Morgunblaðið - 03.04.1975, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1975
LOFTLEIÐIR
BILALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGAN—
5IEYSIR
CAR RENTAL
24460
28810
PIOMEEn
Útvarpog stereo, kasettutæki
■ TEL 14444*25555
^mium
BlLALEIGA CAR RENTAL
Hópferðabílar
8 — 21 farþega i lengri og
skemmri ferðir.
Kjartan Ingimarsson.
Simi 861 55 - 32716-37400.
Afgreiðsla B.S.I.
FERÐABILAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbíkar — stationbílar
— sendibílar — hópferðabílar.
Verksmióju _
útsala
Alafoss
Opió þriójudaga 14-19
fimmtudaga 14-21
á útsolunm:
Flækjulopi
Hespulopi
Flækjuband
Endaband
Prjónaband
Vefnaðarbútar
Bílateppabútar
Teppabútar
Teppamottur
Á
ALAFOSS HF
MOSFELLSSVEIT
Dömustólar
og sófar
Bólstrun Guðm. H.
Þorbjörnssonar,
Langholtsvegi 49,
(Sunnutorg)
sími 33240.
„Að breyta í
grundvallaratriðum ”
Frá þvf að sfðustu almennu
kjarasamningar voru gerðir
fyrir ári hefur kaupmáttur út-
fiutningstekna þjóðarbúsins
rýrnað um 30%. Röskun kaup-
máttar launa hefur þvf reynzt
óumflýjanleg. Nú hafa verið
gerðir kjarasamningar til
bráðabirgða, sem einkanlega
rétta hag þeirra, sem við lökust
kjör búa, og ríkisst jórnin hefur
heitið verulegum kjarabótum í
þeirra þágu með skattalækkun-
um. Engum blandast þvf hugur
um, að allt hefur verið gert,
sem unnt er, til þess að treysta
hag launafólksins við þessar
erfiðu aðstæður.
Þjóðviljinn ^tekur þessum
samningum að sjálfsögðu með
nokkuð kynlegum hætti. I for-
ystugrein blaðsins í gær segir,
að þótt mörgum þyki ugglaust
of smár sá árangur, scm verka-
lýðshreyfingin hefur náð f
þessari lotu, þá verði hins að
gæta, að án breyttrar stjórnar-
stefnu í grundvallaratriðum sé
ekki að vænta stórra sigra til
handa verkafólki, eins og það
er orðað. Hér hlýtur Þjóðvilj-
inn að eiga við þá stefnu f
kjaramálum, sem Alþýðu-
bandalagið rak f vinstri stjórn-
inni á sl. ári. 1 tilefni þessara
ummæla Þjóðviljans nú er
fróðlegt að rifja upp helstu
þætti þeirrar stefnu, sem
Alþýðubandalagið fylgdi f
ríkisstjórn.
I fyrstu stuðlaði Alþýðu-
bandalagið og sérstaklega ráð-
herrar þess að kjarasamning-
um, þar sem kveðið var á um
mestar hækkanir til þeirra,
sem fyrir höfðu hæst laun.
Aðeins rúmum tveimur mán-
uðum eftir að þessir samningar
voru gerðir f lok febrúar f fyrra
létu ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins banna með lögum
greiðslu vísitöluuppbóta á
laun, án nokkurrar fvilnunar í
þágu láglaunafólks sérstaklega.
Þá létu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins banna allar kaup-
hækkanir til sjómanna með
lögum og loks lögðu þeir til, að
hluti þeirra kauphækkana, sem
samið hafði verið um f almenn-
um kjarasamningum kæmi
ekki til framkvæmda. Þetta
vildu þeir lögfesta.
Þetta er sú breytta stefna f
grundvallaratriðum, sem Þjóð-
viljinn reynir að telja les-
endum sfnum trú um, að þjóni
hagsmunum launafólks í land-
inu. Til samanburðar er
fróðlegt að lfta á þá stefnu í
kjaramálum, sem fylgt hefur
verið sfðan núverandi rfkis-
stjórn tók við völdum.
Vildu menn skipta?
t fyrsta lagi var ákveðið að f
stað vfsitöluuppbóta á laun
skyldu greiddar sérstakar
launajöfnunarbætur. Ráðherr-
ar Alþýðubandalagsins sáu
ekki ástæðu til að ákveða
neinar slfkar bætur, þegar þeir
afnámu vfsitöluuppbæturnar
með lögum. Fiskverð var hækk-
að og þar með kaup sjómanna.
Umsamdar grunnkaupshækk-
anir komu til framkvæmda f
stað þeirrar stefnu ráðherra
Alþýðubandalagsins að fella
þær niður með lögum. Sfðan
hefur rfkisstjórnin unnið að
umtalsverðum skattalækkun-
um til þess að bæta kjör og
ráðstöfunartekjur launþega,
þar sem ljóst er, að atvinnufyr-
irtækin rfsa ekki undir veru-
legum kauphækkunum, án
nýrrar kollsteypu. Með þessum
aðgerðum hafa láglaunamenn
fengið kjarabætur f fullu sam-
ræmi við verðlagshækkanir frá
þvf f ágúst.
Þetta er sá reginmunur, sem
ríkir á milli stefnu núverandi
rfkisstjórnar í kjaramálum og
stefnu Alþýðubandalagsins
meðan það var f rfkisstjórn.
Engum þarf að blandast hugur
um hvor stefnan tryggir betur
hagsmuni launamanna. Til við-
bótar þessu má nefna, að með
efnahagsaðgerðum núverandi
rfkisstjórnar tókst að koma f
veg fyrir stöðvun f atvinnu-
rekstrinum, sem blasti við, þeg-
ar ráðherrar Alþýðubandaiags-
ins skildu við atvinnumála-
ráðuneytin. Það eru þessar að-
gerðir, sem hafa forðað okkur
frá þvf böli atvinnuleysisins,
sem hrjáð hefur flestar
nágranna- og viðskiptaþjóðir
okkar. — I ljósi þessara
staðreynda er kátbroslegt að
lesa í Þjóðviljanum um
nauðsyn þess að breyta stjórn-
arstefnunni f grundvallaratrið-
um, hvorki meira né minna!
Skoðanir
Umræður um stjórnmál
og félagsmál
Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík, er eitt af hinum
rótgrónu féiögum Sjálfstæðis-
flokksins. Formaður þess er nú
Olöf Benediktsdóttir. Hún seg-
ir, að markmið félagsins sé
skýrt ákveðið í lögum þess og
felist i því að berjast fyrir þjóð-
legri og víðsýnni framfara-
stefnu í þjóðmálum með hags-
muni allra stétta og öfluga sam-
einingu þjóðarinnar fyrir aug-
um. Olöf segir einnig, að það
leiði af sjálfu sér, að markmið
féíagsins sé ennfremur að
stuðla að aukinni þátttöku
kvenna í stjórnmálum, bæði á
alþingi og i borgarstjórn. Fé-
lagið vinni einnig að því að
styrkja hag heimilanna sem
bezt má verða, einkum á sviði
uppeldis-og heilbrigðismála.
Olöf Benediktsdóttir segir, að
félagið sé orðið nokkuð gamalt í
hettunni, það hafi verið stofnað
15. febrúar 1937. Hún segir, að
félagið hafi ekki náð að koma
fram öllum þeim markmiðum,
sem því hafi verið sett. Þar
hefðu auðvitað verið mörg ljón
á veginum, en að einhverju
ieyti væri þó við félagskonurn-
ar sjálfar að sakast. Nú stæðu
hins vegar vonir til þess, að
unnt yrði að auka félagsstarfið,
þegar sjálfstæðishúsið nýja
yrði fullbúið, en húsnæðis-
skortur hefði háð mjög allri
starfsemi félagsins fram til
þessa. Aðspurð segir Ölöf, að
féiagskonur í Hvöt séu um 860
og þar séu konur á öllum aldri.
A undanförnum árum hafi fé-
lagsmönnum fjölgað mikið og
sér virðist eins og ungar konur
hafi i auknum mæli tekið virk
an þátt í störfum þess. Þá sagði
Ólöf, að sér fyndist starf Hvatar
hafa verið einstaklega blómlegt
og gott i samanburði við aðra
félagsmálastarfsemi.
Aðspurð sagði Ölöf, að félags-
konur í Hvöt reyndu að efna til
funda um þau efni, sem efst
væru á baugi hverju sinni. Þar
væri bæði fjallað um stjórnmál
og önnur efni, sem talin væru
falla fyrir utan þann ramma.
Hvöt hefði t.a.m. staðið að ráð-
stefnum ásamt Landssambandi
sjálfstæðiskvenna um ýmis
efni. í vetur hafi þessir aðilar
t.d. i sameiningu haldió stóra
ráðstefnu um nýjungar í skóla-
málum.
Því næst sagði Ólöf, að menn
spyróu gjarnan, hvers vegna
konur væru að starfa i sérstök-
um félögum. Hún sagði, að svar
sitt við þessari spurningu væri
það, að hún teldi, að enn sem
komið væri stæðu konur ekki
jafnfætis karlmönnum. Þær
hefðu ekki fengið sama rétt á
borði eins og í orði. Þar sem
konur kepptu við karlmenri á
einhverjum svióum, væri alla
jafnan gerðar meiri kröfur til
kvennanna en karlanna. Þá
væri þess einnig aó geta, að þær
konur, sem störfuðu í kvenfé-
lögum og félagi eins og Hvöt,
væru þar með í ýmsum heildar-
samtökum kvenna. Þetta væri
að mörgu leyti æskilegt, og hún
teldi ekki sízt mikilvægt fyrir
konur, sem störfuðu í stjórn-
málafélögum, að þær hefðu
tækifæri til þess að kynnast og
starfa með konum, sem væru að
Ólöf Benediktsdóttir.
vinna að öðrum verkefnum.
Svo mörg mál væru enn óleyst í
þessum efnum, að ekki veitti
af, að konur stæðu saman til að
vinna þeim brautargengi.
Ölöf sagði, að sín skoðun væri
sú, að konur yrðu að standa
betur saman og berjast hver
með annarri og hver fyrir aóra,
ef þær ætluðu í alvöru að auka
þátt sinn í þjóðmálastarfsem-
inni.
MÉR ER Ö5VÍKÍNN KRAFTORj
' MÍLLI FÓTANA '--------
góoa//
G-ET STUN&IÐ HVERN/
V AEM ER. AF /
^fOhAuND
Nú er aðeins einni umferð ólok-
ið i undankeppni íslandsmótsins i
Reykjanesumdæmi en keppni
þessi er jafnframt meistaramót
Reykjaness.
Staða efstu sveita:
Kára Jónassonar BK 1 72
Björns Eysteinsssonar BH 151
Bjarna Sveinssonar BK 148
Haralds Brynjólfssonar BH 146
Alberts Þorsteinssonar BH 146
Sigurðar Emilssonar BH 136
Guðmundar Ingólfssonar BS 135
Fimm sveitir öðlast rétt til þátt-
töku i formóti íslandsmótsins.
Keppnin hefst klukkan 16 — en
að keppni lokinni er ætlunin að hafa
lokahóf fyrir spilara — konur þeirra
og aðra velunnara bridgeiþróttarinn-
ar og eru allir velkomnir. Til
skemmtunar verður m a. dans og
bingó.
XXX
Frá landsmóti mennta-
skólanema í bridge
Landsmót menntaskólanema
var haldið í menntaskólanum við
Hamrahlið helgina 22.—24. marz
sl.
Til leiks mættu 9 sveitir frá 5
skólum: Menntaskólinn að Laug-
arvatni, Menntaskólinn á Akur-
eyri, Menntaskólinn í Reykjavík
og menntaskólinn við Hamrahlið
sendu 2 sveitir hver skóli og ein
sveit frá Menntaskólanum víð
Tjörnina. Skipt var í tvo riðla og
spilaðir 20 spila leikir.
í A-riðli voru fimm sveitir og
sigraði A-sveit MR með 60 stigum
en i B-riðli voru fjórar sveitir og
sigraði A-sveit ML einnig með 60
stig (fullt hús).
Úrslitaleikurinn varð þvi milli
A-sveita MR og ML. Spilaður var
32 spila leikur og sigraði sveit ML
örugglega 20-0.
í sveit ML eru Guðmundur Her-
mannsson, Sævar Þorbjörnsson,
Skafti Jónsson og Skúli Einars-
son. I A-sveit MR eru Kristján
Þórarinsson, Kristján Gunnarsson,
Jóngeir Hlynason og Egill Guð
johnsen.
A.G.R.