Morgunblaðið - 03.04.1975, Page 17

Morgunblaðið - 03.04.1975, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1975 Jóhannes Zoéga: Hitaveita á höfuð- borgarsvœðinu SU skoðun hefur komið fram bæói í blöðum og manna á milli, að hækkun verðtaxta Hitaveitu Reykjavíkur 1. marz s.l. hafi verið gerð í þeim tilgangi að afla fjár til hitaveitulagna í nágrannabæjun- um Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði á kostnað Reykvik- inga. Sú skoóun er að vissu leyti skilj- anleg, þar sem ýmsir ráðamenn hafa gefið í skyn, að tilgangurinn hafi verið að gera það kleift að halda áfram þessum framkvæmd- um. Þar með er þó ekki sagt að það verði á kostnað Reykvíkinga. Hér veróur reynt að skýra þessi mál og annað, sem varðar framtíð Hitaveitunnar. Allur kostnaður við rekstur hitaveitunnar hefur hækkað mjög undanfarin ár, án þess að tekjur veitunnar hafi aukist að að sama skapi. Þessi mismunur hefur auk- ist jafnt og þétt frá miðju ári 1970 fram á síðari hluta árs 1974, eins og línuritið sýnir. Tilviljana- kenndar verðhömlur hafa verið í gildi allan þennan tíma. Svo var komið málum á siðast- liðnu ári að Hitaveitan gat ekki staðið undir kostnaði við stækkun veitunnar í borginni og rekstur hitaveitu í nágrannabæjunum hefði ekki skilaó nægilegum arði til lántökumöguleika. i s.l. septembermánuði var verðlag Hitaveitunnar aðeins 55% af því sem það var 1970 miðað við meðalverðlag í landinu. Jafnvel nú eftir tvær síðustu verðhækkanir nær það aðeins 83% af verðinu 1970 og nú fá menn um fjórðungi meira en þá af heitu vatni fyrir tímalaun sin. Verðlag almenningsveitna þarf að nægja tii þess að standa straum af almennum rekstrarkostnaði og fyrningum mannvirkja og auk þess skila hæfilegum arði af fjár- festingu og þannig skapa fjár- magn til þess að geta stækkaó með aukinni byggð. Dreifikerfin stækka venjulega jafnt og þétt með byggðinni, en stækkun virkjana verður oftast i stórum áföngum með hléum á milli. Til þeirra þarf þvi oftast að taka lán aó nokkru leyti. Sama gildir þegar dreifikerfi eru lögð i stór byggð svæði eins og t.d. þegar hitaveitan var stækkuð á árunum eftir 196Í, þannig að hún næði til allra skipulagórar byggðar í borg- inni og einnig nú, þegar dreifi- kerfi eru lögð i nágrannabæina. Að örðu jöfnu er hitaveita því hagkvæmari sem hún er stærri. Fyrsti áfanginn er alltaf dýrastur og almennur rekstrarkostnaður er því minni fyrir hverja fram- leidda einingu sem veitan er stærri. Hagkvæmni hitaveitu í ná- grannabæjunum er auk þess meiri vegna hraðari nýtingar virkjunar á Reykjum, sem var nauðsynleg hvort sem var, og vegna þess að engar dælustöðvar þurfti að reisa á þessum svæðum. Til frekari skýringar geri ég samanburð á rekstri Hitaveitunn- ar í heild annarsvegar og hinsveg- ar á viðbótarveitu fyrir nágranna- byggðirnar. Stofnkostnaður Hitaveitunnar allrar á núverandi verðlagi er um 10000 milljónir króna að frá- dregnum heimæðagjöldum hús- eigenda. Almennur reksturskostnaður er 430 millj. kr. á ári eða 4,3% af stofnkostnaði. Ef reiknað er með því að veitan skili stofnfé og 7% ársvöxtum með jöfnum greiðslum á 20 árum (annuitet), þá nemur árlegur fjármagnskostnaður 9,5% af stofnfé eða 950 millj. kr. Samtals þurfa því árstekjur að vera 13,8% af stofnfé eða 1380 millj. kr. Vatnssala er um 28,8 millj. tonn á ári og mælaleiga er um 7% af heildartekjum. Vatnsverð þarf þá að vera 0,93.1380 : 28,8 = 44,56 kr/tonn. Áætlaður stofnkostnaður hita- veitu í nágrannabæjunum er nú um 1900 millj. kr. að frátöldum heimæðagjöldum en meðtöldum hlut þessarar veitu í Reykjavirkj- un og hækkun skulda í erlendum gjaldeyri til þessa dags. Almennur rekstrarkostnaður viðbótarveitunnar er um 3% af stofnfé og fjármagnskostnaður 9,5%. Árstekjur þurfa því að vera 12,5% af 1900 millj. kr. eða 237,5 millj. kr. Vatnssala er áætluð 6,7 millj. tonn á ári. Vatnsverð þarf þá að vera, reiknað á sama hátt og áður 0,93.237,5.6,7 = 32,97 kr/tonn. Á sama hátt kemur á ljós, að meó núverandi vatnsverði, 39,36 kr/tonn skilar heildarveitan 5% ársvöxtum af stofnfé en viðbótar- veitan í nágrannabæjunum myndi skila 10,3% vöxtum af stofnfé og svipuðum vöxtum skila stækkanir hitaveitunnar innan borgarmarkanna. Sumir telja, að verðlag Hitaveit- unnar geti verið mun lægra, vegna þess að hún hefur starfað í meira en 30 ár. Þetta er byggt á nokkrum misskilningi, þar sem dreifikerfið hefur veriö meira en þrefaldað á siðast liðnum 13 árum og virkjanir hafa meira en fimmfaldast á sama tima og eru nú allar nýjar. Auk þess hef- ur gamla dreifikerfið verið endurnýjað að verulegu leyti á undanförnum árum. Mannvirki Hitaveitunnar eru því að lang- mestu leyti ung að árum og eiga að gegna hlutverki sínu um langa framtíð. Framangreindir útreikningar eru þvi gerðir á sambærilegum grundvelli og breyttist hann ekki, þótt reiknað væri með öðrum vöxtum eóa afskriftartíma en hér er gert. Ljóst er af þessu, að stækkun Hitaveitunnar á svæði nágranna- bæjanna er arðvænlegri en Hita- veitan í heild. Hitt er augljóst, að hægt er að takmarka verðlag Hitaveitunnar svo með valdboði, að reksturinn verði óarðbær bæði í Reykjavík og i nágrannabyggð- unum og auðvitað væri viðbótar- veitan ekki hugsanleg án heildar- veitunnar. Ég vek athygli á þvi, að gefnu tilefni, að ákvarðanir um hita- veitulögn i nágrannabæina voru teknar með frjálsum samningum milli sveitarstjórna nágrannabæj- anna og borgarstjórnar Reykja- víkur á árunum 1972—1974. Rikisstjórnin kom þar hvergi nærri en samningsgerð tafðist nokkuð vegna óraunhæfra og óviðeigandi verðlagsafskipta hennar. Vatnssala í nágrannabæina veldur því, að Reykjavirkjun verður fyrr fullnýtt en ella hefói orðið. Á þessu styttra tímabili skilar hún meiri arði en annars hefði orðið á sama tíma. Virkjun háhitasvæðisins á Nesjavöllum hefur verið I athug- un og undirbúningi undanfarin 10 ár. Fyrsti áfngi þeirrar virkjunar þarf að vera stór vegna fjarlægð- ar svæðisins frá markaði. Auk þess þarf rúman undirbúnings- tíma til tilrauna og prófana þegar á að virkja háhitavatn. Hinar velheppnuðu tilraunir til að endurvirkja Reykjasvæðið veittu frest til þessa undirbún- ings. Æskilegt er að virkja Nesja- vallasvæðið sem fyrst af tveimur ástæðum: 1. Stofnkostnaóur og rekstrar- kostnaður verður mun lægri en hinna eldri virkjana Hitaveitu Reykjavíkur, vegna hins háa hita- stigs jarðvatnsins. 2. Öryggi veitunnar vex að mun, þar sem vatninu verður dælt til dreifisvæðanna með eigin orku, sem unnin verður úr jarð- varmanum jafnframt varma- vinnslu til hitaveitunnar. Til skýringar síðara atrióisins má geta þess, að á undanförnum vetrum hefur oft legið við að vatnsþurrð yrði á dreifisvæðun- um vegna truflana eða bilana á rafmagnskerfinu, ýmist í orku- verum og aðveitustrengjum þaó- an eða á rafstrengjum, sem flytja rafmagn að Reykjum. Þegar hitaveitan hóf starfsemi sina, var verðtaxti ákveðinn þann- ig, að jarðvarmaverð svaraði til 90% af olíuverði til húsahitunar. Andvaraleysi um aðlögun taxt- ans að kostnaðarhækkunum olli því, að veitan gat ekki fylgt vax- andi byggð í Reykjavik allt fram á sjöunda áratuginn. Af sömu ástæðu lá við að framkvæmdir Hitaveitunnar stöðvuðust á árun- um 1963—1967. Á vaxtarskeiðinu eftir 1961 heyrðust margar áhyggju- og reiðiraddir, sem kváðu stefnt að vatnsleysi og veróhækkunum. Raunin hefur þó orðið önnur, og er verð jarðvarmans. nú mun lægra en það var í upphafi, þegar miðað er vió verðlag i landinu og kaupgetu neytenda. Þessi árang- ur er bein afleiðing af stækkun veitunnar. 1 töflunni er sýndur kostnaður vió hitun húsa með helztu orku- gjöfunum. Til þess að auðvelda samanburó er kílowattstundin valin sem orkueining í öllum til- fellum. Ég hygg af taflan og línuritið sýni, að þaó er ekki Ilitaveitan, sem er verðbólguvaldurinn í þjóð- félaginu. Reykjavík, 14. marz 1975. Samanburður á varmakostnaði til húsahitunar 1. marz 1975 Hitaveita ........................................0,80 kr/kwh Gasolia ..........................................2,18 kr/kwh Rafmagn: 1) Ánrofs ...................................3,59 kr/kwh Meðrofi ..................................2,18 kr/kwh Meðrofi ..................................1,58 kr/kwh Næturrafmagn .............................1,00 kr/kwh 1) Talin er þörf á hækkun rafmagns um 23% Aöllu svæði Hitaveitu Reykjavíkur greiða notendur nú um 1130 millj. kr. á ári fyrir heitt vatn. Ef byggð á sama svæði væri hituð með gasolfu, kostaði hún nú um 4500 millj. kr. á ári. Verblag rrnðað við vísitolu byggingarkostnaðar fró 1 júlí 1970 án soluskatts Hitaveita

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.