Morgunblaðið - 19.08.1975, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGÚST 1975
Blikar í basli
ToppliSið i 2. deild. BreiSablik,
lenti i mesta basli gegn Reyni á
Árskógsvelli á laugardag. BreiSablik
hafði þó sigurinn og stigin þegar yfir
lauk, sigraði með eina markinu sem
skorað var i leiknum.
Breiðablik sótti mun meira i fyrri
hálfleik, enda hafði liðið vindinn i
bakið. en Blikunum tókst þó ekki að
skapa sér verulega hættuleg tæki-
færi. Markið sem færði Blikunum
tvö stig að þessu sinni, skoraði Þór
Hreiðarsson þegar um 20 min. voru
af leik. Breiðablik tók innkast og
barst knötturinn til Elvars Reykjalin,
Reyni, sem hugðist hreinsa. en mis-
tókst og knötturinn skoppaði til
Þórs, sem renndi honum i netið. 1
Hálfódýrt mark. Skömmu siðar skor-
uðu Reynismenn og var það Gylfi
Baldvinsson sem það gerði, en áhorf-
endum og leikmönnum Reynis til
mikilla vonbrigða var markið dæmt
af vegna hrindingar Gylfa og var
langt i frá að menn væru á eitt sáttir
um réttmæti þess dóms.
I siðari hálfleiknum snerist dæmið
við. Þá voru það leikmenn Reynis
sem voru öllu ágengari og áttu nokk-
ur færi, en þó engin stórhættuleg.
Það var helzt þegar Albert Gunn-
laugsson skallaði hárfínt fram hjá
markinu að fór um leikmenn Breiða-
bliks.
Leikurinn var þokkalega leikinn af
beggja hálfu. Þó má Ijóst vera að
mun meira býr i liði Breiðabliks en
þarna kom fram, enda fengu Blikarn-
ir aldrei minnsta frið til að byggja upp
nokkuð spil. Þór Hreiðarsson var
einna beztur Blikanna að þessu
sinni.
Reynir lék nú einn sinn bezta leik i
2. deildinni. Það sem einkennir liðið
er hinn gifurlegi dugnaður og ósér
hlifni leikmanna, nokkuð sem mörg
önnur lið mættu taka sér til fyrir-
myndar. Kapp leikmannanna hefir
líka fært liðinu þau stig sem það
hefir náð. Dómari var Arnar Einars-
son og var hann ekki næganlega
röggsamur.
Sigb.G.
Hreinn afgreiddi
V í kinga
NÚ ER Ijóst að Vikingur frá Ólafsvik
hlýtur botnsætið i 2. deild. Það er þó
ekki þar með sagt að liðið sé fallið,
þvi fjölgað verður um eitt lið i deild-
inni sem kunnugt er, og mun Viking-
ur eiga rétt til að berjast við liðin
sem verða númer 2 og 3 i 3. deild-
inni um tvö laus sæti i 2. deild.
Það voru Völsungar sem greiddu
Vikingum hið endanlega rothögg
með þvi að sigra þá á Húsavik á
laugardag með 4 mörkum gegn 2 i
leik mikilla sviptinga. Það blés þó
byrlega fyrir Vikingum i leikhléi, þvi
þeir höfðu þá skorað tvö mörk en
heimamenn ekkert.
Það var ekki erfitt verk fyrir
Vikinga að halda uppi stöðugri
sókn á mark heimamanna í
fyrri hálfleik. Það var þó tals-
vert á leikínn liðið þegar mark
varð staðreynd. Það kom á 30. min.
eftir mikil varnarmistök og það var
Ásgeir Eliasson sem vippaði yfir Sig-
urð Pétursson markvörð.
Fimm minútum siðar máttu Völs-
ungar aftur sækja knöttinn i net sitt.
Birgir Þorsteinsson tók hornspyrnu
og beint i horninu skoppaði knöttur-
inn i netið á milli fóta margra Völs-
unga. Þvilikt mark.
Hreinn Elliðason leikmaður og
þjálfari Völsunga hefir án efa messað
hressilega yfir sínum mönnum i hálf-
leik, þvi það var með öllu óþekkjan-
legt lið Völsunga sem inn á völlinn
kom. Nú var baráttan i lagi, enda
varð uppskeran rik. fjögur mörk áður
en yfir lauk. Það fyrsta kom þegar á
5. min. siðari hálfleiksins. Hreinn
Elliðason skallaði aftur fyrir sig í
hornið fjær, faliegt mark. Hreinn var
aftur á ferðinni þegar á næstu min-
útu er hann afgreiddi knöttinn með
föstu skoti i mark Vikinga. Enn var
Hreinn á ferðinni á 25. min. og
skoraði. Þegar um 15 min. voru til
leiksloka sögðu Völsungar sitt loka-
orð í leiknum með marki Helga
Steinþórssonar. Sigb.G.
Halldór Bragason og Ómar Ólafsson berjast um knöttinn f leik Þróttar I
og Ármanns á föstudaginn.
Sverrir var í
aðalhlutverki
ÞRÓTTUR sigraði Ármann i 2. deild
á föstudagskvöldið með 3—1 i all-
góðum leik á velli Þróttar við Sævið-
arsund. Sigur Þróttar var þýðingar-
mikill, þar sem félagið er enn með i
baráttunni um sigur i deildinni að
loknum 12 umferðum og er enn sem
fyrr einu stigi á eftir Blikunum, sem
um helgina sigruðu „sjómennina"
frá Árskógsströndinni.
Sverrir Brynjólfsson lék stórt hlut-
verk hjá Þrótti i leiknum við Ármann,
Einkunnagjöfln
LIÐ FH:
Ómar Karisson 2
Jón Hinriksson 3
Magnús Brynjólfsson 2
Gunnar Bjarnason 2
Janus G uðl augsson 3
Pálmi Sveinbjörnsson 2
Ólafur Danivalsson 3
ÞórirJónsson 1
Viðar Halldórsson 1
Leifur Helgason 1
Helgi Ragnarsson 2
LIÐ IBK:*
Þorsteinn Ólafsson 2
Hjörtur Zakaríasson 2
Ástráður Gunnarsson 2
, Einar Gunnarsson 2
GIsli Torfason 2
Grétar Magnússon 3
Hilmar Hjálmarsson 2
Karl Hermannsson 1
Steinar Jóhannsson 1
Ólafur Júlfusson 2
Jón Ólafur Jónsson 2
Hörður Ragnarsson
(varamaður) 1
Kári Gunniaugsson
(varamaður) 1
DÓMARI: Grétar Norðfjörð 2
LIÐFRAM:
Árni Stefánsson 1
Sfmon Kristjánsson 1
Trausti Haraldsson 2
Gunnar Guðmundsson 2
Marteinn Geirsson 2
Jón Pétursson 2
Rúnar Gíslason 3
Kristinn Jörundsson 2
Guðmundur Hafberg 1
Ágúst Guðmundsson 2
Eggert Steingrfmsson 3
Árnar Guðlaugsson
(varamaður) 1
Pétur Ormslev (varamaður) 2
LIÐ IA:
Hörður Helgason 2
Björn Lárusson 2
Benedikt Valtýsson 2
Haraldur Sturiaugsson 2
Jón Gunnlaugsson 3
Jóhannes Guðjónsson 2
Karl Þórðarson 3
Jón Alfreðsson 4
Matthfas Hallgrfmsson 3
Árni Sveinsson 2
Teitur Þórðarson 3
Guðjón Þórarson
(varamaður) 1
DÓMARI: Ragnar Magnússon 1
IBV
Ársæll Sveinsson 2
Ólafur Sigurvinsson 2
Einar Friðþjófsson 1
Þórður Hallgrfmsson 1
Friðfinnur Finnbogason 2
Sveinn Sveinsson 2
Haraldur Júlíusson 1
Snorri Rútsson 2
Örn Óskarsson 2
Tómas Pálsson 2
Sigurlás Þorleifsson 1
Karl Þórðarson
(varam) 2
VALUR
Sigurður Haraidsson 2
Grfmur Sæmundsen 2
Bergsveinn Alfonsson 1
Dýri Guðmundsson 2
Vilhjálmur Kjartansson 2
Magnús Bergs 3
Ingi Björn Albertsson 2
Hörður Hilmarsson 2
Albert Guðmundsson 3
Guðmundur Þorbjörnsson 2
Hermann Gunnarsson 1
Kristinn Björnsson
(varam) 1
DÓMARI: ÓIi Olsen 2
þvi hann skoraði öll mörkin Ármenn-
ingar voru betri fyrsta stundarfjórðung-
inn og hefðu verðskuldað að skora
mark eða mörk. ( fyrri hálfleik skoraði
Sverrir tvö mörk. í fyrra skiptið komst
hann einn innfyrir vörn Ármenninga og
skaut, en Ögmundur markvörður hélt
ekki knettinum, þannig að Sverrir náði
til hans aftur og skoraði. Nokkru siðar
skaut Halldór Arason að marki Ár-
manns og aftur varði Ögmundur, hélt
ekki knettinum en Sverrir var með á
nótunum og náði knettinum og skor-
aði.
Fyrir lok hálfleiksins náðu Ármenn-
ingar að minnka muninn i 2 — 1 með
marki eftir hornspyrnu. Jón Hermann
tók hornspyrnu og sendi knöttinn fyrir
markið til Inga Stefánssonar, sem skor-
aði með skalla
Sverrir Brynjólfsson skoraði svo
þriðja mark sitt fyrir Þrótt i siðari
hálfleik. Fékk hann sendingu frá vinstri
og skaut viðstöðulaust, án þess að
Ögmundur ætti minnstu möguleika á
að verja.
Eftir að markið dofnaði mjög yfir
Ármenningum og var sem þeir sættu
sig við orðinn hlut, en Þróttarar áttu
möguleika á að auka við markatölu
sína og fóru illa með nokkur góð
tækifæri
Leikur Blikanna og Þróttar um næstu
helgi verður því úrslitaleikurinn i deild-
inni, þar sem Blikarnir eru nú með 22
stig, en Þróttur 21 að loknum 12
umferðum.
Selfoss
sigraði
Haukana
ÞAÐ hefur löngum verið
erfitt að átta sig á Haukum F
deildinni í sumar, vegna þess
hve þeir hafa átt misjafna
leiki. Á föstudaginn mættu
þeir Selfyssingum á Kapla-
krika, en í fyrri leiknum á
Selfossi í 5. umferð unnu
Haukar örugglega.
Að þessu sinni sneru Sel-
fyssingar dæminu við og fór
heim með bæði stigin.
Það var nýliði í liði Sel-
fyssinga, Pétur Einarsson,
sem skoraði fyrsta mark
leiksins um miðjan fyrri hálf-
leik. Fleiri mörk voru ekki
skoruð fyrr en stundarfjórð-
ungur var liðinn af síðari hálf-
leik, en þá bætti Tryggvi
Gunnarsson öðru við fyrir
Selfoss.
Loftur Eyjólfson minnkaði
muninn i 2—1 er hann
skoraði fyrir Hauka úr víta-
spyrnu. Enn áttu Haukar
tækifæri til að jafna og jafn-
vel sigra í þessum leik, en
þeir höfðu ekki lánið með sér.
Undir lok leiksins voru
Haukarnir sterkari aðilinn og
áttu m.a. skot í þverslá, svo
eitthvað sé nefnt.
— Fram — ÍA
Framhald af bls. 19
hættur. Karl sýndi mikla leikni og átti t.d.
mestan heiðurinn af tveimur mörkum (A í
leiknum. Varla er á þvl vafi að ÍA-liðið er
leiknasta liðið I 1. deildinni að þessu
sinni og hefur yfir að ráða bezta þjálfað-
asta mannskapnum, þegar á heildina er
litið Einkum og sér I lagi er framllna
liðsins skemmtileg — sannkölluð
gullaldarframlína.
Sem fyrr greinir lék Framliðið leik
þennan vel, allt til þess að Skagamenn
skoruðu sitt annað mark, en þá datt
botninn óvænt úr leik þess. Óvænt er
sagt. þar sem Framarar hafa stundum í
sumar átt undir högg að sækja I leikjum
sínum, og i stað þess að brotna hafa þeir
þá einungis tvíeflzt. Má vera að gæfu-
muninn fyrir Fram í leik þessum hafi gert
að þeir leikmenn sem verið hafa styrkustu
stoðir þess, Árni, Jón og Marteinn áttu
engan glansleik að þessu sinni, voru um
of óákveðnir og óöruggir. Hins vegar átti
framlina liðsins mjög góða spretti, en þar
bar mest á Rúnari Gislasyni og Eggert
Steingrimssyni, en sá síðarnefndi skoraði
fallegasta æark leiksins, og skilaði yfirleitt
knettinum frá sér með fallegum og hrein-
um spyrnum
Ragnar Magnússon var dómari leiksins
og verður ekki sagt að frammistaða hans
hafi verið eins góð og efni stóðu til.
Ragnar hafði þó góð tök á leiknum, og
hélt niðri hörku sem virtist ætla að hlaupa
í hann i skefjum, án þess að þurfa að nota
til þess nein litaspjöld.
islandsmötlð 1. delld
L HEIMA UTI STIG
AKRANES 12 4 2 0 14:2 3 1 2 13:10 17
FRAM 12 4 1 1 10:7 3 0 3 7:7 15
VALUR 12 2 1 3 8:10 2 2 2 8:4 12
KEFLAVÍK 12 12 3 4:6 3 2 1 9:5 12
FH 12 3 2 1 4:4 1 2 3 4:13 12
VlKINGUR 11 3 1 1 11:4 1 2 3 2:4 11
VESTMANNAE. 12 2 2 3 9:7 0 2 3 4:13 8
KR 11 113 5:8 1 2 3 4:7 7
( £ 1 Lli ðv! Ikur mai p $ J
Þorsteinn Ólafsson IBK
Janus Guðlaugsson FH J6n Gunnlaugsson I.A
J6n Hinriksson FH
J6n Alfreðsson IA
Karl Þórðarson IA
Grétar Magnússon IBK
Teitur Þórðarson IA
Benedikt Valtýsson ÍA
Eggert Steingrfmsson Fram
Matthías Haligrímsson IA
isiandsmötið 2. delld
L HEIMA tJTI STIG
BREIÐABLIK 12 6 1 0 22:6 5 0 1 12:2 22
ÞRÓTTUR 12 5 1 0 17:6 5 0 1 9:3 21
SELFOSS 12 3 1 2 15:8 2 3 1 6:9 14
ÁRMANN 12 4 1 1 8:3 2 2 2 10:9 13
HAUKAR 12 2 1 4 9:10 2 0 3 10:11 9
VÖLSUNGUR 12 1 1 4 5:11 2 2 2 10:12 7
REYNIR 12 2 1 3 7:5 1 0 4 5:19 7
VIKINGUR 12 0 1 5 4:16 0 0 5 3:24 1