang til að fjarlægja iíkið. Og þar með erum við komin aftur að upphafi málsins. — Já. Viljið þér frekar að ég hefði hreyft eitthvað. Mér heyrist það næstum. — Já. Ég hefi að minnsta kosti verið yður þakklátur, ef þér hefð- uð flutt bakkann með sérriglös- unum frá náttborðinu og yfir á kommóðuna. Þér hefðuð líka átt að fá yður glas til að styrkja yður á eftir þá sjón sem við blasti. — Ég er bæði mjög forvitin og son les á kvöldin um þessar mundir, þá þætti sér hún ekki boðleg sem útvarpssaga. Sagan væri mestmegnis blóts- yrði, drykkjuraus og fúkyrða- flaumur, sem fullorðnu fólki, þar á meðal sér, líkaði alls ekki að hlusta á. Enda þótt sögunni og flutningnum hefði verið hælt í Morgunblaðinu fyrir skömmu, þá væri ekki þar með sagt, að allir væru á sömu skoðun, og því vildi hún láta þetta koma fram. £ Síðdegisþættir um fötlun Jóhanna Björnsdóttir hringdi og bað okkur að koma á framfæri þakklæti til Gísla Helgasonar, sem hefur umsjón með þáttum I útvarpinu siðdegis, en þættirnir fjalla um málefni fatlaðra. Jóhanna sagði, að þarna væri fjallað um málin af nærfærni og skilningi, án þess að um væri að ræða viðkvæmni, og væru þætt- irnir mjög vel til þess fallnir að vekja fólk til umhugsunar og skilnings á málefnum þeirra, sem með réttu hefðu stundum verið kallaðir „olnbogabörn Þjóðfélags- ins“. Jóhanna sagði, að þó þyrfti að sjálfsögðu að f.vlgja böggull skammrifi. Þættirnir væru fluttii á afar óheppilegum tíma — tíma þegar meirihluti fólks væri önn um kafinn við nám eða starf ; öðrum vettvangi en heimilinu Gerði hún það að tillögu sinni, að þættirnir yrðu endurteknir betri tíma. FbImsIíí lí. . Glæsilegt — Bingó í Glæsibæ á morgun kl. 3:30. Húsið opnað kl. 2:30, 14 umferð- ir Verðmæti vinninga 60 þúsund krónur. Enginn aðgangseyrir. Reynið heppni ykkar. Kvenfélag — og Bræðrafélag Langholts- kirkju. Sunnudagaskóli I Fellaskóla kl. 10.30. Séra Lárus Halldórsson. Skrifstofa félags ein- stæðra foreldra er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 3 — 7. Aðra daga kl. 1—5. Ókeypis lögfræðiaðstoð fyrir félagsmenn fimmtudaga kl. 10—12, sími 1 1822. Kvenfélag Bústaðarsókn- ar Fundur verður haldinn mánudag- inn 10. febrúar kl. 8:30 í safnaðarheimili Bústaðarkirkju. Félagsráðgjafi kemur á fundinn. Stjórnin. Stúlka Freyja nr. 218 Fundur í kvöld kl. 8:30 i Templarahöllinni Eiriksgötu 5. Br. Karl Helgason flytur erindi um góðtemplarahópa. Framkvæmda- nefnd Stúrstúku (slands mætir á fundinn. Kaffi eftir fund. ÆT. KFUM — Reykjavík Á samkomunni annað kvöld 'kl. 20.30 talar Gunnar Sigurjónsson, guðfræðingur. Eisöngur, Halldór Vilhelmsson. Tekið verður á móti gjöfum til Bibliufélagsins. Allir vel- komnir. Heimatrúboðið Almenn samkoma að Óðinsgötu 6 A á morgun kl. 20.30. Sunnu- dagaskóli kl. 14. Verið velkomin. Sunnudagsganga 9/2 Tröllafoss — Haukafjöll. Verð kr. 400. Brottför kl. 1 3. frá B.S.Í. Ferðafélag (slands. FERÐAFELAG' : ÍSLANDS Stjórn Ferðafélags Isjands boðar til Almenns félagsfundar mánudaginn 10. febrúar i Lindar- bæ (niðri) kl. 20.30. Dagskrá: Stefna og markmið Ferðafélagsins á næstu árum, m.a. varðandi er- lenda ferðahópa á vegum þess. Aðalfundur F. I. 1975 verður haldinn á sama stað og tima mánudaginn 24. febrúar. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.