Morgunblaðið - 03.04.1975, Side 14

Morgunblaðið - 03.04.1975, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1975 STCDENTAFÉLAGH) AFHENT REKTOR Skaflasamt á Kísilveginum A- Æ w -# f,i» ■ * f I Ljósm. Sv. Þorm. Þetta eru nýju barðarnir. Til hægri á myndinni er uppfinninga- maðurinn, Olafur Jónsson. Ný íslenzk uppfinning: Hjólbarðar með hörðum kornum I yfirlýsingu, sem Morgunblað- inu hefur borizt frá stjórn Stúd- entafélags Háskóla íslands, kem- ur fram, að stjórn félagsins ákvað á fundi sfnum 24. marz sl. að leggja nafn og eigur félagsins til embættis rektors Háskóla Is- lands. Jafnframt kemur fram, að sjóðseign félagsins að upphæð kr. 30.885,50 hefur verið ánafnað til Stúdentafélags Reykjavíkur, en fénu á að verja til framkvæmda við gosbrunn umhverfis styttu af Sæmundi fróða sem stendur á lóð Háskólans. 1 yfirlýsingunni kemur fram, að Mývatnssveit, 1. apríl. HÉR var gott veður um páskana, úrkomulaust að mestu, bjart en frekar svalt á páskadag. Mildara veður var í gær. Messað var i báðum kirkjum. i Reykjahlíðar- kirkju á páskadag var mikið fjöl- menni. Gefin voru saman ein hjón, skírð þrjú börn og fermd nin. Færð á vegum hér hefur ver- ið sæmileg að undanförnu, þó hafa verið nokkrir skaflar á Kísil- veginum. Vel fært er fyrir stóra bíla og jeppa, en á mörkunum að litlir fólksbilar komist um. Eg Bezta veður í Nes- kaupstað um páskana Neskaupstað, 1. apríl. MJÖG gott veður var hér alla páskana og notaði fólkið veðrið óspart til að bregða sér á skiði eða fara i gönguferðir. T.d. fór einn hópur gangandi til Hellisfjarðar, sem er næsti fjörður sunnan Norðfjarðar, á annan dag páska. Þá var það algengl að foreldrar óku börnum sínum upp á Odds- skarð með skiðin. Þar stigu börn- in út úr bílunum og renndu sér siðan niður undir Skuggahlið, sem er syðsti og innsti bær i Norð- firði. I dag var híns vegar lágskýjað hér, en gott veður að öðru leyti. Af þessum sökum var ekki hægt að fljúga en 50 manns bíða eftir flugi suður. Asgeir. Hafsteinn Þorsteinsson, sfmstjóri í Reykjavfk. SAMGÖNGURAÐHERRA hefur skipað í tvær nýjar stöður hjá Pósti og síma frá 1. aprfl að telja. 1 stöðu umdæmisstjóra í um- dæmi I var skipaður Aðaisteinn Norberg ritsímastjóri, en f stöðu sfmstjórans f Reykjavfk var skip- aður Hafsteinn Þorsteinsson skrifstofustjóri. Ráðningar þessar eru sam- kvæmt reglugerð um breytingu á stjórn og skipulagi póst- og síma- mála, sem gefin var út í desember s.l. á þessu ári eru liðin 60 ár frá stofnun félagsins. Astæðan fyrir því, að starfsemi þess er nú lögð niður er sögð sú, að félagið hafi ekki haft starfsfrið til þess að vinna að markmiðum félagsins. I yfirlýsingunni segir ennfremur, að öfgamenn til hægri og vinstri, austurs og vesturs, hafi komið fram gagnvart félaginu sem ein breiðfylking undir almáttugri yf- irstjórn Stúdentaráðs. Að gefnu tilefni, segir einnig i yfirlýsing- unni, er mótmælt öllum aðdrótt- unum um tengsl Stúdentafélags- ins við öfgasamtök á borð við Vöku og Verðandi. hefi áður bent á að á Kísilvegin- um eru kaflar, sem þarf að endur- bæta og hækka. Nú sést ákaflega vel hvar þeir staðir eru. Nauðsyn- legt væri að Vegagerðin léti nú kanna ástand vegarins og jafn- framt mæla þá kafla sem ætíð setur skafla á. Ég fullyrði að ef þessir kaflar væru endurbættir og vegurinn hækkaður, þá yrði hann oftast fær yfir veturinn. Auk þess myndi sparast mikill kostnaður vegna snjómoksturs á hverjum vetri. Það eru yfirleitt sömu staðirnir ár eftir ár sem þarf að ryðja. Oft hefur það kom- ið fyrir að tveir til þrír skaflar hafa teppt alla umferð á þessum vegi, og hefur það skapað það mikil óþægindi og kostnaðarauka fyrir vegfarendur. Mál er því komið tíl að þessu verði kippt í lag sem allra fyrst. Vonandi taka forráðamenn Vegagerðarinnar og þingmenn kjördæmisins þetta mál til athugunar og skjótrar fyrirgreiðslu. — Kristján. Gott fiskirí Siglufirði, 1. apríl. SIGLUVÍKIN var að koma inn með 90 tonn af góðum fiski. Afli hjá línubátunum er 4—6 tonn af afbragðs línufiski. Hjá netabátun- um er heldur tregara. Karlarnir sem eru í grásleppunni hafa gert það mjög gott, eru með allt upp i 9 tunnur eftir daginn. m.j. Aðalsteinn Norberg, umdæmis- stjóri I. Undir umdæmisstjóra I heyrir öll starfsemi póst-, síma- og radió- stöðva stofnunarinnar á Suður- og Vesturlandi, þar á meðal póststof- an í Reykjavik og símstöðin i Reykjavík. Samkvæmt hinu nýja skipulagi kemur símstjóri í stað bæjarsíma- og ritsímastjóra, og verður rekst- ur bæjarsímans, ritsímans og tal- símastöðvarinnar í Reykjavík þannig eftirleiðis undir stjórn símstjórans. UNGUR maður frá Stykkis- hólmi, Olafur Jónsson að nafni, fékk í fyrra þá hugmynd að auka bremsuhæfni hjólbarða með því að blanda hörðum kornum saman við gúmmíið. Hefur Olafur siðan útfært þessa hugmynd í samvinnu við Barðann hf. í Reykjavík. Blandar Olafur carbide-ögnum saman við gúmmiið þegar barð- inn er mótaður, en þær hafa hörkuna 9 og koma næst dem- andi að hörku. Við prófanir hefur komið f Ijós að þessir hjólbarðar standast ekki fylli- lega samanburð við neglda hjólbarða, en gætu vissulega orðið lausnin ef svo fer að negldir barðar verða bannaðir, eins og víða er farið að gera. Hjólbarðar Ólafs voru fyrir skömmu reyndir á Reykjavík- Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Þór Vilhjálmssyni, Genf, 1. april. SVO er að sjá, sem nokkru meiri festa sé að komast á umræður á Hafréttarráðstefnunni en var fyrstu dagana og sáttfýsi gætir í orðum flestra eða allra ræðu- manna. Þegar ráðstefnan var sett fyrir hálfum mánuði var um það talað, að í dag yrði almennur fundur haldinn til að meta stöðuna og gera áætlun um starf- ið næstu vikur, en þessum fundi hefur nú verið frestað til mánu- dagsins 7. apríl. Lokaðir fundir eru í hinum þremur nefndum ráðstefnunnar alla morgna en síðdegis eru fund- ir i minni nefndum og hópum af ýmsu tagi. Þrátt fyrir nokkuð vax- andi bjartsýni er enn ekki að sjá, að samkomulag verði gert á næst- unni um neitt einstakt mikilvægt atriði enda hefur lengi verið aó því stefnt, að leysa öll helztu málin í einu lagi. Þó að óvissa ríki hér í Genf, er vissulega enn vonast til að það takist að lokum. Fréttamaður Reuters skrifar í dag frá Genf, að meiri skriður sé að komast á hinar óformlegu við- ræður á ráðstefnunni og héfur eftir Paul Bamela Engo frá Cameroun, formanni nefndar- innar, sem fjallar um alþjóðahafs- botnsstofnunina að hann búizt við að hún geti gefið skýrslu um við- urflugvelli á ísi lagðri braut sem sérstaklega hafði verið út- búin. Kom í ljós að á þurrum rykuðum ís gáfu kornóttu barð- arnir engu betri raun en venju- legir barðar og árangur negldra hjólbarða var 40% betri. Þegar isinn hafði verið bleyttur jókst bremsuhæfni kornbarðanna til muna og var i sumum tilfellum eins góð og negldra hjólbarða. Lögreglan i Reykjavík annaðist þessar prófanir og hafði Bjarn- þór Aðalsteinsson umsjón með þeím. Ólafur Jónsson tjáði Mbl. að áfram yrði unnið að fullkomn- un hjólbarðanna í samvinnu við starfsmenn Barðans hf. Stæði til að reyna nýja tegund gúmmís. Þá kemur einnig til greina að setja þessi korn undir skótau úr gúmmíi. ræðurnar nk. föstudag. Þá segir Reuter eftir Shirley Hamilton Amerasinghe, forseta ráðstefn- unnar, að hann muni eiga fundi með formönnum hinna óform- legu nefnda ráðstefnunnar síðar i þessari viku og nk. mánudag muni hann . formlega meta hvernig viðræðurnar standi i Genf. Innbrot í Siglufirði Siglufirði, þriðjudag. UM páskahelgina hafa innbrots- þjófar lagt leið sína í Aðalbúðina hér í bænum. Hafa þeir farið ruplandi um hillur verzlunar- innar og stolið ýmiss konar varn- ingi fyrir á að giska 100.000 krónur. En auk þess hafa þjófarn- ir eða þjófurinn valdið skemmd- um í verzluninni. Þetta mál er til rannsóknar hjá lögreglunni hér. _______ m j' Utanríkisráð- herra í Rúss- landsheimsókn EINAR Ágústsson utanrfkisráð- herra og kona hans, Þórunn Sig- urðardóttir, ásamt Pétri Thor- steinssyni ráðuneytisstjóra og konu hans, Oddnýju Thorsteins- son, héldu í opinbera heimsókn til Sovétríkjanna í boði rfkis- stjórnar Sovétríkjanna s.l. mánu- dag, en heim koma þau aftur 10. aprfl. Að sögn Þórðar Einarssonar, blaðafulltrúa utanríkisráðuneyt- isins, mun utanríkisráðherra hitta utanríkisráðherra Sovétrikj- anna og aðra ráðherra og embætt- ismenn að máli. Þá munu íslenzku fulltrúarnir ferðast nokkuð um Sovétríkin og m.a. koma til Tashkent og Samar- kand, en ferðinni lýkur í Lenin- grad. Þetta er í fyrsta skipti sem ut- anríkisráðherra íslands fer í opin- bera heimsókn til Sovétríkjanna. Stefnt að fleiri skíða- ferðum til Húsavíkur UM ÞESSA páska var í fyrsta skipti staðið fyrir sérstakri skíða- og skemmtiferð til Húsavíkur og skipulagði Ferðaskrifstofan Ut- sýn ferðina í samráði við Einar Olgeirsson, hótelstjóra á Húsavík. Einar Olgeirsson sagði þegar við ræddum við hann, að þessi ferð hefði heppnast einstaklega vel. Sól og bjart veður hefði verið í tvo daga og ágætis veður hina þrjá. I ferðinni hefði verið rúm- lega 20 manns, mest hjónafólk með börn. Hefði það verið ákaf- lega hrifið af öllum aðstæðum á Húsavik, enda tæki ekki nema um 3 mínútur að ganga frá hótelinu upp i skíðalvftuna. Hann sagði, að enginn vafi léki á því, að stefnt yrði að sams konar ferð næsta vetur og það fleiri en einni. Slikar ferðir gætu orðið drjúg búbót fyrir hótelið. Umdæmisstjóri I og sím- stjórinn í Reykjavík skipaðir Meiri skriður og festa að komast á viðræðurnar í Genf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.