Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1975
31
STAÐAN
Lokastaðan í 1. deildar keppninni f körfu-
knattleik varð þessi: t K 14 13 1 1212:1096 26
KR 14 10 3 1260:1160 20
Armann 14 9 5 1185:1095 18
is 14 8 6 1129:1076 16
UMFN 14 8 6 1125:1100 16
Valur 14 5 9 1176:1175 10
Snæf. 14 2 12 933:1153 4
HSK 14 1 13 996:11'” •
Alls voru skoruð í mótinu 9016 stig, eða ad
meóaltali 161 stig í leik. IVlest var skorað f
síðari leik KK og UMFN alls 212 stig —
minnst í leik HSK og Snæfells í síðari um-
ferðinni aðeins 101 stig.
íslandsmeistarar ÍR.
Aftari röð frá v: Ásgeir Guðmunds-
son, form. ÍR, Hólmsteinn Sigurðsson
liðsstjóri, Agnar Friðriksson, Þor-
steinn Guðnason, Sigurður Gislason,
Jón Jörundsson, Sigurður Halldórs-
son, Sigurbergur Bjarnason, Einar
Ólafsson, Ásgeir Guðmundsson.
Fremri röð frá v: Sigurjón Ólafsson,
Finnur Geirsson, Kristinn Jörunds-
son, Kolbeinn Kristinsson, Jón
Jónasson, Óskar J. Óskarsson. Á
myndina vantar Erlend Markússon.
IR innsiglaði Islandsmeist-
aratitilinn með sigri yfir Val
maður á að venjast úr þeirri átt-
inni, illa var farið út á móti mönn-
unum, og þeir fengu að taka sín
skot í ró og næði. Sömu sögu má
reyndar segja um Valsmenn,
vörnin hjá þeim var galopin á
köflum. Sóknirnar stóðu þvi
oftast stutt yfir, því skotfærin
komu strax. Líðin skiptust á um
að leiða allan fyrri hálfleikinn en
Ir hafði yfir í leikhléi 51:46. Það
sem gerði svo útslagið í síðari
hálfleik voru margar ljótar mis-
heppnaðar sendingar Valsmanna
sem nær undantekningarlaust
gáfu iR-ingum færi á sínu uppá-
haldi — nefnilega leiftursóknum
sem gáfu nær ávallt tvö stig.
Kristinn Jörundsson var stig-
hæstur iR-inga með 26 stig,
Agnar Friðriksson 25.
Þórir Magnússon skoraði 30 stig
fyrir Val, mörg á „sinn“ hátt sem
enginn leikur eftir. Kári Marisson
18.
gk—•
Armann vann KR 80:72
Jóhannesson vantaði, Kolbeinn
tognaði á hendi, og Bjarni litið
geta æft að undanförnu.
Armenningar tóku líka forust-
una í leiknum strax i sínar hend-
ur, og höfðu yfir þar til yfir lauk.
Staðan i hálfleik var 40:30, og
lokatölur 80:72. Leit þó út fyrir
stærri sigur Ármanns, þvi liðið
náði 18 stiga forskoti um miðjan
síðari hálfleik með góðum kafla,
en sá kafli tók greinilega of mikið
þrek af leikmönnum liðsins. KR
kom sterkara út úr lokakaflanum
og minnkaði því muninn fyrir
leikslok.
EKKI tókst Valsmönnum þrátt
fyrir góða viðleitni að stöðva ÍR á
sigurgöngu sinni 1 Islandsmótinu.
Þeir veittu þó harða keppni
framan af, en urðu að þola ósigur
89:105.
Islandsmeistari í 10. sinn
Það verður að segjast, að þessi
leikur var langt frá því að vera
góður, og sennilega einn af allra
lélegustu leikjum IR í mótinu. Á
þetta sérstaklega við um varnar-
leikinn sem var mun slakari en
ÞAÐ eru ár og dagar sfðan jafn
lítil spenna hefur verið á leik KR
og Armanns. Þetta var skiljanlegt
nú, ÍR búið að sigra f mótinu. og
röð liðanna á toppi deildarinnar
ráðin. — Þegar svo KR liðið
mætti til leiksins kom í ljós að
Kolbein Pálsson og Bjarna
Agnar rrióríksson lekur við viðurkenningu fyrir sinn 10. islandsmeislaratitil úr liendi
Einars Bollasonar, formanns KKl,
Eftir leikina í 1. deild var Agnar
FriSriksson heiðraður af Körfu-
knattleikssambandinu fyrir að
hafa náð þeim merka áfanga að
verða 10 sinnum íslandsmeistari.
Agnar hefur lengi staðið I eldlin-
unni ef svo má segja, og það mun
fátitt ef ekki einsdæmi hér á landi
að sami maður skarti með svo
marga íslandsmeistaratitla i
flokkaiþrótt innanhúss. Agnar
varð fyrst fslandsmeistari 1961.
Við spurðum hann hvaða ár ÍR
hafi verið með besta liðið.
— Liðið 72—73 og liðið núna
eru mjög áþekk, og þau bestu, þó
er mun meiri breidd I liðinu i dag.
Talsverðar sveiflur hafa orðið I
liðinu eins og gefur að skilja á
þessum tima. Ég hef leikið með
mörgum góðum mönnum, en
sjaldan eins samstilltum hópi eins
og í dag.—
— Eftirminnilegustu leikmer.n?
— Hin siðari árin þeir Kristinn
Jörundsson og Birgir Jakobsson,
en einnig mætti nefna Þorstein
Hallgrimsson og Guðmund Þor-
steinsson sem var yfirburðamaður
í sinni stöðu meðan hans naut við.
— Hverju þakkar þú árangur ÍR
i vetur?
— Fyrst og fremst æfingasókn-
inni sem hefur verið frábær, sam-
heldninni i liðinu og félagsandan-
um, og ekki sist Einari Ólafssyni
þjálfara. —
— Evrópukeppni i haust?
— Að öllum líkindum. Ekki til
þess að vinna sigra, heldur er það
nauðsynlegt fyrir hvert lið að hafa
eitthvað til að stefna að, og ferða-
lögin sem eru samfara þátttöku i
Evrópukeppnum eru ávallt freist-
andi. gk—.
Það vakti mikla athygli í leikn-
um, að þegar Simon Ólafsson
hafði náð að komast yfir Kolbein
Pálsson í vitahittninni, þá var
hann tekinn útaf — ekki hætt
neinu með að láta hann fá fleiri
vítaskot. Fram að því hafði hann
átt góðan leik, þrátt fyrir erfiðan
leik fyrr um daginn í skólamóti.
Jón Sigurðsson skoraði 20 stig
fyrir Ármann, Simon og Jón
Björgvinsson 14 hvor. Gunnar
Gunnarsson var stigahæstur KR-
inga, með 16 stig„ Kristinn
Stefánsson og Ólafur Finsson með
13 stig hvor. gk—.
vann opna flokkinn
Svavar
Júdómeistaramóti Islands 1975
lauk s.l. þriðjudagskvöld, en þá
var keppt í opnum flokki, þ.e.
ekki var tekið tillit til þyngdar
keppenda. Svavar M. Carlsen bar
sigur úr býtum eftir góða keppni
á móti unglingameistaranum
Viðari Guðjohnsen, sem er aðeins
17 ára. Sigurður Kr. Jóhannsson,
sem sigraði f fyrra, gat ekki verið
með að þessu sinni vegna
meiðsla.
Ur þeim 15 manna flokki, sem
þátt tók í þessu móti, verður valið
landslið til að keppa á Norður-
landameistaramótinu þann 19. og
20. april n.k. Flestir keppendur
sýndu að þeir eru i góðri æfingu,
en nokkrir erfiðleikar eru á að
dæma raunverulega getu þeirra
því þeir þekkja hvorn annan of
vel, — vita hvaða brögð þeir eiga
helzt að varast. Þetta gerir þá
helzt til varkára; þó voru margar
glimur þarna mjög harðar.
Hæst ber glímur þeirra Sigur-
jóns, Viðars, Gísla Þorsteinssonar
og Svavars. Keppni Sigurjóns og
Gísla var sérlega góð, snörpum og
hreinum brögðum beitt á báða
bóga. Hinn harðskeytti léttmilli-
vigtarmaður Halldór Guðbjörns-
son þarf að einbeita sér meira að
sókn, hann er svo þolinn og vel
þjálfaður að hann gæti í flestum
tilfellum ráðið hraða leiksins, ef
að hann tæki frumkvæðið i sinar
hendur. Gisli kastaði honum með
háu „Uchimata" en fyrir því
bragði er Halldór mjög opinn,
eins og reyndar fleiri keppend-
anna. Meðal þeirra, sem sýndu
athyglisverða keppni, var Halldór
Guðnason. Hann virðist hafa með-
fædda hæfileika til að keppa i
júdó, og sýndi oft ágæt brögð,
einkum stóð hann sig vel á móti
Sigurjóni í keppninni um 3. sætið.
I heild má segja um þátttak-
endur að þeir hafi verið góðir,
sýnt góðan kraft og baráttuhug,
en þurfi þó að leggja áherzlu á
meiri tækni, ekki sízt í þá átt, að
sæki þeir bragð, verður það að
vera gert með fullum hug,
minnugir þess að bragði er ekki
lokið fyrr en keppinauturinn er
flatur i gólfinu. Einnig er gott að
muna það að sterk aukabrögð
þarf til að efla aðalbragðið.
Úrslit urðu annars þessi:
1. Svavar M. Carlsen, JFR
2. Viðar Guðjohnsen, Á
3. Sigurjón Kristjánsson, JFR.
A undan keppninni í karla-
flokki fór fram keppni í kvenna-
flokki. 5 stúlkur kepptu og varð
Sigurveig Pétursdóttir, Á, sigur-
vegari, Þóra Þórisdóttir, Á, varð
önnur og Magnea Einarsdóttir, Á,
varð þriðja.
Það var of áberandi i kvenna-
keppninni hvað stúlkurnar eru
litið þjálfaðar ennþá. Helzt sýndi
Magnea nokkra leikni. Sigurveig
var e.t.v. of örugg fyrirfram um
sigur — allavega glímdi hún of
kæruleysislega. Með mikið
aukinni þjálfun hafa allar þessar
stúlkur góða möguleika á að ná
langt i íþróttinni. __e
Kristinn
Jörundsson
EINS og vcnja er, voru veitt verðlaun
þeim leikmanni sem kjörinn var leik-
maður íslandsmótsins. Að þessu sinni
fór kjörið þannig fram, að þjálfarar 1.
deildar liðanna tilnefndu einn mann
hver. 6 þeirra af 8 tóku þátt í kjöri
leikmannsins að þessu sinni, og sigraði
Kristinn Jörundsson í þeirri atkvæða-
greiðslu með 4 stigum, Jón Sigurðsson
hlaut eitt stig, og Stefán Bjarkason eitt
stig. — Kristinn er fyrirliði IR og hafði
þvf ærna ástæðu til að gleðjast f fyrra-
kvöld.
Jón
Sigurðsson
Símon
r’
Olafsson
— SlMON Olafsson hefur greinilega
ekki gleymt þvf þegar hann tók vítaskot-
in f leikslok úrslitaleiks KR og Armanns
í fyrra. Þá gat hann með þvf að hitta úr
báðum skotunum fært Armanni lslands-
meistaratitilinn, en honum brást þá
bogalistin.
Sfðan hefur hann greinilega a*ft \íta-
skotin vel, og sást það strax f liaust þegar
Iiann var með bestu vftahittni í Rvfkur-
mótinu. Og nú f lok Islandsmótsins gerði
piltur sér Iftið fyrir og „hrifsaði' \fta-
skotaverðlaunin úr höndum Kolbeins
Pálssonar sem hefur verið efstur undan-
farnar vikur. Naumt var það þó, þ\í
Sfmon var með 72,9% hittni úr 74 skot-
um, Kolbeinn m^ð 72,8% úr 81 tilraun.
En Sfmon er vel að þessu kominn, og
sýndi, að með því að leggja ra*kt við
vftaskotin er liægt að ba*ta sig. fik __
— ÞAÐ var dýrt fyrir Kolbein Pálsson að
geta ekki leikið f sfðasta leiknum í mót-
inu, gegn Armanni. Hann átti nefnilega
möguleika á þvf að vinna einstaklings-
verðtaunin f vftahittni og sem stighæsti
maður mótsins — hafði forustu í hvoru-
tveggja fyrir leikinn, en missti mögu-
leika á báðum verðlaununum í leiknum.
Fyrst byrjaði Sfmon Olafsson á þvf að
komast yfir hann í vftahittninni, og svo
komst Jón Sigurðsson yfir hann f stiga-
skorun. Kolbeinn hafði 13 stig „á Jón**
fyrir leikinn, en Jón skoraði alls 20 stig f
leiknum og kom út úr mótinu með 306
stig. Kolbeinn með 299, Þórir Magnússon
294, Kristinn Jörundsson 278, Agnar
Friðriksson. Kristján Agústsson og
Stefán Bjarkason með 265 stig hver.