Morgunblaðið - 03.04.1975, Page 1
32 SIÐUR
72. tbl. 62. árg.
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
„Ekkert hægt að gera
í S-Vietnam úr þessu”
Stríðshörmungar — S-
Vietnömsk kona brest-
ur í grát, er henni er
tilkynnt að maóur
hennar hafi fallió i
bardögum vió skæru-
liöa Viet-Cong á mióhá-
lendi S-Vietnams.
segir Rockefeller — Arás komm
únista á Saigon innan 30 daga?
Saigon, YYashington og París 2. aprfl
AP—Reuler—NTB.
OLDUNGADEILD S-Víet-
namþings gagnrýndi
í dag Thieu forseta lands-
ins harkalega og krafðist
þess að nýir leiðtogar
tækju við til að binda enda
á stríðið. A meóan umræð-
ur stóðu yfir í þinginu
féllu 5 stjórnarhéruð til
viðbótar í hendur komm-
únista. James Schlesinger
varnarmálaráðherra sagði
á blaóamannafundi í
Washington í dag að svo
kynni að fara að kommún-
istar réðust á Saigon innan
mánaóar. V* hlutar S-
Víetnams eru nú á valdi
skæruliða Víet Cong og
hersveita N-Víetnams og
Kosningabarátta
í Portúgal hafin
fara sveitir kommúnista
eins og logi yfir akur.
Mikill ótti ríkir i Saigon viö
yfirvofandi árás kommúnista og
byrjað er að flytja á brott frá
landinu hundruðir munaðar-
lausra kornabarna með banda-
rískum flutningaþotum. Héruðin
sem féllu í dag voru Tuy Hoa,
Phan Rang, Phan Thiet, Dalat og
Cam Ranh herstöðin, sem Banda-
ríkjamenn byggðu fyrir um 250
milljónir dollara. Algert stjórn-
leysi og örvænting ríkir nú í flest-
um borgun S-Víetnams.
Nelson Rockefeller varaforseti
Bandarikjanna sagði við frétta-
menn í New York í dag, að hann
teldi að lítið sem ekkert væri
hægt að gera fyrir S-Víetnam úr
því sem komið væri og heldur
ekki fyrir þær milljónir flótta-
manna, sem hrekjast undan
árásarsveitum kommúnista.
Aðspurður um kröfu öldunga-
deildar S-Víetnams um að Thieu
forseti segði af sér sagði Rocke-
feller: „Slíkt myndi engu breyta,
allir reyna að sprikla i vonlausri
og hörmulegri aðstöðu." Rockefell
er sagðist gera ráð fyrir að mikill
Framhald á bls. 18
Lissabon 2. apríl AP—Reuter.
KOSNINGABARATTAN fyrir
þingkosningarnar í Portúgal, sem
fram eiga að fara 25. þessa mán-
aðar, hófst formlega í dag. 12
stjórnmálaflokkar bjóða fram til
þings. Fulltrúar á þessu þingi
munu semja nýja stjórnarskrá,
en herforingjarnir í byltingarráð-
inu, sem sett var á stofn eftir hina
misheppnuðu byltingartilraun í
sl. mánuði, köiluðu fulltrúa
flokkanna á sinn fund f dag og
skýrðu þeim frá því að þeir
myndu fella út öll þau atriði f
hinni nýju stjórnarskrá, sem þeir|
ekki gætu fellt sig við. Er því
einsýnt að stjórnarskráin verður
mjög til vinstri í samræmi við
skoðanir herforingjanna.
Phnom Penh fellur inn-
an tveggia vikna
— að sögn hernað-
arsérfrœðinga
Phnom Penh 2. apríl AP—Reuter
SKÆRULIÐAR Khmer Rouge
hafa nú alger yfirráð yfir
Mekongfljótinu í Kambódfu eftir
að þeir náðu ferjuborginni Neak
Luong á sitt vald f einum mesta
sigri sfnum í sókninni, sem staðið
hefur í þrjá mánuði. Taka borgar-
innar losaði einnig um 6000
skæruliða, sem sótt hafa að þessu
svæði og geta þeir nú beint sér
óskiptir að töku höfuðborgarinn-
ar Phnom Penh. Neak Luong er í
um 50 km f SA frá höfuðborginni,
en svæðið suður af Phnom Penh
er einn veikasti varnarhlekkur
Karpov heimsmeistari?
Fischer gufaður upp
New York 2. apríl AP—Reutcr.
FRESTIJR Bobby Fischers til
að tilkynna þátttöku í heims-
meistaraeinvfginu f skák renn-
ur út kl. 10.00 árdegis f dag
fimmtudag, en stjórn FIDE
ákvað á sfðustu stundu í gær að
framlengja hann um 27
klukkustundir „á þeirri for-
sendu að hugsanlegt væri að
Fischer hefði á síðustu stundu
sent skeyti, sem ekki hefði náð
f tæka tíð“.
Fæstir eru þó þeirrar skoðun-
ar að Fischer láti nokkuð frá
sér heyra og sagði Ed Edmond-
son forseti bandaríska skák-
sambandsins við fréttamenn í
New York i gær, að hann ætti
ekki von á þvi aó Fischer tefldi.
„Eg vona að ég hafi rangt fyrir
mér, en held ekki". Edmondson
sagðist ekkert hafa heyrt frá
Fischer frá því í síðustu viku og
vissi ekkert um hann. Svo virð-
ist sem Fischer hafi hreinlega
gufað upp. Hann hefur nú um
langt skeió búið i Pasadena i
Kaliforniu, en aðeins örfáir
nánir vinir vissu hvar hann bjó
og simanúmer hans. Svo gerðist
það fyrir nokkrum dögum að
blaðakona nokkur komst að þvi
hvar Fischer bjó, en er frétta-
menn komu þangað i gær
greipu þeir i tömt. Kona, sem er
húsvörður í byggingunni, sagði
þeim aó Fischer væri fluttur og
hefði ekkert sagt hvert hann
væri að fara.
Margir eru nú orðnir þeirrar
skoðunar, að Fischer sé alger-
lega orðinn fráhverfur skák-
inni og mannlífinu almennt og
að hann muni nú endanlega
draga sig inn i skel sina og ekki
koma fram opinberlega aftur.
Fari svo að Fischer hafi ekk-
ert látið heyra i sér fyrir kl.
10.00 nú fyrir hádegið missir
hann sjálfkrafa titilinn og
Anatoly Karpov verður hinn
nýi heimsmeistari í skák. Þess
skal að lokum getið, að veró-
laun þau, sem í boði voru af
stjórnvöldum á Filipseyjum,
þar sem fyrirhugað var að ein-
vigið færi fram, nema 750
milljónum isl. kr.
inn umhverfis borgina. Telja
hernaðarsérfræðingar að
stjórnarhermenn geti í mesta lagi
haldið höfuðborginni í 2 vikur til
viðbótar.
Fall Neak Luong fylgdi i kjölfar
brottfarar Lon Nols forseta Kam-
bódíu, sem flúði land i gærmorg-
un og kom i gærkvöldi til
indónesísku ferðamannaeyjarinn-
ar Bali ásamt Long Boret for-
sætisráðherra. Þá herma fregnir
að tveir hershöfðingjar og fjórir
aðrir háttsettir herforingjar i
stjórnarhernum hefóu fallið eða
verið handteknir í Neak Luong.
Mjög harðir og blóðugir bardagar
urðu um borgina og er talið að
mörg hundruð manns hafi fallið í
þeim og gifurlegur fjöldi særzt.
Er stjórnarhermenn og óbreyttir
borgarar flúðu borgina, skyldu
þeir eftir spitala, sem voru fullir
út úr dyrum af særðu fólki. Með
falli bæjarins er algerlega tekið
fyrir vistaflutning til Phnom
Penh nema með flugvélum.
Talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins í Phnom Penh skýrði frá
Framhald á bls. 18
Allt við það sama hjá
brezkum fiskimönnum
London 2. apríl AP—Reuter.
ÖBREYTT ástand var að heita i
aðgerðum brezku fiskimannanna
í dag, en þó opnuðu fiskimenn i
Newcastle höfnina þar, eftir að
dómstóll hafði úrskurðað lokun-
ina ólöglega. Hins vegar hófu
fiskimenn á N-Irlandi samúðarað-
gerðir og lokuðu m.a. höfninni í
Bclfast. Eru þvf um 50 hafnir í
Englandi, Skotlandi og á N-
Irlandi lokaðar.
Eftir kvöldmat hófst i Aber-
deen fundur leiðtoga fiskimann-
anna með fulltrúum brezku
stjórnarinnar til að fjalla um
kröfur fiskimanna, en þeir hafa
hótað því að láta ekkí af aðgerð-
um sinum fyrr en brezk stjórn-
völd hafá gefið tryggingu fyrir
þvi að þau gangi að einhverjunt af
kröfunt þeirra. Fiskimennirnir
krefjast sem kunnugt er að fiski-
málasáttmáli EBE-samnings
Breta verði tekinn til endurskoó-
unar, að fiskveiðilögsagan verði
færð út i 50 mílur, að bann verði
sett við innflutningi á frystum
fiski frá löndum utan EBE og 6
Framhald á bls. 18