Morgunblaðið - 03.04.1975, Page 28

Morgunblaðið - 03.04.1975, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1975 Piltur og stúlka Eftir Jón Thoroddsen Viltu ekki, Sigríður mín, koma í dag dálítió út með mér? Mér er í hug að fara að skoða varninginn hjá þeim kaupmönnunum; skipin eru flestöll komin, og senn byrja lestirnar; maóur verður að flýta sér að taka það, sem maóur ætlar og nýtilegt er, áður en það er allt saman hrifsað upp og kauptíöin byrjar, því þá er friðurinn úti; en nú er fátt um þessa dagana. Þaó lízt mér vel á, sagði Sigríóur, ég hef ekkert nauðsynlegt að gjöra í dag. Þá fer ég snöggvast upp að laga mig dálítið til, og vertu þá tilbúin, er ég kem aftur. Þessu játti Sigríður, og fór Guðrún að búa sig, en kom síóan aftur aó lítilli stundu liðinni, og var þá Sigríður ferðbúin. Á leiðinni víkur Guðrún sér að Sigríði og segir: Eitt verð ég að segja þér, góða mín af því þú ert ókunnug hérna í Víkinni og nýkomin úr sveitinni, þú verður að afklæóast hinum gamla manninum og vera ekki svo þyrrkingsleg eins og þér hættir við stund- um, þegar þú kemur í búóirnar; við kaupmennina kemur það sér vel að vera heldur glöö í bragði og gefa þeim undir fótinn; þaó er saklaust. Þeir munu sjá um sig samt, vænti ég, sagði Sigríð- ur, að gefa ekki of góð kaupin. Ef ekki níðist neitt úr þeim með því mótinu, þá fæst það ekki með hinu verra; ég er farin að þekkja á þeim lagið, góða mín! Húða þeim út í öðru orðinu og láta eins og maður finni allt aó öllu, en fleða þá í öðru orðinu það er aðferðin ef maður á að hafa eitthvað gagn af þeim. Maóur getur þó ekki verió að tala þvert um huga sinn, sagði Sigríóur. HÖGNI HREKKVÍSI O-O-g svo snertum við tærnar! Ójú, saklaust er það, Sigríður mín; þú ert barn í lögum enn þá, heyri ég, en bráðum munt þú verða betur að þér, ef þú verður hér lengi, og svona var ég fyrst; en hér skulum við þá byrja. Þær fóru nú lengi dags úr einni búð í aðra og skoðuðu varninginn. Guðrún fór að öllu sem kunnug- legast, óð inn fyrir boró í hverri búð, reif niður úr Skarfarnir frá Útröst og svo stór var hann oróinn, að piltur gat aóeins með naumindum komist á bak honum, og aftur voru allar hryssurnar komnar með folöld. „Satt er það, að þú hefir stækkaó við það að fá að sjúga allar hryssurnar mínar“, sagði pilturinn, ,,en nú ertu orðinn nógu stór og getur komið með mér“. „Nei, hér verð ég aó vera eitt ár enn“, sagði folinn. „Láttu nú slátra folöldunum, svo ég geti sogið allar hryssurnar eitt ár enn, og þá skal ég veröa orðinn stór og fallegur næsta sumar!“ Þetta lét nú pilturinn gera. Og þegar hann kom upp í heiðina vorið eftir, og ætlaði að líta á folann sinn og hryssurnar, þá höfðu allar hryssurnar enn eignast folöld, en skjótti folinn var svo stór, að piltur náði ekki upp í faxið á honum, og svo feitur og gljáandi, að það lýsti af honum. „Fallegur varstu í fyrra, Skjóni minn, en fallegri ertu þó nú“, sagöi piltur. „Ekki hefir slíkur hestur sést hjá konunginum. Og komdu nú með mér“. „Nei“, sagði Skjóni enn. „Hér verð ég að vera eitt ár enn. Slátraðu bara folöldunum öllum, svo ég geti sogið hryssurnar þetta ár líka, þá verð ég orðinn stór, þegar þú sérð mig næst.“ Þetta gerði piltur enn, hann lét slátra öllum folöld- unum og svo fór hann aftur. En þegar hann kom næst til hrossanna til þess að líta á Skjóna og hryssurnar, þá varð honum ekki um sel. — Aldrei hefði hann trúað, að nokkur hestur gæti orðió jafn stór, og Skjóni var þá orðinn, því Skjóni varð að leggjast, til þess að piltur næði upp á makkann á honum, og hann átti fullt í fangi með að komast á bak hestinum liggjandi, svo stór var hann og feitur og fallegur, að það gljáði á skrokkinn. Og í þetta skifti var Skjóni fús til að fara með húsbónda sínum. Piltur fór því á bak, og þegar hann kom ríðandi heim til bræðra sinna, urðu þeir stein- hissa. Þeir slógu höndum á lærin, og síðan signdu þeir sig, því slikan hest höfðu þeir hvorki séð né heyrt talað um. „Ef þið getið útvegað mér góóar skeifur undir hestinn minn, og hnakk og beisli, sem honum hæf- ir“, sagði piltur, „þá skuluð þið fá allar tólf hryssurn- ar mínar í staóinn, og folöldin þeirra líka“. Því enn var hver hryssa búin að eignast folald. Þetta vildu bræðurnir gjarna, og svo járnUöíi þeir hestinn svo vel, að grjótið flaug hátt í loft upp undan hófunum, þegar piltur skelti á skeið, og fallegt var FERDIIMAND (na6mo<9unkaffinu 9 o Þad er, eins og þú sérð, einfalt mál að ná tönninni úr greyinu. LÍI •; • Jæja, það er hætt að rigna, ég sting þá af. Hvað er þetta maður, haldif bér að ég gefi svona méi alókunnugum nafn mitt og heimilisfang? Gróskan á landareigninni e slík að það nálgast að ver óhuggulegt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.