Morgunblaðið - 03.04.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1975
15
skref ”-aðferð
Kissii igers?
BANDARlSKA dagblaðið
Washington Post skýrði frá
þvf fyrir skömmu að eftir-
farandi sögu væri mjög á loft
haldið f Israel sem dæmisögu
um þá stefnu, sem bandarfski
utanríkisráðherrann dr. Henry
Kissinger hefur fylgt í tilraun-
um sfnum til að koma á friði
milli Israels og Araba skref
fyrir skref.
Hjúskaparmiðlari fór til
manns eins i þorpinu þar sem
hann bjó og sagði honum að
hann hefði fundið dásamlega
stúlku handa syni hans.
Maðurinn svaraði því til að
hann skipti sér ekki af einka-
málum sonar síns.
„En þú veizt bara ekki hver
stúlkan er, sagði hjúskapar-
miðlarinn, hún er dóttir
Rothsehilds baróns.“
„Nú, úr því svo er....“ sagði
maðurinn.
Síðan fór hjúskaparmiðlar-
inn til Rothschilds og sagði vió
hann: „Ég hef fundið hinn
mesta prýðismann handa dótt-
ur þinni."
„En dóttir mín er ekki nema
sautján ára,“ svaraði
Rothschild barón.
„En þú veizt ekki hver
maðurinn er — hann er vara-
forseti alþjóðabankans," sagði
hjúskaparmiðlarinn.
„Nú, úr þvi svo er....“ sagði
Rothschild.
Þvf næst fór hjúskapar-
miðlarinn til forseta alþjóða-
bankans og sagði við hann:
„Ég hef fundið afburða vara-
forseta fyrir þig.“ „En ég hef
þegar tvo varaforseta," svaraði
forseti alþjóðabankans.
„En þú véizt ekki hver
maðurinn er, hann er tengda-
sonur Rothschilds baróns...
sagði hjúskaparmiðlarinn.
Nguyen Duy Trinh, utanrfkisráðherra Norður-Vietnam, og William Rogers, utanrfkisráðherra Bandarfkjanna, undirrita samkomulagið
f Parfs.
Parísarsamkomulagið
- i dag innantóm orð
Enskeri í
Lissabon
Lissabon 2. apríl — Reuter, NTB
FINNSKA eiturskipið Enskeri,
sem er með 100 tonn af arsenik-
eitri innanborðs, var enn utan við
Lissabon f dag, og ekkert var vfst
um ákvörðunarstað skipsins. Hið
rfkisrekna olfufélag, Neste, hefur
verið að reyna að finna stað þar
sem unnt reynist að losa eitur-
farminn eftir að áætlanir þess um
að sökkva farminum í Suður-
Atlantshaf fóru út um þúfur
vegna mótmæla hvaðanæfa að úr
heiminum. Hins vegar hefur olíu-
félagið haldið þvf fram, að skipið
væri á leið heim til Finnlands
aftur með farminn.
20 fórust
Grenoble 2. aprfl — AP
HÓPFERÐABlLL með frönskum
ferðamönnum rann stjórnlaus
niður bratta hlfð nærri Grenoble f
dag og steyptist f fljót. Um 20
manns fórust, og a.m.k. 20 aðrir
slösuðust. Ferðafólkið var að
koma úr pílagrímsferð frá
kaþólskum helgistað.
• LAUGARDAGINN 27.
janúar, kl. 10.00 árdegis að
ísl. tíma, var undirritað við
18 minútna athöfn í
Majestic-hótelinu í París
samkomulag um vopnahlé
í styrjöldinni í Víetnam.
Þeir sem undirrituðu sam-
komulagið voru William
Rogers, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Tram Van
Lam, utanríkisráðherra
Suður-Víetnam, Nguyen
Duy Thinh, utanríkisráð-
herra Norður-Víetnam, og
frú Nguyen Thi Binh fyrir
Víetcong-hreyfinguna. Að
athöfninni lokinni skáluðu
menn í kampavíni og
fögnuðu því að friður hefði
nú verið innsiglaður í
landinu eftir margra ára
styrjöld. Svo reyndist ekki
vera eins og raunar kom
strax í ljós næstu dag á
eftir undirritunina, er
margir blóðugustu bardag-
ar stríðsins voru háðir.
% Samkomulag þetta var
árangur af margra ára
friðarviðræðum Henry
Kissingers, þáverandi ráð-
gjafa Nixons forseta í
öryggismálum og núver-
andi utanríkisráðherra, og
Le Duc Thos, aðalsamn-
ingamanns Norður-Víet-
nams-stjórnar. Þeir hlutu
friðarverðlaun Nóbels
fyrir þetta starf. Eftir að
tilkynnt hafði verið að
samkomulag hefði náðst
sagði Tho: „Við eigum ekki
óleyst nein atriði. Frá öllu
hefur verið gengið nema
því að ákveða hvar halda
skuli alþjóðlega ráðstefnu
um Indókína.“ Og Nixon
Bandaríkjaforseti, sagði í
ávarpi til þjóðarinnar er
hann skýrði frá samn-
ingunum, að gengið hefði
verið að öllum skilyrðum
sem Bandaríkjamenn
hefðu sett fyrir því að frið-
ur yrði saminn með sæmd.
Helztu ákvædi samkomulagsins
voru þessi: Allt herlið Bandaríkj-
anna og annarra erlendra aðila
fari frá Suður-Víetnam innan 60
daga. Þó er ekki minnzt á herlið
Norður-Víetnama og var ekki
annað að sjá en það gæti verið I
landinu óáreitt. Á þessum sama
tima verður skipzt á bandariskum
stríðsföngum og pólitiskum föng-
um. Gert er ráð fyrir, að marka-
línan milli Suður- og Norður-
Víetnams verði ekki til frambúð-
ar. Sett skal á fót samstarf- og
sáttanefnd fulltrúa Saigon-
stjórnarinnar og skæruliða Víet-
cong. Halda skal kosningar í land-
inu og kveðið á um óyggjandi
sjálfsákvörðunarrétt íbúa Suður-
Víetnams. 1160 manna gæzlulið
og eftirlitsnefnd fjögurra rikja,
Kanada, Indónesiu, Póllands og
Ungverjalands, skal fylgjast með
framkvæmd vopnahlés og ákvæða
samkomulagsins. Loks skal halda
alþjóðlega ráðstefnu um Indókína
eftir mánuð eða svo, eins og fram
kom að ofan, og tækju þátt i henni
auk deiluaðila og ríkja í eftirlits-
nefnd, Sovétríkin, Kína, Bretland
og Frakkland. Ekki var minnzt á
vopnahlé í Laos og Kambódiu, en
kveðið á um að þaðan skuli flytja
burt erlendar hersveitir og þar
ekki hafðar herstöðvar er ógni
Suður-Vietnam.
Varðandi ákvæðið um marka-
linuna milli Suður- og Norður-
Víetnam sem liggur um 17.
breiddarbaug, var það talinn
mikill ávinningur fyrir Norður-
Víetnama að hún skyldi einungis
vera til bráðabirgða og yrði ekki
pólitísk eða landfræðileg landa-
mæri ríkjanna. En báðum megin
við markalínuna var hins vegar
kveðið á um 16 km hlutlaust belti.
Varðandi störf eftirlitsnefndar-
innar er kveðið á um að hún skuli
dreifa sveitum gæzluliðsins um
Suður-Víetnam. Ákvaðanir henn-
ar skuli teknar einróma, og geti
hvert einstakt aðildarríki
hennar krafizt rannsóknar á til-
teknum atriðum. Ef ágreiningur
verði innan nefndarinnar skuli
álit allra aðila gert opinbert.
Framhald á bls. 18
Iraksher eltir
reisnarmenn
Baghdad, Hakkari, 2. apríl, Reuter.
HERSVEITIR Iraksstjórnar
leituðu í dag að kúrdlskum upp-
reisnarmönnum I fjallahéruðun-
um í norðausturhluta Iraks, og
héldu innreið sfna í hinar yfir-
gefnu aðalstöðvar Kúrda, Kalala,
sem eru I fjalllendinu skammt
frá írönsku landamærunum.
Mustafa Barzani, leiðtogi Kúrda,
fór frá Kalala um s.l. helgi og
hefur Ieitað hælis I tran ásamt
Stórsigur Daleys
Chicago 2. apríl — Reuter
RICHARD Daley, borgarstjóri
demókrata í Chicago, vann I dag
stórsigur I sjöttu borgarstjóra-
kosningunum sem hann tekur
þátt í. Þar með er talið að Daley
hafi tryggt sér mikil áhrif á val
forsetaefnis demókrata I
kosningunum á næsta ári. Daley,
sem er 72 ára harðjaxl og einn
valdamesti stjórnmálamaður
Bandarfkjanna, hlaut 78% at-
kvæða í kosningunum, og hefur
setið lengur f embætti borgar-
stjóra f stórborgum Banda-
rfkjanna en nokkur annar, eða
alls 24 ár ef hann situr út þetta
kjörtfmabil. Er svo til allir at-
kvæðaseðlar höfðu verið taldir
hafði Daley hlotið 536,413 at-
kvæði, John Hoellen, frambjóð-
,andi repúblíkana, 136,874, en eini
blökkumannaframbjóðandinn,
frú Willie Mae Reid, úr Sós-
falfska verkamannaflokknum,
fékk 16,749. Hneykslismál settu
svip sinn á síðasta kjörtímabil
Daleys, og nokkrir samstarfs-
manna hans fengu dóma fyrir
mútuþægni skattsvik og fleira.
tveimur sonum sfnum, ldriss og
Massut.
Q Einn af leiðtogum Kúrda, dr.
Mahmut Osman, aðalritari kúrd-
fska lýðræðisflokksins, sagði f
dag að meir en 5000 kúrdískar
konur, börn og gamalmenni
hefðu farizt f fyrra mánuði er þau
reyndu að flýja frá fjalllendinu f
norðurhluta lraks f miklu frosti.
Hann sagði ennfremur að meira
ein 1000 uppreisnarmenn hefðu
verið teknir af lífi eftir að hafa
gefizt upp fyrir hersveitum Iraks-
stjórnar. Ekki fengust þessar
ásakanir staðfestar. Dr. Osman
sagði að uppreisn Kúrda væri að-
eins lokið f bili.
Talið er að enn séu þúsundir
Kúrda á víð og dreif f fjalllend-
inu f Norður-lrak nærri landa-
mærum Tyrklands og írans.
Vopnahléinu sem Baghdadstjórn-
in bauð Kúrdum f sfðasta mánuði
rann út á mánudagskvöld, en var
hins vegar framlengt til aprílloka
fyrir þá Kúrda sem flýðu til Irans
á meðan á bardögum stóð og nú
vilja snúa aftur.
Tyrkland og Iran hafa tekið
fyrir ferðir Kúrda frá Irak yfir
landamæri sfn. Stjórnin f
Baghdad hafði lýst þvf yfir að
hún myndi þurrka út alla upp-
reisnarmenn sem ekki hefðu
gefið sig fram á mánudagskvöld,
og yrðu allir Kúrdar sem halda
uppi ófriði látnir sæta hörðum
refsingum.
Shelepin
Heimsókn Shel
epins var stytt
Prestwick, London 2. apríl AP-Reuter
ALEXANDER Shelepin, leiðtogi
sovézku verkalýðssamtakanna og
fyrrum yfirmaður sovézku leyni-
þjónustunnar, KGB, flaug áleiðis
heim til Moskvu f kvöld, sólar-
hring fyrr en ráðgert hafði verið.
Aður en hann hélt af stað
kvartaði Shelepin yfir því að „at-
vinnumótmælendur" undir for-
ystu zíónista hefðu reynt að eyði-
leggja heimsókn hans til Bret-
lands. A flugvellinum í Prestwick
var hópur Ukrainumanna með
spjöld á lofti þar sem Shelepin
var katlaður fjöldamorðingi og
kröfðust þeir þess að pólitískum
föngum yrði sleppt f Sovétríkjun-
um. Var farið með Shelepin með
leynd upp f flugvélina og náðu
Ukrainumennirnir ekki til hans.
Fyrr i dag hafði Shelepin sagt
fréttamönnum að litill hópur sem
væri andsnúinn bættri sambúð
austurs og vesturs hefói staðið að
mótmælaaðgerðunum gegn sér í
London í gær, og væri hópur þessi
ekki dæmigerður fyrir brezkan
verkalýð. Shelepin var í Bretlandi
í boói brezka alþýóusambandsins,
TUC. Mótmælaaðgerðir settu
mjög svip sinn á heimsóknina,
sem að öðru leyti fór mjög dult.