Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1975 Félag járniðnaðarmanna FÉLAGSFUNDUR verður haldinn laugardaginn 5. april 1975 kl. 1 3.30 e.h. í Domus Medica v/Egilsgötu. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. Samingarnir 3. Önnur mál Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. | | John Lennon / Rock'n roll. j John Mayall / New band, new year. f~| Dave Mason / At his best. (31 Strawbs / Ný. I | The Mahavishnu Orchestra / Visions of the Emerald beyond. Q Billy Swan / I can help. | | E-L-O / Electric Light Orchestra. j Alice Cooper / Welcome to my nightmare. | | Yes / Yesterdays. | Argent / Circus. | | Johnny Winter III / Rock'n roll. | | Neil Sedeka / Greatest Hits. | | Led Zeppelin / Physical graffity. | | Tommy / Orginal úr bíómyndinni. j American Graffity. | | War / Curtis Mayfield. | l Queen / Sheer heart. | | Beatles / Allar. | | David Bowie / Allar & Nýjasta Young Americans. David Bowie / Allar litlar og stórar kasettur. Og ] 50 aðrir nýjir titlar. Plötustatíf og kasettustatíf. Tilvalin fermingargjöf. Sendum gegn póstkröfu <3 Laugavegt 17 /27667 Ragnhildur Helgadóttir: RAGNHILDUK Helgadóttir og fleiri hafa flutt tillógu til þings- ályktunar um aðgerðir til að lækka byggingarkostnað. Sam- kvæmt tillógunni er ríkisstjórn- inni ætlað að gera nákvæma skýrslu um þann hluta bygginga- kostnaðar, sem fólgin er í ýmiss konar gjöldum til rfkisins, en á grundvelli hennar verði lagðar fram tillögur um afnám eða veru- lega lækkun þessara gjalda. 1 framsöguræðu með tillögunni sagði Ragnhildur Helgadóttir m.a.: Fáum dylst, að húsnæðiskostn- aður er of þungur baggi á herðum margra. Ekki sist á þetta við um unga íólkið. Húsnæðið gleypir allt of stóran hluta af tekjum þeirra, sem hafa nýlega stofnað heimili og sífellt sígur á ógæíuhlið í þessu efni. Þetta á við hvort held- ur menn byggja sjálfir eða leigja hjá öðrum. Það hlýtur að vera nauðsynlegt, að leita leiða til þess að gera mönnum það ódýrara að byggja. Það verður eina raun- hæfa leiðin til aö lækka húsaleigu og létta að liltölu skuldabagga væntanlegra íbúðarbyggjenda. Ráðstöfun í þessa átt mundi líka veröa mjög til þess að draga úr þenslunni í efnahagsmálum þjóð- félagsins og ég hygg, að þeir sem með völdin fara ættu að verða íegnir slíkum ráðum. Við höfum nú í alllangan tima verið að berj- ast við sivaxandi verbólgu og hún hefur ekki síst haft áhrif i hús- næðismálum. Það er sannarlega með ólikind- um, að sumra orsakanna fyrir þessum háa byggingarkostnaði sé aó leita í beinum ráðstöfunum rikisins sjálfs, en sú er þó raunin, því allstór hluti af verði bygging- ar fer beint til ríkisins í formi skatta af efnt og vinnu. Sam- Læknisumdæmi á Skagaströnd Pálmi Jónsson, Páll Pétursson, Eyjólfur Konráó Jónsson og Ölaf- ur Jóhannesson hafa flutt frum- varp til laga um breytingu á lög- um um heilbrigðisþjónustu. Þar er lagt til að læknisumdæmi verði að nýju sett á fót á Skagaströnd. t greinargerð með frumvarpinu segir svo: Þegar lög um heilbrigðisþjón- ustu voru samþykkt á Alþingi 1973, var læknishérað á Skaga- strönd lagt niður og sameinað Blönduóshéraði. Við fluttum þá breytingartillögu við frumvarpið, en hún var felld með eins atkvæðis mun i neðri deild. Búið var að byggja læknisbústað á Skagaströnd, og íbúarnir kunna því illa að hafa eigi lækni búsett- an þar. Vegasamband við Blöndu- ós er sæmilegt, en veður eru hörð norður á Skaganum. Norðaustan- hriðar geta geisað dag eftir dag, þannig að illfært sé á milli húsa. Fólkið finnur til öryggisleysis að hafa eigi lækni hjá sér i kauptún- inu. Atvinnuástand er gott á Skaga- strönd og fólkinu fjölgar. Eigi er ólíklegt, að eftir nokkur ár verði ibúatalan nær 1000, þvi að fólkið er bjartsýnt og duglegt. Það á því skilið að njóta sæmilegs öryggis í heilbrigðismálum. Viðurkenna ber, að lítið er unnið við að hafa sérstök læknis- héruð, ef eigi fást læknar til að starfa í þeim. Nokkur breyting virðist hafa orðið á i þvi efni, þannig að auðveldara virðist að fá lækna til að starfa í strjálbýlinu en áður var. Læknum fjölgar ört, og gróska er í atvinnulífi úti á landsbyggðinni. Eigi er þvi ólík- legt, að læknir fáist til að starfa á Skagaströnd, og er þvi tæpast rétt að haga löggjöf þannig, að það hindri, að íbúar Höfðakaupstaðar og vesturhluta Skagans geti búið við viðunandi öryggi í heilbrigðis- málum. Þingfréttir í stuttu máli FJARSKIPTI \ ID SIGLUFJÓKD Eyjólfur Konráð Jónsson hef- ur lágt lram íyrirspurn til sam- gönguráðherra, þar sem hann spyr hvenær vænta megi þess að melrabylgjustöö (VHF tiðni) verði sett upp við loft- skeytastöðina í Siglufirði. Þá spyr þingmaðurinn einnig hvenær vænla megi úrbóta á talsambandinu milli Reykja- víkur og Norðurlands. IIAFNAKBOTASJODUR Pétur Sigurðsson hefur lagt fram fyrirspurn lil santgöngu- ráðherra, þar sem hann óskar eftir skriflegu svari um það, hvernig lánveitingar úr -llafnarbótasjóði haía skípzt milli kjördæma landsins frá 1972 tii 1974. BVGGINGASJODIR Pélur Sigurðsson hefur óskaö skriflegs svars frá félagsntála- ráðherra um skiptingu lánveit- ínga úr Byggíngasjóði rikisins og Byggingasjóöi verkamanna milli kjördæma landsins frá 1972 lil 1974. FISKVEIDASJOÐUK Pétur Sigurðsson hefur óskað skriflegs svars frá sjávarút- vegsráðherra um það hvernig lánveitingar úr Fiskveíðasjóði Islands hafi skipzt milli kjör- dæma árin 1972 til 1974. ATV INNVLEYSIS- TKYGGINGASJODUR Guðmundur H. Garðarsson hefur óskað skriflegs svars frá tryggingaráðherra um þaö hvernig lánveitingar úr At- vinnuleysistryggingasjóðí hafi skipzt milli kjördæma árin 1972 til 1974. Þá óskar þingmaður- ínn eftir upplýsingum um það hvaða upphæðir hafi runnið til jólfu r. Félu r. (•uöimiiuliir. landssamtaka og stofnana, sem ná til alls landsins. LANDNAM I VESTURHEIMI Heimir Hannesson, Svava Jakobsdóttir, Jóhann Haístein, Jón A. Héðinsson og Magnús Olafsson hafa flutt tillögu til þingsályktunar, þar sem lagt er til að ríkisstjórnin skipi nefnd til að gera tillögur urn á hvern hátt minnst verði aldarafmælis landnámsins Islendinga í Vest- urheimi, svo og um aukin tengsl hins islenzka þjóðarbrots vestanhafs við heimalandið. HITAVEITA AHÓLUM Halldór E. Sigurðsson land- búnaðarráðherra hefur upplýst á Alþingi i tilefni af fyrirspurn frá Páli Péturssyni að land- búnaðarráðuneytið muni styðja hitaveituframkvæmdir að Hól- um, ef málið reynizt hagkvæmt og samstaða næst um fram- kvæmd þess. Ragnhildur Ilelgadóttir. kvæmt lauslegri áætlun, sem gerð var í fyrra, fara um 11 til 15% af byggingarkostnaði beint í ríkis- sjóð. Þar vega þyngst aðflutnings- gjöld og launaskattur. Með því að ríkið sjálft lækki nú sínar kröfur um gjöld af byggingarefni eða um gjöld af vinnu manna í bygg- ingum, þá lækkar líka kostnaður AIMnCI ríkisins við þess eigin fram- kvæmdir. M.ö.o. er alveg augljóst, að það dregur beinlínis úr verð- þenslu á þessu sviði. Ef við hugs- um út i það, að helmingur af allri fjármunamyndun í þjóðfélaginu eru byggingarframkvæmdir og helmingur af öllum byggingar- framkvæmdum eru byggingar hins opinbera, þá sýnist þetta vera nokkuð ljóst. Og við sjáum líka, að þetta hlýtur að hafa veru- lega þýðingu fyrir hagsmuni al- mennings i landinu og enn ein röksemd, sem mætti sérstaklega tilfæra, og þá fremur nú í ár heldur en í fyrra, er sú að menn óttast að til nokkurs samdráttar kunni að koma einhvern tímann síðar á þessu ári og sú atvinnu- grein, sem viðkvæmust væri fyrir slíku er byggingariðnaðurinn. I þvi sambandi hefur mér dottið í hug að þá leið, sem bent er á í þessari till. mætti beinlínis nota sem hagstjórnartæki gegn slikum vanda og kynni framkvæmd þess- arar tillögu aö draga úr hættu á samdrætti í atvinnu við bygg- ingar. Ég held, að öllu samanlögðu, að það geti orðið niðurstaðan, að menn sjái að þau muni beinlínis borga sig fyrir ríkið að gera þá ráðstöfun, sem hér er á bent. Það mundi ekki halda áfram að þenj- ast út kostnaðurinn við bygging- arnar í jafn ríkum mæli og verið hefur. Það mundi ekki kalla á jafn stórar fjárfúlgur í byggingar- lánakerfið eins og verður annars að óbreyttum reglum, auk þess sem náttúrulega er aðalatriði þessa máls og það er að gera sjálf- um íbúum húsanna það léttbær- ara að borga þann kostnað, sem þvi fylgir, annað hvort að búa i eigin húsnæði eða borga húsa- Ráðstafanir verði gerðar til að lækka byggingarkostnaí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.