Morgunblaðið - 14.03.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1975
21
Einar Júlíusson
sextugur í dag
í dag, 14. marz, er Einar Júlíus-
son Ránargötu 5, starfsmaður viö
bifreióageymslu Eimskipafélags
íslands, sextugur.
Hann er fæddur í Einarsbæ á
Seyöisfirði, einn af 10 börnum
hjónanna sem þar bjuggu upp úr
síóustu aldamótum, þeirra Július-
ar Einarssonar frá Húsavík í
Borgarhreppi og Guðmundu Sig-
urjónsdóttur frá Sigurðarstöðum
á Sléttu, en ættir þeirra hjóna
standa djúpum rótum víðsvegar
um Austur- og Norðausturland.
Hratt flýgur tíminn Seyðfirð-
ingur. Þar sem kirkja þín stendur
í dag, kúrði litli bærinn hans
Júlíusar Einarssonar fyrir 60
árum, og þar á túnblettinum
umhverfis bæinn og við önnur
störf til lands og sjávar, var lífs-
baráttan háð til þess að sjá heimil-
inu farborða, og þar var börnun-
um skorinn sá stakkur seui hvert
og eitt ber til hinzta dags. Þ,
lærðist að þreyja þorrann og go-
una, að krefjast einskis af öðrum,
nema réttlætis, að svo miklu leyti
sem þau afstæðu lífsgæði verða
vegin og metin, en alls af sjálf-
um sér.
Einar stundaði sjómennsku frá
14 ára aldri, lengst af á línuveið-
urum, en 1954 réðst hann til Eim-
skipafélagsins, en þar sem
annarsstaóar hefur hlutur hans
ekki legið eftir. Kona hans er
Guðrún Asgrímsdóttir frá Signýj-
Blómleg starfsemi
Islendingafélags-
ins í Stokkhólmi
arstöðum í Hálsasveit. Það er ekki
ætlunin að rekja hér ævisögu
Einars í smáatriðum, enda ekki
öll ennþá. Aðeins vildi ég með
þessum linum þakka honum góð
og drengileg kynni, og veit að
flestir sem hafa haft samskipti
við hann á liðnum árum, eru sama
sinnis. Einlægar hamingjuóskir
til þín og fjölskyldu þinnar á þess-
um tímamótadegi.
Lifðu heill.
Fornvinur.
STARFSEMI íslendingafélagsins
í Stokkhólmi hefur verið blómleg
það sem af er starfsárinu, sem
hófst í lok október.
Fullveldis íslands var aó venju
minnst með hófi, sem var fjölsótt
og fór vel fram.
Tveir umræðufundir um ís-
lenzk mál hafa þegar verið haldn-
ir: 16/11 um náttúruvernd á is-
landi méð Hauki Hafstað, fram-
kvæmdastjóra Landverndar, og
7/12 með Geir Hallgrímssyni for-
sætisráðherra, um ástand og horf-
ur í islenzkum stjórnmálum. Báð-
ir þessir fundir voru mjög vel
sóttir og umræður svo fjörugar,
að erfitt reyndist að takmarka
fundartíma.
Milli hátíða var haldin jólagleði
fyrir börn íélagsmanna. islenzk
jólalög voru sungin þar fullum
hálsi, og koma tveggja íslenzkra
jólasveina vakti mikla kátínu
barna sem fullorðinna.
Farið var í leikhús í nóvember
og í febrúar miðlaði félagið
miðum á gestaleik Þjóðleikhúss-
ins, Inuk. 1 sambandi við gesta-
leikinn var leikflokknum boðið á
rabbkvöld um íslenzk leiklistar-
og önnur menningarmál.
22. febrúar sl. var svo þorri
blótaður með íslenzkum þorramat
og viðeigandi siðum. Voru þar um
100 matargestir sem nutu góðgæt-
isins, og var blótið í alla staði vel
heppnað.
Ætlunin var að byggja stóran
hluta starfsemi félagsins á fund-
um, þar sem félagar gætu hitzt,
lesið íslenzk dagblöð og rætt þau
mál, sem efst eru á baugi heima.
HAGKAUPí
KJÖRGARÐ
Á götuhæðinni allri: góðar vörur á Hagkaupsverði!
Hagkaupsverö er hagstætt verö!
IkjörgarðiIIlaugavegi 59