Morgunblaðið - 19.08.1975, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1975
800 lögfræðingar
þinga í Reykjavík
27. norræna lögfræðingaþingið sett á morgun
A MORGUN hefst f Reykjavík
norrænt lögfrædingaþing, hið 27.
f röðinni, en slfk þing hafa verið
haldin reglulega um einnar aldar
skeið. Norrænt lögfræðingaþing
hefur einu sinni áður verið haldið
hér á Islandi, árið 1960.
Þingið sitja tæplega 800 lög-
fræðingar, þar af um 110 fslenzk-
ir. Svfar eru fjölmennastir, um
320, þá Danir, 150, Norðmenn
verða um 130, og um 70 þátttak-
endur koma frá Finnlandi.
Auk eiginlegra þingfulltrúa
koma hingað til lands um 400
manns vegna þingsins.
Þingið verður sett í Háskólabíói
kl. 10 í fyrramálið. Að setningu
lokinni fara fram umræður um
félagsmál, en að því búnu flytur
Magnús Thoroddsen framsöguer-
indi sitt um starfsþjálfun og
starfsreynslu lögfræðinga og
nauðsyn þess, að þeir kynnist
fleiri en einu sviði lögfræðisýslu
af eigin raun. Þessi fundur verð-
ur allsherjarfundur, og mun dr.
Armann Snævarr hæstaréttar-
dómari hafa á hendi fundar-
stjórn.
Eftir hádegi á morgun skiptast
svo þátttakendur í hópa. Þá verða
flutt tvö erindi. Hans Thornstedt
prófessor f Stokkhólmi fjallar um
refsivernd gegn fjármálabrotum,
og Martti Enajarvi prófessor f
Helsinki flytur erindi Jorma
Pietilá prófessors, en hann lézt í
desember síðastliðnum. Þá verða
um leið flutt erindi um sjálfvalin
efni.
Annan fundardaginn fara þing-
störf fram í þremur deildum.
Finn Moé hæstaréttarlögmaður í
Osló flytur erindi um ákvæði um
verðfestingu í samningum, O.
Due skrifstofustjóri í danska
dómsmálaráðuneytinu ræðir um
norræna löggjöf og evrópsk
bandalög, Lennart Persson
dómari í Stokkhólmi flytur fram-
söguerindi um almenna dómstóla
og sérdómstóla. Þar verður annar
framsögumaður, Jónatan Þór-
mundsson prófessor. Þá verður
rætt um mengunarvandamál
undir forystu W.E. von Eybens
prófessors f Kaupmannahöfn, en
meðal málshefjenda verður Jón
Arnalds ráðuneytisstjóri.
Sama dag verður til umræðu
viðfangsefnið „Þörf almennings á
upplýsingum um lagaleg mál-
efni“. Framsögumaður þar er for-
stjóri sænsku neytendasam-
takanna, Lars Ag. Hann er ekki
lögfræðingur, en hingað til hafa
einungis löglærðir menn flutt
erindi á norrænu lögfræðinga-
þingunum. Ag reifar hugmyndir
sínar um kynningu löggjafar
þegar er hún hefur verið sett, en
slfk starfsemi hefði tvímælalaust
mikið upplýsingagildi fyrir
almenning.
Kaarlo Sarko prófessor f Hels-
inki ræðir um „Samúðarverkföll í
þágu aðilja, sem á í vinnudeilu
Framhald á bls. 35
Olafur Þórðarson frá
Laugabóli látinn
LATINN er 1 Reykjavfk Ólafur
Þórðarson framkvæmdastjóri frá
Laugabóli, 78 ára að aldri.
Ólafur fæddist á Laugabóli í
Nauteyrarhreppi, Norður-
Isafjarðarsýslu 24. febrúar 1897.
Foreldrar hans voru Þórður Jóns-
son bóndi á Laugabóli og seinni
kona hans Hallfríður Eyjólfsdótt-
ir (Halla skáldkona). Ólafur varð
búfræðingur frá Hvanneyri 1917,
en 1918 hóf hann störf að útgerð
og fiskiðnaði hjá Asgeiri Péturs-
syni útgerðarmanni á Akureyri
og starfaði þar til ársins 1930. Frá
1930 til 1940 vann hann við verzl-
unarstörf í Reykjavfk. 1940—’44
rak hann hraðfrystihús á Siglu-
firði og í Vestmannaeyjum
1945—’47. Hann var hvatamaður
að stofnun Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna 1942 og í stjórn frá
upphafi til 1960. Einnig stóð hann
að stofnun sölu- og innkaupa-
stofnunar SH í New York.
Ólafur Þórðarson stóð að stofn-
un skipafélagsins Jöklar hf. 1945
og var framkvæmdastjóri og vara-
formaður þess fyrirtækis frá upp-
hafi. Hann var í stjórn Miðstöðv-
arinnar hf. frá stofnun 1946 og
Tryggingamiðstöðvarinnar ,frá
stofnun 1956. Hann sat í fjöl-
mörgum nefndum og samninga-
nefndum um viðskipti við önnur
lönd. Hann var sæmdur fálkaorð-
unni fyrir störf sín að atvinnu- og
viðskiptamálum.
SNEMMA I gærmorgun voru 8
tonn af dynamíti sprengd á
hafsbotni í innsiglingunni f
Grindavfkurhöfn. Myndarleg
vatnssúla steig til himins og
grjóthnullungar þeyttust hátt í
loft upp. Leið drjúg stund áður
en kyrrð komst á sjóinn aftur.
Grindvíkingar gera sér vonir
um að innsiglingin verði greið-
færari eftir þessa aðgerð. Tveir
kafarar unnu að því í þrjá daga
að koma sprengiefninu fyrir og
var Grindavíkurhöfn lokuð á
meðan. Sveinn Þormóðsson
ljósmyndari var suður í Grinda-
vík f gærmorgun og tók þá þess-
ar myndir. Sú efri sýnir þegar
sjórinn er að byrja að þyrlast
upp og sú neðri er tekin nokkr-
um sekúndum síðar.
BBC gerir kvik-
mynd um Surtsey
KVIKMYNDATÖKUMENN frá
brezku sjónvarpsstöðinni BBC
hafa dvalizt hér á landi undan-
farna daga. Vinna þeir að gerð
heimildarmyndar um vfsinda-
rannsóknir f Surtsey. Inn í mynd-
ina er fléttað myndum frá
náttúruhamförunum á Heimaey
og sagt frá lífi og starfi Vest-
manneyinga. Myndin er tekin í
litum.
12 sóttu um em-
bætti sýslumanns
NÝLEGA var auglýst laust til
umsóknar embætti sýslumanns f
Gullbringusýslu og bæjarfógeta f
Keflavfk og Grindavík.
Umsóknarfrestur er runnin út og
hafa þessir sótt um embættið:
Elfas I. Elfasson bæjarfógeti,
Siglufirði, Erlendur Björnsson
bæjarfógeti, Seyðisfirði. Halldór
Þ. Jónsson fulltrúi, Sauðárkróki,
Hallvarður H. Einvarðsson vara-
rfkissaksóknari, Reykjavfk. Jón
Eysteinsson, settur sýslumaður
og bæjarfógeti, Keflavfk, Jón A.
Ólafsson sakadómari, Reykjavfk,
Jón Thors deildarstjóri, Reykja-
vfk, Jónatan Þórmundsson
prófessor, Reykjavfk, Kjartan
Ragnars deildarstjóri, Reykjavfk,
Már Pétursson héraðsdómari,
Hafnarfirði. Steingrfmur Gautur
Kristjánsson héraðsdómari,
Hafnarfirði og Sverrir Einarsson
sakadómari, Reykjavfk.
Stolið frá
útlendingum
Á LAUGARDAGINN var stoliS
myndavél og fylgihlutum frá þýzkum
ferðalangi. Er verðmæti allra hlut-
anna um 200 þúsund krónur. Þá var
brotizt inn I hótelherbergi hjá Svla
nokkrum að Hótel Loftleiðum um
helgina og stolið frá honum um 10
þúsund Islenzkum krónum og 1600
sænskum, eða sem svarar um 70
Framhald á bls. 35
Ekki talið sannað að Surts-
ey VE hafi verið fyrir innan
— og því var skipstjórinn sýknaður
„VIÐ töldum ekki nægilega sann-'
að, að Surtsey VE hafi verið að
ólöglegum veiðum og þvf var
skipstjórinn sýknaður," sagði Jón
Þorsteinsson fulltrúi bæjarfóget-
ans f Vestmannaeyjum f samtali
við Mbl. f gær, en hann kvað upp
fyrir helgi ásamt tveimur með-
dómendum dóm f máli skipstjór-
ans á Surtsey VE. Varðskipið
Ægir stóð bátinn að meintum
ólöglegum veiðum 0,9 sjómflur
fyrir innan þriggja mflna mörkin
út af Dyrhólaey f fyrri viku.
Ekki að vænta verðhækkana
á kaffi fyrr en á næsta ári
segir sendiherra Brasilíu á íslandi
„FROSTSKAÐARNIR á kaffi
plöntum í Brasilíu koma ekki til
með að hafa bein áhrif á verðlag
eða framboð á kaffi fyrr en á
næsta ári. Þær hækkanir, sem
urðu í sumar, stöfuðu fyrst' og
fremst af spákaupmennsku”,
sagði sendiherra Brasilíu á
íslandi, J.O. de Meira Penna, i
samtali við Morgunblaðið í gær.
Eins og kunnugt er urðu miklar
skemmdir á kaffiekrum í Brasilfu
fyrr í sumar vegna frosta. Er
búizt við þvf að þetta leiði til þess
að framleiðslan minnki um meira
en helming. Þar sem Brasilfa er
mesta kaffiframleiðsluland heims
er óhjákvæmileg að þessi mikli
samdráttur komi fram f hækkandi
heimsmarkaðsverði kaffis. Er
jafnvel talað um að hækkunin
verði um 50%.
De Meira Penna sagði að upp-
skeran færi líklega niður í 10
milljón sekki, en hefði verið um
það bil 22 milljónir sekkir. Þetta
mun þó ekki hafa áhrif á heims-
markaðsverð á þessu ári, þar sem
uppskeran hafði þegar farið fram
þegar frostin gerði. Það verður
því ekki fyrr en á næsta ári, sem
einhverra verðbreytinga er að
vænta, en hvað þær verða miklar
er ekki ljóst, þar sem Brasilfu-
menn búa yfir töluverðum forða ,
til verðjöfnunar og hve mikið af
þeim forða þeir munu setja á
markað er enn ekki vitað.
„Það verður því fyrst og fremst
þarnæsta ár, sem verulegur sam-
dráttur verður á kaffiútflutningi
Brasilíu, enda tekur mörg ár að
endurnýja kaffitré, sem orðið
hefur fyrir frostskemmdum,”
sagði Penna sendiherra.
Sendiherrann sagði að þær
verðhækkanir, sem orðið hefðu
nú í sumar og haust stöfuðu ein-
göngu af spákaupmennsku, eins
og sjá mætti af því að það var
kaffi frá Kólombíu en ekki Brasil-
íu,,sem hækkaði fyrst.
Jón Þorsteinsson sagði, að varð-
skipið hefði gert alls 9 staðar-
ákvarðanir á bátnum og hafi hann
verið 0,9 mílur fyrir innan
mörkin þegar hann var næst
landi. Níundu og síðustu staðar-
ákvörðunina gerði varðskipið við
hlið Surtseyjar og var báturinn þá
á landhelgislínunni og með tog-
vfrana úti. Var þetta í fyrsta
skiptið sem varðskipsmenn sáu
veiðarfærin úti, enda var bátur-
inn tekinn klukkan rúmlega eitt
að nóttu og þá aldimmt. Áttunda
staðarákvörðunin sýndi, að bátur-
inn var utan markanna, en skip-
stjórinn og skipshöfn hans báru
við téttarhöldin, að trollið hafi
verið sett í sjóinn örfáum mínút-
um áður og hafi báturinn þá verið
fyrir utan mörkin, og hafi hann
haldið sig þar allan tímann á
meðan trollið var úfi. Hins vegar
hafi trollið verið innanborðs
þegar báturinn var fyrir innan
mörkin.
„Við dómendur töldum varð-
skipsmenn ekki færa nægilegar
sönnur fyrir þvf að Surtsey hafi
verið á veiðum þegar báturinn
var innan markanna. Þá benda
tíðar stefnubreytingar bátsins á
meðan varðskipið gerði staðar-
ákvarðanir til þess að hann hafi
ekki verið á togveiðum. Þvf var
skipstjórinn sýknaður,” sagði Jón
Þorsteinsson.
Þá hafði Mbl. ennfremur sam-
band við Pétur Sigurðsson for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar
vegna þessa máls. Pétur kvaðst
ekki hafa séð málsskjöl ennþá og
því hefði hann ekki getað kynnt
sér þau rækilega. Bjóst hann fast-
lega við þvf, að Landhelgisgæzlan
óskaði eftir því við saksóknara að
málinu yrði áfrýjað til Hæstarétt-
ar. Slíkt mun fátítt.
Skreið tæpa
300 metra
fótbrotin
Akureyri 18. ágúst.
KONA Á miðjum aldri var ein
síns liös á skemmtigöngu
sunnan og ofan við Akureyri f
veðurblíðunni sfðdegis á
laugardaginn, þegar hún varð
fyrir þvf óhappi að hrasa og
fótbrotna. Þar sem hún var
stödd f hálsinum vestan við
Kjarnaskóg var hvergi byggt
ból f nánd og engan mann að
sjá eða heyra, sem hún gæti
gert viðvart um slysið. Hún tók
þessvegna það til bragðs að
mjaka sér með erfiðismunum
um 2—300 metra leið fram á
klettabrún þar sem hún sá
niður f Kjarnaskóg og kallaði á
hjálp.
Nokkur börn voru að leik
ofarlega í skóginum og heyrðu
þau til konunnar. Þauhluputil
foreldra sinna, sem voru þar
skammt frá og sögðu þeim að
einhver væri að kalla og þeim
Framhald á bls. 35