Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1975 Brezkt björgunarskip er á leið til landsins — Aburður ónýtur í Hvassafellinu fyrir 12-13 millj. Blokkarpundið á 58 sent á USA-markaði SEKFRÆÐINGAR frá brezku björgunurfirma í Soulhampfon eru væntanlegir hingart lil lands um næstu helgi. Koma þeir á mjög vel útbúnu björgunarskipi sem félagið á. Munu þeir væntan lega gera tilboð f björgun Hvassa- fells eftir að hafa skoðað aðstæð- ur. Eitt tilboð hefur þegar komið fram í björgun IIvassafells, eins og fram kom í Mbl. í gær. Er það frá Rjörgun hf. og hljóðar það upp á ákveðna prósentutölu af Á ALMENNUM fundi Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda, sem haldinn var þann 31. mar/, s.l., urðu miklar umræður um verðlagsmál og samkeppnisað- stöðu veitingahúsanna við mötu- neyti þau, sem rekin eru af hinu opinbera. Á fundinum kom fram, megn óánægja með að mötuneyti hins opinbera skuli nú rekin sem opinberir veitingastaðir, þar sem öllum er frjáls þjónusta, hvort heldur þeir eru starfsmenn við- komandi stofnunar, sem mötu- neytið rekur, eða ekki. Þá kom einnig fram, að rekstur mötune.vt- anna kostar ríkið 350 milljónir króna á ári. Gerði fundurinn svofellda ályktun: Almennur fundur Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda, haldinn i Reykjavík, 21. marz 1975, lýsír megnri óánægju sinni yfir hinum ört vaxandi mötu- neytarekstri ríkis og bæjarfélaga. Bendir fundurinn á, að mötu- neyti hins opinbera eru með því fyrirkomulagi sem er á rekstri þeirra í dag, bein ógnun við tiivist almennra veitingastaða í landinu. Þannig tíðkast það i vaxandi mæli, að óviðkomandi fólk, fær afgreiðslu í téðum mötuneytum, eins og um almennan veitingastaó sé að ræða. Starfsfólk mötu- neytanna hefir leyfi til þess að nota aðstöðu þá, sem mötuneytið skapar, til þess að taka að sér meiri háttar veizlur og matarsölu, í beinni samkeppni við veitinga- húsin, en eru á hinn bóginn undanþegin greiðslu söluskatts. Heldur tónleika UNG stúlka, Hólmfríður Sigurðardóttir frá Isafirði, heldur píanótónleika I sal Tónlistarskól- ans á Akureyri í dag, fimmtudag, klukkan 20.30. Þetta eru fyrstu af þremur meiriháttar tónleikum sem áformaðir eru á Akureyri á næstunni. sannanlega björguðum verðmæt- um. Unnið er af fullum krafti við björgun áburðarins úr Hvassa- felli og er áætlað að því verki Ijúki á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku. Nú þykir Ijóst, að þriðjungur áburðarins, 3—400 tonn, sé ónýtur. Verðmæti þess magns mun vera á bilinu 12—13 milliónir króna. Sverrir Þór deildarstjóri hjá Samvinnutryggingum tjáði Mbl. í gær, að brezka fyrirtækið, sem Það er því augljóst að meó sífellt hækkandi söluskatti, sem í dag er 20%, og stórfelldum niður- greiðslum á fæði starfsmanna, er rekstur þessara mötuneyta, bein ógnun við veitingareksturinn í landinu. Skorar þvi fundurinn á ríkis- stjórn, að taka rekstur þessara mötuneyta sem munu á þessu ári kosta ríkissjóð um 350 milljónir króna, til gagngerðrar endur- skoðunar, svo að rikissjóður komist hjá þvi í framtíðinni að verja sívaxandi fjárhæðum í skattfrjáls fæðishlunnindi fyrir opinbera starfsmenn sina. Verði almennum veitinga- rekstri í landinu aó öórum kosti, veitt sama rekstursaðstaða og mötuneytum, sem aðeins greiða söluskatt af innkaupum sínum. ætlar að athuga aðstæður á strandstað, heiti Risden Beazley og hafi aðsetur í Southampton. Björgunarskip frá félaginu, mannað sérfræðingum í björgun- um skipa hélt til Islands á þriðju- daginn. Skip þetta er frekar litið, svipað að stærð og Goðinn en mjög vel útbúið tækjum til björg- unar. Brezka firmað mun væntan- lega gera tilboð i björgun Hvassa- fells þegar sérfræðingarnir hafa kannað allar aðstæður, enda kem- ur það ekki til mála að sögn Sverr- is að fela einhverju björgunar- félagi björgun skipsins fyrir tima- kaup eóa hafa eitthvað svipað fyrirkomulag. Björgunarfélagið brezka yrði að gera tilboð i björg- unina og þótt það kæmi hingað með skip þýddi það ekki að því ýrði falin björgun Hvassafells. Björgunarskipið er væntaniegt um helgina. Þá hafði Mbl. samband við Heiðar Kristinsson um borð í Hvassafellinu síðdegis í gær. Hann sagói, að björgun áburðar- ins gengi vel. Búið væri að flytja i land 400 tonn af áburði. Sagði Heiðar að verkinu lyki í næstu viku. Heiðar sagði, að flóabátur- inn Baldur væri væntanlegur til Flateyjar á föstudaginn en hann hefur verið leigður til þess að flytja áburðinn þaðan á þær hafn- ir sem áburðurinn átti upphaf- lega að fara til. Tekur Baldur tæplega 200 tonn í ferð. Nú þykir ljóst að sjór hafi komizt í 3—400 tonn af áburðinum og sé hann ónýtur. Er verðmæti þess magns 12—13 milljónir króna. Heiðar sagði að lokum, aó sumarblíða væri nú í Flatey og hefói svo verið 3—4 síðustu daga. FISKVERÐ á Bandaríkja- markði hefur ekkert breytzt á síðustu mánuð- um. Ekkert er heldur sem gefur hækkandi verð til kynna og svo mun vart veróa á meðan hió mikla atvinnuleysi ríkir í Banda- ríkjunum, en þar eru nú Loðnuaflinn NÍU bátar höfðu tilkynnt loðnu- nefnd um afla um klukkan 22 í gærkvöldi, samtals 3100 lestir. Þá var vitað um báta með afla sem áttu eftir að tilkynna sig. Sólar- hringsaflinn hefur því orðið nærri 4 þúsund lestir, og er beildaraflinn á vertíðinni nú orðinn 450 þúsund lestir. 20 bátar stunda enn loðnuveiðar. Loðnuna hafa bátarnir verið að fá við Snæ- fellsnes. Faxaflóahafnir eru orðnar fullar og ætluðu ein- hverjir bátanna að sigla til Þor- lákshafnar og Bolungarvíkur. Þessir bátar höfðu tilkynnt afla frá miðnætti til kl. 22. i gær- kvöldi: Oskar Halldórsson 400, Héðinn 380, Fífill 500, Eldborg 500, Gísli Arni 350, Árni Sigurður 250, Helga II 200. Þá var vitað um Ásberg og Faxa með um 500 lestir samtals, en þeir áttu eftir aó tilkynna sig. „JÚ, við höldum alltaf áfram að taka á móti loðnu, tókum á móti 1000 lestum í fyrrinótt, 600 í nótt sem leið og getum tekið 600 lestir i nótt,“ sagði Jónas Jónsson fram- kvæmdastjóri Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunnar þegar Mbl. um 8% vinnufærra manna atvinnulaus. Sigurður Markússon, fram- kvæmdastjóri Sjávarafurðadeild- ar S.I.S. sagði í samtali við Morgunblaðið i gær, að hæsta verð, sem hefði fengizt fyrir blokkina á Bandaríkjamarkaði í fyrra, hefði verið um 82 sent, síð- an hefði verðið' lækkað niður i 70 sent i ágúst, í september hefði það íarið niður í 60 sent og í desember var verðið komið niður í 58 sent. I þvi verði hefur blokkin haldizt síðan og vonumst við til, að blokk- in lækki ekki meir, heldur hækki eitthvað, sagði Sigurður. Ennfremur sagði hann, að betri sögu væri að segja af þorskflök- unum, þau hefðu ekki lækkað eins í verði og fengjust um 87 sent fyrir þau eins og áður. Viðræður ríkis og BSRB að hefjast KRISTJÁN Thorlacius, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sagði f viðtali við Mbl. í gærkveldi, að þegar hefðu verið ákveðnar viðræður milli banda- lagsins og fjármálaráðherra fyrir hönd rfkissjóðs um kjara- samninga milli aðilanna f kjölfar hins almenna samkomulags milli aðila vinnumarkaðarins. Kristján kvað enn ekki búið að ákveða dagsetningu viðræðnanna, en kvað þær myndu hefjast alveg á næstunni. ræddi við hann í gær. Þá spurðum við Jónas hvernig afkoma loðnu- bræðslnanna á SV-landi væri al- mennt. Hann sagði, að hann gæti ekki svarað því, svo vel væri. Hinsveg- ar væri ljóst, að afkoman núna ylti á því, hvernig menn hefðu selt fyrirfram afurðirnar þ.e.a.s. á meðan lýsið var á toppnum í haust, en þá komst það í 540 doll- ara tonnið og á meðan menn seldu mjög fyrir fram og gátu fengið yfir 5 dollara fyrir proteineining- una. Þá sagði Jónas, að oft myndi hann eftir miklum sveiflum á mjölmörkuðunum, en aldrei hefði sveiflan verið eins mikil og á milli áranna 1973—1975, ef tekið væri tillit til hámarks- og lágmarks- verðs. Allt væri betra en þessar miklu sveiflur, en sin skoðun væri sú að verð á fiskmjöli i fram- tíðinni færi eftir verði á soya- mjöli hverju sinni og visst hlut- fall héldist þar á milli. Lézt eftir slys MAÐUR, sem féll af hjóli á Glerárbrú á Akureyri mánudag- inn fyrir páska og hlaut alvarleg höfuðmeiðsl, lézt af meiðslum sin- um tveimur dögum síðar. Hann hét Gunnar Guðmundsson, til heimilis að Sólvöllum 15, Akur- eyri. Hann var 58 ára gamall. A lög og kaupaukar—sem breyta láglaunauppbótinni EINS og áður hefur verið skýrt frá í Morgunblaðinu miðast launamörkin vegna greiðslu iágiaunabóta við útborgað kaup. Ber að miða kaupupp- hæðina eins og hún er eftir að kaupgreiðsiuvisitala, 106,18, launajöfnunarbætur og hvers kyns álög, kaupaukar og yfir- borganir hafa verið lögð við grunnkaup. Kaup, scm með þessu meðtöidu er hærra en 69 þúsund krónur á mánuði miðað við fulla dagvinnu tekur ekki fulla kauphækkun, en ef til vill kauphækkun að hluta, ef þa- er á hilinu 69 þúsund til 73.900 króna. Um útreikning og greiðslu kauphækkunarinnar skal farið samkvæmt síðast gildandi reglum um kaupbreytingar, m.a. þannig að með kauptaxta skuli telja hvers konar samningsbundin álög og kaupauka, sem ekki svara með beinum og ótviræðum hætti til útlagðs kostnaðar launþega vegna öflunar launatekna. Af þessu leiðir, að styðjast ber við reglugerð frá 7. október 1974 um launajöfnunarbætur, en í 2. gr. hennar B., sem nefnist „álög og kaupaukar" segir svo: „Með taxta skal telja hvers konar álög og kaupauka, sem ekki svara með beinum og ótví- ræðum hætti til útlagðs kostn- aðar launþega vegna öflunar launatekna. a) Sem dæmi um álög, er leggja skal við kaupið áður en til álita kemur, hvort greiða skuli launajöfnunarbætur eru: aldurshækkanir, starfsþjálf- unarhækkun, löggildingar- álag, námskeiðsálag, verk- stjóraálag, flokksstjóraálag, óþrifaálag, yfirborgun, við- gerða- og breytingaálag, þunga- álag, tengivagnaálag, hæðar- álag, erfiðisálag, mótortillegg, kælitillegg, talstöðvartillegg, olíutillegg, fjarverutillegg. Upptalning þessi er ekki tæmandi heldur aðeins leið- beinandi. b) Sem dæmi um greiðslur (kaupauka), sem geta svarað með beinum og ótvíræðum hætti til útlagðs kostnaðar launþega vegna öflunar launa- tekna og teljast þá ekki til taxta, þegar skoðað er, hvort greiða skuli launajöfnunarbæt- Framhald á bls. 18 Veitingamenn: Rekstur mötuneyta kost- ar ríkið 350 millj. á ári Sœbjörg reisir fisk- heildsölu í Orfirisey Á FUNDI Borgarráðs s.l. þriójudag var samþykkt aó veita ábyrgö borgar- sjóós vegna skammtíma- láns aö fjárhæó kr. 10 millj. til byggingar hús- næöis til fiskheildsölu, sem rekin veröur af Fisk- búóinni Sæbjörgu. Fiskheildsala þessi á aö risa vió Eyjagötu 7, skammt frá húsnæói Kristjáns Ó. Skagfjörö i Örfirisey. Út í þessar framkvæmdir er farió vegna gífurlegra þrengsla í fiskhúsi Sæ- bjargar á Grandanum, en þar er litil sem engin að- staða til að nýta vel þann afla sem býðst. Afkoma loðnuverksmiðjanna fer eftir fyrirframsölunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.