Morgunblaðið - 03.04.1975, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1975
1 Mbl. í var svnd mynd af farþ<‘Kaþolu, scm var að laka sík á lofl frá Danan^ og sásl þá í
fa*tur hcrmanns, scm hafrti hlaupid upp í hjólaslHI flufívólarinnar. IVIaóurinn lózl, or rcynl var
aódra^a hjólin upp o« sé/.l hór cr verió <*r aó fjarla*Kja lík hans vió komuna IiI Saif'onflun-
vallar.
— Vietnam
Framhaid af bls. 1
fjöldi flóttafólks myndi láta lifið
áður en yfir iyki. Rockefeller
sagði engan vafa á því að komm-
únistar hefðu algeriega snúið
baki við Parísarsamkomulaginu.
„Það er hörmulegl," sagöi vara-
forsetinn.
Sehlesinger varnarmálaráð-
herra sagði á fundinum að
framtíð S-Víetnams byggðist á því
hvort stjórn Thieus tækist að
stappa stálinu í stjórnarhermenn
til að verja Mekongsvæöiö og
höfuðborgina. Sagði ráðherrann
aö enginn vissi með nokkurri
vissu hvernig ástandið væri
meðal stjórnarhermanna og
Kortió sýnir hina hröóu framsókn ska*rulióa
\ í<*I-(;oiik ‘»K N-Vi<*lnama 0« liv<* mikinn
liiuta S-\ i<*lnam þ<*ir liafa nti náó á sill vald.
hvernig þeir væru á sig komnír
eftir hina miklu ósigra undanfar-
inna daga. Ráðherrann sagði að
sökum þess hve miklir vegir
hefðu verið lagðir í S-Víetnam
gætu kommúnistar hæglega kom-
ið herliði sínu og hergögnum á
svæðin umhverfis Mekong og
Saigon.
Varnarmálaráðherrann var
spurður um mistök í leyniþjón-
ustu Bandaríkjanna og sagði
hann að leyniþjónustumenn
hefðu ekki lagt rétt mat á
viðnámsþrótt og hugrekki S-
Víetnama, og einnig hefóu þeir
vanmetió aöflutningsdráttarkerfi
kommúnista. Leyníþjónustumenn
hefðu fram til 17. marz ekki haft
trú á því að hægt væri að gera
allsherjarárás á S-Víetnam fyrr
en á næsta ári. Sehlesinger sagði
ósigur stjórnarherliðsins á mið-
hálendinu vió Dan me Thuot, 12.
marz, hörmuiegan og sögulegan
fyrir stjórnina. Ráðherrann sagði
að engar áætlanir væru uppi um
að Bandaríkjamenn seltu upp
loftbrú með hergögn og vistir til
Saigon. Aðeins voru 175 milljónir
dollara eftir af hernaðaraðstoðar-
fjárveitingunni og lítil von til
þess aó Banóaríkjaþing yrði við
beiðni Fords forseta um 300
milljón dollara viðbótarfjárveit-
ingu.
Sehlesinger staðfesti einnig að
stjórnarhermenn hefðu skilið
eftir hergögn, sem fallið hefðu f
hendur kommúnísta, aó verðmæti
um 1 milljarður dollara og væru
þó ekki öll kurl komin til grafar.
Blaðið Washington Post sagði í
dag að herstjórn S-Vietnams
hefði af ásettu ráði haldið aftur af
flugher landsins til þess að spara
flugvélar, en það hefði aðeins
orðið til þess að hundruðir flug-
véla hefðu lent í höndum
kommúnista þar á meðal 2—300
fullkomlega útbúnar þyrlur.
Dinh Ba Thi fulltrúi skæruliða
Viet Cong i París sagði á fundi
með fréttamönnum f dag, að her-
ir kommúnista myndu halda
áfram sókn sinni inn í S-Vietnam
unz stjórn Thieus væri fallin og
Bandaríkjamenn hættu hernaðar-
aðstoð við S-Vietnam. Sagði hann
að Viet Cong væri reiðubúið til að
setjast að samningaborðinu með
hvaða stjórn sem væri í Saigon,
annarri en stjórn Thieus, „sem
væri fylgjandi friði, þjóðarsáttum
og myndi virða Parísarsamkomu-
lagið".
Fregnir i Washington í dag
hermdu að Kissinger utanríkis-
ráðherra hefði haft samband við
Ieiötoga nokkurra þjóða og beðið
þá um að reyna að hafa áhrif á
leiðtogana i Hanoi og fá þá til að
virða Parísarsamkomulagið frá
1973.
Þá bárust fregnir um þaö að
Tran Thien Khiem, forsætisráð-
herra S-Vietnams, hefði boðizt til
að segja af sér, en ekkí var vitað
hvort Thieu forseti hefði tekið
lausnarbeiðnina til greina.
Viðbrögö við ástandinu víða um
heim eru mjög neikvæð í garð
Bandaríkjanna, sem eru sökuð
um að hafa á ný lekið upp
einangrunarstefnu i utanríkis-
málum. T.d. sagði franska blaðið
Les Echos, að Bandaríkjamenn
væru nú að fá mesta kinnhest í
sögu þjóðarínnar. Japanska
blaðið Asahi Shimbun segir: „Það
er aö koma i ljós, að ekki er hægt
að treysta Bandarfkjamönnum." 1
sama streng taka blöð í V-
Þýzkalandi og Belgiu og Daily
Mail sagði i morgun í London:
„Fall Danangs er ábending til
Evrópuþjóða um að fara að huga
betur að eigin vörnum."
— Barnabókavika
Framhald af bls. 3.
kenningar og þeir, sem rita
bækur fyrir fullorðna.
I kvöld verður íslenzkt barna-
bókakvöld í Norræna húsinu
þar sem Guðrún Ilelgadóttir,
Jenna Jensdóttir og Vilborg
Dagbjartsdóttir, sem allar eru
barnabókahöfundar, lýsa við-
horfum sínum til barnabókarit-
unar. Lesið verður úr bókum
þeirra og fara umræður síðan
fram_______
— Phnom Penh
Framhald af bls. 1
því í dag að á morgun yrði byrjað
að flytja á brott starfslið sendi-
ráðsins „til bráðabirgða" eins og
hann orðaði það. Sagói hann að
fall Neak Luong ætti þátt i þeirri
ákvörðun, en neitaði að það væri
eina ástæðan. Um 200 manns eru
á vegum sendiráðsins. Frétta-
menn segja að alger upplausn ríki
nú í Phnom Penh og neyðin, sem
þar ríki meðal flóttamanna, sé
hörmuleg.
— Fiskimenn
Framhald af bls. 1
mánaða löndunarbann á ísfisksöl-
ur erlendra fiskimanna í Bret-
landi frá 1. apríl til 1. október ár
hvert. Um 10 þúsund brezkir
fiskimenn á um 1400 bátum taka
þátt í aðgerðunum og er mikil
harka í þeim að því er segir í
fréttastofuskeytum. Hafa þeir
flestir vistir og olíu til einnar
viku um borð i bátum sínum.
— Loðnuafurðir
Framhald af bls. 32
sagði, að fyrir skömmu hefði ver-
ið gerð lausleg áætlun. Fól hún i
sér að heildarveiðin yrði í kring-
um 440 þús. lestir og að úr því
magni fengjust um 65 þús. lestir af
mjölí og um 21,5 þús. lestir af lýsi.
Nú er vart hægt að tala um loðnu-
frystingu, en hún er aðeins 1700
lestir. Ef miðað er við það verð,
sém fengizt hefur fyrir mjöl og
lýsi að undanförnu og allt frá því
í fyrrahaust er áætlað að fob. út-
flutningsverðmætið verði rétt um
3 milljarðar króna samkvæmt
nýja genginu.
Gamalíel sagði, að á s.l. ári hafi
verið talið að verðmæti mjöls og
lýsis hafi verió um 3,3 milljarðar
kr. en þá veiddust um 460 þús.
lestir. Þar ofan á hafi bætzt um 18
þús. lestir af frystri loðnu að verð-
mæti um 1050 milljónir kr. þann-
ig að heildarverðmætið hafi verið
um 4,3 milljarðar kr. Ekki ber að
telja þessar tölur alveg ‘hár-
nákvæmar, þar sem alltaf eru til
nokkrar birgðir um áramót, t.d.
voru til um 5600 lestir af loðnu-
mjöli í landinu í árslok 1974.
— Álög —
kaupaukar
Framhald af bls. 2
ur, eru t.d.: verkfærapeningar,
flutningapeningar, fæðis-
peningar, fatapeningar, fata-
þvottapeningar.
Þetta gildir þó aðeins að því
marki sem greiðslur þessar eru
endurgreiðsla á raunverulega
útlögðum kostnaði viðkomandi
launþega eða greiðsla fyrir yfir-
vinnu (t.d. vegna flutninga
utan umsamins vinnutíma).
Launajöfnunarbætur valda
ekki hækkun á framangreind-
um álögum í krónutölu enda er
reikningsgrundvöllur óbreytt-
ur.“
Síðan segir i reglugerðinni,
að vaktaálag skuli ekki teljast
með taxta nema að því leyti,
sem það kann aó vera hærra en
svarar til yfirvinnu-, nætur-
vínnu- og helgidagaálags. Þetta
þýðir i raun að ef vaktaálagið á
rætur að rekja til yfirvinnu-,
næturvinnu- og helgidagaálags,
er það ekki tekið með við kaup-
útreikninga vegna launajöfn-
unarbóta. En að því marki,
sem vaktaálagið felur í sér
annars konar kaupauka og
svarar ekki með beinum og
ótvíræóum hætti til útlagðs
kostnaðar launþega vegna
öflunar launatekna, skal það
talið með.
— Sjómanna-
samningar
Framhald af bls. 32
skírdagsnótt og kvað hann það
einnig hafa verið undirritað fyrir
hönd Sjómannasambandsins, þótt
Jón Sigurðsson undirritaði það
ekki. Síðan sagði Kristján: „Nú
virðast þeir hins vegar ekki vilja
taka tillit til þeirrar undirskiftar
og láta sér ekki lynda hækkun á
kauptryggingu og kaupliðum,
sem svarar til þeirrar hækkunar,
er þar varð. Hún hefði orðið 6.615
krónur i stað 4.900 króna vegna
mats á yfirvinnu í kauptrygg-
ingunni. Gera þeir nú miklu frek-
ari kröfur um hlutaskipti og önn-
ur efnisatriði samninga, sem við
höfum ekki viljað failast á. Telj-
um við eðlilegt að samningar sjó-
manna séu framlengdir um stutt-
an tíma eins og aðrir samningar
án efnisbreytinga. Um efnisatriði
hafði verið samið til 2ja ára og því
er nú aðeins verið að semja um
áhrif af visitöluskerðingunni."
Kristján sagði ennfremur að
verkfallsboðanir hefðu borizt frá
sjómannafélögunum vegna
almennu samninganna, og hann
lýsti furðu sinni á því, að sjó-
menn, sem fengið hefðu verkfalls-
heimildir á sömu forsendum og
aðrir launþegar, skyldu nú brjóta
sig út úr fjöldanum og fara fram á
allt annað en aðrir. Kvað Kristján
til lítils að semja við landverka-
fólk, ef flotinn ætti að stöðvast
um hávertíðina. Kvað hann þá
lítið verða um atvinnu i landi.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
sér litist ekki vel á samningana.
„Það hefur ekkert verið komið til
móts við okkur enn, þótt útgerðar-
menn hafi að sjálfsögðu boðið
okkur hið sama og um samdist
milli ASl annars vegar og VSÍ og
Vinnumálasambandsins hins
vegar. Kröfur okkar eru að vísu
nokkuð miklar, en til grundvallar
þeim leggjum við þær kröfur, sem
við lögðum fram á síðastliðnu
hausti. Þráttað hefur verið um
þær fyrst án sáttasemjara og
síðan á fundum hjá honum. Þess-
ir samningar hafa siðan legið
niðri nú á meðan almennu samn-
ingarnir voru í gangi og í raun
höfum við aðeins tekið upp þráð-
inn, þar sem frá var horfið."
Jón Sigurðsson sagði að kröf-
urnar væru um skiptakjör, kaup-
trygginguna og aðra kaupliði.
Hann kvað sjómenn yfirleitt hafa
farið fram á 25 til 30% hækkun
varðandi kaup og kjör, en einnig
hefðu þeir krafizt þess að fá
endurheimt það, sem af þeim var
tekið með bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar frá þvi í
september síðastliðnum. Sagði
hann að sjómenn teldu þar vera
um 14% að ræða, sem runnið
hefóu i olíusjóð og stofnlánasjóð
ásamt fleiru, sem þá var gert. Jón
sagði að Sjómannasambandið
hefði aldrei afhent 9-manna
nefnd ASÍ umboð til samninga og
því væri það alls ekki bundið
hinni almennu samningagerð.
Hann sagði hins vegar að það
hefði verið athugunarleysi að
nafn Sjómannasambandsins hefði
ekki verið máð út úr texta sam-
komulagsins áður en skrifað hefði
verið undir og um leið og hann
neitaói að undirrita samkomu-
lagið. Hins vegar væri undirritun-
in gerð með fyrirvara þeirra
félaga, sem afhent hefðu umboð
og gætu þau aó sjálfsögðu fellt
samkomulagið. Ekki þyrfti þó að
bera það undir sjómannafélögin,
þar sem þau hefðu aldrei veitt
umboð til samninganefndar ASI.
— Sovézkt dufl
Framhald af bls. 32
það hefði ekki legið lengi í sjó.
Hann sagði, að duflið lægi í sand-
fjöru alllangt frá mannabyggð og
væri örugglega erfiðleikum
bundið að ná þvi. Væri einna
helzt aó sækja það á báti. Frétzt
hafói að tvö slík dufl hefði rekið
upp á Ströndum en Guðmundur
kvað það ekki rétt vera.
Þá hafði Morgunblaðið í gær
samband við Pétur Sigurðsson
forstjóra Landhelgisgæzlunnar.
Hann sagði, að i dag yrði reynt að
ná í duflið sem rak upp á Foss-
fjöru og einhvern næstu daga yrði
reynt að ná í duflið í Ofeigsfirði.
— Verkfall 10.
Framhald af bls. 32
vera það gallaða, að i raun hafi
ekki verið unnt að setja út á
slfk vinnubrögð. Sagði Hjörtur
og Kjararáðið hefði farið fram
á, að verkfallsboðuninni yrði
frestaó eitthvað, en því hefði
verið hafnað.
Björn Jónsson, forseti ASÍ,
sagði að skipzt hefði verið á
skoðunum en síóan hefði sátta-
semjari veitt Kjararáðinu um-
beðinn frest á viðræðum til
föstudags, þar eð þeir þyrftu
að athuga betur sín mál. Var
þeim síðan afhent verkfalls-
boðun frá og með 10. april.
Björn sagði að samninganefnd
ASÍ, sem hefur samningsum-
boð fyrir verzlunarmenn, hefði
ekki lagt fram neinar sér-
stakar kröfur aðrar en þær, að
ef samningar næðust án verk-
fallsátaka, væri Kjararáðinu
gefinn kostur á sömu samning-
um og öðrum. Hins vegar kvað
hann samninganefndina hafa
áskilið sér rétt til þess að
endurskoða kröfurnar, ef til
hörku drægi í málinu. Þetta
kvað Björn hafa verið sjónar-
mið samninganna milli ASÍ og
VSÍ — og takmarkið hefði
verið að ná samkomulagi án
átaka.
Bingó hjá Val
KNATTSPYRNUDEILD Vals
heldur bingó f Sigtúni f kvöld
klukkan 20.30. Spilaðar verða 16
umferðir og eru margir veglegir
vinningar f boði, þar á meðal 8
utanlandsferðir.
— Björn Jónsson
Framhald af bls. 32
inn til þeirra frá okkur. Það var
ekki unnt að póstleggja hann fyrr
en í gær, vegna þess að þannig
stóð á, að samningurinn var gerð-
ur aðfarárnótt páskahelgarinnar.
Siðan var pósturinn stöðvaður og
það var ekki fyrr en í gær, sem
við gátum sent þetta í hraðpósti.
Er því frekar ólíklegt að þeir hafi
veriö búnir að fá þetta áður en
þeir báru þetta upp. A ég erfitt
með að trúa því að þeir menn,
sem gera slíka ályktun, hafi allar
upplýsingar um samningana í
lagi."
— Minning Páll
Framhald af bls. 23
látur fyrir þær fróðlegu viðræður,
sem hann átti við Pál um lífsbar-
áttuna, sem háð var í þessu harð-
býla landi áður fyrr. Það er stund-
um hollt fyrir okkur, sem þekkj-
um lítið til mótlætis og andbyrs að
staldra við og íhuga lífskjör á
liðnum tfmum. Þannig tekst okk-
ur betur að meta að verðleikum
störf þeirrar kynslóðar, sem gerði
sínar þrár og hugsjónir að dag-
legu brauði okkar. Á þessari
kveðjustund rifjast ennfremur
upp gleðifundir á „Brekkunni",
þegar fjölskyldan tók lagið og
Páll dró fram nikkuna sína og lék
undir.
Mikill sjónarsviptir er að Páli
Pálssyni, enda var ávallt lff og
starf í kringum hann. Söknuður-
inn er ekki síztur meðal barna-
barnabarnanna, sem voru hásetar
á „Stundvis", þegar vitjað var um
hrognkelsanetin á vorin. Um borð
í trillunni lærðu strákarnir sín
fyrstu handbrögð til sjós undir
Óshlíðinni á meðan nýtízku skut-
togarar klufu öldurnar á leið
sinni út Djúpið til fjarlægari
miða. Einn þeirra ber nafn Páls
Pálssonar í Heimabæ.
Á löngu lifsskeiði þessa bar-
áttumanns skiptust á skin og
skúrir, en þrátt fyrir ástvinamissi
og eignatjón vegna sjúkdóma og
náttúruhamfara brá aldrei fyrir
uppgjöf né undanhaldi. Jafnvel
þegar óveður braut fjárhús hans í
spón fyrir örfáum árum, lét hann
byggja allt upp aftur og var hann
þá um nírætt. Hann lagði aldrei
árar í bát né lét reka, heldur reri
hiklaust til hinzta dags. Megi
minningin um kempuna og vík-
inginn Pál Pálsson verða afkorrt-
endum hans og öðrum leiðarvísir
í þessu lífi.
Friðrik Sophusson.
— Parísarsam-
komulagið
Framhald af bls. 15
Varðandi stríðsfangaskiptin er
sagt að sérstök nefnd fulltrúa
Bandaríkjanna, S- og N-Vietnam
og Vietcong skuli ákveða hvar
þau fari fram. Verði bandarískir
stríðsfangar í Vietnam, Laos og
Kambódiu látnir lausir í hópum
með 15 daga millibili.
Þá segir að smám saman skuli
afvopna herlið Saigonstjórnarinn-
ar og Vietcong, og báðir aðilar
skuli hætta fjandsamlegum að-
gerðum hvor í annars garð. Sam-
starfs- og sáttaráð skai skipað að
jöfnu fulltrúum Saigonstjórnar
og Vietcong og hlutlausra aðila,
og skal markmið þess vera að
marka framtiðarstefnu i S-
Víetnam. Gert er ráð fyrir að
Saigonstjórnin og Víetcong semji
um ágreiningsefni síri innan
þriggja mánaða, og þá er báðum
aðilum bannað að leita aðstoðar
erlendra aðila.
En sem fyrr segir kom i ljös
næstu fimm daga að þetta- sam-
komulag var að mestu unnið fyrir
gýg. Eina varanlega breytingin
varð sú að Bandaríkjaherinn
hvarf á burt.