Morgunblaðið - 20.04.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1975
27
— Viðtal við
Vilhjálm
Framhald af bls. 24
Vilhjálmur Hjálmarsson sagði:
„Tónlistarskólar eru yfir höfuð
byggðir upp af áhugafólki með
stuðningi sveitarfélaga og rikis-
valds. Fjöldi þessara stofnana
hefur vaxið mikið undanfarin ár
og í dag munu tónlistarskólar
vera um 40 talsins. Sú regla gild-
ir, að rikissjóður greiðir þriðjung
reksturskostnaðar tónlistarskóla
og sveitarfélagið annan þriðjung.
Það sem eftir er hefur verið borið
uppi með skólagjöldum, en hljóð-
færakaup skólanna hafa notið
styrks hins opinbera. Rekstur
þessara skóla er nú orðinn það
erfiður, að óviðunandi er að mati
skólamannanna, sem við þessar
stofnanir vinna. Þá kvarta og
sveitarfélögin og skólagjöldin eru
orðin það há, að þau eruekki fyrir
vénjulegt fólk. Þá hafa kennarar
þessara skóla engan lífeyrisrétt-
indi, en slíkt gengur auðvitaó
ekki til lengdar.“
Vilhjálmur sagði, að frumvarp-
ið um tónlistarskólana fæli í sér
verulega aukinn stuðning rikis-
valdsins og sveitarfélaga og er nú
gert ráð fyrir því, að sveitarfélög-
in ráði kennarana og að þeir öðlist
lífeyrisréttindi sem starfsmenn
þeirra. Meginatriði frumvarpsins
varðandi kostnaðarhlið skólanna
er að sveitarfélögin og ríkisvaldið
skipta meó sér launakostnaði
skólanna og telja aðstandendur
þeirra mikla bót að þessari breyt-
ingu. Jafnframt er ráð fyrir því
gert að hljóðfærakaup verði
styrkt með fjárveitingu á fjárlög-
um að einum þriðja. Vilhjálmur
sagói að frumvarpið væri nú kom-
ió í nefnd í fyrri deild þingsins og
kvað hann það hafa fengið góðar
undirtektir þingmanna.
Það mætti líta á þessa breyt-
ingu á högum tónlistarskólanna
sem eins konar bráðabirgðabreyt-
ingu,“ sagði menntamálaráð-
herra, „á meðan hið almenna
skólakerfi hefur ekki tækifæri
eða tök á að gera tónlistarkennslu
að sérstakri fastri grein innan
menntakerfisins." Ráðherra sagði
að kostnaður rikissjóðs hefði ver-
ið áætlaður, er frumvarpið var í
vinnslu, nálægt 11 milljónum
króna. Málinu hefði verið vel tek-
ið „og ég geri mér góðar vonir um
að það hljóti farsæla afgreiðslu
þingsins. Tel ég afar mikilvægt og
sjálfsagt, að þessi leið verði farin,
því að hún eflir áhugastarfið og
eins vegna þess að skólakerfið er
ekki tilbúið að taka tónlistar-
kennslu upp á sína arma sem sér-
staka grein".
jVlovQtmltlnt>tí>
margfaldar
markad vöor
Nú er komið á markaðinn lítið sýnishorn af
nýju hljómplötunni okkar
I LEIKFANGALANDI
þetta er lítil tveggja laga plata með
tveimur úrvalslögum af stóru LP hljómplötunni
sem er væntanleg á markaðinn innan skamms.
Á þessari plötu koma fram Rut Rekinalds
í hlutverki Róberts bangsa, og Pálmi Gunnars-
son sem herra Flinkur. Þetta verða vinsæl-
ustu lögin í ár jafnt fyrir börn sem fullorðna.
r
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík efnir til fundar þriðjudaginn 22. apríl
kl. 20.30 að Hótel Sögu, Súlnasal
Dagskrá: 1 ■ Val landsfundarfulltrúa.
2. Ingólfur Jónsson, alþm. flytur ræðu.
Fulltrúar eru beðnir um að mæta stundvíslega og sýna Fulltrúaráðsskírteinin við
innganginn. Stjórn Fulltrúaráðsins.