Morgunblaðið - 19.08.1975, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1975
10
Þrjú fallegustu húsin 1975
Snyrtilegast
við
Kjarvalsstaði
Á AFMÆLI Reykjavíkur
18. ágúst, er jafnan veitt
viðurkenning fyrir falleg-
ar byggingar, snyrti-
mennsku kringum stofnan-
ir og fallega gluggaútstill-
ingu, auk þess sem valin er
fallegasta gatan í borginni.
Frá þessu skýrði í gær for-
maður umhverfismálaráðs
borgarinnar, Elín Pálma-
dóttir, og forseti borgar-
stjórnar, ólafur B. Thors,
afhenti viðurkenningar-
skjöl.
Þrjú hús hlutu viður-
kenningu sem fegurstu
húsin í borginni. Eitt ein-
býlishús, eitt sambýlishús
og eitt hús úr öðrum flokki,
sem gæti verið allt frá
verksmiðju til vatnstanks.
1 dómnefnd voru arki-
tektarnir Einar Þorsteinn
Ásgeirsson, Guðfinna
Thordarson og Birgir
Breiðdal. Þá var veitt
viðurkenning fyrir snyrti-
legustu umgengni kringum
byggingu eða stofnun og
voru í dómnefnd Jakob V.
Hafstein frá Umhverfis-
málaráði og Ragnar Þór
Magnússon frá Félagi ísl.
iðnrekenda, og fyrir
fallega gluggaskreytingu,
en í dómnefnd voru Jakob
V. Hafstein og Pétur Sig-
urðsson frá Kaupmanna-
samtökunum. Ólafur K.
Magnússon ljósm. Mbl. tók
myndirnar hér á síðunni af
verðlaunahöfunum.
Ein viðurkenning var veitt f ár fyrir faliegustu gluggaskreytinguna.
Hún féii f hiut úra og skartgripaverziunar J6ns & Óskars á Laugavegi
70.
18811
Fyrir snyrtilega stofnun og snyrtiiegt umhverfi hljóta Kj
viðurkenningu og er þá bæði litið á húsið, umhverfið og umgeagnfna.
Fallegasta einbýlishúsið að mati dómnefndar stendur við Laugarásveg 12, en viðurkenningin er veitt
fyrir bygginguna sjálfa. Arkitekt er Helgi Hjálmarsson, en eigandi Ragnar Halldórsson.
Viðurkenningu sem fallegasta fjölbýlishúsið hlýtur byggingin f Espigerði 4, en höfundar hennar eru
Ormar Þór og örnólfur Hall. Eigendur eru margir.
! flokki annarra húsa en fbúðarhúsa hlýtur viðurkenningu Ðagheimilið Múlaborg f Armúla 8 A.
Arkltektar eru Guðm. Kr. Guðmundsson & Ólafur Sigurðsson. Eigandi er Reykjavfkurborg, en Sumargjöf
reknr dagheimilið.