Morgunblaðið - 03.04.1975, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.04.1975, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1975 23 Minning: Páll Pálsson útvegs- bóndi, Hnífsdal Ljúfan eftir liðinn dag um Iokið strfða að dreyma slíðra sverð um sólarlag sofna þreyttur heima. Mér kom í hug framanrituð visa, er ég spurði andlát vinar míns og samferðamanns um tugi ára, Páls Pálssonar, Heimabæ í Hnífsdal, en hann lézt á Fjórðungssjúkrahúsinu á Isafirði 26. marz sl. eftir skamma legu. Páll hefði orðið 92 ára 10. júlí nk„ ef honum hefði orðið lengra lífs auðið. Mér finnst einhvern veginn, að vísan hér að framan sé nánast táknræn fyrir hinn aldna höfð- ingja, þegar tekið er mið af lang- lífi hans og dugmiklu ævistarfi, ýmsu andstreymi, er mætti hon- um á langri ævi. Líf Páls Páls- sonar var ekki ætíð dans á rósum, því sannarlega kom það fyrir, að hann mátti þola störa harma í lífi sinu, ekki sizt er um ástvinamissi var að ræða. Við slíkar aðstæður kom það sér vel, að Páll var óvenjulegur þrekmaður, þegar á reyndi í mótbyr lífsins og kjark- urinn næstum því óbilandi, er erfiðleikum var að mæta. Þessir meðfæddu eiginleikar dugðu hin- um aldna höfðingja lengi vel til þess að verjast ásókn Elli kerl- ingar. Enginn má sköpum renna. — Ævikveldið var á næsta leiti og því óhjákvæmilegt að slíðra sverð og hvílast að leiðarlokum. Nú er Páll í Heimabæ allur, hann sem svo lengi hafði sett svip sinn á sitt kæra byggðarlag, fyrr og síðar. Páll Pálsson var fæddur í Heimabæ í Hnífsdal 10. júlí 1883. Foreldrar hans voru Helga Jóakimsdóttir og Páll Halldórs- son, búandi hjón í Heimabæ. Helga móðir hans var fædd Þing- eyingur, en Páll faðir hans var fæddur að Gili í Bolungarvík. Páll, sem var yngstur bræðra sinna, byrjaði strax eftir ferm- ingu að stunda sjó með föður sin- um, sem gerði út árabáta frá Hnifsdal og var einnig formaður. Þegar faðir Páls dó, en hann lézt fyrir aldur fram úr lungna- bólgu, sem um þær mundir var mikill dauðavaldur, hóf Páll að stunda sjó með bræðrum sínum, sem þá voru orðnir formenn á árabátum. Páll gerðist sjálfur for- maður og útgerðarmaður haustið 1905, þá komst hann yfir árabát er Hannes hét og hóf róðra frá hinn víðkunnu verstöð, Bol- ungarvík. Þessi haustvertíð var happasæl. Árið eftir keypti Páll nýlegan sexæring, sem hann skýrði Hovgaard. Það var svo árið þar á eftir, að Páll í Heimabæ brauzt í því að komast yfir mótor- vél í þennan bát sinn, Hovgaard. Það tókst honum með ágætri að- stoð annarra, en einmitt á þessu árabili voru formenn og útgerðar- menn margir að afla sér véla i árabáta sína, er til þess voru nógu stórir. Það skipti sköpum í allri útgerð og sjósókn þegar mótorbát- arnir komu til sögunnar, þótt ekki væru það stórar eða burðarmiklar fleytur í byrjuninni. Þennan fyrsta mótorbát, 4 lestir, átti Páll lengi og reyndist hann happasæl fleyta um mikinn árafjölda. Þegar mótorbátarnir komu al- mennt til sögunnar, óx mörgum formanninum áræði i sjósókn allri, enda gerlegt að leita fanga á nýjum fiskimiðum, sem gáfu betri raun en árabátamiðin höfðu gjört alla jafnan. Páll Pálsson reyndist fljótt á formennskuárum sínum dugmikill og aflasæli eins og bræður hans, Jóakim og Halldór, en allir urðu þessir bræð- ur síðar héraðsþekktir aflamenn og kappsfullir sjósóknarar. Enn því var ekki að neita, að stundum virtist manni, að teflt væri á tæpasta vaðið, er veður voru válynd ekki sízt á vetrarvertíðum og fyrripart vorvertíða. Ekki bar það ósjaldan við, að bátstapar hér vestra yrðu í maímánuði, er norðanáhlaup gerði. — Enn þegar verst gegndi og landtaka i heima- höfn virtist hæpin eða tvísýn, var brugðið á það ráð að hleypa til annarra verstöðva t.d. Súganda- fjarðar eða jafnvel Önundarfjarð- ar. Páll var lengi fyrirvinna móður sinnar, en 1. júní 1914 kvæntist hann Guðrúnu Guðleifsdóttur frá Sæbóli í Aðalvík, mestu myndar- konu. Þau Guðrún og Páll eign- uðust sjö börn, eitt þeirra dó í æsku. Börn þeirra Guðrúnar og Páls, er upp komust og nú lifa eru þessi: Páll fyrrum togaraskip- stjóri, nú stórkaupmaður i Reykjavík, Jóakim Pálsson fram- kvæmdastjóri og útgerðarmaður í Hnífsdal, Leifur fyrrum skip- stjóri, Halldór verkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu h/f í Hnífsdal og Helga, ekkja Skúla Hermanns- sonar fyrrum skipstjóra, sem dó fyrir aldur fram af slysförum. Þá lézt uppkominn sonur þeirra, Kristján á 21. aldursári, mesti efnispiltur. Konu sina Guðrúnu missti Páll árið 1923, aðeins 28 ára gamla, og var það mikið reiðarslag fyrir hann eins og á stóð, börnin öll mjög ung. Árið 1924 giftist Páll Pálsson aftur, Kristínu Jónsdóttur frá Reykjar- firði við Djúp, en hún hafði dval- izt á heimili þeirra Guðrúnar og verið því mikil stoð. Eftir að . Páll Pálsson hafði stundað sjó í nokkur ár, brá hann á það ráð að setjast á skólabekk i Flensborgarskóla, en Halldór bróðir hans hafði einmitt áður sótt þann skóla. Páll dvaldist einn vetur i Flensborg og naut hand- leiðslu mætra kennara. Af þessu stutta yfirliti um ævi og starf Páls í Heimabæ, kemur það berlega í ljös, að líf hans allt hefur ekki ávallt verið dans á rósum, því að stundum mátti hann þola þunga harma við missi ástvina sinna, eins og hér hefur verið rakið. En létt lund ásamt óvenjulegu þreki og miklum kjarki græddi sárin fyrr en ella, en þessir eiginleikar Páls dugðu honum bezt þegar verst gegndi og ýmislegt fór úrskeiðis i lífinu. Páll Pálsson kom víðar við í heimahögum sínum en að vera útvegsbóndi og mikill sjósóknari, því að á sínum yngri árum starf- aði hann mikið að félagsmálum í Hnífsdal. — Og einmitt á þeim vettvangi urðu fyrstu kynni okkar Páls í Heimabæ. Löngu seinna gerðist hann viðskipta- maður minn, er ég hóf fiskikaup vorið 1931 og reyndist þá mjög aflasæll sem fyrr. Um 1941 hætti Páll með öllu formennsku, en átti þá mótorbát er Vinur hét, 12 tonn, sjálfur hafði hann verið formaður á bátn- um um nokkurt árabil, en nú tók við formennsku tengdasonur hans, Skúli Hermannsson. Páll Pálsson sem lengi hafði verið mjög fengsæll sjósóknari og byggðarlagi sínu nýtur maður, hafði ásamt hásetum sínum fært mikil verðmæti að landi um ára- raðir. Páll átti sæti í hreppsnefnd Eyrarhrepps um sex ára skeið og var jafnframt oddviti hennar og fórst honum starfið vel úr hendi. Þá var Páll Pálsson einn af stofn- endum Hraðfrystihússins h/f í Hnífsdal ásamt öðrum útgerðar- mönnum og var stjórnarformaður fyrirtækisins fyrstu 10 árin. Páll var mjög kirkjurækinn og átti lengi sæti í sóknarnefnd Hnífs- dals og lengi formaður hennar. Þá var hann í fjölda ára í söngkór sóknarinnar og lengi meðhjálpari. Páll lét sig sjaldan vanta við guðs- þjónustur allt til hins síðasta. Páll bjó með einkadóttur sinni Helgu um fjölda ára eða allt til þess er hann fór á sjúkrahús skömmu fyr- ir andlát sitt. Ég vil leyfa mér fyrir hönd Hnífsdælinga að þakka Páli Páls- syni langt og giftudrjúgt ævistarf í þágu byggðarlagsins. — Sjálfur vil ég nú að leiðarlokum þakka Páli löng og góð kynni og sam- fylgd í lífinu, árin sem aldrei gleymast og bið honum guðsbless- unar. F. 23. nóvember 1906 D. 27. marz 1975. Hún Ingibjörg tilheyrði lifi og starfi, vori og gróanda á þann hátt, að nær ómögulegt er að hugsa sér, að hún sé dáin, komi ekki framar með plastpokann sinn með hálfprjónaða peysu og hálfútsprungna blómlauka hérna að dyrunum, þegar dagssólin gæg- ist fyrir hornið á blokkinni háu. Hún tilheyrði lifi og gróandi vori og dauðinn var ekki til í hennar orðasafni, jafnvel þótt hún berðist við hann i návigi heilt ár. Meðan fætur gátu borið að hálfu skyldi upp staðið og á fætur farið. Eiginlega ætti að skrifa um hana ódauðlega sögu. Verst að Laxness og Þórbergur skyldu aldrei mæta henni, þegar hún var að flytja áburð i einhvern garðinn til að rækta gróandi lif og fegurð borgarinnar. Og svó átti hún ótal blóm i pottum í húsi sinu. Og öllum var þeim hagrætt af hönd- um, sem aldrei urðu samt móður- hendur, en alltaf voru þaó, ef blóm átti í hlut einkum lúpínur, því að þær gætu grætt hrjóstrin hörð og dauð litum, lifi og krafti, verið landnemar auðnum og upp- blæstri íslands, sagói hún. Og svo prjónaði hún peysur, islenskar lopapeysur, sem sjálfur Onassis heföi orðið stoltur af. Og engan vissi ég austan eða vestan Atlantshafs, sem sá slíkar flíkur að ekki liti þær löngunaraugum. Reyndar fékk hún ekki margar krónur á tímann við prjónastörf, samt var hún eldfljót. En islensk- ar handiðnir eru i eðli sínu and- leg störf eins og listir og verða Börnum Páls og barnabörnum, sem og öðru venzlafólki sendi ég mínar einlægu samúðarkveðjur. Einar Steindórsson. Hinn 26. marz s.l. lézt Páll Páls- son fyrrverandi útvegsbóndi tæp- lega níutíu og tveggja ára að aldri. Með honum er genginn enn einn af þeirri kynslóð, sem stóð fyrir gjörbyltingu í islenzku at- vinnulifi og lagði þannig grund- völl að því allsnægtaþjóðfélagi, sem við lifum nú í. Frá unga aldri var hann í fararbroddi þeirra, sem fastast sóttu sjóinn við Isa- fjarðardjúp og á tíræðisaldri sótti hann rauðmagann á grunnmiðin í Djúpinu og sló .túnið með orfi og ljá. Afkastamiklu lífsstarfi er nú lokið, en minningin lifir til að hvetja komandi kynslóóir til dáða. Páll Pálsson var fæddur í Heimabæ í Hnífsdal 10. júlí 1883. Foreldrar hans voru hjónin Páll Halldórsson og Helga Jóakims- dóttir. Páll Halldórsson var fædd- ur á Gili í Bolungarvík 6. október 1849, sonur hjónanna Halldórs Bjarnasonar og Margrétar Hall- dórsdóttur. Hann var útvegsbóndi og formaður í Hnífsdal, afburða aflamaður og farsæll og er þess getið, að aldrei hlekktist bátum hans á, en slíkt þótti með eindæm- um á þeirri slysaöld, þegar fisk- veiðar voru eingöngu stundaðar á árabátum. Helga Jóakimsdóttir var dóttir Jóakims Jóakimssonar ekki metin til fjár, né mæld á vog né stikuó. Og svo unni Ingibjörg kirkju- legu starfi, sálmasöng og tónlist. Hún var ekki prédikari en gat sagt setningar eins og véfrétt væri. Allur tepruskapur og trúar- legt yfirlæti var henni samt víðs- fjarri. Hún talaði aldrei um ,,Orð- ið'' í gæsalöppum og með stórum staf. En það var henni lif, lífið sjálft jafnt vió gróðursetningu og á barnasamkomum, jafnt við gólf- þvottinn, uppvaskiö og á kirkju- konsertinum. Hún var öll í þjón- ustunni og vann þannig þau preststörf, sem biskupsvigðir prestar hefðu vart litið við, kannski vió að selja merki og blöð i kafaldshrið og náttmyrkri á skammdegiskvöldi fyrir jólin. En mér er spurn — hvað yrði um allar kirkjubyggingarnar hér i borginni, ef ekki væru svona prestar — kvenprestar til eins og Ingibjörg Símonardóttir? Þaó skal fleira til en tóna fyrir altari og plumma sig í prédikunarstól. Kirkjur vaxa ekki upp af engu, þótt heilagur andi umlyki þær. Og hún var sönn og heil, traust og trygg, hreinskilin og hispurslaus jafnt við kóng og kot- 'ung. Og hún var dularfull. Eng- inn vissi hvaðan hún kom eða hvert hún fór. Hún slúðraði aldrei og talaði aldrei illa um neinn, baktal og grófyrði voru aldrei á hennar vörum, hún var eins og mjöllin, andlega talað, hvit og hrein — viknaði aldrei, kvartaði aldrei né kveinkaði sér jafnvel í sárustu neyö i nærveru dauðans. En verður ekki mjöllin að lindum lífs, sem færa ljós og líf kraft og starf ínn í heim borgarinnar — og Guðnýjar Magnúsdóttur, en þau bjuggu lengi á Árbót í Suður- Þingeyjarsýslu. Helga fluttist vestur árið 1874 ásamt bræðrum sínum Aðalbirni skipstjóra og Jóakim trésmiðameistara, en þeir settust báðir að i ísafjarðarkaup- stað. Aðalbjörn fórst með skips- höfn sinni skömmu síðar en Jóa- kim lifði til níræðisaldurs. Páll Pálsson ólst upp I foreldra- húsum i Hnífsdal ásamt systkin- um sínum. Þrjú þeirra dóu í æsku, en þau sem upp komust voru: Halldór útvegsbóndi og for- maður í Hnífsdal. Hann fórst á vélbátnum „Páli“ 28. marz 1933, Jóakim útvegsbóndi og formaður í Hnífsdal lézt 13. desember 1914, Margrét, sem lézt 1973, var lengi kennari í Hnífsdal, Bolungarvik og viðar, síðar búsett í Reykjavík, og Sigríður, sem var gift Aðal- steini Pálssyni skipstjóra í Reykjavik. Halldór, Jóakim og Páll voru víðkunnir aflamenn og oft nefndir „Heimabæjarbræð- ur“. Þeir voru áræðnir atorku- menn og afburða fengsælir for- menn. Hinn 1. júni 1914 kvæntist Páll Guðrúnu Guðleifsdóttur frá Sæbóli i Aðalvík og eignuðust þau sjö börn: Páll skipstjóri á ísafirði nú stórkaupmaður í Reykjavík, kvæntur Ölöfu Karvelsdóttur frá Hnífsdal. Jóakim skipstjóri og út- gerðarmaður í Hnífsdal, kvæntur Gabríelu Jóhannesdóttur frá Hlíð í Álftafirði. Halldór lézt á 1. ári. Helga ekkja Skúla Hermannsson- ar sjömanns í Hnífsdal, en hann var ættaður úr Ögurnesi við Isa- fjarðardjúp. Leifur Pálsson skip- stjóri I Hnífsdal, kvæntur Ingu Jónsdóttur frá Isafirði. Kristján lézt úr berklum 21 árs að aldri. Halldór verkstjóri I Hnífsdal, kvæntur Ingu Ingimarsdöttur frá Hnífsdal. Helga, einkadóttir Páls, hefur undanfarin ár búið hjá hon- um ásamt börnum sínum og hafa þau ávallt annazt hann af næm- leika og alúð. Guðrún kona Páls lézt árið 1923 aðeins 28 ára að aldri. Árið 1924 kvæntist Páll sið- ari konu sinni, Kristínu Jónsdótt- ur úr Reykjafirði. Hún lézt 1935. Páll var fjölfróður um lifnaðar- og atvinnuhætti fyrri tiða og víð- lesinn bókamaður. Sá, sem þessi orð ritar, verður ævinlega þakk- Framhald á bls. 18 vorið frá hjarta landsins þar sem vetur ríkir. Mér var sagt aó Ingibjörg Simonardóttir sem var einstæð kona hér í borg væri af ættum Haukdæla eða Ásbirninga aó langfeðga tali. Um það talaði hún aldrei. En ég veit að hún var nákominn ættingi mins fjöl- gáfaðasta lærimeistara, Magnúsar Jónssonar dósents, doktors og ráð- herra. Hún var fædd á Sauðár- króki. Foreldrar hennar voru Guðrún Þorsteinsdóttir og Simon Jónsson. Ung fór hún sem töku- barn að Hólskoti á Reykjaströnd og ólst þar upp til fullorðinsára hjá Kristínu Magnúsdóttur og Þorvaldi Olafssyni. Hún minntist annars sjaldan á fortíð sina. Ævisaga hennar var okkur leyndarmál. En það fólk, sem næst stendur að störfum hér til uppbyggingar í Langholtssöfnuði þakkar Ingi- björgu Símonardóttur góða sam- fylgd og ómetanlegan dug og tröllatryggð við Safnaóarheimilið á Holtinu. t Þökkum innílega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför sonar míns og bróður okkar, ARNÓRSAUÐUNSSONAR. Auðunn Br. Sveinsson. Sveinn Auðunsson, Erika Steinmann, Kristin Auðunsdóttir, Haukur Ágústsson, Emil Auðunsson, Ólafur Auðunsson. t Þö_kkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og sonar ÓSKARSJENSEN, rafvirkjameistara. Vilborg Guðsteinsdóttir, Gunnar Óskarsson, Sigurdis Ólafsdóttir, Erlín Óskarsdóttir, Ástráður Guðmundsson, Ásta Óskarsdóttir, Finnur Óskarsson, Þórunn Óskarsdóttir, Erlín Jónsdóttir. Ingibjörg Símonar- dóttir - Minningarorð Árelíus Nfelsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.