Morgunblaðið - 20.04.1975, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRlL 1975
Auglýsing
Rækjuvinnslustöðvar
Sjávarútvegsráðuneytið vekur athygli á þvi, að samkvæmt lögum um
samræmda vinnslu sjávarafla og veiða, sem háðar eru sérstökum
leyfum, er aðilum skylt að leita leyfis sjávarútvegsráðuneytisins,
hyggist þeir koma á fót nýjum rækjuvinnslustöðvum eða auka afkasta-
getu þeirra, sem fyrir eru.
Sjávarútvegsráðuneytið
17. apríl 1975.
ISLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4—6,
Hafnarfirði.
Seljum reyktan lax og graflax
Tökum lax í reykingu
Útbúum graflax
Vacuum pakkað ef óskað er
Póstsendum um allan heim.
ÍSLENZK MATVÆLI
v SÍMI 51455 „
Varð
fyrir bíl
o g
slasaðist
mikið
FJÖRTAN ára piltur varð fyrir
bifreið á Bústaðavegi í fyrra-
dag. Slasaðist hann mikið, fót-
brotnaði, sprunga kom f
mjaðmargrind og auk þess hlaut
hann innvortis meiðsli. Pilturinn
var lagður inn á gjörgæzludeild
Borgarsjúkrahússins en hann
mun ekki vera talinn I lffshættu.
Bifreiðin, sem er af Fiat-gerð,
var á leið vestur Bústaðaveginn
en pilturinn var á leið yfir götuna
við gangbrautarljós sem þarna
eru, en hann var að koma út úr
strætisvagni. Lenti drengurinn á
vinstra framhorni bílsins og það-
an upp á framrúðuna og skall svo
í götuna. Svo mikið var höggið að
bifreiðin beyglaðist bæði vinstra
framhornið og gluggakarmurinn
og framrúðan brotnaði. Bifreið-
inni virðist hafa verið ekið all-
greitt, því hemlaför mældust um
30 metrar á þurru malbikinu.
15% AFSLATTUR
OG MEIRIY IWA
Kranarnir frá Hiab-Foco fást nú
á 15% lægra verði en áður.
Hiab-Foco krani gefur yður mögu-
leika á betri nýtingu vörubílsins,
— fjölbreyttari vinnu.
Hiab-Foco 550 hefur eftirfarandi
kosti:
Lyftigeta:
A. 1,7m armur 3250 kg.
B. 2,5m armur 2200 kg.
C. 3,4m armur 1620 kg.
D. 5,0m armur 1100 kg.
E. 7,05m armur 500 kg.
F. 8.95m armur 250 kg.
Hámarkslengd frá miðri bifreið:
5,0m. Með framlengingu 7,05
eða 8,95m
Framlenging:
Vökvaknúin, 3,4—5,0m = 1,6m
Lyftingarhæð:
með 5,0m armi 7,2m
með 7,0m armi 9,1m
með 8,95m armi 11,Om
Snúningsvinkill:
360°
Heildarþyngd:
985 kg.
Kranarnir eru með samanbrotinni
bómu, tvöföldu stjórnkerfi og
innbyggðum olíugeymi.
VELTIR HF
SUÐURLANDSBRAUT 16. SlMI 35200
HIRBFOCO
1500 manna
norrænt mót
Kristilegt stúdentafélag gengst í sumar fyrir
kristilegu stúdentamóti í Reykjavík. Það er í annað
sinn sem slíkt mót er haldið hér á vegum félagsins,
hitt var árið 1950 og voru þátttakendur þá um 200,
þ.e. frá Norðurlöndunum en mótið er til skiptis
haldið í þeim. Nú hefur skráð sig 1071 maður og er
það álíka há tala og bjartsýnustumennþorðuaðvona.
Á mótinu er lögð áherzla á boðun Guðs orðs og
veitt er fræðsla í Biblíunni, fluttir fyrirlestrar um
margvísleg mannleg vandamál út frá kristnu sjónar-
miði. Samverustundir mótsins eru ýmist sameigin-
legar eða þátttakendum er skipt liiður í litla um-
ræðuhópa.
Sem dæmi um efni, er tekin verða til umræðu á
mótinu, eru: Trúarlífið — sálarlífið; Get ég trúað?
Kristniboð; Guðs orð — öruggur grundvöllur.
Fengnir hafa verið menn til að stjórna umræðum og
eru það bæði innlendir og erlendir og er það sérstök
nefnd, skipuð fulltrúum kristilegu stúdentafélag-
anna á Norðurlöndum, sem undirbýr i stórum drátt-
um mótin.
Undirbúningur hvílir þó að mestu íeyti á félagi
þess lands er mótið er haldið í, nú á Islendingum.
Margir þekktir ræðumenn verða á mótinu, má m.a.
nefna Bo Giertz, sænskan biskup, sem sér um Biblíu-
lestra, og verður þeirra getið á Krossgötum nú á.
næstu vikum og munum við segja nánar frá mótinu á
næstunni. Frestur til að tilkynna þátttöku hjá Is-
lendingum rennur út hinn 15. maí.
Merki mótsins
gerði Þröstur
Magnússon
teiknari og er
yfirskrift móts-
ins — heildar-
efni þess — Orð
Guós til þfn.
REYKJAVlK’75
JL. NORRÆNT
LaC STÚDENTAMÓT
6.-12. AGÚST 1975
Smáfréttir
Kona nokkur, sem verið hef-
ur lengi f Kfna, segir aö þar
fyrirfinnist kristið fólk: Bezt
kristnu menn f heiminum eru I
Kína. Hún sagði frá fundi I
Shanghai þar sem ungt fólk
bað til Guðs I heila nótt. Ekki
er leyft aó fara f kirkju en þess
Umsjón:
Jóhannes Tómasson
Gunnar E. Finnbogason
I stað hittast þau á götum úti,
2—3 saman, ganga um og ræða
kristnilff sitt og orð Guðs.
Einnig leitast þau við að segja
öðru fðlki frá trú sinni og
reynslu þrátt fyrir mikla
áhættu sem er því samfara.
(Utsyn).
Fóstureyðingar
í Finnlandi
Þar hafa umræður um fðst-
ureyðingar verið miklar eins
og hér á iandi og gengu í gildi
ný lög um þær 1970 sem rýmk-
uðu mjög ákvæði um fóstur-
eyðingar. Áður en þessi nýju
lög komu voru um 5000—8000
fóstureyðingar árlega en juk-
ust nú upp í 22.150 árið 1972.
Þessi nýju lög náðu einnig til
félagslegra ástæðna og allt að
29 þingmenn vilja nú breyta
lögunum og gera þau aftur
þrengri en nú er. (Ungdom og
Tiden).